Dagblaðið Vísir - DV - 13.12.2002, Page 29
29
FÖSTUDAGUR 13. DESEMBER 2002____________________
I>V Tilvera
DV-MYND HARI
Nemendur 7. V í Alftanesskóla í heimsókn á DV
A/dfe Hulda Zoéga, Anna Gyöa Sigurgísladóttir, Anna Lilja Atladóttir, Arnór
Bjarki Arnarsson, Bjarni Hólm Þórhallsson, Eggert Aron Magnússon, Gísli
Viöar Gíslason, Guörún Eydís Jónsdóttir, Hera Dögg Hjaltadóttir, Hera Lind
Bjarnadóttir, Hrefna Hrund Ólafsdóttir, Hugrún Björk Jörundardóttir, Jóhanna
Mjöll Jóhannsdóttir, Jón Friögeir Sigurösson, Krisín Karlsdóttir, Magnús Ár-
sælsson, Sólveig Birna Júlíusdóttir, Stefán Brynjólfsson, Tómas Karl Kjart-
ansson, Vífill Valdimarsson. Kennari Valdimar Víöisson.
Sam-bíóin/Háskólabíó
- Santa Ciause 2 -*-i
Hilmar
Karlsson
skrifar gagnrýni
Jólasveinn í
eiginkonuleit
Jólasveinn og aðstoðarfólk
Listinn yfir óþekktu börnin skoöaöur.
Tim Allen, sem eitt sinn var
handlaginn heimilisfaðir, er nú
orðinn handlaginn jólasveinn
og er þetta í annað sinn sem
hann leikur sjálfan jólasvein-
inn, Það er að segja þann amer-
íska. Ég efast um að honum
fyndist það fysilegur kostur að
leika íslenska jólasveininn,
enda sá eða þeir með frekar
vafasama fortíð. Santa Clause 2
hefur notið mikiila vinsælda
vestan hafs og þykir þar góður
jólakostur fyrir böm. Ekki sé
ég í fljótu bragði að hún eigi mikið er-
indi við íslensk böm fyrir jólin því
fyrst og fremst er hún séramerísk og
sagan langt frá því að hafa þann æv-
intýrablæ sem jólasögur um jólasvein-
inn þurfa að hafa. í staðinn er verið
að fjalla um eiginkonuvandræði jóla-
sveinsins og leit hans að hinni full-
komnu jólasveinakonu. Þetta er svo
kryddað með tæknibrellum, sem eru
eins og vera ber í dýrum amerískum
kvikmyndum, vel unnar og ágæt til-
breyting í sykursæta sögu.
Þegar myndin hefst hefur Scott Cal-
vin (Tim Allen) verið jólasveinn í átta
ár og nýtur mikilla vinsælda hjá álf-
unum, sem vinna í jólagjafaverk-
smiðjunni. Einn dag taka samstarfs-
menn hans eftir því að ístran er farin
að rýma og skeggið að minnka.
Ástæðan er sú að til að geta haldið
jólasveinahlutverkinu þarf jóla-
sveinninn að eiga eiginkonu. Þegar
við það bætist að sonur Calvins er
kominn á lista yfir óþekku bömin þá
er ekki til setunnar boðið. Jólasveinn-
in verður aftur timabundið Scott Cal-
vin sem er ekki aðeins í eiginkonuleit
heldur einnig að bjarga syninum.
Það verður að segjast eins og er að
Santa Clause 2 er ekkert annað en fal-
legar umbúðir utan um froðu. Mynd-
in er gjörsneydd öllu sem heitir
jólastemning, fyrst og fremst vegna
þess að glansmyndin er gegnsæ. Það
verður að segja Tim Allen til hróss að
hann nær góðum tökum á jólasveina-
gervinu. Á móti kemur að hann er
stundum að slá um sig með bröndur-
um sem eiga heima í allt öðru um-
hverfi. Aðrir leikarar eru aðeins að
gera skyldu sína. Hallærislegust er
myndin í jólasveinalandinu á norður-
pólnum þar sem álfarnir líkjast tólf
ára krökkum að leika sér, krökkum
sem spila amerískan fótbolta í frítím-
um. Þetta er aðeins til að skemma
ímyndina fyrir trúgjömum börnum.
Sem jólamynd er Santa Clause 2 mis-
heppnuð. Það má svo á móti líta á
hana sem ágæta fjölskylduskemmtun
i skammdeginu, það er að segja fyrir
þá sem ekki trúa á jólasveininn.
Hilmar Karlsson
Leikstjóri: Michael Lembeck. Handrit:
Don Rhymer, Cinco Paul og Ken Daurio.
Kvikmyndataka: Adam Greenberg. Tón-
list: George S. Clinton. Aðalhlutverk:
Tim Allen, Elizabeth Mitchell, Judge Rein-
hold, Eric lloyd og Wendy Crewson.
Umhverfis-
auglýsingar
Alltaf á ferðinni
Auglýstu þar sem
fólk er flest
Eigum nokkra daga
lausa í Desember
Ferðaauglýsingarehf
Sími: 896 5551
Heitasta
búðin í
bænum !
20% afsláttur af
öllum Ijósum.
Fjöldijólatilboda
ígangi.
Oóruvísi Ijós, styttur,
myndir, rúmteppi,
diskar, púðar, ekta
mokkaskin nsjakkar.
Sigurstjarnan
í bláu húsi við Fákafen,
sími 588 4545.
Opið um helgar
og öll kvöld til jóla.