Dagblaðið Vísir - DV - 16.12.2002, Blaðsíða 2

Dagblaðið Vísir - DV - 16.12.2002, Blaðsíða 2
2 MÁNUDAGUR 16. DESEMBER 2002 JÖV Fréttir Taílendingar torvelda íslendingum að ferðast til landsins: Sérreglur um Islendinga - allir þurfa vegabréfsáritun frá og með 29. desember Taílendingar hafa hert reglur um komu íslenskra ferðamanna til landsins og gilda eftir breytinguna strangari reglur um íslendinga en aðra Norðurlandabúa. Frá og með 29. desember þurfa íslendingar vegabréfsáritun tO Taílands óháö því hvað þeir dvelja þar lengi en til þessa hefur ekki þurft áritun til 30 daga eða skemmri dvalar. „Þetta kom flatt upp á mig,“ segir Kjartan Borg, ræðismaður Taílands á íslandi, en hann fékk tilkynningu um málið fyrr í mánuðinum frá sendiráði Taílands í Kaupmanna- höfn. Sendiráðið gat ekki upplýst hvers vegna strangari reglur giltu um íslenska ferðamenn en aðra Norðurlandabúa en Kjartan á von á skýringum i vikunni. Samkvæmt upplýsingum frá Ur- vali-Útsýn eiga á þriðja hundrað Is- lendinga bókaða ferð til Taílands með ferðaskrifstofunni í janúar, febrúar og mars. Félagiö er að afla upplýsinga um stöðu málsins og um það hvemig staðið verður að því að afla vegabréfsáritana. Verður öllum farþegum sent bréf um málið á næstu dögum. Núverandi fyrirkomulag hefur ekki aðeins auðveldað íslendingum að fara í styttri ferðir til Taílands heldur einnig gert þeim kleift að dvelja þar eins lengi og þeim sýnist án vegabréfsáritunar með því að- eins að bregða sér yfir landamærin á 30 daga fresti. Kjartan Borg segir að flestir ís- lendingar fari til Taílands í nóvem- ber, desember og janúar og þetta sé því vondur tími. En hann segir að ekki séu endilega öll kurl komin til grafar í málinu. „Ég vona að þetta eigi eftir að breytast og að við fáum að vera und- ir sama þaki og hinar Norðurlanda- þjóðimar,“ segir Kjartan. „Á heima- síðu sendiráðs Taílands í Brussel er búið að taka ísland af 30-daga frílist- anum en á síðu sendiráðsins í Washington erum við enn þá inni. Þetta virðist því vera eitthvert millibilsástand og línur ekki alveg skýrar. En eins og sakir standa verð ég að svara því til að þeir sem fara til landsins 29. desember eða síðar þurfa aö verða sér úti um áritun." -ÓTG í heldur grýttan jarðveg ----------- Brian Mikkelsen, menningarmálaráð- herra Danmerkur, treystir sér ekki til mynd Tómasar Inga Olrich menntamála- ráðherra að stofna ís- lensk-danska menningarstofnun hér á landi og að íslenskir forngripir í vörslu Dana verði fluttir til lands- ins. Mbl. greindi frá. Færri fóstureyðingar Allt stefnir í að fóstureyðingum hér á landi fækki um 10% á þessu ári ef miðað er við meðaltalið árin fimm þar á undan. I nóvember höfðu 707 fóstureyðingar verið gerð- ar á höfuðborgarsvæðinu og stefnir í að þær verði innan við 800. Mbl. greindi frá. Karen og Adam dönsuðu til sigurs: Tvö gull í Ástralíu Fulltrúar íslands, Karen Björk Björgvinsdóttir og Adam Reeve úr ÍR, unnu til tvennra gullverðlauna á opna ástralska meistaramótinu í samkvæmisdönsum sem fram fór í Melbourne í Ástralíu í fyrrinótt. Þau kepptu í standard- og latin- dönsum og unnu báðar greinarnar. Mörg hundruð keppendur taka þátt í mótinu og um 50 pör kepptu í sama flokki og Karen og Adam. I samtali við þau eftir keppnina sögð- ust þau vera í sjöunda himni en keppnin hefði verið erfið þar sem keppt var í báðum greinum sama daginn. Um 5000 áhorfendur fylgd- ust með keppninni og var sigurveg- urunum ákaft fagnað, enda Adam Ástrali. Karenu og Adam hefur verið boð- ið að halda danssýningu í Tokyo þann 21. desember. Siðan munu þau eyða jólum og áramótum í Sydney, heimaborg Adams. -Gun. Hressó á dýrustu lóð landsins til sölu: Framkvæmdamenn hafa að undanförnu spurst fyrir um söluna á Hressingarskálanum við Austurstræti sem nú er auglýst til sölu. Flestum þykir ljóst að þar séu á ferðinni menn sem hugsa til _ Omar nýbyggingar, enda hef- Kristjánsson. ur nýting lóðarinnar, sem án efa er meðal allra dýrustu lóða landsins, verið með eindæmum slök. Húsið er aðallega á einni hæð en auk þess er stór garður sunnan við húsið sem nýtist ekki nema á sólríkustu dög- um. I nýjasta skipulagi er gert ráð fyr- ir 4 hæða byggingu á þessum stað. „Aðstæður hafa breyst og við vilj- um kanna hvort hægt er að selja eign- ina á verði sem við getum unað við,“ sagði séra Ólafur Jóhannsson, prestur í Grensásprestakalli, við DV en hann er formaður KFUM, eiganda Austur- strætis 20. KFUM hefur átt þessa eign í 70 ár, fékk hana í makaskiptum fyr- ir lóð á Bernhöftstorfunni sem þá stóð tO að rífa og byggja stjórnarráðshús á lóðinni. „Þetta hús hefur lengi verið fjárhagslegur bakhjarl okkar starfs,“ sagði séra Ólafur í gærkvöld. Ómar Kristjánsson er gjaldkeri KFUM. Hann sagði í gærkvöld að ekki skorti áhugann á að leigja eða kaupa Austurstræti 20. Hins vegar treysti KFUM sér ekki til að gerast leigusali ölkráarreksturs, slíkt væri ekki við hæfi. En svo virtist sem allt laust hús- næði i miðborginni færi undir slikan rekstur í dag. Ómar sagði lóðina og mannvirkið gríðarlega mikil verð- mæti. Húsið er meira en 100 ára gam- alt og er á skrá yfir friðuð mannvirki. En innviðir hússins, sem og annað byggingarefni, er frá síðari timum. - Gulltllþrlf á dansgólfinu Karen Björk Björgvinsdóttir og Adam Reeve úr ÍR unnu til tvennra gullverö- launa á opna ástralska meistaramótinu í Ástralíu í fyrrinótt. Undirritun samnings um sölu á hlut ríkis í Búnaðarbankanum: Frestað fram yfir áramót Undirritun kaupsamn- ings vegna kaupa S-hópsins á 45,8% í Búnaðarbanka ís- lands hefur verið frestað fram yfir áramót. Ólafur Davíðsson, formaður einka- væðingarnefndar, segir að málið allt heifi reynst tíma- frekara en ráðgert var; ekki sé hægt að nefna eitt atriði öðrum fremur i því sam- bandi. Nú fari jólin senn í hönd og því hafi verið ákveðið að stefna að undirritun fyrir 21. janúar en ekki fyrir árslok eins og stefnt var að. Áður hafði því verið frestað um viku að tilkynna hvaða erlendir fjárfestar muni eiga aðild að kaupun- um. Umsamið kaupverð er ríflega 11,9 milljarðar króna. Kaupendur eru Vátrygginga- félag Islands, Samvinnulíf- eyrissjóðurinn og eignar- haldsfélagið Egla, sem er í eigu Samvinnutrygginga ehf. og Kers (áður Olíufélagsins), auk þess sem ein eða fleiri erlend fjármálastofnun mun koma að félag- inu. Þvi hefur verið haldið fram að S- Ólafur Davíösson. hópurinn eigi fullt í fangi með að fjármagna kaupin. Heimildamenn DV telja að frestunin nú þurfi ekki endilega að fela í sér staðfestingu á slikum fullyrðingum; líklega sé ein- faldlega tímafrekara að semja við hóp kaupenda sem eigi í samstarfi við stóra erlenda fjármálastofnun. Ákvarðanatökuferli og boðleiðir hijóti að vera þar lengri en til dæm- is hjá Samson, eignarhaldsfélagi kaupenda að hlut ríkisins í Lands- bankanum. Ólafur Davíðsson segir stefnt að því að ganga frá kaup- samningi við Samson fyrir jól. -ÓTG KFUM vill ekki leigja undir ölkrár Alaiörleaa bríllíant 3 ^3 Súsanna Svavarsdóttii Súsanna Svavarsdóttir / STÖÐ 2 „Bókin er svo vel skrifuð og flott fléttuð, Súsanna Svavarsdóttir / STÖÐ 2 „Fantavel skrifuð, úthugsuð og útpæld .. hans besta bók fram til þessa." Sigríöur Albertsdóttir / DV „Einn af stærstu og yngstu höfundum fslands. Fylgist með honum." DANSKA RlKISÚTVARPIÐ „Mikael tekst firnavel upp ... full af krafti og Iffi... hressandi að lesa bækur sem eru jafnlausar við tepruskap" Kristín Heiöa Kristinsdóttir MORGUNBLAÐIÐ JPV ÚTGÁFA Bræðraborgarstíg 7 • Síml 575 5600 ÍSLENS BÓKMLNi KU \’1A VI Rj0l.AU íslenskukennsla vestra Islenskukennsla hefst í janúar- byrjun á bandarísku sjónvarpsstöð- inni Scola sem er einungis með fræðsluefni á dagskrá sinni. Mbl. sagði frá. Flýja Frón yfir jólin Fjöldi íslendinga leggst í ferðalög um jól og nýár og segja forsvars- menn ferðaskrifstofanna fjölgun á ferðum fólks til útlanda um jólin frá þvi i fyrra. Flestir fara til Kanarí- eyja, eða á annað þúsund manns. Mbl. greindi frá. A5 bjarga Guðrúnu Tuttugu norskir kafarar og fjórtán íslendingar vinna að því að koma skipinu Guðrúnu Gísladóttur á flot en skipið liggur á hafsbotni við strendur Noregs. Verðleggi upplýsingar Rikisstjómin hefur samþykkt til- lögu fjármálaráðherra um aö samið verði lagafrumvarp um verðlagn- ingu opinberra upplýsinga. Deila hart á Selfossi Úrskurður Héraðsdóms Suður- lands um að heimila lögmanni Landsafls (félag sem tengist BYKÓ) að yfirheyra vitni fyrir dómi áður en mál er höfðað vegna lóðakaupa Húsasmiðjunnar á Selfossi hefur verið kærður til Hæstaréttar. RÚV greindi frá. Fagnar útboði Þórir Bjöm Kolbeinsson, formað- ur Félags heimilislækna, fagnar þeirri ákvörðun heilbrigðisráðherra að bjóða út rekstur nýrrar heilsu- gæslustöðvar í Kópavogi. Honum finnst hugmyndin um afkastatengd- ar tekjur frá ríkinu eðlileg. Verðbólga úr böndunum? aGuðmundur Gunn- arsson, formaður Raf- iðnarsambands ís- lands, óttast að boðað- ar verðlags- og skatta- hækkanir sveitar- stjórna og ríkis leiði til þess að verðbólgan fari úr böndunum. Sambandið og Efling stéttarfélag mótmæla harð- lega iðgjaldahækkunum bruna- trygginga. I ályktun Eflingar er fullri ábyrgð lýst á stjómvöld og fyr- irtæki sem gangi fram fyrir skjöldu með verðhækkunum á þessum tíma. RÚV greindi frá -hlh Haldið til haga I umfjöllum um vínin með jólamatnum á bls. 31 í helgarblaði DV misrituðust nöfn tveggja víninnflytjenda. I stað allied doneq átti að standa Allied Domeq en það er nafn eins stærsta vínfyrirtækis í heimi. I stað RSC átti síðan að standa RJC en sú skammstöfun stendur fyrir Rolf Johansen & Company.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.