Dagblaðið Vísir - DV - 08.03.2003, Page 2

Dagblaðið Vísir - DV - 08.03.2003, Page 2
2 LAUGARDAGUR 8. MARS 2003 Fréttir DV Kristinn H. um meint afskipti af kaupum banka í deCODE: Held því ekki fram að ríkis- stjórn hafi gefið fyrirmæli Hörð viðbrögð hafa verið við þeim ummælum Kristins H. Gunn- arssonar, þingflokksformanns Framsóknarflokksins á Alþingi í fyrradag, að kaup þriggja banka í eigu ríkisins á hlutabréfum í deCODE fyrir um 6 mifljarða króna sumarið 1999 séu dæmi um aögerö sem stjómvöld hafi gripið til í atvinnumálum höfuðborgar- svæðisins. Kristinn segist ekki hafa verið að halda því fram að fyr- irmæli hafi komið frá ríkisstjóm um kaupin. Ummæli hans vora hins vegar lögö út á þann veg - bæöi á Alþingi og í fjölmiðlum - að ríkisstjómin hefði tekið ákvörðun um kaup bankanna á þessum bréfum og segja má að það virðist vissulega felast í orðum hans. í gærmorgun sagði Fréttablaðið í fyrirsögn um ummæli Kristins: „Segir stjóm- völd hafa ákveðið kaup í deCODE.“ Loðnukvótinn aukinn: Mestu uiagni landaö í Neskaupstað aSjávarútvegs- ráðherra, Árni M. Mathiesen, hefur ákveðið að eftir mæl- ingu fyrir Suð- austurlandi verði loðnu- kvóti íslensku Árni M. skipanna auk- Mathiesen. inn í 765.000 lestir eða um 50.000 tonn. Endanleg ákvörðun um kvóta loðnuvertíðarinnar verður tekin að lokinni athugun rannsóknarskipsins Áma Frið- rikssonar sem er nú við rann- sóknir fyrir Vestfjörðum. Leið- angrinum lýkur um þessa helgi. Samkvæmt þessari viðbót eru nú óveidd um 86 þúsund tonn af loðnu. Mestu hefur verið landað hjá Síldarvinnslunni í Neskaup- staö eða 62.000 tonnum, 59.000 tonn hafa komið til SR-mjöls á Seyðisfirði, 51.000 tonn til Hrað- frystihúss Eskifjarðar, 48.000 tonn til Samherja í Grindavík, 33.000 tonn til ísfélags Vest- mannaeyja, 29.000 tonn til Har- aldar Böðvarssonar á Akranesi, sem nú er hluti af Brimi, útgerð- arsamsteypu Eimskips, 28.000 tonn til Vinnslustöðvarinnar í Vestmannaeyjum og svipað magn til Krossanesverksmiðjunn- ar við Akureyri sem er í eigu ís- félags Vestmannaeyja. -GG Fráleitt Valgerður Sverrisdóttir viðskiptaráð- herra segir þetta fráleitt. „Þetta er mikill mis- skilningur. Það er fráleitt að tala um að stjórn- völd hafi staðið fyrir þessum kaupum," segir Valgerður. „Þó svo að þarna hafi verið um það að ræða að bankar sem voru í eigu ríkisins hafl fjárfest þá var um hlutafélög að ræða. Samkvæmt lögum fer stjórn eða bankaráð með daglegan rekstur þeirra og mótar fjárfestingarstefnuna en ekki ríkisstjórn eða ráðherrar. Þannig að þetta er bara byggt á misskilningi." Valgerður segist raunar hafa Landsþing Frjálslynda flokksins var sett á Hótel Sögu í gær. Eftir ræðu formannsins, Sverris Her- mannssonar alþingismanns, var formlega opnuð ný heimasíða Frjálslynda flokksins, www.xf.is. Á laugardag munu málefnahópar starfa, almennar umræður fara heyrt Kristin halda þessu fram áður: „Ég taldi mig hafa leiörétt þetta við hann. Þetta er því væg- ast sagt misskilningur," segir Val- gerður en segist ekki ætla að taka málið upp við Kristin. Ekki fyrirmæli í samtali við DV í gærkvöld sagði Kristinn að hann hefði nefnt kaupin á Alþingi sem dæmi um upp- byggingu at- vinnulífs á höf- uðborgarsvæð- inu sem ríkis- stjórnin hefði beitt sér fyrir. „Það er ljóst að þeir sem tóku ákvörðunina í bönkunum gáðu að því hver vilji eigandans var áður en þeir tóku ákvörðunina," segir fram, kosningar og loks afgreidd stjómmálaályktun flokksins. Eitt framboð hefur borist til formanns, frá Guðjóni Amari Kristjánssyni, þingmanni á Vestfjörðum. Margrét Sverrisdóttir, fram- kvæmdastjóri flokksins, segir að framboðslistar flokksins hafi ver- Kristinn. „Það liggur fyrir hver vilji stjórnvalda var. Þau vildu byggja þessa starfsemi upp - það kemur fram í framvörpum til laga um gagnagrunn á heilbrigðissviði og síðar í frumvarpi um ríkis- ábyrgð vegna nýrrar starfsemi fyrirtækisins. Ríkið átti meiri- hluta í öllum bönkunum og það voru fulltrúar ríkisins þar sem tóku þessar ákvarðanir." Kristinn segist ekki halda því fram að ákvörðunin hafi veriö tek- in í ríkisstjóm. „Nei, ég sagði ekki í þinginu að bankarnir hefðu feng- ið fyrirmæli um þetta. Fyrirsögn Fréttablaðsins er röng hvað það varðar. Ég tók ekki svona til orða. Ég sagði að stjómvöld hefðu haft þá stefnu að byggja upp þetta fyr- irtæki og þeir sem tóku ákvörðun- ina í bönkunum hafa gáð að því hvað eigandinn vildi.“ -ÓTG ið samþykktir og lagðir fram í Suðurkjördæmi og Norðvestur- kjördæmi en á þinginu verði fram- boðslistar í hinum fjórum kjör- dæmunum lagðir fram. Þar með muni frambjóðendur Frjálslynda flokksins hella sér af fullum krafti út í kosningabaráttuna. -GG Gaumur eykur hlut sinn: Jón Ásgeir tekur sæti í stjóru Flugleiða Jón Ásgeir Jóhannesson, forstjóri Baugs, __ ^PI tekur sæti í ÍMfr & pj stjórn Flugleiða I Á $ \ £] þar sem Fjár- I festingarfélagið I^É M Gaumur, auk fé- laga er tengjast Jón Ásgeir því, hefur eign- Jóhannesson. ast 19,2% hlut í Flugleiðum. Frá þessu var greint í kvöldfréttum RÚV í gær. Gert er ráð fyrir að Gaumur fái tvo fulltrúa í stjórn á aðalfundi Flugleiða sem haldinn verður næstkomandi þriðjudag. Ekki liggur ljóst fyrir hver hinn fulltrúinn verður. Gaumur og tengd félög munu fyrst hafa keypt um 7% hlut í fyrra og nokkram dögum síöar önnur 4%. Undanfama daga hafa félögin enn aukið eignarhlut sinn í félaginu og mun Gaumur nú eiga um 15% hlut og önnur tengd félög tæp 4%. Afkoma Flugleiða var gríðar- lega góð í fyrra og fengu fimm æðstu stjórnendur fyrirtækisins tuttugu milljóna króna kaupauka samkvæmt samningum um af- komutengd laun. -Kip ---- Ófopmlegir fundir um um varnapsammnginn Gildistími vamarsamnings milli íslands og Bandaríkjanna og starfsemi Bandaríkjahers á Keflavíkur- flugvelli rann út fyrir tveimur Halldór árum en bókun Ásgrímsson. sem gerð var árið 1996, til hliðar við varnarsamninginn, var til 5 ára. Sturla Sigurjónsson, skrifstofustjóri varnarmálaskrif- stofu utanríkisráðuneytisins, seg- ir að óformlegir fundir hafi verið haldnir milli landanna en engir fundir ráðherra. „Það er margt sem hefur valdið þessari töf. Fyrst voru það for- setaskipti í Bandaríkjunum og því fylgja skipti á öllum æðstu embættismönnum í varnarmála- ráðuneyti Bandaríkjanna, sem og utanríkisráðuneytinu. Síðan komu atburðirnir 11. september 2001 í New York í kjölfarið og allt sem því hefur fylgt svo þetta hef- ur allt drégist á langinn. Halldór Ásgrímsson utanríkis- ráðherra hefur sjáifur sagt að þetta mál sé á sjóndeildarhringn- um sem þarf ekki að koma á óvart vegna þess að bókunin er útrunnin. En þrátt fyrir það hafa menn starfað á grundvelli bókun- arinnar frá 1996,“ segir Sturla Sigurjónsson. Sturla segir engan fund um framhald gildistíma vamarsamn- ingsins hafa verið dagsettan. -GG Landsþing Frjálslynda flokkslns Sverrir Hermannsson, fráfarandi formaöur Frjálslynda flokksins, Guöjón Arnar Kristjánsson, veröandi formaöur, og Pétur Bjarnason ræöa málin á fundinum i gær. Framboðslistar lagðir fram á þhginu Kristlnn H. Gunnarsson. Stuttar fréttir Tæpar 15 milljónir í árslaun Einar Sveins- son, forstjóri Sjó- vár-Almennra, hafði tæpar fimmt- án milljónir í árs- laun á síðasta ári. Það gera rúmar 1.200.000 á mánuði en auk þess naut forstjórinn bifreiðahlunninda. Þá hefur hann kauprétt að bréfum fé- lagsins fyrir um 19 miljónir króna á tiltölulega háu gengi sé miðað við undanfarin misseri. Launin eru ekki afkomutengd. RÚV greindi frá. Samskiptaleysi Upplýsingastreymi frá Hval- fjarðargöngum til neyðarlínu var ábótavant í fyrrinótt þegar göngin fylltust af reyk. Kannað verður hvemig hægt er að styrkja þetta upplýsingastreymi. Fráleitar dylgjur Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, fyrr- um borgarstjóri, segir kaup Reykja- víkurborgar á Stjömubiósreitn- um hafa verið full- komlega eðlileg. Það að eitthvað óhreint hafí verið við lóðakaupin séu gamlar og fráleitar dylgjur sjálfstæðismanna. Tvær fasteigna- sölur hafi metið lóðina til verðs og seljandinn hafi ekki haft hugmynd um hver átti tilboð borgarinnar. RÚV greindi frá. Peningar til táknmálstúlkunar Ríkisstjórnin samþykkti á fundi sínum í gær að leggja fram fjórar milljónir til táknmálstúlkunar. Gert er ráð fyrir að Samskipta- miðstöð heymarlausra ráðstafi fénu. í frétt RÚV sagði að af þeim 22 milljónum sem Scunskiptamið- stöðin fékk í fyrra voru 3 milljón- ir fengnar af ráðstöfunarfé ríkis- stjómar. .aþ Haldið til haga Missagt var hjá Snorra Krist- jánssyni hjá Verslunarmannafé- lagi Reykjavíkur í DV vegna launabaráttu ungrar stúlku við Keiluhöllina að leiðrétting launa hennar hefði átt að koma til á fimmtudegi. Skv. samtali hans við launafulltrúa Keiluhallarinnar 27. febrúar sl. átti leiðrétting launa að koma til á föstudegi en ekki fimmtudegi. Snorri hefur beðið blaðið að koma þessari leiðrétt- ingu á framfæri. -JSS

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.