Dagblaðið Vísir - DV - 13.06.2003, Blaðsíða 9

Dagblaðið Vísir - DV - 13.06.2003, Blaðsíða 9
FÖSTUDAGUR 13.JÚNÍ2003 FRÉTTIR 9 Um 13% aukning í bílasölu Fyrstu viku júnímánaðar seldust 420 bílar hérlend- is og virðist ekkert lát vera á aukningu í bílasölu hérlendis. Frá áramótum til ö.júní sl.seldust 4.252 bílar,en á sama tíma í fyrra seldust 3.768 bílar, Aukningin er því 13% milli ára. Eins og oft áður eru Toyota-bílar langsamlega söluhæstir,en á þessu ári hafa selst 1.244Toyota- bílar. Síðan kemurVolkswagen með 399 bíla, Hyundai með 285 bíla, Nissan með 261 bíl og Subaru með 225 bíla. Ferð fyrir 7 á landsleik gegn Þjóðverjum (tilefni landsleikja (slands og Þýskalands, sem fram fara í haust, hafa Hekla, lcelandair og KS( hafið samstarf um„Touran landsleikinn". Þessi skemmti- legi leikur fer fram í tengslum við kynningu Heklu hf.á Volkswagen Touran, nýjum 7 manna bíl frá Volkswagen. Með reynsluakstri á Volkswagen Touran gefst þátttakendum kostur á að setja nafn sitt í pott sem dregið verður úr 6. sept- ember á heimaleik Islands og Þýskalands á Laugardalsvellin- um. Þar sem Touran er sjö manna bíll hlýtur vinningshaf- inn ferð fyrir sjö manns til Þýskalands á lokaleik íslands í undankeppni EM, miða á leik- inn og gistingu fyrir hópinn. Leikurinn fer fram 11. október í Hamborg. Auk þessa hefur nú verið gefið út glæsilegt plakat með mynd af landsliðsmönnum Islands og hinum nýja Volkswagen Tour- an og geta allir sem koma í heimsókn til Heklu eða í næsta söluumboð Heklu fengið plakatið. RISAGJALDÞROT: Ekkert fékkst upp í forgangskröfur og almennar kröfur í hundraða milljóna króna gjaldþroti Thermo Plus í Reykjanesbæ. Hundruð milljóna glötuðust Skiptum er nú lokið í þrotabúi Thermo Plus Europe á íslandi sem starfrækt var í Reykjanesbæ. Fyrir- tækið var tekið til gjaldþrotaskipta í Héraðsdómi Reykjaness 11. apríl 2001. Þar var Stefán Bj. Gunnlaugs- son hdl. skipaður sldptastjóri og hefur hann nú skilað af sér. Sam- kvæmt úthlutunargerð úr þrotabú- inu greiddust 2.842.771 króna upp í skuldir, en lýstar veðkröfúr voru alls að fjárhæð 18.998.623 krónur. Ekk- ert greiddist upp í forgangskröfur og almennar kröfúr sem voru samtals upp á 244.195.119 krónur. Ekkert fékkst heldur upp í vexti og annan kostnað. Fjöldi einstaklinga tapaði milljón- um króna eftir að hafa keypt hluta- bréf í fyrirtækinu á uppsprengdu markaðsverði. Upplýst hefur verið um mjög vafasama viðskiptahætti, m.a. stjómarformanns sem var einnig háttsettur innan Hvíta- sunnukirkjunnar. Er tap hluthafa í heild talið nema hundmðum millj- óna króna og urðu sumir þeirra per- sónuiega gjaldþrota í kjölfarið. Stjómendum, undir forystu írans Tom Roseingrave, tókst að skapa miklar væntingar og gerðar vom glæsilegar áætlanir um heimsyflrráð í kælitækjaframleiðslu. Fékk hann til liðs við sig virt fyrirtæki og stofnanir hér á landi. Hann náði einnig yfir- ráðum yfir Thermo Plus í Kanada sem líka varð gjaldþrota. Þrátt fyrir ítrekaðar beiðnir hlut- hafa og fýrmm stjómenda um rann- sóknir á meintum fjársvikum og óeðlilegri fjármálaumsýslu hafa engar fregnir borist af rannsókn ís- lenskra yfirvalda á málinu - né af rannsókn vegna meints þjófnaðar af lager dótturfélagsins í Englandi upp á 70 milljónir króna og á öllum tölvubúnaði Thermo Plus England. hkr@dv.is Beðið eftir kærunni „Við höfum ekkert heyrt meira frá lögreglu eða öðmm um fram- hald þessa máls og emm því í hálf- gerðri biðstöðu. Það þýðir lítið annað en að halda ró sinni og taka svo því sem að höndum ber,“ segir Guðjón Reynisson, framkvæmda- stjóri 10-11, um eftirmál þess þegar verslunum var lokað á hvítasunnu- dag. Guðjón segir að nú sé dottið á dúnalogn eftir moldviðri síðustu daga. „Þetta hefur greinilega hrist upp í fólki og það var gaman að fylgjast með því hvernig þjóðin tók sig til og ræddi þessi frídagamál í nokkra daga. Ég held að flestir séu á þeirri skoðun að nauðsynlegt sé að endurskoða löggjöfina til að jafna samkeppnisstöðu fyrirtækja." Fólk hefur mikið spjallað um þessi mál við starfsfólk. „Flestir hafa lýst yfir stuðningi við okkar málstað, sem okkur finnst að sjálf- sögðu mjög ánægjulegt," segir Guðjón. kja@dv.is 340 gr TEN-CATE BÓMULLARDÚKUR TVOFOLD EINANGRUN GEYMSLUHÓLF UNDIR RÚMI 1 3" DEKK OG UPPHÆKKAÐUR 740 Kg FLEXITOR EINFALDUR OG LÉTTUR Verið velkomin I 90 ára afmæli Seglagerðarinnar sem við höldum hátiðlegt þessa helgi. Af því tilefni bjóðum við tjaldvagninn Ægi á einstöku tilboðsverði. Ægir er einstaklega léttur og þægilegur í meðförum. Það er mjög fljótlegt að tjalda honum, auðvelt að ferðast með hann og svo er hann líka svo rúmgóður. í Ægi er þægileg 4-6 manna svefnaðstaða. \&v>ag n9/ SEGLAGERÐIN ÆGIR EYJARSLÓÐ 7 101 REYKIAVÍK SÍMI 511 2203 seglagerdin@seglagerdin.is www.seglagerdin.is tómstundir og afþreying 550 5000

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.