Dagblaðið Vísir - DV - 13.06.2003, Blaðsíða 12

Dagblaðið Vísir - DV - 13.06.2003, Blaðsíða 12
12 FRÉTTIR FÖSTUDAGUR 13.JÚNÍ2003 Útlönd Heimurinn í hnotskurn Umsjón:Guðlaugur Bergmundsson og Kristinn Jón Arnarson Netfang: gube@dv.is / kja@dv.is Sími: 550 5829 Gregory Peck látinn HOLLYWOOD: Bandaríski kvik- myndaleikarinn Gregory Peck lést á heimili sínu í gærmorg- un, 87 ára að aldri. Peck var í hópi virtustu og mestu leikaranna á gullöld Hollywood og lék í miklum fjöida mynda, þar á meðal To Kill a Mockingbird. Aðeins fáeinum dögum fyrir andlát Pecks úrskurðaði Bandaríska kvikmyndastofn- unin að hugsjónamaðurinn og lögmaðurinn sem hann lék í To Kill a Mockingbird væri mesta kvikmyndahetja allra tíma. Fyrir túlkun sína á lög- manninum fékk Peck ósk- arsverðlaunin 1963. Frönsk eiginkona Pecks til 48 ára var við hlið hans þegar hanngafuppöndina. Gregory Peck byrjaði að leika i kvikmyndum á fimmta áratug síðustu aldar og afar sjaldan lék hann annað en góða gæj- ann.Siðferðisþrek og einlægni urðu fljótlega aðalsmerki hans, bæði uppi á hvíta tjald- inu og í einkalífinu. Hinn hávaxni Peck fæddist í Kaliforníu og íhugaði um tíma að læra til prests. r- \ lá i jpi1*' Boðar stríð gegn Hamas ísraelsk stjórnvöld boðuðu í morgun að þau myndu heyja stríð við palestínsku harð- línusamtökin Hamas þar til yfir lyki. Á sama tíma birtist skoðanakönnun sem leiðir í Ijós að drjúgur meirihluti ísraelskra borgara er andvíg- ur auknum árásum á leiðtoga Hamas. Vegvísirinn svokallaði að friði fyrir botni Miðjarðarhafs, sem Ge- orge W. Bush Bandaríkjaforseti þrýstir mjög á að verði hrint í fram- „Konur ykkar og börn og eiginmenn eru nú skotmörk. Við verðum að bregðast við/'sagði Mahmoud al-Zahar, háttsettur foringi innan Hamas. kvæmd, er í algjöru uppnámi eftir að 38 manns liggja í valnum í kjöl- far átaka ísraelska hersins og Palestínumanna undanfarna tvo daga. Bush hefur því ákveðið að senda gamalreyndan stjórnarer- indreka, John Wolf, til fsraels um helgina til að reyna að stemma stigu við blóðbaðinu. Harma dauða barnsins ísraelar héldu uppi þrýstingi sín- um á Hamas í gær með flugskeyta- árásum úr þyrlum á Gaza. Sjö manns féllu í þeim árásum, þar á meðal háttsettur leiðtogi Hamas, eiginkona hans og eins árs gömul dóttir. Að verkinu loknu sendi herinn frá sér yfírlýsingu þar sem dauði annarra úr fjölskyldu leiðtogans var harmaður. Hamas-Iiðar hétu að ná fram hefndum á ísraelum. „Konur ykkar og börn og eigin- menn eru nú skotmörk. Við verð- um að bregðast við," sagði Ma- hmoud al-Zahar, háttsettur foringi innan Hamas. Nærri Vesturbakkaborginni Jen- in skutu pafestínskir vfgamenn ísraelskan mann sem var að kaupa viðarkol í palestínsku þorpi. Þá skutu ísraelskir hermenn tvo palestínska harðlínumenn. Á þriðja tug manna féll í sjálfs- morðsárás á strætisvagn í Jerúsal- em og f hefndarárásum ísraelskra herþyrlna á Gaza á eftir. Daginn áð- ur höfðu Israelar reynt að ráða Hamas-leiðtogann Abdel-Aziz al- Rantissi af dögum á Gaza. Skoðanakönnun sem ísraelska dagblaðið Yedioth Ahronoth birtir í morgun sýnir að 67 prósent ísra- elsku þjóðarinnar vilja að bundinn verði endi, að minnsta kosti tíma- Bandarísk stjórnvöld kenna Hamas um vax- andi átök Paiestínu- manna og ísraela. Ari Fleischer, talsmaður Hvíta hússins, sagði að áframhaldandi ofbeldis- verk væru ekki ísraelum að kenna, né heldur palestínsku heimastjórn- inni, heldur Hamas. bundinn, á það sem kallað var í könnunni „aftökustefna", það er að taka leiðtoga palestínskra harð- línuhópa af lífi án dóms og laga. Meirihluti ísraelsku þjóðarinnar vill að Mahmoud Abbas, forsætis- ráðherra Palestínumanna, fái tæki- færi til að styrkja stöðu sína meðal landsmanna sinna. Bandarísk stjórnvöld kenna Hamas um vaxandi átök Palestínu- manna og ísraela. Ari Fleischer, talsmaður Hvíta hússins, sagði að áframhaldandi ofbeldisverk væru ekki ísraelum að kenna, né heldur palestínsku heimastjórninni, held- ur Hamas. Hann lýsti samtökunum sem hryðjuverkasveit sem væri staðráðin í að gera friðarumleitan- irnar að engu. „Málið snýst um Hamas. Hryðju- verkamennirnir eru Hamas-liðarn- ir,“ sagði Fleischer. Colin Powell, utanríkisráðherra Bandarfkjanna, hefur talað við fjölda leiðtoga í þessum heims- hluta og hvatt þá til að koma í veg fyrir að fjármagn berist til Hamas. Vegvísirinn að friði kveður á um að deilendur slíðri sverðin og að palestínskt ríki verði stofnað 2005. FORSETINN FELLUR: Bush Bandaríkjaforseti prófaði Segway-hlaupahjól á heimili föður síns (gær en tókst ekki betur til en svo að hann datt af graejunni. Nú velta menn því hins vegar fyrir sér hvort hafi runnið á rassinn, Hvíta húsið eða CIA, þegar Bush vitnaði (fölsuð gögn um úraníumkaup Iraka (stefnuræðu sinni í janúar. Ljóst er að fjöldi starfsmanna CIA vissi að þau væru fölsuð en vissu starfsmenn forseta það? Fölsuð gögn um úraníum- kaup íraka valda deilum Bandaríska leyniþjónustan og Hvíta húsið benda hvort á annað Bandaríska leyniþjónustan CIA neitar ásökunum um að notkun bandarískra stjórn- valda á fölsuðum upplýsing- um í aðdraganda Írakstríðs- ins sé stofnuninni að kenna. Talsmaður CLA segir að ef farið er vandlega yflr skjöl, sem stofnunin héfur afhent nefndum sem rann- saka aðdraganda stríðsins, komi í ljós að CLA hafi „ekki haldið upplýs- ingum frá réttum aðilum." Eins og fram kom í DV í gær hef- ur CLA verið ásökuð um að hafa ekki sagt Bandaríkjastjórn frá því að gögn sem bentu til þess að írak hefði reynt að kaupa úraníum frá Afríkuríkinu Níger væru nær örugg- lega fölsuð. Stjómin nýtti síðar gögnin sem eina af ástæðunum fyr- ir því að ráðist var inn í frak. Meðal annars minntist Bush forseti á þau í stefnuræðu sinni 28. janúar síð- asdiðinn - löngu eftir að CLA hafði vitneskju um að þau væm fölsuð. Fleischer og Rice ósammála Samstarfsmenn Bush forseta töl- uðu ekki einum rómi þegar þeir vom spurðir út í þetta mál. Ari Fleischer, talsmaður Hvíta hússins, sagði að starfsmenn CLA neituðu þessum ásökunum þar sem upp- lýsingunum hefði verið komið á framfæri. Condoleezza Rice, þjóðarörygg- isráðgjafi Bandaríkjanna, sagði hins vegar að starfsmenn Hvíta hússins hefðu haldið að upplýsing- arnar væm sannar þegar Bush nefrídi þær í stefnuræðu sinni. „Einhver gæti hafa vitað“ að gögnin væm fölsuð en Bush sagði þó ein- ungis í stefrmræðu sinni „það sem fulltrúar leyniþjónustunnar sögðu að mætti segja,“ að sögn Rice. Bretar opinberuðu gögnin Gögnin um meint úraníumkaup Iraka urðu fyrst opinber í september 2002 þegar minnst var á þau í skýrslu Tonys Blairs um frak. Bandaríkjastjóm var þá fljót að grípa fullyrðingar um þessi mál á lofti þó að starfsmenn leyniþjónust- unnar hefðu þegar verið búnir að rannsaka málið og komast að þeirri niðurstöðu að gögnin væm fölsuð. Reuters-fréttastofan hefur það eftir einum sérfræðingi Bandaríkja- stjórnar um kjarnorkuvopn að hon- um hafí verið sagt í september að nota ekki gögnin um úraníumversl- un fraka og Níger í bandarískri skýrslu um kjarnavopn íraka.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.