Dagblaðið - 12.09.1975, Síða 12
12
Dagblaðið. Föstudagur 12. september 1975.
I?
Eins og við sögðum frá um dag-
inn var Sölvi óskarsson, þjálfari
Þróttar, sendur i rakstur. Hann
hafði heitið þvi að raka sig ekki
fyrr en Þróttur væri i 1. deild.
Hjátrú iþróttamanna er oft
skemmtileg og um leið furðuleg.
Þróttarar áttu sin „lukkutröll” i
sumar, þ.e. skeifu, búninginn
hans Sölva og húfuna. Ef eitthvað
af þessu var ekki til staðar var
voðinn vis.
t einum af fyrstu leikjunum i 2.
deild i sumar, gegn Armanni
gleymdi Sölvi skeifunni og Þrótt-
ur tapaði 0-2.
Siðan var leikið gegn Selfossi og
i það skiptið gleymdi Sölvi bún-
ingnum sinum og Þróttur tapaði
sinu 3ja stigi. Nú, svo kom hver
sigurleikurinn á fætur öðrum og
alltaf hafði Sölvi „lukkutröllin”
meðferðis.
En viti menn, i siðasta leiknum
— Urslitaleiknum gegn Breiða-
bliki — gleymdi Sölvi húfu sinni
Vertíðarlok stórng
móta í frjólsum!
— verða um helgina, þegar „Reykjavík - Landið" leiða
saman hesta sína ó Laugardalsvelli
Siðasta stórmót ársins hér á
landi i sumar i frjálsum iþróttum
verður um helgina á Laugardals-
velli. Þá keppir bezta frjáls-
iþróttafólk Reykjavikur við bezta
frjálsiþróttafólk landsbyggðar-
innar i stigakeppni. Sami út-
reikningur verður hafður á og i
bikarkeppninni i sumar — sex
stig fyrir fyrsta sæti, siðan 5-4-3-
íþróttir
ogauðvitað tapaði Þróttur 1-4. En
sagan er ekki öll! í leiknum á
móti IBV gleymdi Sölvi húiunni
inni i búningsklefa og er rúmar
tuttugu minútur voru af leik var
hún sótt i snatri. Þurfum við
nokkuð að segja frá þvi, að Þrótt-
ur skoraði um leið!
Gleyminn maður hann Sölvi. Á
mynd Björgvins að ofan er Villi
Þó.r að byrja að raka skeggið
mikla af Sölva á hársnyrtistofu
sinniISiðumúla. —4ih
2-1. Þrir keppa frá hvorum aðila i
hverri grein.
Það var að forgöngu formanns
Frjálsiþróttasambands Islands,
Amar Eiðssonar, að efnt er til
þessarar keppni. Veg af undir-
búningi hafa haft Guðmundur
Þórarinsson og Stefán Jóhanns-
son af hálfu Reykjavikur, en
Sigurður Geirdal og Hafsteinn Jó-
hannesson af hálfu landsbyggðar-
innar. Það þarf ekki að efa, að
keppni þessi verður skemmtileg
og tvisýn, en siðast þegar slik
keppni var háð — árið 1971 —
vann landsbyggðin. Valur Fann-
ar, gullsmiður, hefur gefið vand-
aðan verðlaunagrip, sem keppt
verður um, en aðrar viður-
kenningar verða oddfánar, sem
allir keppendur og starfsmenn
mótsins fá.
Keppendur hafa verið valdir i
einstakar greinar og nær allir
beztu frjálsiþróttamenn landsins
og konur verða þar meðal þátt-
takenda. Má þar nefna hjá
Reykjavik Erlend Valdimarsson,
Öskar Jakobsson i köstunum,
Sigurð Sigurðsson, Bjarna
Stefánsson, Stefán Hallgrimsson I
spretthlaupum, Ágúst Ásgeirs-
son, Július Hjörleifsson, Sigfús
Jónsson I langhlaupum, og Frið-
rik Þór Öskarsson, Elias Sveins-
son, Valbjöm Þorláksson I stökk-
unum.
Hjá landsbyggðinni eru margir
knáir kappar — Hreinn Halldórs-
son, Jón Diðriksson, Karl West
Þú baðst föður minn' Já, og þó ég sé
að leyfa mér að J ekki á sama
máli og hann, skiís
éghann.
Þú verður eftir og tekur próf sem arkitekt
og þegar við komum aftur verður þú; '
betri leikmaöur )
Hvað mein- TGóður lögfræðingur
arðu? r'reyndist þú vera!! U
Fredriksen, Guðni Halldórsson,
Sigurður Sigmundsson.
Hjá konum verður mikil keppni
— þar keppa fyrir Reykjavik
meðal annars Erna Guðmunds-
dóttir, Lára Sveinsdóttir og
Ingunn Einarsdóttir, en fyrir
landsbyggðina Ragnhildur Páls-
dóttir, Björg Ingimundardóttir og
Guðrún Ingólfsdóttir svo nokkur
nöfn séu nefnd.
„Keisarinn” varð þritugur i
gær — Franz Beckenbauer, en þó
mikið væri um dýrðir i sambandi
við afmæli þessa mikla knatt-
spyrnumanns — fyrirliða heims-
meistaranna, Vestur-Þýzkalands.
fyrirliöa Evrópumeistaranna,
Bayern Munchen, var þó sorg i
sinni margra. Allar likur eru á að
Beckenbauer verði fljótlega aö
leggja skóna á hilluna — hætta
knattspyrnu. Sjálfur bjóst hann
við að hætta á þessu leiktimabili,
þó svo samningur hans við Bay-
ern renni ekki út fyrr en 1979.
Hann á við meiðsli að striða i fæti
— og þau eru að verða mjög al-
varleg. Með þvi að leika áfram
gæti hann bæklazt um alla
framtið — og hann segist ekki
taka áhættu af því. Hann hafi
þegar unnið til allra verðlauna i
knattspyrnu — og talsvert farinn
að þreytastá æfingum og keppni.
HerraTrölli, ég er,umboðsmaður|fyrir
sérvitran örlátan milljónarai sem vill
TF'&áMk!Lekki láta nafns síns getið.-