Dagblaðið - 13.04.1976, Side 4
4
DAGBLAÐIÐ. ÞRIÐJUDAGUR 13. APRtL 1976.
Onnur veröld" frumsýnd
Mosfellssveit í kvöld
2389 kærur voru vegna ölvunar
viö akstur á árinu 1975 en voru
2306 árið áður. Aukning var því
0,4%. Þetta er minnsta auknine
milli ára frá því 1968—69.
í Reykjavík og þjóðvegaeftirliti
fækkaði kærum úr 1151 í 1087. Af
Stefán Tryggvason. Kristján Þorgeirsson og Steinunn Júliusdóttir í
hlutverkum sínumn í „()nnur veröld” sem afturelding í Mosfells-
sveit frumsvnir í kvöld.
Ölvaðir ökumenn
ollu 5 dauðaslysum
Ölvaðir ökumenn áttu aðild að
39 sl.vsum með meiðslum eða
dauða eða 7,7 af hundraði af þeim
507 slysum sem urðu á síðasta ári.
Af þessum 39 slysum urðu 5
dauðaslys þar sem 5 menn létust.
Samtals slösuðust 52 í þeim
slysum sem ölvaðir ökumenn áttu
aðild að. 25 hlutu meiriháttai
meiðsli, 22 minniháttar og 5 lét
ust. í 10 tilvikum var hinn ölvaði
ökumaður réttindalaus.
Hippar og eiturlyf koma við
sögu í leikritinu ..Önnur veröld”
sem Unginennafélagið Aftur-
elding sýnir að Hlégarði í kvöld.
i
Leikritið er eftir finnska rit-
höfundinn Inkiri Kilpinen og er
sýning Aftureldingar frumsýning
á verkinu hérlendis.
Leikstjóri er Sigríður Þorvalds-
dóttir en leikendur eru tólf
talsins, allir áhugafólk úr
Mosfellssveit. íslenzka þýðingu
leikritsins gerði Kristín
Mantyla.
Stærstu hlutverkin eru í
höndum Láru Bjarnadóttur og
Stefáns Tryggvasonar.
Talsverð ölvun í
2389 ökumönnum, sem voru
kærðir, reyndust 1403 eða 58,7 af
hundraði vera með meira en 1,33
pro mille eða meira áfengismagn í
blóði. Þessi hlutfallstala fer sí-
fellt hækkandi.
319 kærur eða 13,4% voru
felldar niður þar sem
áfengismagn í blóði ökumanna
var undir lágmarki. Flestir öku-
mannanna voru teknir í ágúst-
ntánuði, samtals 266, en fæstir i
desember, 133. —HH
Hafnarfirði um helgina
Nokkur ölvun var í Hafnar-
firöi um helgina, og þá meiri á
föstud.kvöld og nóttina á eftir
heldur en á laugardögum eins
og svo algengt er nú orðið víða.
Voru teknir þar 10 menn fyrir
meinta ölvun við akstur sem
mundi vera afar há tala miðað
við svæði og fólksfjölda
Hafnarfjarðarlögreglunnar. I
Re.vkjavík voru til saman-
burðar teknir unt þessa helgi
„ekki nema” 13 ökumenn fyrir
meinta ölvun við akstur. —BH
Alls munu koma hingað um 50 manns frá Grænlandi. Vonandi hamla ekki illveður flugsamgöngum við
Grænland. Margir þátttakenda koma frá Holsteinsborg sem er á vesturströndinni. Ljósm. A. J.
Hópur Grœnlendinga vœntanlegur
í heimsókn eftir póska
VERKAMANNABÚSTAÐIR
í SEUAHVERFI
REYKIAVIK
UMSOKNIR
Stjórn verkamannabústaöa í Reykja-
vík óskar eftir umsóknum um kaup á
308 íbúöum, sem nú eru í byggingu í
Seljahverfi í Reykjavík. íbúóir þessar,
sem byggðar eru samkv. lögum um
verkamannabústaði frá 12. maí 1970,
verða tilbúnar á tímabilinu júni
1976—okt. 1977.
Umsóknareyðublöó ásamt
upplýsingum um verð og skilmála
veróa afhent á skrifstofu Húsnæðis-
málastofnunar ríkisins Laugavegi 77
og skal umsóknum skilað þangað fyrir
mánudaginn 2. maí 1976.
SÝNING ÍBÚDA
íbúðirnar úr þessum byggingaráfanga
verða til sýnis að Teigaseli 11.
laugard.
sunnud.
mánud.
þriöjud.
miðvikud.
10. apríl kl. 14—22
11. apríl kl. 14—22
12. apríl kl. 18—22
13. apríl kl. 18—22
14. apríl kl. 18—22
„Það er feikna mikið sem
stendur til hjá okkur með
undirbúning fyrirhugaórar
Grænlandsviku dagana 24. apríl
til 2. maí,” sagði Maj-Britt
Imnander, forstjóri Norræna
hússins í viðtali við Dagblaðið.
„Það hefur lengi staðið til að
þessi vika yrði haldin en ýmsar
ástæður Iágu til þéss að ekki var
hægt að hefja undirbúninginn
fyrr en seint. Það liggur raunar
ekki enn fyrir fullsamin dagskrá
en ráðgert er að átta þátttakendur
komi frá Grænlandi. Eru það
bæði listamenn og fyrirlesarar.
Einnig eru væntanlegir tveir
efstu bekkir Kennaraháskólans
I Godtháb ásamt kennara og
skólastjóra sínum, Ingmar Egede.
Hann er raunar fyrsti Grænlend-
ingurinn sem gegnir þessu starfi.
Segja má að Norræna húsið
verði allt undirlagt af Grænlands-
vikunni. Þar verður bókasýning
með mörgum fágætum og
merkum grænlenzkum bókum,
sem Iánaðar eru frá grænlenzka
landsbókasafninu. Á list-
sýningunni verður grafík,
málverk, teikningar og
höggmyndir. Einnig verður list-
iðnaðarsýning sem verður jafn-
framt sölusýning þar sem fólki
gefst kostur á að kaupa
grænlenzka muni.
Þá sendir Grænlands-
verzlunin einnig grænlenzk
matvæli sem verða á boðstólum í
kaffistofu hússins.
Nokkrir tslendingar taka þátt í
dagskránni: Þór Magnússon þjóð-
minjavörður, sr. Kolbeinn
Þorleifsson. sem er sérfræðingur
í íslenzka trúboðinu á Grænlandi,
Ólafur Halldórsson handritasér-
fræðingur. Friðrik Einarsson
læknir og fl. Einnig hafa Árni
Johnsen og Einar Bragi unnið að
undirbúningnum.
Kennaraháskóli íslands mun
taka á móti grænlenzkum
nemendum og eru fyrirhugaðar
stuttar ferðir utn nagrennið. Mun
vérða kappkostað að gera
heimsókn Grænlendinganna sem
allra eftirminnilegasta. Þetta er
heilmikið ferðalag fyrir þá. suntir
hverjir verða að leggja af stað
heiman að frá sér á föstudaginn
langa en allir mætast i Syðra-
Straumfirði og ætlunin er að hóp-
urinn komi til Islands þriðjudag-
inn 20. ap.ril.
Norræna húsið verður opiö
daglega til kl. 23 á meðan á
Græt'.landsvikunni stendur og
tnargt mn að vera. bæðí kvik-
mvndasýningar og fvrirlestrar.
A. B.i