Dagblaðið - 15.03.1977, Blaðsíða 1
frýáJst;
úháð
dagblað
3. ÁRG. — ÞRIÐJUDAGUR 15. MARZ 1977 —62. TBL. RTTSTJÓRN SÍÐUMÚLA 12, SílMI 833212. AUGLVSINGAR OG AFGTREIÐSLA,, ÞVERIIOLTI 2, SIMI 27022.
Höfundur ?Þjóðarflokksins’
lýsir stefnu sinni
Sjá kjallaragrein á bls. 11
Telur aðra huldumeyna
hafa orðið skotna fsér
— Pétur Hoffmann fyrir rétti Sjá bls. 5
Bardot
íReykjavík
ígær
— Sjá baksíðu
•
Flokkarnirvilja
ekki einmenn-
ingskjördæmi
— segir Hannibal
Sjábls.4
Eldur varð laus í vélbátnum
Boða AR 100 þar sem hann lá í
höfninni í Þorlákshöfn rétt
eftir kl. eitt í nótt. Skömmu
síðar varð mikil sprenging í
bátnum, svo öflug að stykki úr
brú bátsins og hluti trollsins
kastaðist upp á bryggju og svo
hávær var sprengingin, að fólk
vaknaði við vestur eftir öllum
Þorlákshafnarbæ.
Ei.nn maður, Þórður Markús-
son, 23 árá gamall Eyr-
bekkingur og eigandi bátsins
ásamt bróður sínum og föður
þeirra, svaf um borð. Brenndist
hann illa og var fluttur í ofboði
í sjúkrahús í Reykjavík.
Reyndist hann hafa hlotið
20% brunasár miðað við
líkamsyfirborð. Þar af var 5%
3. stigs bruni. Brunasárin voru
mest á höndum og í andliti og
hár var sviðið. Gert var að sár-
um Þórðar og í morgun leið
honum vel eftir atvikum og er
ekki í lífshættu.
Það voru menn á næstu
bátum við Boða í höfninni, sem
fyrstir urðu eldsins varir í bátn-
um og gerðu viðvart. Um svipað
leyti og hjálparkallið barst
kvað sprengingin við í bátnum
og glumdi um allt þorpið. Á
sama augnabliki varð báturinn
alelda attan 'tii og var svo er
slökkviliðog lögreglumennirnir
Sigurður Jónsson og Stefán
Jóhannsson komu á vettvang.
Trollið, sem var á þilfari bátsins, kastaðist upp á bryggju við
tommu nöglum. tJr brennandi brúnni komst Þórður upp á bryggju
sprenginguna, ásamt bitum ur brunni sem negldir voru með fimm
og iogaði þá í fötum hans. DB-mynd Sveinn Þorm.
Hefur Selfosslögréglan stöðuga
vakt tveggja lögregluþjóna í bíl.
Lítið stendur eftir af stýrishúsi Boða nema grindin.
í Þorlákshöfn allan
sólarhringinn. Fengu þeir til-
kynningu um eldinn kl. 1.23. Er
þeir komu á vettvang var
Þórður Markússon kominn af
sjálfsdáðum upp á bryggj-
una. Hafði logað í fötum
hans og hann var mikið
brenndur, sótsvartur í framan
eftir sprenginguna og þjáður
mjög. Var strax tekið til við að
kæla brunasár hans, honum
komið fyrir í sjúkrakörfu og
hélt Sigurður af stað með hann
til Reykjavíkur. Fóru tveir
nærstaddir sjómenn frá Stokks-
eyri með honum suður, kældu
brunasár Þórðar stöðugt og
linuðu á þann hátt kvalir hans.
Var þessi sjúkraflutningur
mjög erfiður, því Þrengsla-
vegurinn má heita ófær til
sjúkraflutninga.
Ekki var með vissu vitað,
hvort Þórður hefði verið einn í
bátnum. Tókst slökkviliði
greiðlega að slökkva eldinn
ofanþilja en lengri tíma tók að
slökkva niðri i bátnum. Fljót-
lega varð víst að fleiri höfðu
ekki verið um borð.
Eldsupptök og orsök
sprengingarinnar eru ókunn
en verða rannsökuð í dag.
Tilgáta er að eldurinn hafi um
stund verið búinn að búa um
sig. Síðan hafi Þórður vaknað
þar sem hann svaf í fötum á-
bekk í stýrishúsi, og opnað
niður í vélarrúm. Er eldurinn
náði þannig sambandi við
ferskt loft hafi orðið súrefnis-
sprenging. ítrekað er að þetta
er aðeins tilgáta.
Vélbáturinn Boði er 55 tonn
eikarbátur smíðaður 1941. Va.
báturinn nýuppgerður og m.a. í
honum ný og fullkomin stjórn
og fiskileitartæki. Báturinn
hefur verið á trollveiðum fram
að síðustu heigi, en þá gætti
bilunar í honum og var unnið
að viðgerð fram á kvöld í
gærkvöldi. -ASt.
Sprenging heyrðist um altt
þorpið og báturinn alelda
Maðurinn komst
logandiuppá
bryggjuener
ekki ílífshættu
þráttfyrir
brunasár