Dagblaðið - 14.11.1978, Blaðsíða 22
22
DAGBLAÐIÐ. ÞRIÐJUDAGUR 14. NÓVEMBER 1978.
Framhaldafbls. 21
Varahlutir. .
Til sölu notaðir varahlutir i Peugeot 404
árg. ’67, Transit, Vauxhall Viva og
Victor ’70, Fiat 125, 128, Moskvitch'
árg. ’71, Hillman Hunter árg. ’70, Land!
Rover, Chevrolet árg. ’65, Benz árg. ’64,
Toyota Crown árg. ’67, VW, Cortina'
árg. ’68 og fleiri bíla. Kaupum bila til.|
niðurrifs. Uppl. að Rauðahvammi við,
Rauðavatn, sími 81442.
Hljöðkútar fyrir VW
og Fíat, flestar gerðir. Bremsuklossar í
flestar gerðir Evrópu og japanska bíla,
hagstætt verö. Fíat varahlutir i miklu
úrvali, kúplingar, stýrisliðir, boddíhlutir,
stuðarar, ljósabúnaður, hand-
bremsubarkar og fleira. Gabriel
höggdeyfar í flestar gerðir bíla, t.d.
Bronco, Blazer, Cortinu og VW. G.S.
varahlutir, Ármúla 24, simi 36510.
Takið eftir.
Hef til sölu mikið úrval nýlegra bíla,
verð og kjör við allra hæfi, einnig koma1
alls konar skipti til greina. Ennfremur er,
til sölu mikið úrval ódýrari bíla sem fást
á góðum greiðslukjörum. Enn einu sinni
minnum við á að það vantar allar teg.
nýlegra bíla á skrá. Viljir þú selja bílinn
þinn er lausnin að fá hann skráð?n með
einu símtali. Söluþjónusta fyrir notaða
bila. Símatími virka daga kl. 18—21 og
laugardaga kl. 10—2. Uppl. í síma
25364.
Húsnæði í boði
tbúð til leigu
fyrir konu gegn smáhúshjálp hjá einum
manni. Gott tækifæri. Tilboð sendist af-
greiðslu DB merkt: „Allt sér — 2232."
fyrir 18. nóv.
6 herb. íbúð
á tveim hæðum til leigu Uppl. í sima
53016 eftirkl. 3.
Lítil hæð
til leigu í austurbæ Kópavogs. Tilboð
sendist DB sem fyrst merkt „Rólegt —
138”.
3ja herbergja íbúð
I Hólahverfi til leigu, laus nú þegar.
Uppl. hjá auglþj. DB i sima 27022.
H—171.
Afdrep. Fasteignasala. Leiguþjónusta.
Afdrep kappkostar að veita jafntj
leigusölum sem leigutökum örugga og;
góða þjónustu, meðal annars með þvi að
ganga frá leigusamningum yður að
kostnaðarlausu. Ef yður vantar
húsnæði, eða ef þér ætlið að leigja hús-
næði væri þá ekki hægasta leiðin að hafa
samband við okkur? Kjörorðið er, látið
okkur opna dyrnar að nýju. Afdrep,
Leigumiðlun, Hverfisgötu 44, símar
28644 og 28645.
Til leigu upphitað
geymsluherbergi í kjallara. Sérinn-
gangur. Uppl. í síma 30509.
Húsaskjól, Húsaskjól.
Leigumiðlunin Húsaskjól kappkostar að
veita jafnt leigusölum sem leigutökum
örugga og góða þjónustu, meðal annars
með því að ganga frá leigusamningum
yður að kostnaðarlausu og útvega
meðmæli sé þess óskað. Ef yður vantar
húsnæði eða ef þér ætlið að leigja
húsnæði, væri hægasta leiðin að hafa
samband við okkur. Við erum ávallt
reiðubúin til þjónustu. Kjörorðið er.
örugg leiga og aukin þægindi. Leigu-
miðlunin Húsaskjól, Vesturgötu 3, sími
12850 og 18950.
Leigumiðlunin Hafnarstræti 16.
Leigutakar, ef þið eruð í húsnæðisvand-
ræðum, þá borgar sig að láta skrá sig
strax. Húseigendur ath.: Það er mjög
hagkvæmt að skrá íbúðina, eða hvert
það húsnæði sem þið haftð til umráða
strax, þó svo það sé ekki laust fyrr en
eftir langan,tíma. Það er betra að hafa
tímann fyrir sér, hvort sem þú þarft að
leigja út eða taka á leigu. Gerum
samninga ef óskaö er. Opið alla daga
nema laugardaga óg sunnudaga frá kl.
.1—6. Leigumiðlunin Hafnarstræti 16,
simi 10933.
Húseigendur—Leigjendur.
Sýnið fyrirhyggju og gangið tryggilega
frá leigusamningum strax i öndverðu.
Með því má komast hjá margvíslegum
misskilningi og leiðindum á siðara stigi.
Eyðublöð fyrir húsaleigusamninga fást
hjá Húseigendafélagi Reykjavíkur.
Skrifstofa félagsins að Bergstaðastræti
11A er opin alla virka daga kl. 5—6 sími
15659. Þar fást einnig lög og reglugerðir
um fjölbýlishús.
Lcigumiðlunin Ráögjöf.
Ókeypis ráðgjöf fyrir alla leigjendur.
Höfum á skrá örugga og trausta leigj-
endur, vantar verulega eins, 2ja, 3ja, 4ra
og 5 herbergja íbúðir. Fyrirgreiðslu
Leigumiðlunar Leigjendasamtaka fáið
þér við inngöngu i samtökin og greiðslu
ársgjalds, kr. 5000. Leigjendasamtökin,
Bókhlöðustíg 7, Rvík, simi 27609.
Leigutakar. Leigusalar.
Ný og bætt þjónusta Leiguþjónustan,
Njálsgötu 86, býður yður nú að greiða
aðeins hálft gjald við skráningu, seinni
hlutann þegar íbúð er úthlutað.
Leigusalar, það kostar yður aðeins eitt
simtal og enga fyrirhöfn að láta okkur
leigja húsnæði, sýnum einnig húsnæðið
ef jsess er óskað. Kynnið yður þessa nýju
þjónustu okkar. Opið mánud. til föstud.
frá kl. 10—6. Laugardaga frá kl. 1—4.
Leiguþjónustan Njálsgötu 86, simi
29440.
Húsnæði óskast
Óskum eftir
4ra til 5 herb. íbúð, helzt í gamla
bænum. Einhver fyrirframgreiðsla ef
óskað er. Upþl. hjá auglþj. DB í síma
27022.
H—805
Óska eftir að taka ibúð á leigu
i 3 mánuði. Allt kemur til greina. Fyrir-
framgreiðsla. Uppl. 1 sima 40197.
140ferm húsnæði
til leigu á rólegum stað í tvíbýlishúsi í
austurbænum. Tilboð óskast send til
augld. DBmerkt„88”.
Ung kona
óskar eftir 3ja herb. ibúð í Hafnarfirði,
helzt í Norðurbænum. Uppl. hjá auglþj.
DB í sima 27022.
Óska eftir 3ja til 4ra
herb. íbúð á leigu í 6 mán. helzt í Kópa-
vogi. Uppl. í síma 42283.
Ungur, reglusamur maður
óskar eftir herbergi. Uppl. hjá auglþj.
DB í sima 27022.
H—166.
Óska eftir 2ja til 3ja herb.
ibúð til eins árs, sem næst Snælands-
skóla frá næstu áramótum. Öruggir
leigjendur. Uppl. í sima 44970.
Parmeðeitt barn
óskar eftir 2ja til 3ja herb. ibúð: Góð
fyrirframgreiðsla. Uppl. í sima 38091.
2 eldri konur óska
eftir að taka á leigu 4ra herb. íbúð ekki í
kjallara. Uppl. í sima 25324.
Unghjón utanaflandi
óska að taka á leigu 2ja til 3ja herb.
íbúð, eru nægjusöm. Uppl. í síma 73378
eftirkl. 7.
Ungt par óskar
eftir 2ja-3ja herb. íbúð. Reglusemi
heitið, meðmæli ef óskað er. Uppl. í sima
12040 á vinnutima og í sima 25475 á
kvöldin.
Stúlka utanaflandi
sem stundar nám við Fjölbrautaskólann
i Breiðholti óskar eftir lítilli íbúð frá 10.
jan. Algjör reglusemi. Einhver fyrir-
framgreiðsla. Hringið i sima 95—1418
eftirkl. 17.
3 ungmenni vantar
2ja til 3ja herb. íbúð i nágrenni Hamra-
hliðar. Algjör reglusemi. Fyrirfram-
greiðsla. Uppl. i síma 93—1316 eftir há-
degi.
21 árs einhleypur trésmiður
óskar eftir litilli ibúð sem næst gamla
miðbænum. Getur gert við og dyttað að
eftir samkomulagi. Uppl. í síma 30627 á
kvöldin.
Óska eftir að taka á leigu
eitt herbergi, helzt sem næst Ármúla,
um óákveðinn tíma. Uppl. i síma 83715
milli kl. 9 og 11 á kvöldin.
Hafnarfjörður-Reykjavik-Kópavogur.
Reglusamur maður óskar eftir að taka á
leigu stórt og gott herbergi með góðum
hita. Góðri umgengni heitið. Er litið
heima. Gott verð fyrir gott herbergi.
Uppl. hjá auglþj. DB í síma 27022.
H—2242.
Ungurmaður
sem starfar mikið úti á landi óskar eftir
2ja til 3ja herb. íbúð á leigu, helzt i
austurborginni, í nokkra mánuði. Fyrir-
framgreiðsla. Uppl. í síma 20275.
Ungt barnlaust par
óskar eftir lítilli 2ja herb. eða einstakl-
ingsíbúð. Erum á götunni 15. þessa
mán. Reglusemi, góðri umgengni ogskil-
vísum greiðslum heitið. Uppl. hjá
auglþj. DB i síma 27022.
H—2092
3ja til 4ra herb. Ibúð
óskast á leigu eftir áramót, helzt í gamla
bænum. Reglusemi og góðri umgengni
heitið. Uppl. hjá auglþj. DB í sima
27022.
H—039
Óskum eftir að taka á lcigu
bilskúr, 40—60 ferm, eða annað sam-
bærilegt húsnæði með innkeyrsludyrum.
Uppl. hjá auglþj. DB í síma 27022.
H—2055
Einstæð móðir
með litið barn óskar eftir 2ja herb. íbúð,
helzt i Breiðholti. Engin fyrirfram-
greiðsla en öruggar mánaðargreiðslur.
Uppl. í sima 75091 eftir kl. 7.
Tvö herbergi og eldhús
óskast til leigu, má vera í Njarðvikun-
um, Hafnarfirði eða Kópavogi. Uppl. í
síma 92-1903.
Ungt par óskar eftir
2ja til 3ja herb. ibúð. Góð umgengni og
einhver fyrirframgreiðsla. Uppl. hjá
auglþj. DB í sima 27022.
H—009.
Herbergi óskast.
Námsmaður óskar eftir herbergi, helzt
með eldunaraðstöðu. Alger reglusemi og
fyrirframgreiðsla ef óskað er. Sími
10301.
Húseigendur.
Vantar á skrá fjölda allan af eins til 6
herbergja íbúðum. Verzlunarhúsnæði,
skrifstofuhúsnæði, iðnaðarhúsn. og lag-
erpláss, bílskúrar og einnig aðstöðu fyrir
flóamarkað. Reglusemi og góðri
umgengni heitið, fyrirframgreiðsla ef
óskaðer. Leigumiðluni Hafnarstræti 16,
opið alla daga milli kl. 10 og 6 nema
sunnudaga. Simi 10933.
Herbergi með eldunaraðstöðu
óskast. Uppl. í sima 30634.
Bilskúr óskast.
Óska eftir að taka á leigu rúmgóðan bil-
skúr, einfaldan eða tvöfaldan. Uppl. hjá
auglþj. DB í síma 27022.
H—834
2ja herb. ibúð
óskast til leigu 1. des. Meðmæli ef óskað
er. Uppl. i sima 17149 eftir hádegi.
íbúð óskast,
er á götunni, uppl. hjá íuglþj. DB í sima i
27022.
H—725 !
Leigumiðlun
Svölu Nielsen hefur opnað að Hamra-
borg 10, Kóp., sími 43689. Daglegur
viðtalstími frá kl. 1—6 e.h. en á
fimmtudögum frá kl. 3—7. Lokað um
helgar.
Lelguþjónustan
Njálsgöfu 86, sími 29440. Okkur vantar
1, 2ja, 3ja og 4ra herbergja ibúðir fyrir
einstaklinga og fjölskyldur. Reglusemi
og góðri umgengni heitið. Fyrirfram-
greiðsla ef óskað er. EJringið og skráið
ibúðina, göngum frá leigusamningum
yður að kostnaðarlausu. Opið frá kl.
10—12 og 1—6. Leiguþjónustan Njáls-
götu 86, sími 29440.
Atvinna í boði
Óskum eftir afgreiðslustúlkum
til starfa, heildags- eða hálfsdags starf,
einnig stúlku til vaktavinnu (kvöld- og
helgarsala). Uppl. i síma 66450 milli kl. 9
og 12 og 2—6 miðvikudag og
fimmtudag. Kaupfélag Kjalamesþings,
Mosfellssveit.
Matsvein og háseta
vantar á línubát. Uppl. hjá auglþj. DB i
sima 27022.
H—2248.
Samningur um ræstingu
á stóru skrifstofuhúsnæði í Austur-
borginni er laus. Lysthafendur sendi
nöfn sín á afgreiðslu DB merkt
„Ræsting” fyrir 17. þ.m.
Stúlka óskast
til léttra heimilisstarfa 3svar í viku.
Uppl.ísíma 72792.
Óskum eftir að ráða saumakonu
á bólstrunarverkstæði. Uppl. í sima
85815 milli kl. 10og6ádaginn.
Píanó — söngur.
Karl eða kona óskast i hljómsveit, starfs-
svið píanó og söngur. Reglusemi áskilin.
Uppl. hjá auglþj. DB í síma 27022.
H—2048
Starfskraftur óskast,
mjög gott vald á ensku og islenzku rit-
máli nauðsynlegt ásamt vélritunarkunn-
áttu. Einnig vantar starfskraft til af-
greiðslu á tízkufatnaði fyrir verðandi
mæður og börn, skilyrði að viðkomandi
sé móðir. Tilboð sendist blaðinu merkt
„29255” fyrir 16. þ.m.
(i
Atvinna óskast
i
37 ára gömul kona
óskar eftir vinnu sem fyrst. Margt
kemur til greina. Uppl. í sima 19476.
27 ára gamall fjölskyldumaður
óskar eftir vinnu á bifreiðaverkstæði eða
skyldri atvinnu. Uppl. i sima 44251.
Góðan starfskraft
vantar vinnu nú þegar. Mikil reynsla í
verzlunarstörfum. Uppl. í sima 33797.
Ungur reglusamur piltur.
vanur akstri, óskar eftir vinnu strax,
meðmæli fylgja ef óskað er. Nánari
uppl. veittar í sima 84108.
„Au Pair”. Hollenzka stúlku,
sem er að læra íslenzku, langar til að
dveljast í Reykjavík eða nágrenni í
nokkra mánuði á næsta ári. Hún er
tilbúin að koma hvenær sem er eftir
byrjun aprílmánaðar. Uppl. hjá auglþj.
DB í síma 27022.
H—128
Vanur matsveinn óskar
eftir starfi i landi. Uppl. i síma 71996.
Húsfélögathugið!
Vantar ykkur ækki konu til að halda
hreinum stigaganginum. Helzt i Háa-
leitishverfi eða nágrenni. Uppl. i síma
30711.
Verklaginn ungur maður,
28 ára, óskar eftir framtíðarstarfi. Hefur
reynslu til sjós og lands. Hefur bíl. Getur
byrjað strax eða seinna. Uppl. i síma
19639 eftir kl. 4.
Tvítug stúlka
óskar eftir vinnu, hefur nokkra vélrit-
unarkunnáttu og bil til umráða. Margt
kemur til greina. Getur byrjað strax.
Uppl. í síma 11089.