Dagblaðið - 30.11.1978, Qupperneq 17
DAGBLAÐIÐ. FIMMTUDAGUR 30. NÓVEMBER 1978.
17
■v
Nýjar bækur
Skáldsögur
Ég um mig frá mér til min eftir Pétur
Gunnarsson. Þetta er annað bindið af
sögunni um Andra og hefst við upphaf
Bítilæðis og endar um tveimur árum
síðar. Útg.: Iðunn, 130 bls. Verð 5880
og4560kr.
Vatn á myllu Kölska eftir Ólaf Hauk
Símonarson. Um sjónvarpskvik-
myndagerðarmann af reykviskri fjöl-
skyldu sem stefnir hraðfara til glöt-
unar. Útg.: Mál & menning, 297 bls.
Verð 7200 kr.
Sálumessa ’77 eftir Þorstein
Antonsson. Ung kona deyr um nótt i
Reykjavík. Var þetta slys? Óhappa-
tilviljun? Morð? Daginn eftir er hand-
tekinn maður. En er hann sá seki?
Útg.: Iðunn, 122 bls. Verð 5880 kr.
Átt þú heima hér eftir Úlfar Þormóðs-
son. Skáldsaga um bæjarfélag úti á
landi. Útg.: Mál & menning, 172 bls.
Verðs 6600 kr.
Smásögur og
leikrit
Sögur úr seinni stríðum eftir Böðvar
Guðmundsson. Smásögur um áhrif
ýmiss konar stríðsreksturs á Islend-
inga gegnum tiðina. Útg.: Mál &
menning, 124 bls. Verð 5040 kr.
Úr fórum fyrri aldar, þýddar sögur,
Kristján Albertsson gaf út. M.a. sögur
eftir Tolstoy, Turgenjef, Poe o.fl.,
þýddar af Benedikt Gröndal, Hannesi
Hafstein, Matthíasi Jochumssyni,
Þorsteini Erlingssyni o.fl. Útg.: Helga-
fell, 247 bls. Verð6960kr.
Leikrit þýdd af Árna Guðnasyni.
Andrókles og Ijónið og Óskabarn
örlaganna eftir Bernard Shaw. Útg.:
Helgafell, 63 bls. Verð 3120 kr.
Ljóð
Virki og vötn eftir Ólaf Jóhann
Sigurðsson. Þetta er fjórða Ijóðabók
höfundar og inniheldur Ijóð frá 1974
og til þessa dags, þ.á.m. mörg Ijóð sem
birzt hafa í blöðum og timaritum.
Útg.: Mál & menning, 127 bls. Verð
6600 kr.
Bíldudals grænar baunir eftir Hafliða
Magnússon. Gamanvísur og alvöru-
mál. Útg.: höf., 129 bls. Verð4800kr.
Ævisögur og
endurminningar
Kjarval eftir Thor Vilhjálmsson.
Höfundur rekur sögu Kjarvals, lýsir
háttum hans og list á afar persónu-
legan hátt. Áður útgefin 1964. Bókina
prýða ljósmyndir eftir Jón Kaldal.
Útg.:Iðunn, 170 bls. Verð6480kr.
Slitur eftir Brodda Jóhannesson. Safn
persónulegra hugleiðinga og frásagna
1— um náttúru landsins og lif þjóðar-
innar m.a. Útg.: Iðunn, 172 bls. Verð
5880 kr.
í stillu og stormi eftir Jóhann J. E.
Kúld. Minningar frá uppvaxtarárum
við ýmis störf til sjós og lands. Útg.:
Ægisútgáfan, 166 bls. Verð3l20kr.
Svífðu seglum þöndum og íshafsævin-
týri eftir Jóhann J. E. Kúld. Endur-
minningar frá svaðilförum, kvenna-
málum o.s.frv. Útg.: Ægisútgáfan, 240
bls. Verð4800kr.
Svipast um á Suðurlandi eftir Jón R.
Hjálmarsson. 20 Sunnlendingar segja
frá. Útg.: Suöurlandsútgáfan, 180 bls.
Verð5880kr.
Af Héraði og úr Fjörðum eftir Eirík
Sigurðsson. Safn þátta um menn og
málefni á Austurlandi og lýmis atriði
úr menningarlífi Austfirðinga. Útg.:
Skuggsjá, 184 bls. auk mynda, Verð
6996 kr.
Skáldað í skörðin eftir Ása í Bæ.
Höfundur segir frá aflaklóm og
andans mönnum af sinni alkunnu
kirnni og frásagnargleði. Árni Elfar
myndskreytti. Útg.: Iðunn. 200 bls.
Verð 6480 kr.
Hcyrt og munað eftir Guðmund
Eyjólfsson frá Þvottá. Einar Brugi bjó
til prentunar og ritar formála en
Eysteinn Jónsson skrifar kynningu.
Útg.: ísafold, 235 bls. Verð 5580 kr.
Þjóðlíf
Þjóðllfsþættir eftir Pál Þorsteinsson
frá Hnappavöllum. 15 þættir úr
islensku þjóðlifi að fornu og nýju þar
sem Austur-Skaftafellssýsla og mann-
líf þar kemur einkum við sögu. Útg.:
Örn og Örlygur, 147 bls. Verð 6960
kr.
Þættir, brot úr dagbókum Helga
Benónýssonar. Greinar um ýmis mál,
þ.á.m. helför b/v Egill Skallagríms-
sonar. Útg.: Vesturhús, 176 bls. Verð
5880 kr. .
Blandað efni
Holl er hugarró eftir Peter Russel.
Bókin fjallar um kenningar Maharishi
Mahesh Voga. Guðrún Andrésdóttir
og Jón Halldór Hannesson íslenskuðu.
Útg.: ísafold, 244 bls. Verð 4920 kr.
Fjárfestingahandbókin, samin á
vegum Fjárfestingarfélags Islands h/f.
Gunnar Helgi Hálfdánarson ritstýrði
verkinu. Útg.: Frjálst framtak. 224
bls. Verð 8900 kr.
Látnir lifa. Ævar R. Kvaran tók
saman. Sjö þjóðkunnir íslendingar
segja frá reynslu sinni. Útg.: Örn &
Örlygur, 166 bls. Verð 6960 kr.
Matreiðslubók handa ungu fóiki á
öllum aldri eftir Sigrúnu Davíðs-
dóttur. Góðar uppskriftir af margs
konar mat. Útg.: Almenna bókafélag-
ið, 412 bls. Verð5520kr.
Færeyinga saga í útgáfu Ólafs
Halldórssonar I flokknum Islensk
úrvalsrit. Útg.: Iðunn, 180 bls. Verð
3600 kr.
Smárit Kennaraháskóla íslands og
Iðunnar: 1. Lífsstarf og kenning —
Broddi Jóhannesson, Jónas Pálsson,
Sigr. Valgeirsdóttir. 2. Borgarskóli —
Alþýðuskóli eftir Jónas Pálsson. 3.
Um rannsóknarritgerðir — Ásgeir S.
Björnsson Indriði Gíslason. 4. Út fyrir
takmarkanir tölvuvisindanna —
Ólafur Proppé. Útg.: Iðunn. og
Kennaraháskóli íslands meðalverð
1200 kr.
Barna- og
unglingabækur
Gömlu góðu ævintýrin. Sögur eftir
Kent Salisbury. Mörg hundruð kát-
lega samsettar sögur. Þýðing: Loftur
Guðmundsson, Myndir: Adriana
Zanazania. Útg.: Örn & Örlygur, 12
bls. Verð2760kr.
Lilli klifurmús og hin dýrin í Hálsa-
skógi eftir Thorbjörn Egner.
Þýðendur: Hulda Valtýsdóttir og
Kristján frá Djúpalæk. Höfundur
teiknaði myndir. Útg.: Örn & Örlygur,
91 bls. Verð3480kr.
Hin sagnfrægu ævintýri vikinganna
eftir John Geigpcl í flokknum „í leit
að horfnum heimi”. Myndskreytt af
Richard Hook og Richard Eastman.
Þýðing: Loftur Guðmundsson. Útg.:
Örn & Örlygur, 45 bls. Verð 1980 kr.
Hrói höttur. Jane Carruth endursagði.
Steinunn Bjarman þýddi. Myndir
teiknaði Chris Higham. Útg.: Örn &
Örlygur, 60 bls. Verð 1980 kr.
Yngismeyjar eftir Louisa May Alcott I
flokknum „Sígildar sögur með lit-
myndum”. Jane Carruth endursagði.
Steinunn Bjarman þýddi. Gordon
King teiknaði myndirnar. Útg.: Örn &
Örlygur, 60 bls. Verð 1980 kr.
Patrick og Rut eftir K.M. Peyton.
Silja Aðalsteinsdóttir þýddi. Önnur
bókin í flokki þriggja óvenjulegra
unglingasagna. Útg.: Mál & menning,
193 bls. Verð 4200 kr.
Ævintýrin allt um kring eftir Sigurð
Gunnarsson. Frændi segir frá. Bjarni
Jónsson teiknaði myndir. Útg.:
ísafold, 96 bls. Verð 2880 kr.
Hjálparsveit Jakobs og Jóakims eftir
Jörgen Clevin sú fyrsta I flokki um
persónumar, skreytt ótal litmyndum.
Þýðandi: Haraldur J. Hamar. Útg.:
Bókaforlagið Saga, 60 bls. Verð 1980
kr.
Jason í sumarfrii eftir Camillu
Miekwitz. Höfundur hefur fengið
ótal verðlaun fyrir bækurnar um
Jason. Útg.: Bókaforlagið Saga, 24'bls.
Verð 1560 kr.
Rennum á regnboganum eftir Önnu
Kristinu Brynjúlfsdóttur. Safn af
sögum og ævintýrum. Höfundur gerði
myndir. Útg.: Hergill, 64 bls. Verð
2400 kr.
Ævintýri í myrkrinu eftir Jane
Carruth. „Allt í lagi”-bók mynd-
skreytt af Tony Hutchings, þýðing:
Andrés Indriðason. Útg.: Örn &
Örlygur, 20 bls. Verð 1440 kr.
Nýi kennarinn eftir Jane Carruth.
„Allt í lagi”-bók myndskreytt af
Tony Hutchings. Þýðing: Andrés
Indriðason. Útg.: Örn & Örlygur, 20
bls. Verð 1440 kr.
Félagi Jesús eftir Sven Wernström.
Um Jesú frá Nasaret og baráttu hans
og félaga gegn Rómverjum sem á þeim
tíma hersátu Ísraelsríki. Þórarinn
Eldjárn þýddi. Myndir gerði Mats
Andersson. Útg.: Mál & menning, 77
bls. Verð2880kr.
Sjórán í norðurhöfum eftir Eilif
Mortansson. Sjóræningjabækurnar.
Loftur Guðmundsson þýddi. Útg.:
Örn & Örlygur, 97 bls. Verð 2220 kr.
Kalli og Kata eignast garð eftir
Margaret Rettich. Myndir eftir
höfund. Þuríður Baxter þýddi. Útg.:
Iðunn, 16 bls. Verð 1200 kr.
Kalli og Kata verða veik eftir Margret
Rettich. Myndir eftir höfund. Þuríður
Baxter þýddi. Útg.: Iðunn, 16 bls.
Verð 1200 kr.
Tumabækurnar eftir Gunillu Wolda:
Tumi smíðar hús, Tumi fer til læknis.
Tumi tekur til, Tumi bregður á leik.
Þuríður Baxter þýddi. Útg.: Iðunn, 24
bls. hver. Verð660kr.
Emmubækurnar eftir Gunillu Wolde.
Emma fer í leikskóla, Emmu finnst
gaman I leikskólanum. Þýð: Þuríður
Baxter, Útg.: Iðunn, 24 bls. Verð 660
kr.
Sæfinnur sjóræningi. Sæfinnur
sjóræningi og fjársjóðurinn, Sæfinnur
sjóræningi og fíllinn. Sæfinnur sjó-
ræningi og nýja skipið. Þýðandi: Loft-
ur Guðmundsson. Útg.: Örn &
Örlygur, 48 bls. hver. Verð 480 kr. stk.
Sjóræningjasögur eftir Sheilu K.
McCullagh. Rikharður rauði Sjóferð
bláa sjóræningjans, Sjóræningjarnir
þrir. Teikningar: Mary Gernat. Útg.:
Askur, 24 bls. hver Verð 480 kr.
Þýddar skáldsögur
Fótmál dauðans eftir Francis Clifford.
Um baráttu við nasista á Spáni.
Þýðing: Skúli Jensson. Útg.: Hörpuút-
gáfan, 182 bls. Verð 4680 kr.
Maðurinn á svölunum eftir Maj
Sjöwall og Per Wahlöö. Skáldsaga um
glæp. Þráinn Bertelsson þýddi. Útg.:
Mál & menning, 214 bls. Verð 5400
kr.
Ég þrái ást þína eftir Bodil Forsberg.
Ástarsaga frá Kaupmannahöfn. Skúli
Jensson þýddi. Útg.: Hörpuútgáfan,
189 bls. Verð 4680 kr.
Hættuleg heimsókn cftir Anitru.
Óvæntar gestakomur I sveitinni.
Þýðing: Hersteinn Pálsson. Útg.:
ísafold, 173 bls. Verð 4680 kr.
Tortímið hraðlestinni eftir Colin
Forbes. Eltingaleikir og manndráp i
Atlantic-lestinni. Snjólaug Bragadóttir
þýddi. Útg.: Örn & Örlygur. 231 bls.
Verð5880kr.
Á meðan fæturnir bera mig eftir J. M.
Pauer, úr flokknum „Hetjudáðir",
Þýskur liðsforingi gengur gegnum
Síberiu. Þýðing: Þórunn Jónsdóttir.
Útg.: Hörpuútgáfan, 220 bls. Verð
4440 kr.
Ógnardagar í október 1941 eftir Per
Hansson í flokknum „Háspennusög-
urnar”. Um fjöldamorð nasista í
Júgóslavíu. Skúli Jensson þýddi. Útg.:
Skuggsjá, 165 bls. Verð 4992 kr.
Sögulegt sumarfrí eftir Lindcn
Grierson. Forstjóradóttirin og undir-
maðurinn á Tasmaníu. Þýðing: Snjó-
laug Bragadóttir. Útg.: Örn &
Örlygur, 159 bls. Verð 4920 kr.
Svartagull eftir Alistair MacLean.
Skáldsaga um átök og spillingu í fjár-
málaheiminum. Álfheiður Kjartans-
dóttir þýddi. Útg.: Iðunn, 191 bls.
Verð4920kr.
Francis Drake, iandkönnuður, sæfari
og 'sjóræningi eftir Neville Williams, i
flokknum „Frömuðir sögunnar”. Rit-
stjóri: Elizabeth Longford. Þýðing:
Kristín R. Thorlacius. Útg.: Örn &
Örlygur 232 bls. Verð 5880 kr.
Baráttan um þungavatnið eftir Knut
Haukelid í flokknum „Háspennusög-
urnar”. Norskir skæruliðar gegn þýska
hernum. Hersteinn Pálsson þýddi.
Útg.: Skuggsjá. 187 bls. Verð4992 kr.
Dagblað
án ríkisstyrks
HAIrVCi::UR
I þessari sögu um iitla stúlku
jafn fágæta og faliega,
á sinn hátt
og bláa rós
er boðskapur um ást
til allra.
145 MINUTUR
BÓKIN:
DAUÐUR
rosin
DESEMBER
C-T
Q
Banvænt æxlið á mænu Donalds stækkaði og stækkaði
þangað til uppskurður var óhjákvœmilegur. En tilþess að
hann tækist, urðu læknarnir að stöðva starfsemi hjarta
hans og heila — gera hann að lifandi líki.
BÓK t BLAÐFORMI
Ævisaga séra Jóns Steingrímssonar er eitt með merkari
ritum, sem við eigum. Hér er rætt ofurlítið um þessa
merkilegu ritsmíð og gripið niður íhana hér og hvar.
DAGLEGT LÍF
Á ÍSLANDI Á ÁTJÁNDU ÖLD