Dagblaðið - 02.04.1979, Blaðsíða 15

Dagblaðið - 02.04.1979, Blaðsíða 15
15 \ DAGBLAÐIÐ. MÁNUDAGUR2. APRÍL 1979. / " Gagniýnið hugarfar Kvik myndir LV_—_____ Fáir bandarískir kvikmynda- gerðarmenn hafa vakið jafnmikla athygli síðastliðið ár eins og Paul Schrader. Með tvær myndir að baki og þá þriðju á leiðinni hefur hann getið sér gott orð sem einkar skarpt hugsandi leikstjóri. í myndum sínum tekur Schrader fyrir þjóðfélagsleg vandamál og er óhræddur við að skera á kýlin. Líkt og félagar hans, þeir Martin Scorsese og John Milius, lauk Schrader háskólaprófi í kvik- myndafræðum. Að námi loknu ákvað hann að gerast kvikmynda- handritahöfundur. Þetta gekk hálf- brösulega þangað til Warner Brothers keyptu handritið Yakuza sem Schrader skrifaði í samvinnu við bróður sinn. Að vísu fékk hann aldrei nafn sitt á hvíta tjaldið því kvikmyndaverið fékk annan rithöf- und til að umskrifa handritið og fékk sá allan heiðurinn. Árið á undan hafði Schrader skrifað handrit sem hann nefndi The Taxidriver. Það var ekki fyrr en þremur árum síðar að Martin Scorsese gerði samnefnda mynd sem enn er mjög umtöluð vegna mikilla ofbeldisatriði. Vandinn að leikstýra Sama ár og Schrader skrifaði Yakuza gerði hann þrjú önnur hand- rit. Deja Vu fékk hálfdapurleg enda- lok því leikstjórinn, Brian de Palma, breytti handritinu í mikilli óþökk Schraders. Raunar hét myndin Obsession þegar hún loks kom á markaðinn. Eftir þessa slæmu reynslu ákvað Schrader að gera allt í sínu valdi til að fá að leikstýra þeim myndum sem byggðar væru á hand- ritum hans. Hann varð þó að bíta í það súra epli að vera leystur frá störf- um sem leikstjóri rétt áður en kvik- myndataka hófst á Rolling Thunder sem hann skrifaði 1973. Á þessum tíma skrifaði hann handrit sem nefndist CE3K sem siðar var endur- ritað af Steven Spielberg undir nafn- inu Close Encounters of the Third Kind. í samnefndri mynd kom nafn Schraders hvergi fyrir enda segist Spielberg hafa umturnað öllu han'<- ritinu. ,,Ég lærði fljótlega að eini mö„a- leikinn til að leikstýra mynd sjálfur var að tryggja mér fjármagn og leikara. Svo ég útvegaði hvort tveggja. Ég fékk Richard Pryor og Harvey Keitel til að gera persónu- legan samning við mig og fékk síðan TAT-fyrirtækið, sem framleiðir myndir fyrir sjónvarp, til að leggja fjárhagslega blessun yfir fyrirtækið. Síðan kom Universal til sögunnar og dæmið gekk upp.” Þannig lýsir Schrader hvernig hann skapaði sér tækifæri til að leikstýra sinni fyrstu mynd, BlueCollar. Blue Collar Blue Collar er merkileg mynd. Hún gerist í bílaverksmiðju í Detroit og fjallar um líf þriggja starfsmanna verksmiðjunnar. Allir búa þeir við frekar kröpp kjör og eru í sífelldum peningavandræðum. Því dettur þeim það snjallræði í hug að ræna skrif- stofu verkalýðsfélagsins en þeim hafði lengi verið í nöp við fulltrúa þess í verksmiðjunni. En þeir hafa ekki erindi sem erfiði og hafa aðeins 600 dollara upp úr krafsinu en stjórn verkalýðsfélagsins segir að 10.000 dollarar hafi horfið. í innbrotinu höfðu þeir félagar komist yfir minnisbók sem skráðar voru í ýmsar ólöglegar greiðslur frá verkalýðs- félaginu. Þeir reyna að beita félagið fjárkúgun en missa smátt og smátt tökin á viðfangsefninu. Eftir átök sem kosta einn félaganna lífið splundrast samstaða hinna tveggja og annar þeirra gengur til samstarfs við verkalýðshreyfinguna enda bíður ný staða eftir honum. í handriti sínu dregur Schrader upp ljóta mynd af forystu verkalýðs- hreyfingarinnar í Bandaríkjunum. Mikil spilling er allsráðandi og allt snýst um völd og peninga. Einnig kemur Schrader inn á mjög viðkvæmt mál í Bandaríkjunum sem er kynþáttafordómar. Stutt kynning á Paul Schrader en hann á að baki myndirnar Blue Collar og Hardcore Kynþáttafordómar Evrópubúa Um þetta mál segir Paul Schrader: ,,Ég held að Evrópubúar séu jafnvel enn hræddari en Bandaríkjamenn að hreyfa við þessu máli. . . Ef þú horfir á breskar kvikmyndir gætirðu dregið þá ályktun að kynþáttavandamál þar væri ekki til. Flestir Evrópubúar láta eins og þetta vandamál séekki til þótt það sé liklega þar stærra vandamál en hér”. Það er gleðiefni að Laugarásbíó hefur keypt Blue Collar þótt hún verði ekki sýnd strax. Það er fuU ástæða að mæla með þessari mynd, enda á boðskapurinn erindi til allra og leiðir i ljós þau fjölmörgu sam- félagslegu vandamál sem snúa að einstaklingnum í nútíma þjóðfélagi. Næsta mynd Schraders var Hardcore. Myndin fjallar um heitt- trúaðan verksmiðjueiganda og dóttur hans. Dag einn hverfur dóttirin. Hafin er Ieit en það eina sem finnst er klámmynd sem dóttirn hafði tekið þátt í. Þetta verður mikið áfall fyrir föðurinn og hann ásetur sér að finna dótturina. Meginhluti myndarinnar lýsir þessari leit og hér sýnir Schrader áhorfendum klámheim stórborg- anna. Ég efast um að Bandarikja- menn sjálfir hafi gert sér grein fyrir H Alriði úr myndinni Blue Collar scm Laugarásbió mun vera búið að festa kaup á. BaldurHjaltason hve klámiðnaðurinn er oröinn gífur- lega stór og þess vegna eigi þessi mynd eftir iö hrisia upp í siðgæðis- vitund þtirra. Myndin virkar ótrúlega sterk og lýsir vel þessu von- leysi sem margir þátttakendur í þessum iðnaði búa við. Schrader lítur á þennan iðnað sem kýli á þjóðfélag- inu sem nauðsynlegt sé að stinga á. Mynd hans er án efa stórt skref í þá átt þótt fleira verði að koma til. Um þessar mundir vinnur Schrader að gerð sinnar þriðju myndar sem ber heitið American Gigolo og hefur sjálfan John Travolta í aðalhlutverki. Hann hefur nýlega skrifað handrit fyrir Martin Scorsese sem ber heitið Raging Bull og fjallar um Jake La Motta. Einnig er Schrader búinn að gera samning við Paramount im tvær myndir og byrjar líklega á Covert People eftir handriti sínu á næstunni. Nýjasta tæknií pípuiagningum ■ » SOLUSkAUNN arnbergi j r 800 SELFOSS — P.O. BOX 60 IIIIÍL ClatlAD 1CQC _ 1DOO Rotostock hentar bæði fyrír nýlagnir og viðha/d Fyrir hús, skip, gróðurhús og allar aðrar pípulagnir auðveit í flutningum, aðeins 16 kg. í handtösku. Iðnnotendur Rotostock ermeðal annars, notað ípípulagningaiðnaði: Hitadreifingu og loftræstingu + raflagningar + viðhaldi og viðgerðum + skipaiðnaði + vatnsveitum og vatnsveituvirkjun- um + jarðvinnslu + byggingariðnaði + úðun + kœliketfum + iðnaði og o.s.frv.

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.