Dagblaðið - 22.09.1979, Blaðsíða 15

Dagblaðið - 22.09.1979, Blaðsíða 15
DAGBLAÐIÐ. LAUGARDAGUR 22. SEPTEMBER 1979. Chrysler kókosbollan vann Ólafur Vilhjálmsson hitar slikkana (spyrnudekkin) undir Chrysler kókos- bollunni vel upp með hressilegu reyk spóli. DB-myndir Ragnar Th. „Það verður að kalla jiessa keppni Chrysler-keppnina,” sögðu gárungarn ir þegar keppendur tóku að mæta t hauslkeppni Kvartmíluklúbbsins. Það kom ncfnilega i ljós að flestir keppend- urnir voru á Chryslcr-bílum. Chryslerkapparnir hafa margir hverjir unnið á fullu við að fullgera bila sina og búa þá undir keppni i allt sumar. Meðal Mo-par bilanna (Mo- par = Chrysler) voru tveir með hina við- frægu Hemivél og lentu þeir sinn i hvorum flokknum. Annar þeirra, Kjartan Kjartansson, lenti í Street Alt- erd flokki með sinn bíl en það var Challenger með 426 kúbika Hemivél. Hinn keppandinn, Guðjón Þorvalds- son, keppti i Modified Standard flokki en bill hans var Plymouth Belvedere GTX og var hann einnig með 426' Hemivél. Hemivélarnar eru svcipaðar dýrðarljóma, einkum í huga Chrysler- manna, enda hafa þtvr slaðið sig vel og jafnan skilað eigcndum sinum nógu af heslöflum. I ru \íst vel llestii sem lorð- ast að lenda við hliðina á Hcmibil á götuljósum. Keppnin byrjaði ekki fyrr en klukk- an hálffimm og var það vegna þcss að BÍKR var með rallycross keppni þenn- an satna dac. Byrjaði sú kcppni klukk- an hálflvð og var lokið þegar kvart- milan hxrjaði. Veður var hálfleiðinlegt, þungskýjað og mikill raki i lofti. Flestir bilarnir i keppninni voru langt Irá sinum beztu timum og má án efa kenna um rakanum i loflinu og kuldanum. Þegar kalt er verða dekkin undir bilun- um harðari og þá er meiri hætta á að þeir spóli og missi þannig dýrmæt ■sekúndubrot. Að þessu sinni voru einungis tvcir keppendur i þessum flokki. Ólafur Grétarsson, íslandsmethafinn i flokkn- um, kom frá Akureyri og keppti hann við Guðstein Eyjólfsson. Guðsteinn varð að láta í minni pokann fyrir Ólafi í miðsumarskeppninni en núna var hann búinn að rifa alla óþarfa hluti af CBX Hondunni. Dugði það Guðsteini til sig- urs þvi hann vann Ólaf á 12.04 sck. gegn 12.26sek. Rallbilarnir stóðu sig að vanda vel i þessum flokki og að þessu sinni var það ,lón Ragnarsson sem vann. Jón keppti á Renault með 1400 cc. fjögra strokka vél og lckk hann goti forskot á hira bil- ana vegna þcss hvcrsu lilil vélin hans er. Bezti tími Itans var 17.32 sck. cn bezti timinn i llokknum var 15.34 sek. og álti Kristján Bragason þann tima. Kristján keppti á Dodgc Coronet með 383 kúbika vél. í úrslitaspyrnunni í þessum flokki lentu þeir Einar Egilsson og Guðjón Þorvaldsson saman. Guðjón missti Hemi GTX inn upp í spól og missti þar dýrmætan tíma en hann þurfti að vinna upp hálfrar sekúndu forskot sem Einar fékk. Einar lét hins vegar ekki að sér hæða og hélt sínu striki. Ók hann 350 Camarónum sinum af mikilli snerpu og öryggi, til sigurs. Einar hclur staðið sig mjög vel i sumar, sigrað tvisvar í kvarl- milukeppni og verið í öðru sæli i þeirri þriðju. Bezti timi Einars i þessari keppni var 14.12 sek. en timamctið átli Guðjón Þorvaldsson scm fór miluna á 13.30 sek. í þessum flokki eru að jafnaði allir sprækustu bílarnir og sprækastur í haustkeppninni var 426 Hemi Chall- engerinn hans Kjartans. Kjarlan brenndi sig þegar hann var að vinna við- sjóðheila vélina eltir eina spyrnuna og tók vinur hans, Guðjón Árnason, við akstrinum. Challengerinn náði bezla tima keppninnar þegar hann fór braut- ina á 12.34 sek. en féll úr keppninni þegar vélin drap á sér í upphafi einnar spyrnunnar. Sigurvegarinn i SA-flokki varð Ólafur Vilhjálmsson en hann mælti i keppnina á Mo-par kókosboll- unni sinni. Kókosbollan er reyndar Triumph og er Ólafur búinn að dunda við það siðastliðið ár að troða í hann 340 kúbika Chryslervél. Vélin er kraft- niikil og stór enda fór það svo að vél- arsalur kókosbollunnar bólgnaði út og þó aðallega upp á við við aðgerðina. Ólafi gekk vel að slá keppinauta sina úr keppninni, hvern á fætur öðrum, cn bezti tirrii kókosbollunnar var 12.52 sek. Garðar Skaftason og Leifur Rósenbergs skiptu með sér öðru sælinu og var það vegna misskilnings sem kom upp í stjórnstöðinni meðan á keppninni slóð. Mikillar óánægju hefur gælt nteð sænsku reglurnar sem keppl hefur verið eftir í kvartmíluakstri i sumar og er þvi fyrirhugað að breyta þeim litil- lega fyrir vetrarkeppnina sem haldin verður um miðjan október. Þn \crða scttir upp lágmarkstímar scnt bilarnir \ crða að ná til að komast i aðalkeppnina en allir bilarnir sem ná lágmarkstimanum fá siðan að taka þátt í aðalkeppninni enda þótt þcir verði stundum að aka stakir eftir braulinni. Önnur veigamikil breyting er sú að sænska forskoiskcfið \crður lagt niður en i stað þess kcnnir ameriska kerfið og cr með þcssu vona/l til að keppni vcrði jalnari og þar mcð mcira spennandi. Jóhann Kristjánsson. Guðjón Þorvaldsson sýndi mikil tilþrif I MS-flokknum og á þessari mynd, sem tekin var við endamörkin, sést að hraði bils hans hefur verið frekar i meira lagi. Ein af fyrstu spyrnunum var sú örlagarikasta en þar lentu þeir Guðjón Árnason á Hemi Challengernum og Ólafur á kókosbollunni saman. Ámi Ámason: TRYGGIR SER TITILINN -SS~ Bifreiðaíþróttaklúbbur Reykja- víkur hélt rallycross keppni sama dag og kvartmilukeppnin var haldin i Kapelluhrauni og tókst sú keppni með ágætum. Margir keppendur mætlu til leiks og var keppnin spenn- andi og fjörug að vanda. Sigurvegari í keppninni varð Árni Árnason og hefur hann með þessum sigri tryggt sér íslandsmeistaratitilinn í rally- crossi. Keppendur fá stig fyrir hverja keppni sem þeir taka þátt i og þeim mun fleiri slig sem þeim gengur betur. Árni mun nú vera langstiga- hæstur rallycrossmanna og er sem fyrr sagði búinn að tryggja sér titilinn þrátt fyrir að ein keppni sé eftir á keppnistímabilinu. -JAK. Árnl hefur keppt i hvltum VW f sumar og sjá má i þessari mvnd aD hann neytir allra bragða til að komast fram úr keppinautum sinum. DB-mynd RagnarTh. Þjónusta Þjónusta Þjónusta Margra ára viðurkennd þjónusta SKIPA- SJÓNV’ARPS- LOFTNET LOFTNET Mvttsk TramlcitMa l'yrir lit og svari hvii W sjOnvarpsmisstOðin sf. : Stðumúla 2 Roykjavfk — Sfmar 39090 — 39091 SJONVARPS VTÐGERÐm LOFTNETS VTÐGERÐIR Útvarpsvirkja- meistari. Sjónvarpsviðgerðir i heimahúsum og á verkstæði, gerum við allar gerðir sjónvarpstxkja, svarthvit sem lit. Sxkjum tækin og sendum. Sjónvarpsvirkinn Arnarbakka 2 R. Verkst.sími 71640, opið 9—19, kvöld og helgar 71745' til 10 á kvöldin. Geymið augl. Sjónvarpsviðgerðir Heima eöa á verkstæöi. Allar tegundir. 3ja mánaða ábyrgð. Skjárinn, Bergslaðastræti 38. Dag-. kvöld- og helgarsími 21940.

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.