Dagblaðið - 19.03.1980, Blaðsíða 7

Dagblaðið - 19.03.1980, Blaðsíða 7
DAGBLAÐIÐ. MIÐVIKUDAGUR 19. MARZ 1980. 7 Erlendar fréttir Nýir heims- leikarstrax íkjölfar ólympíu- leikanna Fulltrúi Bandaríkjanna á ráðstefnu í Genf sagði að í ljós mundi koma að flestar vestraenar þjóðir mundu draga keppendur sína til baka frá þátttöku í ólympíuleikunum í Moskvu á sumri komanda. Mundi það koma í ljós eigi síðar en fyrir lok mai naestkomandi. Fulltrúar frá Bandaríkjunum, Bret- landi, Ástralíu, Súdan, Saudi Arabíu, Kenýa, Hollandi, Portúgal, Costa Rica, Kanada, Dóminikanska lýðveld- inu og Filippseyjum sóttu fundinn i Genf. Hann er haldinn til að kanna möguleika á að halda íþróttamót um sama leyti eða strax á eftir ólympíuleik- unum i Moskvu. Sagði fulltrúi Banda- ríkjanna að mótið ætti að vera opið öll- um sterkustu íþróttamönnum heims, hvort sem þeir hefðu tekið þátt í ólympíuleikunum í Moskvu eða ekki. Mundi verða sjónvarpað frá þessu iþróttamóti um allan heim. Dægurlagasöngvarínn vinsæli, Tom Jones, varð nýlega að hætta við söngferð sina um Suður-Ameríku vegna veikinda. Kom hann veikur af lungnakvefi heim til Englands og var lagður þar inn á sjúkrahús. Kanadlskir hermenn tóku þátt f æfingum Atlantshafsbandalagsins i Noregi. Myndin sýnir nokkra úr þeirra hópi þjóta um vetrarbúna á snjósleðum. El Salvador: 23 vinstri menn falla Talið er að í það minnsta tuttugu og þrír vinstri menn hafi fallið í átökum við stjórnarhermenn norður af höfuð- borg landsins San Salvador í gær. Mikill órói er í landinu og stjórnin ótraust i sessi. Vegið er að henni bæði frávinstri oghægri. Vestur-Þjóðverjar reisa efnaverksntiðju í Austur-Þýzkalandi Erich Honecker formaður austur- þýzka kommúnistaflokksins vígði um síðustu helgi nýja efnaverksmiðju í borginni Schkopau í suðurhluta landsins. Þótti það sérstaklega tíðindum sæta að verksmiðjan er byggð af vestur-þýzkum aðilum og því vakti það sérstaka athygli að Honecker sjálfur skyldi koma og vígja hana. Er þetta enn eitt dæmið um vax- andi viðskipta- og iðnaðarsamskipti á milli vestur- og austurhluta Þýzka- lands, sem nú skiptast í tvö ríki. Mun verksmiðjan vinna afurðir úr hráefni fengnu i Austur-Þýzkalandi og olíu frá Sovétríkjunum. Er þetta fyrsta verksmiðjan sinnar tegundar sem hið vestur-þýzka fyrirtæki reisir austan landamæranna. Framkvæmdir þess hófust árið 1976. Þetta er í fyrsta skipti sem Honecker vígir verksmiðju sem byggð er á vegum vestur-þýzkra aðila. Er það túlkað þannig að með þessu vilji hann undirstrika áhúga stjórnar sinnar á að viðskipta- og iðnaðarsamvinna Austur- og Vestur- Þýzkalands haldi áfram ótrufluð þrátt fyrir deilur sem sprottið hafi vegna innrásar Sovétmanna í Afganistan. Honecker formaður kommúnista- flokksins sagði í ræðu við vígsluna að slík samvinna við vestræn fyrirtæki væri alveg í samræmi við stefnu Austur-Þjóðverja og væri auk þess báðum aðilum til hagsbóta. REUTER Slapp eiturgas yfir Sverd- lovskíSovét- ríkjunum Stjórnvöld í Bandaríkjunum hafa til- kynnt að fregnir hafi borizt af sjúk- dómum í sovézku borginni Sverdlovsk vegna þess að þar hafi lífshættulegt eiturgas sloppið út í andrúmsloftið fyrir mistök líffræðinga. Hafa Banda- ríkjamenn krafizt skýringa á þessum atburðum. Samkomulag er um það á milli stór- veldanna og annarra þjóða að algjört bann sé við gashernaði eða framleiðslu á eiturgasi til slíkra nota. Talsmenn Bandaríkjastjórnar taka þó fram að þeir séu ekki endilega að saka Sovét- menn um að hafa brotið þetta samkomulag en þó gefi þessar fregnir frá Sverdlovsk tilefni til óska um nán- ari skýringar. Kalifomía: Moröin erfiðari en virtist í sjánvarpi —viðurkennd morð og irasþymiingar á fimm stúlkum, en tveir menn grunaðir um að hafa myrt fjörtíu ogfimm til viðbótar Þrjátíu og tveggja ára gamall raf- virki viðurkenndi í gær að hafa myrt og misþyrmt fimm stúlkum i Kali- forníu í Bandarikjunum. Hann gat þess við réttarhöldin að vitorðsmaður hans hefði sagt við sig að „ekki væri eins auðvelt að myrða fólk eins og það virtist í sjónvarpinu”. Maðurinn viðurkenndi morðin fimm í samræmi við samkomulag sem gert hafði verið á milli saksókn- ara og verjenda mannsins. Mun hann i staðinn sleppa við líflátsdóm en þá bera vitni gegn vitorðsmanninum, Lawrence Bittaker þrjátíu og níu ára gömlum. Sá er hefur játað á sig morðin fimm heitir Roy Norris. Stúlkurnar fimm voru á aldrinum þrettán til átján ára. Sagðist Norris annað hvort hafa kyrkt þær eða lamið til bana með exi eða slaghamri. Bittaker, sem situr í fangelsi fyrir aðrar sakir, hefur enn ekki verið ákærður fyrir þátt sinn í morðunum. Lögreglan telur að mennirnir tveir hafi átt þátt í að misþyrma og myrða allt að fjörutíu og fimm aðrar stúlkur sem horfið hafa og ekkert hefur til spurzt. Að sögn Norris höfðu morðingj- arnir þann háttinn á að þeir blekktu stúlkurnar upp í sendibifreið sína og óku þeim síðan á afvikinn stað. í einu tilvikinu sagði Bittaker Norris að myrða eitt fórnarlambið, „þar sem hann hefði aldrei drepið neinn fyrr”. Aðeins hefur tekizt að finna lík þriggja stúlknanna til þessa. Bandaríkin: LiTLA BIFREIDIN SIDASTA VON CHRYSLERVERKSMIÐJA Tilkynnt var hjá bandarísku Chrysler-bifreiðaverksmiðjunum í gær, að rekstrarhalli fyrirtækisins yrði að öllum líkindum 650 milljónir dollara á því ári sem er að líða. Er það nærri því að vera jafnvirði 260 milljarða íslenzkra króna. Einnig var sagt að ef hin nýja framleiðsla verksmiðjanna, bifreiðar af minni gerð, seldist ekki eins og heitar lummur, þá mætti búast við að Chrysler-fyrirtækið yrði gjaldþrota. Áður hafði því verið spáð að tapið i ár yrði 500 milljónir dollara. Upplýsingar um meira tap birtust i gögnum sem voru birt í gær samhliða því sem aukið hlutafé í Chrysler-fyrir- tækinu var boðið til kaups. Chryslerfyrirtækið fékk 1,5 milljarða dollara ríkisábyrgð frá stjórninni í Washington í janúar síðast- liðnum til að þurfa ekki að segja upp starfsmönnum. Var það bundið þeim skilyrðum að einnig tækist að útvega tvo milljarða dollara frá starfs- mönnum, umboðsmönnum og viðskiptamönnum fyrirtækisins.

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.