Dagblaðið - 19.03.1980, Blaðsíða 20

Dagblaðið - 19.03.1980, Blaðsíða 20
20 DAGBLAÐIÐ. MIÐVIKUDAGUR 19. MARZ 1980. Gengur ( norðanátt á landinu meö óljum á Noröuriandi og björtu veörr sunnanlands. Talsvert fer vaður kóln-1 andi. Klukkan sex í morgun var í Reykja- vl< hœgviðri, súld á sfðustu klukku- stund og 5 stig, Gufuskálar suðvest- an 5, atskýjað og 4 stig, Galtarviti suðvestan 6, súld og 3 stig, Akureyri sunnan 5, léttskýjað og 8 stig, Raufar- höfn vestnorövestan 4, lóttskýjað og 3 stig, Dalatangi hœgviðri, háHskýjað i og 6 stig, Höfn ( Homafirði hœgviðri, skýjað og 2 stig og Stórhöfði ( Vest- mannaeyjum suðvestan 5, súld og 6 stig. Þórshöfn ( Fœreyjum abkýjað og 2 stig, Kaupmannahöfn ól og — 6 stig, Osló lóttskýjað og —16 stig, Stokk- hólmur þokumóða og —11 stig, Ham- borg skýjað og —2 stig, Parb hálf- skýjað og 5 stig, Madrid abkýjað og 9 stig, Lbsabon skúr og 8 stig og New York heiöskírt og 2 stig. Jóhann G. Guðmundsson stöðvarstjóri á Akureyri lézt á Fjórðungssjúkrahús- inu á Akureyri þriðjudaginn 11. marz. Jóhann var fæddur i Hvammi í Langa- dal 25. nóvember 1917. Foreldrar hans voru Þóra Emilía Grímsdóttir og Guð- mundur Frímannsson kennari. Jóhann ólst upp hjá afa sínum og ömmu í Hvammi og síðar Fremsta-Gili í Langa- dal. Foreldrar Emilíu, móður Jóhanns, voru Jóhanna Jóhannesdóttir og Grímur Þorláksson, sem bjuggu að Langeyjarnesi og víðar i Dalasýslu. Árið 1935 gerðist Jóhann starfsmaður póststofunnar á Akureyri, en 1. janúar 1966 var hann gerður að póstmeistara og gegndi hann því starfi til ársins 1978. Jóhann gekk í hjónaband árið 1945 og eftirlifandi kona hans er Hjör- dís Óladóttur, dóttir Jósefínu Páls- dóttur og Óla P. Kristjánssonar. Jó- hanni og Hjördísi varð fjögurra barna auðið. Jóhann verður jarðsunginn i dag frá Akureyrarkirkju. Magnea S. Magnúsdóttir, Sogavegi 132 Reykjavík, lézt í Landakotsspítala þriðjudaginn 18. marz. Sigrikur Sigriksson, vistmaður á Höfða, Akranesi, lézt í Borgarspitalan- um mánudaginn 17. marz. Gunnar Bjarnason frá öndverðarnesi lézt mánudaginn 17. marz. Halldór Indriðason múrarameistari lézt þriðjudaginn 18. marz. Kristinn G. Þorsteinsson, Drápuhlið 30 Reykjavík, lézt í Borgarspítalanum mánudaginn 17. marz. Axel Skúlason klæðskerameistari, Út- hlíð 3 Reykjavík, verður jarðsunginn frá Fossvogskirkju föstudaginn 21. níarz kl. 13.30. Kristín Ásmundsdóttir frá Efri-Fitjum verður jarðsungin frá Viðidalstungu- kirkju föstudaginn 21. marz kl. 14. Gunnar Þórðarson frá Grænumýrar- tungu lézt þriðjudaginn 11. marz. Hann verður jarðsunginn frá Fossvogs- kirkju föstudaginn 21. marz kl. 1J. Ragnar Felixson, Vesturgötu 109 Akra- nesi, verður jarðsunginn frá Akranes- kirkju fimmtudaginn 20. marz kl. 14. Guðný Friðsteinsdóttir verður jarð- sungin frá Fríkirkjunni fimmtudaginn 20. marz kl. 14. Rannveig Jóhannsdóttir verður jarð- sungin frá Fossvogskirkju fimmtu- daginn 20. marz kl. 10.30. Aðaifundir Aðalfundur knattspyrnudeildar Stjörnunnar í Garðabæ verður haldinn fimmtudaginn 20. marz næstkomandi. Hefst hann í barnaskóianum klukkan 20.00. Aðalfundur Sunddeildar Ármanns verður haldinn þriöjudaginn 25. marz kl. 20.00 í Snorrabæ. IOGT Stúkan Einingin Fundur í kvöld kl. 20:30. Kosning fulltrúa til þing- stúku. Dagskrá um esperantó í umsjá málefnanefndar. Kaffieftir fund. JC Garðar heldur borgarafund Fimmtudaginn 20. marz kl. 20 mun félagið J(' Garðar i Garðabæ gangast fyrir almennum borgarafundi i Garðaskóla (nýja gagnfræðaskólanum). Fundurinn verður haldinn i samvinnj við bæjastjórnarmenn og munu þcir halda stuttar framsöguræður og svara fyrir spurnum. Allir Garðbæingar eru hvattir til að mæta. Hvítabandskonur Fundur verður haldinn miðvikudaginn 19. mar/ að Hallveigarstöðum kl. 20. Athugið breyttan fundardag og tíma. Kvenfélag Breiðholts Fundur verður haldinn miðvikudaginn 19. marz kl. 20.30 í anddyri Breiðholtsskóla. Fundarefni: Tízkusýning á vegum Módelsamtakanna. Allir vel komnir. Þriðji fræðslufundur Hjarta- og æðaverndar- félags Reykjavíkur Hjarta- og æðaverndarfélag Reykjavikur heldur þriöja almenna fræðslufund sinn á Hótel Borg (Gyllta sal). fimmtudaginn 20. marz 1980 kl. 17.15. Fundarefnið verður að þessu sinni endurlifgun. Einkum og aðallega verður fjallað um endurlífgun eftir brált hjartaáfall. Dagskrá fundarins verður þannig: 1. Erindi um cndurlifgun. Dr. Árni Kristinsson læknir. 2. Kvikmynd um blástursaðferð og lifgun úr dauðadái. 3. Sýnikennsla i blástursaðferð og hjartahnoði. Fundarmönnum gefst kostur á að taka þátt i sýnikennslunni og spyrja og fræðast um viðfangs efnið. Fyrri tveir fræðslufundir félagins á vetrinum hafa tekizt mjög vel. Á fyrsta fundinum var fjallað um heilablæðingu og hjarta- og æðasjúkdóma en á öðrum fundinum var fundarefnið áhættuþættir hjarta- og æðasjúkdóma. Á báðum fundunum var fullt hús og sýndu fundarmenn mikinn áhuga á viðfangsefnunum ogspurðu margra spurninga. Jökarannsóknarfélag íslands Fundur verður haldinn i Domus Medica þriðju daginn 25. marz 1980 kl. 20.30. Fundarefni: 1. Sig finntir Snorrason jarðfræðingur llytur erindi með skuggamyndum. Jöklar á Mýrum og Vatnsdalslón. 2. Kaffidrykkja. 3. Siguröur Þórarinsson sýnir skuggamyndir af hal'is viðlsland o.fl. Stjórnin. Kristniboðssambandiö Sambænastund verður í Betaniu Laufásvegi 13 í kvöld kl. 20.30. Allir velkomnir. Bústaðakirkja Föstusamkoma verður i kvöld kl. 20.30. Séra Gunnar Kristjánsson fjallar um boðun föstunnar og sýnir myndir. Séra ólafur Skúlason. Langholtsprestakall Bænastund á föstu i kvöld kl. 20.30. Séra Sigurður Haukur Guðjónsson. Hallgrímskirkja Kvöldbænir eru á fimmtudags- og föstudagskvöldum kl. 18.15. Spitakvöld Góðtemplarahúsið, Hafnarfirði Félagsvistin í kvöld, miðvikudag 19. marz. Veriööll velkomin. Fjölmennið. Árshátíðir Fjáreigendafélagið í Reykjavík og Fjáreignar- félagið í Kópavogi halda sameiginlega árshátiösína föstudaginn 21. marz i félagsheimili Fáks. Boröhald hefst kl. 21 með köldu veizluborði. Dansað verður til kl. 2 e.m. Minningarspiöld Minningarkort Fríkirkjusafnaðarins í Reykjavik fást hjá eftirtöldum aðilum: Kirkjuverði Fríkirkjunnar í Fríkirkjunni. Reykjavikur Apóteki. Margréti Þorsteinsdóttur, Laugavegi 52.simi 19373. Magneu G. Magnúsdóttur. Langholtsvegi 75. simi 34692. Barnastúkan örkin Ný barnastúka var stofnuð í Reykjavik fimmtudaginn 6. marz. Hún hlaut nafnið örkin og verður númer 171. Heimili hennar er á Bústöðum. félagsheimili borgarinnar í kjallara Bústaðakirkju. Gissur Pálsson þinggæzlumaður hafði undirbúið stúlkustofnunina. Fyrsti gæzlumaður er séra Kolbeinn Þorleifsson en annar gæzlumaður Guðjón B. Eggertsson. Stúkan Verðandi cr verndarstúka hinnar nýju barnastúku. Nokkrir félagar úr ungtemplarafélaginu Trölla gerðust stofnfélagar i Örkinni og er mjög treyst á fulltingi þeirra við félagsstarfið. Stofnfélagar voru alls um 80. Viðstaddir stofnun stúkunnar voru nokkrir eldri templarar. Úr stjón unglingareglunnar voru þeir Hilmar Jónsson stórgæzlumaður og Sigrún Sturludóttir. Auk Hilmars voru þarna úr fram kvæmdanefnd stórstúkunnar stórvaratemplar og stór ritari ogaðstoðuðu þessi öll viðstofnunina. Þingstúka Reykjavíkur stefnir nú að þvi að barna stúkur starfi í borgarhverfum. 1 samræmi við það voru nokkrir félagar úr barnastúlkunni Æskunni stofnfél. þessarar stúku. þeir sem eiga heima i Bústaðasókn. Barnastúkurnar eru eini félagsskapur sem rekur bindinidisboðun meðal barna og unglinga en allir kunnugir vita að mikils er vert aðfá fólk strax á barns aldri til að hugsa af alvöru um þau mál og taka af stöðu í samræmi við það sem réttast er vitað og eitt i samræmi við heilbrigt lif. Hefði góðtemplarareglan rýmri fjárráð myndi hún leggja áherzlu á barnastarfið og fjölga stúkunum. Það er hægt en það kostar vinnu. Með því starfi má koma i veg fyrir mikla ógæfu. En ekki er séð hvers hið opinbera fjárveitingavald metur það uppeldisstarf og slysavarnir. sem hér er um að ræða. Samkór Rangæinga Vetrarstarf Samkórs Rangæinga hófst í október sl. Félagar eru 24 úr sjö hreppum sýslunnar. Hefur kórinn æft einu sinni í viku í gagnfræðaskólanum á Hvolsvelli undir stjórn Friðriks Guðna Þórleifssonar. 1 vetur hefur kórinn verið að æfa Missa honorom eftir dr. Victor Urbancis, en þessi messa hefur ekki verið flutt í heild opinberlega áður. Auk þess hefur kórinn æft sálmalög. Kórinn mun halda tónleika i Stóradalskirkju, Vestur-Eyjafjöllum, föstudaginn 21. marz kl. 21.30. Laugardaginn 22. marz kl. 13.30 syngur kórinn i Hallgrímskirkju. Aö tónleikunum loknum er ferðinni heitið upp á Akranes og sungið i Akraneskirkju kl. 18. Einleikur 6 sembal ð Hðskólatónleikum Fimmtu Háskólatónleikar vetrarins verða haldnir laugardaginn 22. marz 1980. Að þessu sinni verða tónleikarnir haldnir i Forsal Þjóðminjasafnsins við Hringbraut og hefjast kl. 17.15. Aðgangur er öllum heimill. Á þessum tónleikum leikur Helga Ingólfsdóttir einleik á nýjan sembal Tónlistarskólans i Reykjavik. Semballinn er smíðaður i sembalsmiðju Willian Dowd i París og er eftirliking af frönskum 18. aldar sembal. bæði hvað smiði og skreytingu snertir. Helga Ingólfs dóttir hefur haldið fjölda tónleika á Islandi og erlendis og er vel þekkt fyrir túlkun sína á gamalli og nýrri tónlist. Á tónleikunum verður frumflutt Sembalsónata eftir Jón Ásgeirsson og einnig verða flutt Da. fantasia eftir Leif Þórarionsson. Auk þess verða flutt tvö vel þekkt sembalverk eftir J.S. Bach, Tokkata i e-moll og Forleikur (Overture). partita i frönskum stil i h-ömoll. Kóramót ð Selfossi Katla, samband sunnlenzkra karlakóra, gengst fyrir kóramóti aðildarkóra sinna i Iþróttahúsinu aðSelfossi laugardaginn 22. marz og hefjast samsöngvarnir kl. 16. Samsöngvarnir eru haldnir í þvi tilefni aðum þess ar mundir á sambandið 5 ára starfsafmæli en það var stofnað árið 1975. Sambandssvæði Kötlu nær frá Hornafirði til Breiðafjarðar og eru níu karlakórar i sambandinu. 8 kórar taka þátt i samsöngnum á Selfossi að þesu sinni en þeir eru: Karlakórinn Jökull. Höfn Hornafirði. karlakórinn Stefnir, Mosfellssveit. karlakórinn Svanir, Akranesi. karlakórinn Þrestir. Hafnarfirði, Karlakór Keflavíkur. Karlakór Reykja víkur, Karlakór Selfoss og karlakórinn Fóstbræður. Reykjavik. Samsöngvarnir fara fram með þeim hætti að hver kór syngur 2’lög að eigin vali, siðan syngja kórarnir saman 4 lög. Þetta er fyrsta stóra söngmótið sem haldið er fyrir austan fjall, en með tilkomu hins nýja glæsilega iþróttahúss að Selfossi. hefur skapazt góð aðstaða fyrir slík söngmót. Kötlufélagar vænta þess. að Sunnlendingar fjölmenni á tónleikana. Land rís á ný við Kröflu Land rís nú tiltölulega hratt á Kröflu- svæðinu eftir umbrotin þar um helgina og eru skjálftar að deyja út. Allt er þar með venjulegum hætti eftir umbrota- hrinur, að sögn Karls Grönvolds jarð- fræðings í morgun. „Framundan hjá okkur jarðvísinda- mönnum er nú mikil vinna,” sagði Karl, „hér þarf að gera miklar mæl- ingar, hæðarmælingar, fjarlægðar- mælingar og svo framvegis. Það verður ekki fyrr en við höfum séð hve land- sigið hefur verið mikið, að við getum gert okkur grein fyrir hvenær má vænta annarrar hrinu.” -ÓV Fór gegnum tvær læstar glerhurðir — og hafnaði á saumaborði slysavarðstof u og síðan ífangaklefa Fimm vel kátir ísfirðingar voru á ferð um Kópavog í nótt ásamt vinkonu einhvers þeirra sem í Kópavogi býr. Datt þá einum þeirra í hug að gaman væri að fá sér sundsprett í sundlauginni þar. Þar voru auðvitað lokaðar dyr kl. 3 um nótt. En slíkt var ekki sett fyrir sig og fór fyrirliðinn með handafli gegnum tvær hurðir úrgleri. Sú gegnumganga kostaði hann slæma skurði á fingur og hendi og þegar tók að blæða úr sárunum rann at mönnum móðurinn og hætt var við sundsprettinn. En brothljóð höfðu vakið fólk i grenndinni og lögreglubíl bar brátt að. Eftir skýrslugjöf fékk hópurinn að halda heim nema sá sem brotið hafði hurðirnar tvær. Honum var stungið inn eftir að sár hans höfðu verið saumuð saman með tugum spora. Átti hann að svara til saka í morgun. - A.St. L Tiikyimíngar CEN'ŒAL BANK Or ÍCELAND ECONOMIC STATISTICS QUARTtRLY No. 1. February1980 Seðlabankinn gefur út ársfjörðungsrit ó ensku Um þessar mundir er Seölabankinn að hefja útgáfu á nýju ársfjórðungsriti á ensku. ECONOMIC STATISTICS. og er I. tölublað þess nýkomið út. Ritið hefur að geyma margvislegar upplýsingar um islenzk efnahagsmál og auk talnaefnis verður i hverju töiublaöi stutt yfirlitsgrein um einhverja þætti efna hagsmálanna. Frá árinu 1974 hefur Seðlabankinn gefið út Hag tölur mánaðarins og hefur sú útgáfa reynzt gagnleg og bætt úr brýnni þörf fyrir aðgengilegar upplýsingar um þróun efnahagsmála. Margsinnis hefur þó verið á það bent, að nauðsynlegt væri að bæta upplýsinga þjónustu við erlenda aðila. enda berst árlega mikill fjöldi fyrirspurna erlendis frá til islenzkra hag stofnana, ekki sizt frá aðilum sem tiö eða mikil sam skipti hafa við Islendinga. Af þessum ástæðum hefur Seðlabankinn ráðizt í út gáfu ritsins Economic Statistics. sem er að verulegu leyti sniðið eftir Hagtölum mánaðarins. en er nokkru minna að umfangi. Við hönnun þess hefur að miklu leyti verið byggt á þeirri reynslu sem áunnizt hefur af útgáfu Hagtalna mánaðarins og sömuleiöis verið tekið mið af þvi að veita erlendum lesendum sem ijölbreytilegastar og gagnlegastar upplýsingar um islenzk efnahagsmál. Sem fyrr segir mun hið nýja rit koma út fjórum sinnum á ári, i febrúar. mai, ágúst. og nóvembei. Af greiðsla þess verður i hagfræðideild bankans og er •þcim sem hug hafa á að fá ritið reglulega eða látasenda það til aðila erlendis bent á aösnúa sér til deildarinnar. íslenzka málfræðifélagið efnir til umræðufundar Laugardaginn 22. marz efnir Islenzka málfræði fékagið til umræðufundar um nýútkomna kennslubók Kristjáns Árnasonar. Islensk málfræði handa framhaldsskólum. Málshefjendur verða. auk höfund ar, Arnór Hannibalsson lektor og Baldur Ragnarsson menntaskólakennari. Að loknum stuttum framsöguerindum verða frjálsar umræður. Fundurinn verður haldin i stofu 422 í Árnagarði og hefst kl. 14. öllum er heimill aðgangur og þátttaka í umræðum. Háskólafyrirlestur Lennart Elmevik. prófessor í sænsku við háskólann i Stokkhólmi, flytur opinberan fyrirlestur i boði heim spekideildar Háskóla Islands, fimmtudaginn 20. marz 1980 kl. 17.15 i stofu 422 i Árnagarði. Fyrirlesturinn nefnist ..Det tyska inflytandet pá svenska spráket under medeltiden” og verður fluttur á sænsku. öllum er heimill aögangur. Fatamarkaður Hjálpræðishersins Tekið verður á móti góðum notuðum fötum dagana 17.—22. marz. Skólataska tapaðist Svört leðurskólataska tapaöist i Breiðholti aðfaranótt föstudags. Taskan er með axlarbandi og i henni dýr- mætar bækur eiganda sinum. Nafn eiganda er i töskunni. Upplýsingar i sima 77642. Handíðir frá Finnlandi Fimmtudaginn 20. marz flytur Ruth Henriksson frá Finnlandi fyrirlestur með litskyggnum og tónlist. i fyrirlestrasal Norræna hússins og nefnir hann „Hant verkardag, ett sátt áteruppliva gammal bygdekultur”. Finnskar handíðir byggja á fornum alþýðuhefðum. en alþjóðleg fjöldaframleiðsla hefur gert að þeim harða hrið. Undanfarin ár hefur mjög mikil vakning orðið að því er lýtur að varðveizlu þessara fornu hefða og endurlífgun þeirra og meðal annars eru haldnir „hantverkardagar” eða handiðadagar viða um Finnland og hafa orðið hvati til aö taka upp að nýju gamlar, þjóðlegar handiðir. Ruth Henriksson var lektor i vefjarlist við Laguska menntaskólann i Helsingfors. Hún hefur dvalizt á Islandi áður, sumarið 1973, er hún var hér i boði Norræna hússins og hélt þá fyrirlestra fyrir almenning og námskeið fyrir islenzka handavinnukennarra, og mun hún að þessu sinni einnig halda fyrirlestur fyrir handavinnukennarana. Fyrirlesturinn á fimmtudag hefst kl. 20.30 og er öllum opinn. GENGIÐ GEIMGISSKRÁNING Ferðam.nn.. I NR. 53 - 17. MARZ1980 aj.id.yrir Einingkl. 12.00 Kaup Sala Sala 1 Bandarfkjadollar 409,20 410,20* 45U2* 1 Sterlingspund 893,10 895,30* 984,83* 1 Kanadadollar 345,20 346,10* 380,71* 100 Danskar krónur 7035,15 7052,35* 7757,58* 100 Norskar krónur 8046,40 8066,10* 8872,71* 100 Sœnskar krónur 9373,50 9396,40* 10336,04* 100 Finnsk mörk 10542,30 10568,10* 11624,91* C 100 Franskir frankar 9406,90 9429,90* Li 10372,89* 100 Bolg. frankar 1353,85 1357,15* 1492,86* 100 Svissn. frankar 22879,50 22935,40* 25228,94* 100 Gyllini 19975,60 20024,40* 22026,84* 100 V-Þýzk mörk 21946,90 22000,50* 24200,55* 100 Llrur 47,34 47,46* 52,20* 100 Austurr. Sch. 3066,30 3073,80* 3381,18* 100 Escudos 819,20 821,20 903,32* 100 Pesetar 588,00 589,40* 648,34* 100 Yen 164,06 164,46* 180,90* 1 Sórstök dróttarróttindi 521,98 523,26* * Breyting fró síðustu skróningu. Simsvari vegna gengisskróningar 22190.

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.