Dagblaðið - 08.04.1980, Blaðsíða 13

Dagblaðið - 08.04.1980, Blaðsíða 13
DAGBLAÐIÐ. ÞRIÐJUDAGUR 8. APRtL 1980. 13 Þuriður Björnsdóttir, Erna Hansen, Reynir Armannsson og Björn Benediktsson með Guðlaugi Þorvaldssyni ríkissáttasemj- ara. Þetta eru nokkrir af stuðningsmönnum Guðlaugs, en hann er nú að opna skrifstofu. DB-mynd Bjarnleifur. Guðlaugur Þorvaldsson í forsetaf ramboði: Ekki skuldabagga eftir kosningar „Það er mál til komið að fara að gera eitthvað. Ég hef fram að þessu verið í minni vinnu,” sagði Guð- laugur Þorvaldsson, ríkissáttasemjari og einn af frambjóðendum i forseta- kosningunum í sumar. Það var mikið um að vera fyrir páskahelgina á skrifstofu Guðlaugs, var þó ekki enn búið að opna form- lega. Menn voru í óðaönn að leggja síðustu hönd á að dreifa bæklingi varðandi framboð Guðlaugs. Guðlaugur sagði að enn væri ekki búið að koma á neinni verkaskipan nema hvað Guðbjartur Gunnarsson væri ritstjóri bæklingsins og myndi 'sjá um allt er varðaði ritstjórn. Hann sagðist byggja mest á sínum stuðningsmönnum, vinum og kunn- ingjum með allt starf i kringum kosn- ingarnar. „Það þýðir ekki að segja annað en að þetta leggist vel í mig. Síðan er þetta allt undir fólkinu komið,” sagði Guðlaugur og bætti við að hann stefndi að því að vera ekki með skuldabagga á bakinu eftir kosning- ar. Ekki ætti heldur að verða nein hætta á þvi þar sem flestir ynnu fyrir hann i sjálfboðavinnu. Guðlaugur mun byrja eitthvað að ferðast um landið upp úr miðjum apríl. Simar á skrifstofunni í Reykja- vík á Suðurlandsbraut 20, 4. hæð, eru 39820 og 39831. - BS / EVl Ekki hægt að senda út frá Jarðstöðinni: Kópavogskaupstaður: Vill eignast Fífuhvamm „Það er fyrst og fremst Fífuhvamms svo og þeim sem hug stefnumörkunin, að Kópavogs- hefðu á að eignast þetta land það Ijóst kaupstaður eigi sjálfur lönd innan lög- að Kópavogur hefði ekki í huta að sitja sagnarumdæmis hans,” sagði Björn aðgerðalaus. Ólafsson bæjarráðsmaður Alþýðu- Hann bætti þvi við að kanna þyrfti til bandalagsins í Kópavogi, en fyrir páska hlitar möguleikana á að eignast var tillaga hans einróma samþykkt á Fífuhvamm. Það væri á margan hátt aukafundi bæjarstjórnar Kópavogs, að ekki árennilegt að geta ekki nýtt eignast Fífuhvamm með einhverjum ntöguleikana á að byggja á landinu ráðum. nema á löngum tíma. Leggja þyrfti dýrt Björn sagði að Kópavogs- holræsi og fasteignamat á jörðinni kaupstaður vildi bæði gera eigendunt væri nú fast að 1020 millj. -EVI. Kópasker: Kiwanisklúbburinn gaf heilsugæzlu- stöðinni sjúkrabíl Kiwanisklúbburinn Faxi á Kópa- fyrir þessum kaupum á sl. ári, en skeri afhenti heilsugæzlustöð Kópa- kaupverðið er hátt á tíundu tnilljón skerslæknishéraðs að gjöf mjög króna. Einnig hefur verkalýðsfélagið vandaðan sjúkrabíl sunnudaginn 30. á staðnum veitt mjög hagstætt lán marz. Þetta er fyrsti sjúkrabíllinn til kaupanna. sem kemur til Kópaskers. Kiwanisklúbburinn Faxi var Héraðinu hefur verið þjónað frá stofnaður í janúar 1977 og forseti Húsavík með sjúkraflutningum fram hans nú er Jónas Þorgrimsson. til þessa. Klúbbfélagar hafa safnað -AB, Kópaskeri. Gróft brot á reglugerð FÉKK AÐEINS ÁMINNINGU Allt efni verður að fara í gegnum sjónvarpið „Það er ekki nokkur möguleiki á því að hægt sé að senda út sjónvarpsefni frá jarðstöðinni,” sagði Gústaf Arnar verkfræðingur hjá Pósti og síma. Þrá- látur orðrómur hefur verið uppi um það að frá hinni nýju jarðstöð við Úlfarsfell væri hægt að senda beint ýmsar sjónvarpsrásir erlendar. Þyrfti aðeins að kaupa eitthvert smátæki i viðbót til að Islendingar gætu valið á milli erlendra sjónvarpsdagskráa. Aprílgabb sjónvarpsins gaf þessum umræðum síðan byr undir báða vængi. „Öll sjónvarpsdagskrá sem fer í gegnum jarðstöðina verður að fara í gegnum íslenzka sjónvarpið til dreif- ingar. Það færi þannig fram að ís- lenzka sjónvarpið pantaði fyrirfram beina sendingu á þætti eins og Söngva- keppni Evrópu og pantaði tíma i gervi- hnetti. Tekið yrði á móti efninu í jarð- stöðinni og þaðan sent niður í sjón- varp sem síðan sæi um að senda það út. Enginn möguleiki er á að senda út öðruvísi, ekki einu sinni með einhverju viðbótartæki,” sagði Gústaf Arnar. -DS — Sjávarútvegsráðuneytið þykirsýna linkind ímálinu „Við sendum honum skeyti um að hann væri sviptur leyfi og var honum haldið í landi frá kvöldi og fram eftir degi næsta dag á meðan málið var tekið til ákvörðunar. Síðan var hon- um tilkynnt að kæmi þetta fyrir aftur þá missti hann leyfið endanlega,” sagði Jón B. Jónasson, deildarstjóri í sjávarútvegsráðuneytinu er DB hafði samband við hann út af máli loðnubátsins Helgu Guðmundsdóttur frá Patreksfirði. Báturinn var staðinn að því að brjóta reglugerð um að bátar komi með netin með sér í land. Að 'sögn heimildarmanns DB höfðu skipverjar á Helgu áður fengið á- minningu en ekki sinnt henni. Þykir því ýmsum sem sjávarútvegs- ráðuneytið hafi sýnt linkind i þessu máli og það kunni að h\etja ntenn til að hafa þessa reglugerð að engu. „Þetta er eini hátturinn sem við höfum haft á þessu,” sagði Jón. „Við höfum áminnt fleiri aðila þegar upp hefur komizt að þeir hafi ekki dregið upp öll netin og aðeins komið með hluta þeirra að landi. Enginn hefur þó ennþá misst ley fið endanlega,” sagði Jón B. Jónasson að lokum. -GAJ. Ferðagjald- eyrir hækkar í1000 dollara úr718 Gjaldeyrir til islenzkra ferðamanna sem fara utan hefur nú verið hækkaður i allt að 1000 dollara en var áður fyrir allt að 310 þúsund islenzkra króna, eða samkvæmt núgildandi gengi rétt um 718 dollarar. Gjaldeyrisskammturinn á hér eftir að fylgja 1000 dollurum eða jafngildi þess í öðrum gjaldeyri. Kemur þetta jafnhliða breytingum á reglum um afgreiðslu gjaldeyris sem á þá að verða skjótari en verið hefur. Gjaldeyrisdeildir Landsbanka og Út- vegsbanka hafa fengið víðtækari heimildir til afgreiðslu umsókna án af- skipta sameiginiegrar gjaldeyrisdeildar bankanna, sem lögð hefur verið niður. Birtar hafa verið auglýsingar þar sem kveðið er nánar á um gjaldeyris- reglur. Tölvueftirlit verður tekið upp í rtkari mæli en áður. Um gjaldeyris- umsóknir sem ekki eru innan fastra reglna mun verða fjallað í samstarfs- nefnd um gjaldeyrismál, sem stofnuð var í janúar síðastliðnum. -ÓG. frábær hljómgæöi fyrir alla Ferðakassettuútvarp með 3 bylgjum BORGARTÚNI 18 REYKJAVÍK SlMI 27099

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.