Dagblaðið - 20.09.1980, Blaðsíða 4

Dagblaðið - 20.09.1980, Blaðsíða 4
4 Ck DAGBLAÐIÐ. LAUGARDAGUR 20. SEPTEMBER 1980. DB á ne ytendamarkaði 90% ALLRA BRÉFA 20 G EDA MlNNA „Það er því miður alveg rétt að ódýrara sé að senda tvö tuttugu gramma bréf en eitt fjörutíu gramma. En kannski kostnaðurinn jafni sig upp í auknum umslögum,” sagði Rafn Júlíusson póstmálafull- trúi. Fyrir nokkru l'urðuðum við okkur hérna á síðunni á þessari stað- reynd og fannst að eitthvað væri brogað við það að miða bréf við 20 grömm eða 100 grömm og ekkert þar á milli. „Þetta er samkvæmt alþjóðlegum póstsantningi sem við erum aðilar að og Itöfum ekkert vald til að breyta út af. Burðargjöld hafa haldizt inn- byrðis óbreytt síðastliðin 10 ár. Áður voru þyngdarmörk miðuð við hver 20 grömm. Samkvæmt því hefði verið ódýrara en nú að senda 40 gramma bréf en aftur mun dýrara að senda 60,80 eða 100 gramma bréf. Áður en þessi nýju mörk voru ákveðin var athugað hvað þau bréf sem fólk sendi vægju mikið. í ljós kom að 90% þeirra vógu 20 grömm eða minna. Afgangurinn vó svona 80—90 grömm i langflestum tilfellum. Þetta varð til þess að búin var til flokkunin 20-100-250-500-1000-2000 gramma bréf til einföldunar og þyngri mega bréfin ekki vera. Rafn sagði að vitaskuld væri hvert einasta bréf sem sett væri í póstkassa ekki vegið. Vogirnar gætu líka verið misnákvæmar þannig að bréf sem vægi rétt rúm 20 grömm væri metið sem 20 gramma en ekki hundrað gramma. - DS Hrá rabarbarasaft Kæra Neytendasíða! Þið voruð að biðja um uppskrift að hrárri rabarbarasaft og hér er hún: 6 kg raharbari 5 I valn 40 gr vínsýra 2 tsk benzosúrt nalron 250 gr sykur á móti lílra af valni (Ég nota minni sykur en það fer auð- vitað eftir smekk hvers og eins). Rabarbarinn er brytjaður, settur i. plastbala. Köldu vatninu hellt yfir ásamt vínsýrunni og benz natr. Hrært vel í. Látið standa í einn sólar- hring. Vatninu þá hellt af rabarbaranum og sykurinn látinn í saftina. Hrært i þar til sykurinn er uppleystur, sett á flöskur. Síðan má endurtaka þetta en þá á að nota minna af vínsýru og benz. natroni. Sú saft verður ekki eins sterk og geymisl ekki eins lengi. Ég er annars ekki viss um geymslu- þolið á saftinni því satt að segja hef ég aldrei átt hana lengi. Hún klárast í einum hvelli hjá mér. ísköld er hún mjög góð við þorsta, vinsælli en nokkur ávaxtasafi sem hægt er að fá úr búð. Og síðan ég fór að skera rabarbar- ann með gömlum brauðhníf (rúg- brauðshníO er ekkert verk að safta og sulta. Mesta verkið var alltaf að brylja rabarbarann niður.” Þetta bréf er frá Guðrúnu Stefáns- dóttur, ísafirði. Við þökkum kærlega fyrir uppskriftina og henni er hér með komið á framfæri. Það ber ekki á öðru en það fari vel um þau i heita vatnsnuddpottinum i Mosfellssveitinni. Sá litli heitir Monier Odureri, sá elzti Þorkell Einarsson, þá Einar Þorkelsson, Brynhildur Þorkelsdóttir og Kristfn Jóhannsdóttir. -EVI. Nýjasta nýtt: Vatnsnudd úti í garði „Þetta er sannkölluð heilsulind, hefur svipuð áhrif á mann og venju- legt nudd enda er þetta vatnsnudd,” segir Einar Þorkelsson húsasmiða- meistari í Mosfellssveit og teygir makindalega úr sér í heitum potti, sem hann hefur komið sér upp í garð- inum hjá sér. ,,Það eru þó nokkrir svona pottar komnir hérna í Mosfellssveitina. Ég fer í pottinn svo að segja daglega og fjölskyldan og kunningjarnir, fyrir nú utan krakkana, kunna vel að meta hann.” Einar upplýsir að pottinn hafi hann fengið hjá Herkules í Mosfells- sveit og hann kosti um 1.250 þús. óniðurkominn. Honum fylgi loft- dæla, til þess að framkvæma nuddið og í honum er þykkt plast, fiberglass. Enginn vandi sé að grafa fyrir honum í garðinum sínum. Það geti hver maður gert. Yfirfall er á pottinum og sírennsli. Þegar hann erekki í notkun er breitt yfir hann plast. Einar notar affallsvatnið, sem hann skerpir aðeins á, þegar vetur gengur í garð. „Þvi að auðvitað nota ég gripinn sumar, vetur, vor og haust,” segir Einar. - EVI Niðursoðinn matur getur verið skaðlegur sem innihalda vetni og kolvetni tærist tinið einnig. Efnasambandið stannous cloride eða tinklór er notað í suma svala- drykki. Við neyzlu á því eykst tin- magnið í líkamanum. Tinklórið er notað í sykurlausa drykki til þess að halda tærleika þeirra. Sykur sér hins vegar um það hlutverk i sætum drykkjum. Væri tinklórið ekki notað yrði drykkurinn smám saman ógeðs- legur á litinn og fólk keypti hann síður. Tin safnast einnig i líkamann við neyzlu á niðursöðnum tómötum og sitrus-ávöxtum. Sýra i ávöxtunum vinnur á tininu i dósunutn og eftir því sem matvælinæru lengur i þeim eykst Heiimlisbókliald vikuna: til n jr i í i i • i • 1 i • . Mat- oe* dr\díkiarvoruT. hremlætisvortir off b.n. Sunnud Mánud Þriöjud Midvikud Funmtud Föstud Laugard « Sanrt t Sanrt Samt. Samt Samt Rnnrt. Samt Önnur útgjcM: Suunud Mánud Þridjud Miöviknd FLmmtud Föstud Laugard > Samt Saznt Samt Samt Samt Samt Samt l -... ' ■ ...... - - ' — -r —— ~—- -: _ _ hrásaft með fyrir- TAKS GEYMSLUÞ0L Sólveig hringdi og gaf okkur upp- skrift að hrárri rabarbarasalt. 3 pelar af vatni á móti einu kg af rabarbara og 1 tsk af vínsýru. Þetta látið standa i þrjá sólarhringa, þá sigtað og saltin vegin. Á móti hverjum litra af saft á að láta 750 gr af sykri. Sólveig sagðist skola flöskurnar að innan með rotvarnarefni og sér hefði reynzt það prýðilega. Húu sagðist hafa verið á dögunum með fjögurra ára gamla saft, sem var alveg prýði- leg. - A.Bj. Þeir sem neyta vissra svaladrykkja og niðursoðinnar vöru geta verið í lífshættu. Að því hefur John nokkur Wood, yfirmaður ferskvatnsrann- sókna í Minnesota i Bandaríkjunum komizt. Hann hefur undanfarið feng- izt við miklar rannsóknir bæði á kvikasilfurseitrun og tineitrun. Árið 1968 lagði hann mikinn skerf til þess ara vísinda með því að sanna að meinlaust kvikasilfur getur breytzt i verulega hættulegt eitur þegar inn i mannslíkamann er komið. Hann hefir nú sannað að hið sama gerist með tin. Hinar venjulegu bakteriur sem í mannslíkamanum eru tæra tinið þannig að það verður stór- hættulegt. Við hjálp efnasambanda tininnihald þeirra. Tært tin er eins og tært kvikasilfur hættulegt taugakerf- inu. Einkenni taugaeitrunar er doði í fingurgómum og vörum. Aukin neyzla leiðir af sér mál- og heyrnar- leysi. Sé enn haldið áfram getur maðurinn lamazt alveg og læknast aldrei aftur. Eitrunin á hástigi veldur meðvitundarleysi og dauða. Bæði heili manna og taugakerfi eru þannig gerð að í gegnum þau berst súrefni bæði fijótt og örugglega. Þvi eru eitrunaráhrif hvers konar fijót að berast til þessara líkamshluta. Þeir hafa hins vegar ekki þá skiljuhæfni sem aðrir líkamshlutar hafa og þvi sezt efnið þar að. í tilraunum sem gerðar voru á karlmönnum og ófrísk- um konum þeirra kom i Ijós að kvikasilfurseitrun kom mun fyrr i Ijós á körlunum. Þegar hins vegar börnin fæddust kom i ljós að þau': báru merki eitrunarinnar. Wood segir að til sé leið til þess að koma í veg fyrir tineitrunina en hún sé dýr. Tinklórið er ódýrasta efnið sem til er til þess að halda tærleika ávaxtasafa. C-vitamín eða askópín- sýra geri sama gagn en sé miklu mun dýrara. Einnig er möguleiki á því að húða innan niðursuðudósir sem notaðar eru undir grænmeti og ávexti. Sá kostnaður sem af slíku leiddi ætti að greiðast upp í minnk- andi veikindatilfellum vegna tineitr- unar. En Wood bendir á að næsta lítið sé vitað um það hversu mikils tins við neytum. Reynt hefur verið að mæla slíkt í þvagi manna og blóði. I þeim rannsóknum hafa menn komizt að því að magnið hefur fjórtánfaldazt á síðastliðnum 10 árum. Þessi aukning ásamt með aukinni notkun annarra hættulegra málma svo sem blýs, arse- niks og kvikasilfurs, gæti endað með þvi að leiða af sér alvarlegan heilsu- skaða fólkser fram í sækir. zlPS Dóra Stefánsdóttir

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.