Dagblaðið - 20.09.1980, Blaðsíða 24

Dagblaðið - 20.09.1980, Blaðsíða 24
Þjóðhagsstofnun staðfestir fullyrðingu Karls Steinars og félaga: Skattbyrði hefur aukizt um sex milljarða — frá því á síðasta ári — „krafan er að láglaunafólk fái til baka af þessum fjármunum,” segir Karl Steinar Guðnason „Þjóðhagsstofnun hefur að beiðni Þrastar Ólafssonar, aðstoðarmanns fjármálaráðherra, reiknað út að skattbyrðin á landsmenn hafi aukizt um 0,7% eða 6 milljarða frá síðasta ári. Þetta er þvi óumdeilanleg stað- reynd. Krafa okkar að þeir sem búa við verst lífskjör fái til baka af þess- um fjármunum,” sagði Karl Steinar Guðnason varaformaður Verka- mannasambands íslands í samtali við DB. Karl Steinar og 10 aðrir forystu- menn flestra láglaunafélaganna inn- an Alþýðusambands íslands lögðu fram tillögu á fundi 43ja manna aðal- samninganefndar ASÍ 10. sept. Þar var þess krafizt að verkalýðshreyfing- in leitaði tafarlaust eftir viðræðum við rikisvaldið um skattalækkun lág- launafólks í formi skattaafsláttar sem komi til útgreiðslu á þessu ári. Nemi hækkun á greiðslubyrði einstaklinga í beinum sköttum á þessu ári um 6 milljörðum króna. „Því var haldið fram á 43ja manna-nefndarfundinum, sérstak- lega af Alþýðubandalagsmönnum sem vilja vernda ríkisstjórnina, að fullyrðingin um 6 milljarða skatta- aukningu stæðist ekki. Nú er þetta orðin borðliggjandi staðreynd. Sam- kvæmt útreikningi Þjóðhagsstofnun- ar hafa ríkisskattar aukizt um 1,7 milljarða en skattar sveitarfélaga um 4,3 milljarða frá því í fyrra eða samanlagt um 6 milljarða. Það er æ háværari krafa í verka- lýðshreyfingunni að skattalækkun sé eina leiðin til að skapa raunhæfa aukningu kaupmáttar. Fólkið sem býr við slæm lífskjör setur ekki fyrir sig hvort það er ríki eða sveitarfélag sem tekur stærri og stærri hlut tekna þess. Það sem máli skiptir er að skatt- byrðin í heUd er þyngri og lífsafkoma launafólks að sama skapi erfiðari,” sagði Karl Steinar Guðnason. - ARH 2. verðlaun í keppninni um SUMARMYND DB ’80: Við flugum í gær „ Við flugum í gœr” er heitið, sem dómnefnd í keppninni um Sumarmynd D'B ’80 gaf myndinni, sem hreppti annað sætið í keppninnL Höfundur- inn, Sigurður Stefán Jónsson, hlýtur því í verð- laun, sem afhent verða á næstu dögum, fullkomna Canon AE-1 Ijósmyndavél frá Týli hf. í Austur- strœti, að verðmœtiyfir 350.000 krónur. Bolungarvík: Hart deilt á skólastjóra grunnskólans — megn óánægja foreldra, — kennarar standa stutt við — deilur skólanefndar og skóiastjóra MikU óánægja ríkir nú á Bolungar- vík með stjórn skólastjórans í grunn- skóla Bolungarvíkur og beinist óánægja foreldra nemenda raunar bæði gegn skólastjóranum og konu hans, sem einnig er kennari við grunnskólann. Samkvæmt upplýs- ingum, sem Dagblaðið hefur aflað sér á Bolungarvík, er einnig megn óánægja margra kennara skólans með stjórn skólans og endast kennar- ar stutt í starfi á Bolungarvík. Hefur þessa gætt nokkur undanfarin ár. Þá eru harðar deilur milli skóla- nefndar og skólastjóra og mögnuðust þær mjög í haust, er skólastjóri lagð- ist harkalega gegn ráðningu kennara, sem kennt hefur við skólann undan- farna þrjá vetur. Skólanefndin mælti einhuga með ráðningu kennarans. Enginn annar sótti um starfið. Kenn- arinn er ekki með réttindi, en er að vinna sér þau inn á námskeiðum Kennaraháskólans. Úrslit urðu þau að menntamálaráðuneytið skipaði kennarann, en foreldrar óttast að honum verði lítt vært í skólanum. Fullyrt er að óánægja foreldra sé mjög almenn og i gær barst Dagblað- inu bréf, sem undirritað er af 27 for- eldrum á Bolungarvík. Þar er spurt hvað sé að gerast í s kólamálum á Bol- ungarvík. Stór hópur óánægðra for- eldra hafi þungar áhyggjur af því ástandi, sem verið hefur að skapast í grunnskólanum. Góðir kennarar, sem bæði nemendur og foreldrar hafi haft góð samskipti við, hafi horfið frá skólanum hver af öðrum. Yfir- völd skólamála verði að taka málið til alvarlegrar athugunar. Foreldrarn- ir fara fram á það að nú þegar verði athugað hvers vegna svo margir kennarar hafi horfið og að uppræta verði þau öfl, sem valda því. Þá verði vinnuf riður skapaður. Foreldrarnir benda á það, að svo virðist sem ekki sé tekið mark á skólanefnd, þar sem nefndin hafi i fyrra verið mótfallin ráðningu kenn- ara, en hann engu að siður ráðinn. Einnig er bent á deilur þær sem staðið hafa i haust um deilur skóla- stjóra og skólanefndar um kennara- ráðninguna, sem fyrr var nefnd. - JH frjálst, úháð dagblað LAUGARDAGUR 20. SEPT. 1980. Handtaka blaðamannsins: Lögreglu- rannsókn- inni enn ólokið Enn er ólokið rannsókn þeirri er staðið hefur innan lögregluembætdsins í Reykjavík að undanförnu á máli Guðlaugs Bergmundssonar, blaða- manns á Helgarpóstinum. Eins og komið hefur fram í fjölmiðlum var Guðlaugur handtekinn þar sem hann fylgdist með afskiptum lögreglu af unglingum í miðbæ Reykjavíkur fyrir hálfum mánuði. Var Guðlaugur borinn þeim sökum af lögreglunni að hafa hvatt til óspekta meðal unglinganna. Því hefur hann neitað staðfastlega og telur handtökuna hafa verið með öllu ;tilefnislausa. Hefur hann íhugað að höfða mál vegna handtökunnar. William Möller aðalfulltrúi lög- reglustjóra sagði i samtali við blaða- mann DB í gær að rannsókn þessi hefði dregizt á langinn, þar sem tvö vitni hefðu ekki verið í bænum. Kvaðst hann þó vonast til að rannsókninni lyki á næstu dögum. -GAJ. Víkingur í 3. sæti eftir 2-1 sigur Víkingur tryggði sér 3. sætið í 1. deild, er liðið bar sigurorð af Akurnes- ingum 2-1 í aukaleik liðanna um sætið. Sigurinn færði Víkingi rétt til þátttöku í UEFA-keppninni að ári og eru Vík- ingar vel að þeim rétti komnir. Það var Lárus Guðmundsson er færði Víkingi forystuna i leiknum á 19. mínútu er hann notfærði sér mistök Jóns Gunnlaugssonar til hins ýtrasta og skoraði af öryggi framhjá Bjarna Sigurðssyni markverði. Jóhann Þor- varðarson bætti öðru marki Víkings við á 53. mínútu eftir gullfallegan sam- leik hans og Lárusar, en sex mínútum 'SÍðar minnkaði Sigþór Ómarsson muninn fyrir Akranes með marki af stuttu færi. Bæði liðin fengu góð tækifæri til að bæta við mörkum Og á síðustu mínút- um munaði ekki miklu að Skagamenn jöfnuðu, en Diðrik markvörður Vík- ings varði þá snilldarlega skot frá Krist- jáni Olgeirssyni, er stefndi í samskeyt- in. - SA Prúðu leikaramir í Dagblaðsbíó Prúðu leikararnir verða í Dagblaðs- bíói á morgun klukkan þrjú í Hafnar- biói. Þar fara á kostum froskurinn Kermit, Svínka, Fossi björn og fleira frægt fólk. Myndin er í litum og með íslenzkum texta. LUKKUDAGAR: 20. SEPTEMBER 28359 Henson æfingagaili. Vinningshafar hringi ísíma 33622.

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.