Dagblaðið - 27.04.1981, Blaðsíða 32

Dagblaðið - 27.04.1981, Blaðsíða 32
Hópurinn var hrcss í gœr er hann hittist heima hjá Jónasi Pálssyni stýrimanni en hann var rúmiiggjandi. Eiginkona hans, Dagbjört Níelsdóttir, les fyrir þá skeyti sem barst frá forscta íslands, Vigdísi Finnbogadóttur. Aðrir á m vndinni eru Flosi Þorgeirsson háljbróðir Ólafs, 13 ára, Agúst Guðmundsson kvikmyndagerðarmaður, Melkorka Ólafsdóttir 11 ára, dóttir Ólafs og Ólafur Torfason kennari. Á innfelldu myndinni er hluti hópsins hjá trillunni Kára en hún mun að mestu vera óskemmd. DB-myndir Magnús Trilla með fimm manns innanborð strandaði á Breiðafirði: VAR ORÐIÐISKYGGI- LEGT ÞEGAR FÓR AÐ FLÆÐA YFIR STÍGVÉLIN — segir Ólafjur Torfason en hann beið ásamt þremur öðrum á örlitlu skeri á meðan Ágúst Guðmundsson synti í land eftir hjálp ,, Við vorum alveg vissir um að okkur yrði bjargað en þetta var orðið ansi ískyggilegt þegar farið var að flæða yfir stígvélin okkar. Börnin voru orðin hrædd enda stóðum við á örlitlu skeri, svona á stærð við borðstofuborð, öll i hnapp. Við vorum búin að biða eftir hjálp i eina og hálfa klukkustund og ég var tilbúinn til að synda lika i land þegar við sáum til bátanna,” sagði Ólafur Torfason kennari í Stykkis- hólmi í samtali við blaðamann DB í gær. Ólafur ásamt Ágústi Guðmundssyni kvikmyndagerðarmanni, Jónasi Páls- syni gamalreyndum stýrimanni, 11 ára dóttur Ólafs og hálfbróður hennar, 14 ára, lentu í hrakningum er trilla þeirra Kári, strandaði við lítið sker rétt fyrir utan Purkey. Þeir höfðu lagt upp í leiðangurinn með Ágústi sem var að kanna aðstæður fyrir kvikmyndatöku á mynd sinni Gísla sögu Súrssonar. Myndin á að gerast á Hergilsey en Ágúst hafði hugsað sér að kanna aðstæður á annarri eyju í staðinn. „Jónas stýrimaður hefur farið þarna í um 60 ár og er vel kunnugur öllum aðstæðum. Hann hafði samt ekki hug- mynd um þetta sker sem báturinn tók niðri á. Báturinn fór þegar á hliðina um 45 gráður og skuturinn fór allur í kaf. f fyrstu höfðum við hugsað okkur að ýta bátnum frá skerinu en hurfum frá þvi þar sem við töldum að þá færi hann alveg f kaf. Ágúst, sem er mikill sundmaður, ákvað að binda lfnu í sig og syna til næstu eyjar sem er Purkey en það eru um 100 metrar þangað. Hann kastaði af sér peysu og stígvélum og lagði af stað í mjög erfiða ferð því mikill straumur er þarna. Hann komst klakk- laust á leiðarenda og batt línuna í fjöruna. Þá átti hann eftir að ganga alla eyjuna sem er að minnsta kosti hálftíma til klukkustundar gangur. Ágúst var berfættur svo gangurinn reyndist honum mjög erfiður. Á Purkey tók á móti Ágústi Jón Jónsson sem nýlega hafði komið til eyjarinnar. Hann gaf honum kaffi og koníak til að hita honum og hafði strax simasam- band við Stykkishólm. Þangað komu tveir bátar skömmu síðan. „Það var mjög heppilegt að Jón var i Purkey,” sagði Ólafur. Á þessum stað hafa verið miklir mannskaðar, síðast fyrir tveimur árum er feðgar drukknuðu þarna. ,,Nei, við vorum ekki í björgunarvestum og tal- stöðin fór í kaf með bátnum svo hún var ekki nothæf. Árni frá Stykkishólmi kom til björgunar og einnig Valur. Valur dældi upp úr trillunni, en Árni dró hana í land. Trillan er komin upp á land núna og ég held að hún sé að mestu leyti í lagi,” sagði Ólafur. Fimm- menningarnir voru með hressasta móti i gær þó Jónas hafi fegið f rúminu og Ágúst ætti erfitt með gang. Þess má geta að forseti íslands, Vigdfs Finn- bogadóttir, sendi skeyti til Ágústs er hún frétti um hrakningana. -ELA. Búizt við samningaf undi f fóstrudeilunni á morgun: DAGVISTUM BORGAR 0G RÍKIS LOKAÐ —um mánaðamótin haf i ekki tekizt að semja við f óstrurnar í vikunni Fóstrur sem starfa á dagvistum Reykjavíkurborgar og rikisins hætta störfum um mánaðamótin hafi samn- ingar ekki tekizt við þær um kaup og kjör fyrir þann tíma. Er hér um að ræða u.þ.b. 140 fóstrur sem starfa hjá borginni og 35 fóstrur sem eru rikisstarfsmenn og starfa á dagvistum i tengslum við sjúkrahúsin, í öskju- hlíðarskóla, Heyrnleysingjaskólan- um og viðar. Aðallega er deiit um skipan i launaflokka. Fyrr f vetur hafa fóstrur á Akureyri, Kópavogi og á Seltjarn- amesi náð samningum við bæjarfé- lögin og byrja nú störf á öllum stöð- um i 12. launaflokki en hækka sfðan um flokka eftir ákveðinn fjölda ára, þó mismunandi eftir bæjarfélögum. Fóstrur hjá borginni byrja hins vegar i 11. flokki og hjá rikinu í 10. flokki og gera kröfur um að ná jafnrétti i kjörum við kollegana annars staðar. Björgvin Guðmundsson, formaður launamálanefndar borgarinnar, hefur átt óformlega fundi meö full- trúum fóstra og samninganefndar Starfsmannafélags Reykjavfkurborg- ar. Hann sagðist búast við að fljót- lega yrði boðað til formiegs samn- ingafundar, ef til vill á morgun. ,,Við gerum okkur auðvitað vonir um að þetta leysist fyrir mánaðamót- in,” sagði Björgvin. „Fóstrumar gera miklar kröfur en við höfum ekki enn boðið neitt á móti þannig aö erfitt er að segja um hve, mikið ber á milii. Samningsstaða þeirra er sterkari þar sem þær bera sig saman við fóstmr i öðmm bæjar- félögum sem sömdu f vetur. En Reykjavik hefur sérstöðu: Hér vinna langflestar fóstror og má ætla að ef of langt er gengið í samningunum sé meiri hætta á hliðarverkunum. Að aðrir hópar komi á eftir og ný vanda- mál skapist.” Marta Sigurðardóttir fóstra á dag- vist Kleppsspitalans sagði i morgun að fjármálaráðuneytismenn, við- semjendur fóstra sem vinna hjá rik- inu, væm ekki til viðtals um að semja fyrr en lokið væri samningum fósu-a við Reykjavikurborg. Starfsmanna- félag rikisstofnana er samningsaðili fyrir- fóstrur til mánaöamóta, en Marta sagðist líta svo á aö eftir mán- aðamótin ætti að semja beint við þær, enda væru fóstrurnar þá ekki lengur starfsmenn ríkisins. -ARH. frfálst, úháð dagblað MÁNUDAGUR 27. APRÍL 1981. Skákþing íslands: Möguieikar Heiga og Elvars mestir Þegar einni umferð er ólokiö á Skák- þingi íslands eru þeir Helgi Ólafsson og Elvar Guðmundsson efstir og jafnir með 7 vinninga og hafa vinningsfor- skot á fjóra næstu menn sem eru Jóhann Hjartarson, Guðmundur Sigurjónsson, Ingi R. Jóhannsson og Björn Þorsteinsson. Þeir hafa allir 6 vinninga. Jón L. Árnason heltist úr lestinni í gær í baráttunni um efsta sætið er hann tapaði óvænt fyrir Braga Kristjánssyni. Jón hefur 5.5 vinninga og á því ekki möguleika á sigri. Úrslit í öðrum skák- um i gær urðu þau, að Helgi vann Björn Þorsteinsson, Elvar vann Jóhannes Gísla Jónsson, jafntefli gerðu Karl Þorsteins og Guðmundur Sigurjónsson og Ingi R. Jóhannsson og Jóhann Hjartarson. Skák Ásgeir Þórs og Jóhanns Þóris fór í bið og er jafn- teflisleg. Síðasta umferðin verður tefld í kvöld. Þá mætir Helgi Ásgeiri og Elvar mætir Braga. Fari svo að þeir verði jafnir að vinningum munu þeir heyja fjögurra skáka einvígi um íslands- meistaratitilinn. Fari svo ólíklega að þeir Elvar og Helgi tapi báðir skákum sínum í kvöld gætu fjórir næstu menn náð þeim að vinningum. Lokaumferðin verður tefld að Hótel Esju og hefst kl. 7 í kvöld. -GAJ. Keflavík: Maður um sextugt beið bana í stiga — ífjölbýlishúsi Bandaríkjamaður um sextugt lét lifið er hann féll niður stiga i fjölbýlishúsi í Keflavik. Engin vitni voru er at- burðurinn átti sér stað en íbúar í húsinu heyrðu dynk á ganginum og gerðu lögreglunni viðvart. Trúlegt þykir að maðurinn hafi ætlað að heimsækja son sinn er býr í húsinu en hafi farið íbúðarvillt. Maðurinn hefur búið á íslandi í fjöldamörg ár, hann var ekkill og átti nokkuð mörg börn. Ekki er unnt að skýra frá nafni hins látna þar sem ekki hefur náðst til allra barna hans. -ELA. Ævintýraleg ökuferð Ævintýraleg ökuferð var farin um austurbæ Kópavogs á stolnum bil aðfaranótt sunnudagsins. Bíllinn var loks skilinn eftir stórskemmdur ef ekki ónýtur. Um er að ræða Austin Mini bifreið, dökk orangelitaða meö númerinu G- 11241. Sýnilegt er að bifreiðinni hefur verið ekið utan i staura og/eða veggi og loks hefur verið trampað á vélarhlíf bifreiðarinnar og þaki svo eyðilegging- in væri fullkomnari. Kópavogslögreglan biður alla er varir hafa orðið við aksturinn að láta sig vita. -A.St. diet pepsi MINNA EN EIN KALÓRÍA í FLÖSKU Sanitas A

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.