Dagblaðið - 02.10.1981, Side 4

Dagblaðið - 02.10.1981, Side 4
4 DAGBLAÐIÐ. FÖSTUDAGUR 2. OKTÓBER 1981. DB Norðmenn eyða milljarði norskra króna í snyrtivörur: Líkami mannsins orð- inn að heilum iðnaði —snyrtivörur skemma oft heilsuna í stað þess að gera fólk ungt og fallegt í ár er líklegt talið að Norðmenn frændur okkar eyði um það bil millj- arði norskra króna (um 1,3 milljörð- um íslenzkra króna) í snyrtivörur ým-, iss konar. Þetta er engin smáræðis upphæð. í nýjasta hefti Forbruker- rapporten, norska neytendablaðsins, er einmitt löng grein um snyrtivörur og fé sem til þeirra er eytt. Þar sem mér finnst margt af þessu koma okkur hér á landi mikið við hef ég stytt greinina verulega og þýtt og fer hún hér á eftir. Norðmenn eyða um milljarði norskra króna í snyrtivörur í ár. Lík- ami mannsins er orðinn að hlut sem heill iðnaður snýst í kringum. Iðnaður sem byggist á því að gera hárið meira skínandi, húðina mýkri og líkamann betur lyktandi. Og þetta er keypt vegna þess að fólk trúir því að það þurfi að vera hjúpað fögrum litum og góðri lykt. Menning okkar telur það eðlilegt að menn séu háðir iðnaði forgengileikans. En séu þessar vörur athugaðar nánar kemur í ljós að ekki eru þær allar hollar eða eins góðar líkam- anum eins og framleiðendur þeirra segja. Snyrtivörur innihalda oft hættuleg efni. Samt er þegar í skólum farið að kenna börnum að þessar vörur eigi þau að nota ef þau ætla að vera eins og hinir. Strax i grunnskóla er börnum kennt að þrífa likama sinn. Kennarar í þessu fagi eru oftar en ekki menn sem eru á einhvern hátt tengdir snyrdvöruframleiðslu, inn- flutningi eða þá snyrtistofum. Litir og lykt fyrir milljarð Snyrtivörurnar virðast eiga greiðan aðgang að flestum. Menn byrja daginn á að setja á sig svitalyktareyði og enda hann á góðu kremi. Eða þá í baði sem í hefur verið látið ilmefni. Ekki eru það Iengur bara konur sem hafa vanið sig á notkun snyrtivar- anna heldur virðast karlmenn í vax- andi mæli vera komnir út á sömu braut. I Noregi vinna 5 þúsundir manna í snyrtiiðnaðinum. Þeir vinna í verk- smiðjum, á snyrtistofum, í snyrti- vörurverzlunum og sérdeildum lyfja- verzlana. Til sölu eru yfir þúsund vörumerki. Hugmyndin sem allur snyrti- iðnaðurinn byggir á er hugmynd um ungt og fallegt fólk. Það þýðir að þvi eldri sem menn verða, þurfa þeir þeim mun meira af snyrtivörum til þess að geta talizt til þessa hóps. Einnig er gengið út frá því að líkami fólks eins og hann kemur fyrir sé alls ekki nógu góður. Það sé vond lykt af honum og hann sé alls ekki nógu fallegur. Þetta verður að fela vel og vandlega og aðeins að sýna líkamann sem ilmandi og fagran. Góöur ilmur og fagurt útlit er lika talið bera vott um snyrtimennsku og hreinlæti. Ef þú ert hreinn, ilmarðu vel, er sagt. Þetta er kennt í 1200 norskum skólum. Hver hluti líkamans á að fá meðferð með sérstökum snyrtivörum til þess ætluðum. Ekkert of hollt Þegar farið er að skoða snyrtivör- urnar nánar kemur í ljós að ekki eru allar þeirra hollar og eins góöar og af er látið. Heilbrigöisefdrlit Osló- borgar lét rannsaka mikið af snyrtí- vörum og kom þá í ljós að meðal þeirra voru vörur sem geta valdið heilsutjóni. Vörur sem fluttar eru tíl Noregs innihalda oft efni sem bannað er að nota i norskri snyrtivörufram- leiðslu. Fyrir utan hættuna af snyrtívörum hefur lika komið í ljós að þær gera ekki það gagn sem auglýst er. Krem getur til dæmis ekki eytt hrukkum. Þegar bezt lætur getur það aðeins slétt úr þeim í smátíma. Mikið er gert úr frelsinu tíl að velja. Um 500 fyrirtæki bjóða fram snyrtivörur og býður það stærsta þeirra 800 tegundir af vöru. Heildar- talan er yfir þúsund merkja. En hver þarf að velja milli 40 fótsnyrtí- merkja, 24 tegunda af hárlakki, 50 sjampótegunda og 76 tegunda af svitalyktareyði? Mest af þessum snyrtívörum er selt í sérverzlunum, milli 85 og 90%. Næst koma sérdeildir lyfjaverzlana. Sérstakar póstverzlanir og sala á heimilum sér fyrir afgangnum ásamt með kjörbúðum. Um helmingur var- anna er framleiddur í Noregi en mest af því er undir alþjóðlegum vörumerkjum. Innfluttu vörurnar koma mest frá Frakklandi, Banda- ríkjunum, Vestur-Þýzkalandi og Bretlandi. Ekki er lengur leyndarmál hvað snyrtivörurnar innihalda heldur það í Framleiðendur snyrtivara reyna sí- fellt að koma fram með nýjar vörur sem seljast betur en vörur keppinauta þeirra. Oft tekur mörg ár að þróa slíka vöru og auðvitað eru það svo þeir sem endanlega kaupa hana sem borga fyrir það starf. Verðið á vör- unni þarf því ekki að vera 1 neinu samræmi við innihald hennar. Það er dýrt að halda sér ungum. Flestir kaupa sér eina litla krukku af kremi í einu og síðan varalit og í næsta skipti augnskugga. Þegar keypt er í svona litlum einingum virðist nefnilega verðið ekki skipta neinu máli. f auglýsingum er reynt að fá fólk til að kaupa heila „línu” af snyrtívörum til þess að allt sé í stíl hvað við annað. Er þá bent á að j»ð kostí ekki meira en einn kjóll, og hvort hafi nú meiri áhrif á útlitið. ímyndin er að vera ungur og fatlegur. Eftir þvl sem aldurinn færist yfir þarf meira af snyrtivörum tii þess. Þessi unga stúlka hefur sjálfsagt sloppið með litilræði. Hér á landi hafa verið haldnar mjög vel sóttar sýningar og kennslustundir í „réttri” snyrtingu. Myndin er tekin á einni slikri sýningu. Karlmenn sækja i auknum mæli eftir snyrtivörum hvers konar. Þeir verða lika æ dyggari vinir snyrtistofanna. hvaða hlutfalli því er blandað. Blöndunin er í rauninni það eina sem greinir á milli merkja því öll nota þau sama hráefni, meira og minna. Flestir þeir sem vinna við snyrtí- iðnað eru konur. Alls vinna um 5 þúsundir manna á einhvern hátt við snyrtívörurnar. Margt af jjessu fólki er fólk sem lært hefur í iðnskólum eða líkum skólum eitthvað í sínu fagi. En margir af þeim sem vinna við að selja snyrtívörur eru menn með öllu menntunarlausir og vita því i raun næsta lítið um það hvað þeir eru að selja. Mikið lagt í auglýsingar Mikið er lagt í auglýsingar á snyrti- vörum. Nýlega var gerð könnun á því hvað fólki fyndist um þessar auglýs- ingar. Þá kom í ljós að 42% spurðra sögðu að þeim þætti auglýsingarnar of miklar. Þar af voru 18% sem fannst of mikið af auglýsingum fyrir snyrtiefnum, 8% sem fannst of mikið af sápuauglýsingum, 4% of mikið af tannkremsauglýsingum og 3% of mikið af sjampóauglýsingum. 2% nefndu of mikið af svitalyktareyða- auglýsingum. Skólarnir kenna notkun snyrtivara Strax í norskum grunnskólum er farið að kenna börnunum umhirðu um eigin líkama. Hreinn, hreinni, hreinastur, nefnist námsefnið fyrir þau yngstu, „Hve oft þvær Súper- mann fæturna” efni fyrir þau sem eru dálítið eldri. Seint í grunnskóla er síðan á námskrá bókin „Húð og snyrting”. Þessi bók er unnin af fólki sem starfar við snyrtiiðnaðinn. í öllu námsefninu er lögð áherzla á að menn séu ekki hreinir, penir, sætir og huggulegir nema að þvo sér oft og nota mikið af snyrtivörum. Oft á tíðum er kennarinn jafnnvel milli- liður um kaup á snyrtivörum handa nemendunum. Meðvitað og ómeð- vitað eru nemendur þannig gerðir að dyggum viðskiptavinum snyrtivöru- verzlana. Hættulegar Nákvæm rannsókn hefur farið fram á þeim hættum sem geta verið samfara notkun á hárlit og augna- háralit (maskara). í nokkru af báðum þessum litarefnum hafa fundizt hættuleg efni. Rannsóknir sem gerðar hafa verið úti í heimi sýna að þessi efni geta verið krabameins- valdandi. Þau smjúga inn í líkamann. Til dæmis finnast stuttu eftir hárlitun litarefni í þvaginu. Ennþá hefur ekki verið upplýst hvaða efni þetta eru sem hættunni valda. En öllum snyrti- og hár- greiðslustofum hefur veríð gert að gera nákvæma grein fyrir því hvaða efni eru notuð. Erfitt er að gera nokkuð við því þó hættuleg efni séu í notkun. Að vísu er bannað að nota sum þeirra í norskri framleiðslu en hver sem er getur flutt hvaða snyrtí- vörur sem er erlendis frá án þess að spyrja kóng eða prest. Vegna þess að viða um heim er búið að setja strangar reglur eða er verið að þvi, um hvað má flytja inn af snyrtí- vörum, óttast Norðmenn að þeir fái yfir sig 1 auknum mæli vörur sem ekki má selja til annarra landa. Og þó eitthvað væri gert í því að takmarka innfluming heildsala er enn stór vandi eftir. Mikið af snyrtivörum er keypt í póstverzlunum og fer aldrei í gegn um hendur yfirvalda. Því er hætta á því að í áraraðir ennþá verði á markaði efni sem í stað þess að gera fólk fallegt skemma heilsu þess. -DS/Þýddi og stytti mikið.

x

Dagblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.