Ársrit Ræktunarfélags Norðurlands - 01.01.1974, Blaðsíða 91
fleiri ára, og reiknuð meðaltöl samstæðra tilrauna, og reynt
að draga ályktanir af þeim. Helztu niðurstöður eru sem hér
greinir:
A. Átta afbrigði gáfu meira af söluhæfum kartöflum en
Gullauga, en aðeins eitt þeirra, Rya frá Noregi, er með
þurrefnisprósentu sambærilega við Gullauga og gæti virst
ábtlegt afbrigði til matar.
B. Söluhæf uppskera af Gullauga óx með vaxandi hita-
summu mánuðina júní—ágúst (r = 0,76##). Lítil úrkoma
framan af sumri (júlí) hefur stundum dregið talsvert úr upp-
skeru, þannig að hiti og úrkoma myndu sameiginlega fylgja
uppskerunni enn betur.
C. Tilraun með vaxandi skammta af N, P og K gaf til
kynna, að hámarksuppskeru væri náð við 240 kg N/ha en
þá var borið á samhliða 126 kg P og 299 kg K/ha.
D. Tilraun, þar sem spírur voru sniðnar af kartöflum,
sýndi, að uppskera minnkar verulega ef spírum fækkar,
einkum ef þær verða færri en 3 á hverri kartöflu.
E. Tilraun með vaxtarrými, þar sem bil milli raða var
60 sm, sýndi að hagkvæmast mundi að hafa 25 sm milli
kartaflna. Ef sett var þéttara niður óx uppskera af söluhæf-
um kartöflum lítið, en smælki talsvert.
F. Tilraun með Afalon til eyðingar arfa sýndi að 1 kg/ha
nægði til að halda arfanum niðri og gefa hámarksuppskeru.
Stærri skammtar af lyfinu drógu úr uppskeru. Bragðprófun
sýndi að úðun dró úr bragðgæðum, einkum eftir að komið
var upp í 3—5 kg/ha af lyfi.
SUMMARY
In this paper the main results o£ potato experiments at Akureyri
Experiment Station the last 25 years are discussed.
A. Eight varieties yielded more marketable potatoes than the Gull-
auga variety (one of the most common varieties for human consumtion
in Iceland), but only one of them, Rya from Norway, had dry matter
percentage comparable to Gullauga and therefore might seem to
qualify as variety good for human consumption.
B. Marketable crop of the Gullauga variety increased with increas-
94