Árbók Landsbókasafns Íslands - Nýr flokkur - 01.01.1979, Blaðsíða 55

Árbók Landsbókasafns Íslands - Nýr flokkur - 01.01.1979, Blaðsíða 55
,,AF SKRIFUÐUM SKRÆÐUM ER ALLT GOTT“ 55 Jón Borgfirðingur var einmitt einn þeirra manna, sem hvað ötulast gekk fram í því að safna handritum fyrir Bókmenntafélagið og Jón Sigurðsson, haldinn óslökkvandi ástríðu á söfnun bóka og handrita og byrjaði þegar í æsku að draga að sér bækur og handrit. Mörg bókin og handritið hefði glatazt með öllu, ef hann hefði ekki fest hendur á þeim. Jón Jónsson Aðils segir um hann í grein í Skírni 1913: „Honum rann til rifja, er hann sá illa hirt um bækur eða handrit, og vildi ekki vita minnsta snepli fleygt, ef eitthvað var á hann prentað eða ritað. Sjálfur sýndi hann mér einu sinni blaðadót í handritasafni Bókmenntafé- lagsins, sem hann kvaðst hafa skarað út úr hlóðum á sveitabæ einum. Hafði hann komið þar af tilviljun, rétt í því er eldabuskan ætlaði að snerpa undir katlinum, og ekki verið seinn á sér að hirða dótiðA11 Og Finnur Sigmundsson fyrrum landsbókavörður kemst svo að orði umjón Borgfirðing: ,,I Landsbókasafni eru margar minjar Jóns Borg- firðings, og mundi þykja þar skarð fyrir skildi efallt, sem merkt er nafni hans, væri horfið þaðan. Hann var um langt skeið ötull hjálparmaður Jóns Sigurðssonar við söfnun handrita og prentaðra bóka . . . Eftir dauða Jóns Borgfirðings eignaðist Landsbókasafnið einnig allt sem það vildi af prentuðum bókum hans og handritum og fékk þar margan góðan grip og fáséðan, ekki sízt smælki ýmiskonar, sem Jón hélt jafnan til haga af mikilli natni. Meðal þess, sem safnið eignaðist að Jóni látnum, voru dagbækur hans, en þar kennir margra grasa . . . Dag- bækur hans eru samfelldar frá 1860 til 1907, og er þar saman kominn margháttaður fróðleikur um samtíð Jóns og áhugamál. Til er einnig mikið safn af bréfum frá Jóni til vina hans og kunningja, og eru þau góð viðbót við dagbækur hans. Að sjálfsögðu hélt hann saman öllum bréfum, sem honum bárust, og er það mikið safn. Skrifaðist hann á við ýmsa fræðimenn og áhugamenn, lærða og ólærða, og má þar meðal annars finna margskonar fróðleik um handrit og bækur.“12 Jón Sigurðsson og Jón Borgfirðingur skrifuðust á um nærfellt aldar- fjórðungs skeið. Bréfjóns Borgfirðings til nafna síns eru 61 alls, en Jóns Sigurðssonar 32.13 Enda þótt ýmislegt beri þar á góma, er megin- þráðurinn um bækur og handrit, einkum söfnun fyrir Bókmenntafé- lagið, því að aðeins lítið eitt lenti í safni Jóns Sigurðssonar. Þeir nafnar hittust í fyrsta sinn í Reykjavík vorið 1853, er Jón Sigurðsson var hér heima á þingi. Jón Borgfirðingur var á bóksöluferðalagi þetta ár og segir m. a. svo í ævisögubroti sínu, þar sem hann kveður sig hafa fýst í kaupavinnu norður í landi og hafa leigt sér tvo hesta í því skyni í Borgarfirði: ,,. . . Hélt ég upp Lundarreykjadal og brá mér um leið til
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100

x

Árbók Landsbókasafns Íslands - Nýr flokkur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Árbók Landsbókasafns Íslands - Nýr flokkur
https://timarit.is/publication/280

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.