Árbók Landsbókasafns Íslands - Nýr flokkur - 01.01.1988, Síða 62
62
GRÍMUR M. HELGASON
Handrit Jóns í Simbakoti, þau er varðveitt eru í Landsbókasafni.
Háeyri getur þess jafnan aftan við nýskrifaða sögu eða rímur, að hann
hafi haldið á penna fyrir hinn sögufróða Jón Jónsson í Simbakoti eða
bóndann og fræðimanninn Jón í Simbakoti.
Skrifararnir greina oft frá því, hvernig handritin, sem þeir rita eftir
séu á sig komin, sum gömul, rotin eða lítt læsileg; höíðu enda farið
víða og oft verið flett mishreinum fingrum. Sum þeirra fékk Jón lánuð
úr nálægum sveitum, svo sem frá Þorkatli Þorkelssyni frá Hamri í
Gaulverjabæjarhreppi; önnur voru lengra að komin, t.d. austan frá
Svartanúpi í Skaftártungu frá Guðmundi Runólfssyni og Guðmundi
og Runólfi Guðmundssonum; einstaka að sunnan, til að mynda frá
Guðmundi Hjartarsyni á Hóli í Grjótaþorpi í Reykjavík; og einnig
gátu verið hæg heimatökin að bregða sér til Vernharðs Jónssonar á
Skúmsstöðum á Eyrarbakka og fá léð hjá honum kver til þess að láta
skrifa eftir.
Sjaldan hefur Jón látið skrifa eftir prentuðu, ef marka má efni
kveranna 20. Prentaðar bækur reyndi hann að eignast, þótt dýrar
væru og það gæti svo sem orðið nógu erfitt mörgum manninum, sem
á stundum var betur auraður en hann, og eina ráðið væri kannski að