Árbók Landsbókasafns Íslands - Nýr flokkur - 01.01.1988, Blaðsíða 73
LANDSBÓKASAFNIÐ 1986
73
Frú Björg Ellingsen afhenti mikið safn bréfa og annarra handrita
úr fórum manns síns, Ragnars Jónssonar forstjóra í Smára. Aður
hafði safninu borizt frá henni um hendur Ólafs Pálmasonar eigin-
handarrit Guðmundar Kambans að leikritinu Marmara.
Ýmis gögn komin úr fórum Indriða Einarssonar. Dr. Aðalgeir
Kristjánsson afhenti fyrir hönd Ingileifar Ólafsdóttur.
Ragnar Ingólfsson færði Landsbókasafni að gjöf margvísleg gögn
úr búi foreldra sinna, sr. Ingólfs Þorvaldssonar og Önnu Nordal í
Ólafsfirði, bréf, ræður o.rn.fl.
Agnete Loth magister, ekkja Jóns Helgasonar prófessors í
Kaupmannahöfn, afhenti að gjöf a. Nemendaröð 1. og 2. bekkjar
Bessastaðaskóla 1833. b. Nokkur bréfspjöld.
Ensk þýðing fyrirlesturs Jóns biskups Helgasonar um siðaskiptin á
íslandi. Þýðingunni fylgir bréf þýðandans, sr. Guttorms Guttorms-
sonar í Minneota, Minnesota, til Jóns Bíldfells í Winnipeg. Gjöf
Margrétar Pétursson í Winnipeg.
Ýmis gögn úr fórum Gunnsteins Eyjólfssonar skálds í Nýja íslandi,
m.a. sendibréf, dagbókarbrot, leikrit, smásögur og ljóð. Dóttir hans
Þórdís, ekkja Steins O. Thompsons læknis og þingmanns í Riverton,
Manitoba, sendi að gjöf.
Guðrún I. Jónsdóttir frá Asparvík afhenti handrit sitt að þætti um
Jón Guðmundsson „lækni“ á Hellu í Steingrímsfirði og fleiri greinum;
ásamt bréfi frá Jóni Hjaltalín landlækni, dags. 9. júlí 1859.
Handritasyrpur Halldóru B. Björnsson. Dóttir hennar, Þóra Elfa
Björnsson, afhenti.
Katrín Ólafsdóttir Hjaltested afhenti nokkur handrit úr fórum
föður síns, Ólafs Björnssonar ritstjóra, og afa síns, Björns Jónssonar
ritstjóra.
Kvæðasyrpur Magnúsar Gíslasonar skálds (1881—1969). Dagmar
Kaldal afhenti sem gjöf erfingja Guðrúnar og Jóns Kaldals.
Einkaskjöl, skilríki, sendibréf o.fl. varðandi Gísla Guðmundsson
stúdent frá Bollastöðum í Blöndudal. Margrét Ó. Thors afhenti, en
henni fékk til varðveizlu Kristján Albertsson fyrrv. sendiráðunautur.
Páll Skúlason lögfræðingur og ritstjóri afiienti nokkur bréf til
Guðrúnar Þorsteinsdóttur, konu sr. Skúla Gíslasonar á Breiðabóls-
stað. Þau koma til viðbótar efni, er Páll afiienti 1985.
Eymundur Magnússon prentmyndagerðarmaður afhenti handrit
með kvæðum frá 18. og 19. öld, ennfremur mynzturteikningar.