Árbók Landsbókasafns Íslands - Nýr flokkur - 01.01.1988, Qupperneq 76
76
LANDSBÓKASAFNIÐ 1986
sinna nota það rými, sem losnar í Þjóðskjalasafni við brottflutning
þess úr Safnahúsinu.
Þjóðdeildarefni var á árinu samkvæmt aðfangabók 5.292 bindi, og
eru þar innifalin um 300 bindi erlendra rita um íslenzk efni. Þá er
þess að gæta, að af íslenzkum prentskilaeintökum eru tvö eintök af
langflestu efni talin til aðfanga.
í könnun, sem Nanna Bjarnadóttir deildarbókavörður hefur gert á
ritauka þjóðdeildar á árunum 1983-86, segir m.a., að hann hafi verið
samtals þessi ár samkvæmt aðfangabók 19085 bindi, þar af 10438
aðaleintök bóka, blaða, tímarita og skýrslna. 3138 bindi aftímaritum,
blöðum og skýrslum voru færð í aðfangabók þessi 4 ár, en slíkt efni er
ekki fært inn, þegar það berst, heldur þegar árgangar eru heilir orðnir
og tilbúnir til bands. Sumt af þessu var gamalt og einfalt, annað
tvöfalt, eins og vera ber (um 785 bindi á ári).
Samkvæmt þessu hafa komið í safnið um 8000 rit til skráningar
eftir aðfangabókinni að dæma þessi síðustu 4 ár, þ.e. 2000 til jafnaðar
á ári. íslenzk bókaskrá tekur 1400 (bækur, bæklinga og sérprent, sem
koma ekki fram í töluyfirliti, en þau voru t.a.m. 246 í bókaskrá 1983).
Þá eru eftir um 600 rit til annarrar skráningar auk óinnfærðs og
óskráðs eldra efnis.
Þær breytingar urðu á starfsliði deildarinnar á árinu, að Bryndís
ísaksdóttir, Hólmfríður Magnúsdóttir og Gunnar Skarphéðinsson
létu af störfum, en að deildinni komu Bergljót Garðarsdóttir Sleight
og Anna Georgsdóttir. Dráttur varð á því fram yfir áramót, að
fullskipað yrði í starfslið deildarinnar.