Vísbending - 21.02.1997, Page 4
ISBENDING
Hagtölur
Misháverðbólga
s
Iumræðunni um evró hafa vaknað
ýmsar áleitnar spurningar um aðferðir
sem notaðar eru við mælingar á efna-
hagsstærðum í hinum ýmsu löndum.
Meðal þess sem fram hefur komið er að
mismu2nandi reikningsskilaaðferðir
geta gert gæfumuninn hvort ríki
uppfyllir kröfuna um 3% halla á
rflcissjóði miðað við landsframleiðslu. í
Financial Times nýlega er velt upp
tvenns konar mælingum á verðbólgu.
Annars vegar er um að ræða mælingu
einstakra ríkja og hins vegar mælingar
sem gerðar eru á gagnagrunni hjá
Evrópusambandinu. Unnið er að því að
samræma aðferðir.
Mismunandi mælingar
Breytingar á verðlagi í nóvember 1996
Gögn Gögn
ESB ríkis
Austurríki 2,2 2,3
Belgía 2,4 2,4
Danmörk 2,4 2,4
Finnland 1,4 0,7
Frakkland 1,6 1,6
Grikkland 7,3 8,3
Holland 1,8 2,4
írland*’ 2,3 2,0
Ítalía 2,8 2,6
Portúgal 2,9 2,7
Spánn 3,2 3,2
Svíþjóð 0,2 (0,1)
Þýskaland 1,3 1,4
Arsfjórðungslegar tölur
í Bandaríkjunum hefur verið umræða
um að mæliaðferðir ofmeti verðbólgu.
Bent hefur verið á að hægt sé að minnka
halla ríkissjóðs með því að breyta að-
ferðum því allar bætur sem greiðast eiga
í framtíðinni taka mið af verðbólgu. Gal 1 -
inn er sá að enginn stjórnmálamaður
þorir að skerða bæturnar sem kjósendur
eiga von á í framtíðinni.
Vísbend irtgin
Ikjölfar þess að stofnaður verður nýr
ríkisbanki og þess að starfandi ríkis-
bönkum verðurbreytt íhlutafélög munu
ríkisábyrgðir á nýjar skuldbindingar
þessara stofnana falla niður. Eldri skuld-
bindingar munu áfram njóta ríkis-
ábyrgðar eins og verið hefur. Við þessa
breytingu munu þau markaðsskulda-
bréf sem njóta rfki sáby rgðar verða flokk-
uð á annan hátt en ný skuldabréf. Senni-
legt er að eldri bréfin verði verðlögð
hærra en ný bréf sömu stofnana. Fróð-
legt verður að bera saman mun ávöxt-
unar milli einstakra stofnana en hann
segirtil um álit markaðarins árekstrinum.
GULL
Viðskipti með gull hafa löngurn
haft yfir sér hulu leyndardóma.
Þau hafa í áraraðir farið aðallega
fram í London en einnig í Zurich, New
York, Tokyo, Sidney og Hong Kong.
Fram til þessa hafa upplýsingar um
gullviðskipti verið af skornum skammti.
Ekki er hægt að áætla af opinberum tölum
hver velta gulls er í heiminum. Hugsan-
legt er þó að hér verði breyting á. London
Bullion Market Association (LBMA)
ákvað nýlega að birta upplýsingar um
veltu á markaðinum London. Astæður
þessa er ótti forráðamanna við að við-
skiptavinirnir telji sig standa óvarða
gegn bellibrögðum vegna leyndarinn-
ar sem hvílir yfir viðskiptunum. í London
er talið að um 930 tonn af gulli skipti um
hendur á h verj um degi en það er j afn virði
um 10 milljarða dollara. Áætlað er að
það sé frá þriðjungi lil fimmtungs heild-
armarkaðarins. En markaðurinn með gull
er þannig uppbyggður að hægt að spila
á hann án þess að unnt sé að bregðast
við því.
„Verðmyndun“
Verð á gulli er samkvæmt kenning
unni afleiða markaðslögmála en
framkvæmdin erumdeilanleg. Tvisvará
dag hittast fimm fulltrúar gullmarkaðar-
ins í London í skrifstofum N.M. Rot-
schilds og ákveða verð með aðstoð sím-
tengingar við viðskiptastofur sínar.
Kenningin segir að hver sem er geti haft
áhrif á verðið með því einu að hafa sam-
band við verðbréfastofuna með milli-
göngu verðbréfamiðlara. Þegar verðið
hefur verið ákveðið er hægt að kaupa
og selja mjög mikið af gulli áþessu verði.
Þetta hafa ntenn notað sér.
Að nota sér aðstæður
Banki í Saudi Arabíu notaði sér
leyndarhuluna sem er yfir gullvið-
skiptum til að hagnast verulega í mars
1990. Hann seldi 50 tonn (1,6 milljón
únsur), surnir segja 100 tonn, rétt eftir
að verðið var ákveðið. Eftir það lækkaði
verðið um 20 dollara hver únsa. Hann
fékk greiðsluna í sterlingspundum og
við þessi stóru viðskipti hækkaði pund-
ið þannig að hann græddi vel. Þetta var
fullkomlega löglegt, en eftir þetta fóru
menn að huga að áhættunni. Ef bankinn
hefði ætlað að fá hátt verð fyrir svo
mikið gull á annars konar mörkuðum
hefði hann orðið að dreifa viðskiptunum
yfir langan tíma eða þola lækkun á verði.
Heimild: Financial Times
Þeir áskrifendur Vísbendingar sem
ekki hafa fengið möppur eru beðnir
um að hafa samband í síma 5617575.
Aðrir sálmar
Boðun fagnaðar-
erindisins
Löngum hefur verið sagt unt Islend-
inga að það þurfi útlendinga til að
segjaþeim einföld sannindi. Þettakemur
upp í hugann að lokinni stórveislu í
Perlunni þar sem rætt var um einkavæð-
ingu ríkisfyrirtækja. Á ráðstefnunni
voru fyrirlesarar frá Alþjóðabankanum
ogTékklandi, auk Jónasar H. Haralz og
Davíðs Oddssonar. Bein útsending var
á Stöð 2 og einnig var mikill hluti frétta-
þáttarins 19-20 helgaður málinu. Fróð-
legt var að heyra viðhorf fyrirlesaranna
en allir voru þeir á einu máli um ágæti
einkavæðingar. Athyglisvert er hversu
mikil alvara og ákefð er í einkavæðingu
í Tékklandi en þettaferli hefurgjörbreytt
þeirra lífsmynstri ekki aðeins vegna lít-
illar þátttöku ríkisins núorðið í atvinnu-
rekstri heldur vegna mikillar þátttöku
almennings í landinu.
Getum við lært eitthvað?
Islendingar geta tekið sér þetta til fyrir-
myndar. Sérstaklega mætti skoða þá
hugmynd að skipta upp ríkisfyrirtæki
með þeim hætti að öllum íbúunt íandsins
væri sent hlutabréf og síðan gæti hver
íbúi gert það upp við sig hvort hann kýs
að vera hiuthafi eða hvort hann vill selja
bréfin á markaði. Ekki er nokkur vafi á
því að áhugi almennings á rekstri og
afkomu viðkomandi fyrirtækis yrði mikill,
að ekki sé talað um viðhorfið til þess.
Athy gli s verður li sti
Listinn sem forsætisráðherra las upp
jm ríkisfyrirtæki sem verið væri að
breyta um rekstrarform, og jafnvel stæði
til að einkavæða var athyglisverður.
Meðal fyrirtækjanna á listanum voru
ríkisbankarnir, Póstur og sími, Islenskir
aðalverktakar, Áburðarverksmiðjan og
Sementsverksmiðjan. Mestu tfðindin
voru þau að selja ætti 49% af eignarhluta
ríkisins í ríkisbönkunum. Framkvæmda-
bankinn verður víst að veruleika en
vonandi gefst öðrum bankastofnunum
kostur á að kaupa hann upp og leggja
hann niður í framhaldinu.
Ritstjórn: Tómas Örn Kristinsson ritstjóri og
ábm., Benedikt Jóhannesson. Útg.:
Talnakönnun hf., Borgartúni 23, 105 Rvík.
Sími: 561-7575. Myndsendir: 561-8646.
Internetslóð:http://www.strengur.is~talnak/
vief95.html, netfang:talnak@strengur.is
Málfarsráðgjöf: Málvísindastofnun Háskól-
ans. Prentun: Gutenberg. Upplag: 700eintök.
Öll réttindi áskilin. Ritið má ekki afrita án
leyfis útgefanda.