Frjáls verslun - 01.12.1989, Blaðsíða 12
FRETTIR
FLUGLEIÐIR:
REKSTRARHALU1989
- EN BJARSÝNIUM AFKOMU FRAMUNDAN
Stj órnarformaður
Flugleiða hf., Sigurður
Helgason, hefur þann
ágæta sið að senda hlut-
höfum í félaginu frétta-
bréf með upplýsingum
um rekstur Flugleiða.
í nýútkomnu frétta-
bréfi segir að ljóst sé að
nokkur rekstrarhalli
verði á fyrirtækinu á ár-
inu 1989. Engu að síður
gera menn ráð fyrir góðri
afkomu framundan: „Þótt
ferðalög Islendinga drag-
ist hugsanlega saman
enn frekar má búast við
aukningu erlendra ferða-
manna, m.a. vegna já-
kvæðrar kostnaðarþró-
unar hér á landi miðað við
það sem verið hefur und-
angengin tvö til þrjú ár.
Er því von til nokkurrar
bjartsýni um afkomu fé-
lagsins framundan."
Fram kemur að mikill
samdráttur hefur orðið í
Atlantshafsflugi Flug-
leiða frá árinu áður. Nem-
ur samdrátturinn 37%
sem mun vera í samræmi
við þá stefnumörkun fé-
lagsins að það sé ekki
lengur samkeppnisfært í
þessum rekstri vegna
kostnaðarþróunar hér
innanlands svo og vegna
mun harðari og öflugri
samkeppni en áður var.
í Evrópuflugi félags-
ins varð 3,3% aukning
fyrstu 10 mánuðina, en
2,3% samdráttur í innan-
landsfluginu. Athygli
vekur að ferðum íslend-
inga til og frá landinu hef-
ur aðeins fækkað um 2%
á fýrstu 11 mánuðum
saman borið við árið á
undan.
SPASTEFNA STJORNUNARFELAGSINS?
MIÐLAR OG KYNLÍFSFRÆÐI?
Það vakti mikla athygli
á spástefnu Stjórnunarfé-
lagsins í desember að
stjörnuspekingur var
fenginn til að vera meðal
ræðumanna. Menn höfðu
á orði, í gamni og alvöru,
að þetta væri tímanna
tákn þar sem hagfræðing-
um og stjórnendum fyrir-
tækja gengi sífellt verr að
spá í spil efnahags- og at-
vinnulífs þjóðarinnar.
Þannig að nú væri komið
að því að leita til stjarn-
anna.
Menn létu þau orð falla
sín á milli að hvergi væri
ruglið í áætlanagerð þó
eins mikið og hjá hinu op-
inbera og því ætti sérlega
vel við að á þeim vett-
vangi væri leitað til
stjörnuspekinga eða jafn-
vel æðri máttarvalda.
Höfðu menn þá einkum í
IBM 4684:
STYTTIR
AFGREIÐSLUTÍMA
Fjölmargar matvöru-
og sérvöruverslanir hafa
fest kaup á IBM 4684
sölukerfum og fleiri
verslanir fylgja í kjölfar-
ið. Meðal þeirra sem
keypt hafa eru Nóatún í
Reykjavík og Kópavogi,
Grund í Grundarfirði,
Vöruval á ísafirði, Mat-
vörumarkaðurinn á Ak-
ureyri og Plúsmarkaðirn-
ir í Kópavogi, Hafnarfirði
og Reykjavík.
Sölukerfið sem hér um
ræðir er að sögn öflugt af-
greiðslutæki sem felur í
sér margvíslega hagræð-
ingu í verslunarrekstri,
skapar meira öryggi og
minnkar vinnuálag versl-
unarfólks. Ljóst er að
huga Fjárlaga- og hag- sýslustofnun. Þorvaldur Gylfason prófessor sagði að nú hefðu menn tekið fyrsta skrefið inn á nýja braut með því að kalla til stjörnuspeking. Því væri rökrétt að halda enn lengra næsta ár og fá þá miðil til liðs við spá- stefnugesti, svo og kyn- lífsfræðing til að fjalla um frumaflvaka atvinnulífs- ins. með notkun kerfisins verður afgreiðslutími miðað við hvern við- skiptavin mun skemmri en verið hefur til þessa. Verslanir sem greint er frá hér að ofan, munu taka strikamerkjalesara í notkun með IBM 4684.
BÍLAINNFLUTNINGUR: HEKLA SÖLUHÆST ANNAÐ ÁRIÐ í RÖÐ
Flest bendir til þess að Hekla hf. hafi orðið sölu- hæsti bifreiðainnflytj- andinn til Islands annað árið í röð með yfir 20% markaðshlutdeild. Uppi- staðan í þessari miklu sölu eru japönsku fólks- bílarnir frá Mitsubishi en nú eru liðin tíu ár frá því Hekla tók að sér umboð fyrir þá hér á landi. Þetta kemur fram í nýútkomn- um Heklufréttum. Sagan frá sjöunda og áttunda áratugnum er nú að endurtaka sig, því á þeim tíma var Hekla hvað eftir annað söluhæsti bílainnflytjandinn til Is- lands þegar Volkswagen og Land-Rover nutu hvað mestra vinsælda. Á árinu 1989 voru ein- ungis fluttir um 6,000 bíl- ar inn til Islands, sem er það minnsta sem verið hefur frá árinu 1985. Um 16,000 bílar voru fluttir inn árið 1988 og 23,500 bílar árið 1987, þannig að umskiptin hafa orðið gíf- urleg á tveimur árum.
12