Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.03.1998, Page 39

Frjáls verslun - 01.03.1998, Page 39
MARKAÐSMÁL HBHHBHBBBI umtalsverður. Eign starfsmanna í ís- lenskri erfðagreiningu er trúnaðar- mál hjá einkafyrirtæki sem þessu uns það verður opið hlutafélag, væntan- lega síðar á árinu. Það ræðst af því hvernig markaðurinn er hverju sinni og hvort menn meti það svo að ásætt- anlegt verð fáist. Undirbúningur að skráningu fyrirtækisins á eriendum hlutabréfamarkaði er þó þegar haf- inn. Aðalskráning mun fara fram er- lendis. Ástæða þess að ísland verður vart fyrir valinu er sú að menn vilja laða meira ijármagn til landsins og að markaður sá sem Islensk erfðagrein- ing er skráð á, þarf að vera af ákveð- inni stærð og nokkuð þróaður til að geta tekið við fyrirtæki eins og ís- lenskri erfðagreiningu. Einnig er æskilegt, að sögn Hannesar, að vera innan um fleiri fyrirtæki af sama toga. Islendingum hefur þó þegar gefist kostur á að kaupa í Islenskri erfða- greiningu. Hópi íslenskra fyrirtækja, Jjárfesta og einstaklinga var boðinn hlutur í Islenskri erfðagreiningu í lok- uðu útboði sem Fjárfestingabankinn, Landsbréf, Kaupþing og VÍB önnuð- ust. Hlutabréfin seldust vel en selt var fyrir sjö hundruð og tuttugu milljónir króna. Fyrir útboðið var markaðsvirði íslenskrar erfðagreiningar metið á hundrað og tíu milljónir Bandaríkja- dollara eða á tæpa átta milljarða ís- lenskra króna. Hver hlutur var seldur á 5 dollara. Lágmarkskaupupphæð nam 75.000 Bandaríkjadölum eða um 5,4 milljónum króna, svo það var vart á færi Péturs eða Páls að kaupa, nema þeir lægju á digrum sjóðum. Gera má því skóna að helstu stór- fyrirtæki landsins og lífeyrissjóðir, auk Ijársterkra einstaklinga, hafi ijár- fest í Islenskri erfðagreiningu þegar þetta færi gafst. AÐ HÁLFU í EIGU ÍSLENDINGA Eftir þetta lokaða lilutafjárútboð er talið láta nærri að fyrirtækið sé að hálfu í eigu útlendinga og að hálfu í eigu Islendinga, þ.e. starfsmanna, stofnenda og innlendra ijárfesta auk eriendu ijárfestanna sem fyrst komu að fyrirtækinu. Horfur um afkomu í árslok ráðast talsvert af því hversu mikið fyrirtækið ijárfestir í eigin verkefnum. Hannes Smárason, framkvæmdastjóri fjármála- og þróunarsviðs: „Starfsmönn- um er umbunað bæði með launum og þátttöku i velgengni fyrirtækisins.” EINS 0G AÐ GERA STÓRMYND Grein um arfgengi handskjálfta hefur þegar birst í erlendu fagtímariti á grundvelli rannsókna Islenskrar erfðagreiningar. Fleiri fréttir munu væntanlega verða af uppgötvunum fyrirtækisins fyrr en varir. Grundvöll- ur starfseminnar er að geta starfað á Islandi og forsendur starfsins að geta náð betri árangri en aðrir og á skemmri tíma. Staða Islenskrar erfðagreiningar er sterk eftir stórsamning við Svisslend- inga. Hannes Smárason lýsir stöðunni svo: „Ef litið er á þróun líftæknifélaga má fyrst sjá uppbyggingarferli þar sem afurð er búin til. Hún skilar sér einhvern tímann seinna. Því er ekkert óeðlilegt að gera jafnvel ráð fyrir nokkurra ára tímabili þar sem fyrir- tæki á líftæknisviði er rekið með tapi eða nánast á núlli á meðan byggt er upp. „Það, sem við erum að vinna að, er að nokkru leyti eins og að fram- leiða stórmynd. Þú þarft að hjálpa til við að afla þekkingar sem unnt er að nota við lyíjagerð sem getur skipt sköpum. Árangurinn kemur í ljós síð- ar.“ Þegar stórmyndin Titanic var fram- leidd gekk á ýmsu á meðan á tökum stóð og fyrirhöfnin var mikil, en hún hefur verið vel þess virði. Titanic stal senunni á óskarsverðlaunahátíðinni, eftir fjölda tilnefninga til verðlauna og aðsóknin hefur verið ævintýri líkust. Ef ævintýri Islenskrar erfðagreiningar endar jafn vel og sölutölur og tilnefn- ingar stórmyndarinnar, sem hrifið hef- ur hug og hjörtu meyja og sveina á öll- um aldri, gefa til kynna er ekkert að óttast. Framtíðin er gulltryggð! S3 39

x

Frjáls verslun

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.