Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.09.1999, Blaðsíða 29

Frjáls verslun - 01.09.1999, Blaðsíða 29
SS vörumerkið er eitt allra grónasta merkið á íslenskum neytenda- Egils er, eins og SS, rótgróið vörumerki og með fastan sess í liugum markaði og mörg hundruð milljóna króna virði. neytenda. Ölgerðin leggur ofurkapp á Egils merkið þótt hún framleiði líka vörur, eins Pepsi og 7up. er hœgt ac1 meta virbi peirra? ímyndin á bak við gott vörumerki skiptir sköpum! Félags viðskiptafræðinga og hagfræðinga við hátíðlega athöfn. Til hvers þurfti eiginlega að skipta um merki þessa 61 árs gamla félags? Nýir tímar og nýr stíll! Hæpið er hins vegar að fleiri gangi í félagið þótt nýja merkið sé komið. Nýstofnuð Samtök atvinnulífsins kynntu á dögunum nýtt merki samtakanna. Þetta merki verður áberandi í kringum kjarasamninga og mun þá sjást á sjónvarpsskjám lands- manna, líkt og VSÍ merkið áður. Egils Jón Snorri Snorrason, framkvæmdastjóri hjá Ölgerðinni, segir erfitt að verðleggja Egils merkið. Það sé sjálfsagt hundruð milljóna virði en að auðvitað hljóti verðmæti merkja að endur- speglast í þeim viðskiptum og hagnaði sem þau skili. „Ein leiðin til að meta verðmæti merkis er að gera viðhorfskannanir á því og sjá hvernig það stendur þannig. En hagnaður er besta leiðin til að kanna verðmætið. Við sölu á rótgrónum fyrirtækjum eða vöru- merkjum kemur í ljós hvernig markaðurinn metur viðskiptavild- ina sem felst í þekktu nafni,“ segir Jón Snorri. Coca Cola Vífilfell framleiðir Coca Cola á íslandi. Ekki fékkst önnur upphæð gefin upp en sú sem birtist í yfirliti Finacial Times þar sem Coca Cola er efst á blaði. Raunar var Vífilfell til skamms tíma í eigu Péturs Björnssonar. I byrjun þessa árs var Vífilfell selt til Coca-Cola Nordic Beverages sem er í eigu Coca-Cola Company í Atlanta í Bandaríkjunum og Carlsberg samsteypunnar í Dan- mörku sem á meirihlutann í því, eða 51%. Vífillfell er meira en bara Coca-Cola, eða hvað? Erfitt kann að vera að skilja á milli verðmæta merkja og fyrirtækjanna sjálfra. SS Steinþór Skúlason, framkvæmdastjóri Sláturfélags Suður- lands, segir þetta um virði SS merkisins: „Vörumerki okkar eru lykillinn að markaðssetningu Sláturfélagsins. Við notum þau til að keppa við mótherja okkar og í sumum tilfellum tíl að aðgreina á milli okkar eigin vara eftir markhópum og eiginleikum vörulína." Imyndin Meginatriði í markaðssetningu er tenging við neyt- andann. Vörumerkið er notað til að beina neytandanum að vörum sem uppfylla þarfir hans. Vörumerkið er trygging neytandans fýr- ir ákveðnum gæðum og eiginleikum vara sem eru yfirleitt mælan- legar stærðir. Hinn huglægi þáttur er ekki síður mikilvægur. Með kaupum á ákveðnum vörum er neytandinn að gerast hluti af ákveðinni ímynd, sem er hluti þeirra verðmæta sem hann kaupir, en er engu að síður huglægur þáttur. Þessi þáttur er afar mikil- vægur í ýmsum tískuvörum. Uppfylli væntingar „í okkar tilviki er vörumerki fyrst og fremst tenging við væntingar í huga viðskiptavinarins," segir Steinþór. „Það er mjög mikilvægt að varan uppfylli væntingarnar og að vör- ur undir sama vörumerki beri með sér svipaðar væntingar. SS er gamalt og traust fýrirtæki sem hefur þá ímynd að framleiða góða og vandaða vöru - og sú ímynd hefur orðið til og fest sig í sessi á löngum tíma. Þess vegna er SS vörumerkið gæðamerki, þ.e. ávís- un á gæði og hefð. Fyrir aðrar vörulínur notum við önnur vöru- merki, t.d. 1944, Búrfell og fleira. Hins vegar er ekki hægt að treysta á að neytandinn trúi í blindni á vörumerkið, reynsla hans verður í hvert skipti að vera í samræmi við væntingarnar og bregðist þær er dýrt að bæta skaðann. Það lifir enginn lengi á fornri frægð í viðskipum ef hann slakar eitthvað á.“ - Hvers Virði er SS merkið? „Við ættum kannski fremur að skoða hvað það myndi kosta að byggja upp ímynd og viðskiptavild 29
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Frjáls verslun

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.