Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.09.1999, Blaðsíða 38

Frjáls verslun - 01.09.1999, Blaðsíða 38
Ferdaþjónusta feðganna, Sportferðir, var stofnuð árið 1994 utan um ferðaþjónustuna í Ytri- Vík. „ Við skipuleggjum afþreyingaferðir fyrir einstaklinga og hóþa, eins og hestaferðir, vélsleða- ferðir, jeppaferðir, sjósleðaferðir og veiðiferðir. Þetta eru skemmtiferðir sem við höfum þróað á löngum tíma. “ sérstaklega eftir að heitir pottar voru settir við hvert hús. „Við höfum ávallt tekið smáskref í einu í uppbyggingu ferðaþjónustunnar," leggur Sveinn áherslu á. „Fyrir nokkrum árum uppgötvuðum við t.d. heitt vatn á jörðinni sem nú er búið að bora fyrir með góðum ár- angri. Það kemur sér vel og með því er nú fyrst góð undirstaða til þess að byggja hér upp meiri og ahliða ferðaþjónustu allan árs- ins hring.“ í Ytri-Vík er boðið upp á sex bú- staði til leigu, ásamt herbergjum í gamla bænum, og er gistirými fyrir rúmlega 60 manns. Með ferðaþjónustunni í Ytri-Vík hafa Sveinn, Jón Ingi og Marinó komið á laggirn- ar fyrirtækinu Sportferðum. Það var stofn- að árið 1994 utan um ferðaþjónustuna í Ytri- Vík, sem og utan um starfsemi sem þeir voru með á Akureyri og sneri að ýmiss kon- ar afþreyingu. Þar á meðal var útleiga vélsleða og sjó- sleða, hestaíerðir og sjóstangveiði, sem var og er raunar enn tengd ferðaþjónustu bænda en undir markaðssetningu Sport- ferða. I dag er Sportferðir vaxandi fyrirtæki og feðgarnir uppfullir af hugmyndum um uppbyggingu þess og það hvað fyrirtækið getur boðið viðskiptavinum sínum upp á. „Við erum með skipulagðar afþreyinga- ferðir fyrir einstaklinga og hópa,“ segir Marinó. ,AHar eru þær byggðar upp á okk- ar áhugamálum sem tengjast útivist. Við töldum að þessar ferðir yrðu vinsælar, eins og komið hefur á daginn, en þarna er um að ræða hestaferðir, vélsleðaferðir, jeppaferðir og veiðiferðir. Þetta eru skemmtiferðir sem við höfum þróað á löngum tfrna og við reyn- um að hafa eitthvað fyrir alla. Við gefum öll- um hugmyndum sem við fáum ákveðinn reynslutíma áður en við byijum að auglýsa þær og fara af stað með markaðssetningu. Sportferðir eru í samstarfi við önnur ferða- þjónustufyrirtæki um gerð ýmissa pakka- ferða og verið er að markaðssetja þær ferð- ir ásamt því sem Sportferðir hafa upp á að bjóða.“ Markaðssetning Ferðaþjónustan og starfið í kringum Sportferðir hefur verið hálfgert gæluverkefni feðganna hingað til. Það er þó orðið ansi stórt í sniðum og í sum- ar voru ráðnir tveir starfsmenn feðgunum til aðstoðar. „Við sjáum marga möguleika hjá Sportferðum sem við þurfum að sinna vel og þar af leiðandi verðum við að leggja okkur meira í fyrirtækið," segir Jón Ingi og nefnir að Sveinn faðir þeirra hafi frá upphafi HBHHHHBHHHHBHHHBHHHHHHHHHHHHHHHHHHHHHHHBHHHH ferðaþjónustu á Ytri-Vík notað byggingafyr- irtækið og búskapinn til að hafa fé í ferða- þjónustuna því uppbyggingin hafi verið löng og hæg og peningarnir tekið tíma að skila sér til baka. Nú sé hins vegar komið að því að sinna fyrirtækinu daglega. Marinó segir að ferðaskrifstofur, bæði eriendis og hérlendis, séu farnar að veita Sportferðum miklu meiri athygli en áður því fyrirtækið sé búið að sanna sig að ákveðnu leyti. „Við sjáum þann möguleika að halda þessu starfi okkar áfram, markað- urinn er að opnast okkur en enn vantar mik- ið upp á tíl að við getum markaðssett okkur eins og við vildum. Okkur vantar peninga í fyrirtækið, tímum ekki að fá þá að láni og erum þolinmóðir. Hins vegar reynum við að fara nýjar leiðir. I gegnum Reykjavíkur- markaðinn eru ákveðin tækifæri, komur skemmtiferðaskipa skapa ákveðna mögu- leika sem og flug frá Evrópu tíl Akureyrar, þ.e. hvataferðir/dagsferðir fyrir stærri fyrir- tæki.“ „Hitt er svo annað mál að ferðaþjónustan byggist á markaðssetningu. Besta auglýs- ingin er ánægja fólksins sem kemur tíl okk- ar. En peningarnir þurfa líka að vera til stað- ar. Þá er kannski hægt að fá með því að vera bjartsýnn, setja upp viðskiptaáætlun sem sýnir óskastöðu þess að reka ferðafyrirtæki og fá út á hana fé. Það er bara ekki nóg. Grunnurinn þarf að vera tíl staðar tíl að pen- ingarnir ávaxti sig á eðlilegan hátt. Sé hann ekki fyrir hendi eru fyrirtæki fljót að verða gjaldþrota. Við þurfum stærri markað; fleiri ferðamenn, til að geta hrint ýmsum hug- myndum okkar í framkvæmd. Við auglýs- um hér og nú eftír þeim sem vilja leggja fjár- magn í heilsuhótel hér hjá okkur. Hér er allt til þess, það vantar einungis fjármagnið til að drífa þessa hugmynd af stað. Ferðaþjón- usta á Islandi á óhemju möguleika. Ferða- lög fólks um heiminn aukast stöðugt." ímynd Eyjafjarðar Þeir feðgar eru sam- mála um að samkeppni í ferðaþjónustu skiptíst ekki milli á Norðurlands og Suður- lands. Þeir segja ísland eina heild sem sé í samkeppni við hin Norðurlöndin en ásókn- in í Norðurlandið verði ekki meiri fyrr en byggð verði upp ákveðin ímynd svæðisins. „Okkur finnst stjórnvöld hér á svæðinu, þ.e. í Eyjafirði og á Norðurlandi, ekki hafa nægilega innsýn í þessi mál og hvaða möguleikar eru fyrir hendi,“ nefnir Mar- inó. „Engin ein ímynd hefur fundist til að nota í markaðssetningu svæðisins og menn sveiflast til og frá. Það er kannski eðlilegt því svæðið er ungt í ferðaþjónustu, 38
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Frjáls verslun

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.