Frjáls verslun - 01.02.2000, Page 78
SKANNflR
Imacon Flextight
Myndgæði Imacon Flextight skannans eru stórkostleg.
IHamFetemen
STOFNAÐ 1 907 • QÆÐI ERU OKKUR HUGLEIKIN
Hans Petersen hefur tekið við umboði fyrir Imacon
Flextight skönnum sem eru danskir hágæða mynda- og
filmuskannar. Fyrirtækið Imacon var stofnað árið 1995 af
tveimur athafna- og fagmönnum á stafrænum myndamarkaði.
Hugmynd þeirra var að framleiða hágæðaskanna sem væru
einfaldir í notkun og á mun lægra verði en sambærilegir
skannar. Þeir fengu skráð einkaleyfi á nýrri aðferð við skönn-
un og hafa skannar þeirra sópað til sín verðlaunum og viður-
kenningum, bæði í Evrópu og Bandaríkjunum.
Imacon framleiðir þrjár tegundir af skönnum;
• Flextight Photo tekur 35mm og 120 filmur.
• Flextight Precision 11 tekur filmur allt að 13 x 18 sm og
myndir á pappír í A4 í hágæðaupplausn.
• Flextight Progression tekur einnig filmur allt að 13 x
18 sm auk mynda á pappír í stærð A3.
• Upplausn í þessum skönnum er allt að 5760 dpi og
stækkun upp í 2400 %.
Einkaleyfi Imacon byggst á sérstökum möskum sem not-
aðir eru með skönnunum. Ekki þarf að líma filmurnar upp
heldur fer filman í þar til gerðan samlokumaska sem leggst
þétt upp að filmukantinum. Ljósgeislinn fer óhindraður í gegn-
um filmuna og tryggir þar með mestu hugsanleg gæði. 35
Epson skanninn hjá Tæknivali
Epson býryfir öflugum hugbúnaði.
Tæknival
www.taeknival.is
E
pson GT-7000 myndlesarinn er frábær að
gæðum og býr yfir öflugum hugbúnaði
sem er afar einfaldur í notkun. Epson GT-
7000 veitir frábæra lausn fyrir minni og meðal-
stór fyrirtæki, bæði hvað varðar texta-, mynda-
eða filmuskönnun. Hágæða 600x2400 dpi staf-
ræn upplausn með EPSON Micro Step Drive
36 bita litadýpt og 68 milljarða litaafbrigði. Með því
að ýta á starthnappinn kemur skjalið upp á skjáinn. Skönn-
unin er hraðvirk og leiðandi í sínum flokki. Möguleiki er á auka-
búnaði til að auðvelda frekar filmu- og lausblaðaskönnun.
Epson GT-12000 er fullkominn A3 myndlesari íýrir grafík og CAD skjöl.
Upplausnin er hágæða 800x1600 dpi (upp að 6400 dpi) með 36 bita litadýpt
og möguleika á stafrænni upplausn að 3.3D sem tryggir fullkomnun. A3
stærðin tryggir þægilegan innlestur á stórum skjölum, t.d. síðum úr dagblöð-
um, CAD myndum og X-röntgenfilmum. Hraðinn er einn sá mesti í þessari
stærð. Hægt er að framkalla 68 milljarða litaafbrigða. 35
78