Alþýðublaðið - 16.05.1974, Blaðsíða 3
Skipulagsstjóri út af „Grænu byltingunni"
FRUMSKILYRDIAÐ SKÝRT OG RÉTT
SÉ SAGT FRÁ ÞESSUM MÁLUM
Hér fer á eftir í heild
síðara bréf skipulags-
stjóra ríkisins til borgar-
stjóra vegna „Grænu
byltingarinnar"
„Skipulagsstjórn þakk-
ar bréf yðar dags. 17.
apríl 1974 ásamt þeim
upplýsingum, sem það
hefur að geyma. Hins-
vegar vill skipulagsstjórn
benda á,að hún telur það
ekki heppilega aðferð við
endurskoðun aðalvega-
kerfis höfuðborgarinnar,
að láta prenta og gefa út
stórt og vandað kort undir
nafninu: AÐALSKIPU-
LAG REYKJAVíKUR
1974—83, og dreifa því til
almennings og fjölmiðla
án sérstakra athuga-
semda, vitandi vits um,
að það stangast í megin
atriðum á við hið stað-
festa aðalskipulag
Reykjavíkur.
Skipulagsst jórn vill
taka undir þau ummæli
yðar, að æskilegt er að
borgarbúar fái að fylgj-
ast með og gera athuga-
semdir við hugmyndir og
tillögur um breytingar á
skipulagi sem og skipu-
lagi nýrra hverfa, en þá
hlýtur að vera frumskil-
yrði að skýrt og rétt sé
sagt frá þessum málum.
Því miður gefur upp-
dráttur sá, sem hér hef ur
verið gerður að umtals-
efni, almenningi og fjöl-
miðlum rangar hug-
myndir um, hvað sé gild-
andi aðalskipulag fyrir
Reykjavík, þar eð þess er
hvergi getið í uppdrættin-
um, að um tillögu sé að
ræða, og ber að harma
það kæruleysi, sem þetta
ber vott um.
Annað atriði sem rétt
þykir að vekja athygli á
varðandi títtnefndan
uppdrátt, er það ósam-
ræmi, sem hann er í við
hinn staðfesta skipulags-
uppdrátt, að því er snertir
ýmsar stofnanir.
Á. AÐALSKIPULAGI
REYKJAVÍKUR 1962-83
eru stofnanir auðkenndar
þannig, að hverf issktof n-
anir eru með brúnum lit,
en opinberar stofnanir
með appelsínugulum lit.
Á hinum margumrædda
uppdrætti AÐALSKIPU-
LAG REYKJAVÍKUR
1974-83, eru flestar þess-
ara stofnana s.s. Land-
spítalalóðin, barnaskólar,
gagnfræðaskólar, Um-
ferðamiðstöðin, Lög-
reglustöðin og hálf
háókólalóðin, sýnd með
grænum lit, sama lit og
venjuleg útivistarsvæði
eru venjulega auðkennd
með. Þetta rugl með liti á
uppdrætti, sem kallaður
er aðalskipulag, skapar
óþarfa rugling og óvissu
meðal almennings.
Væntir skipulagsstjórn
þess að reynt verði að
halda betur í heiðri hið
staðfesta aðalskipulag
Reykjavíkur 1962—83
meðan það er enn í gildi
og að endurskoðun þess
sem nú er aðkallandi
verði gerð á málefnaleg-
um grundvelli.
Hinsvegar sér skipu-
lagsstjórn ekki ástæðu til
þess að staðf esta sérstak-
lega skipulag grænna
svæða og göngu- hjól-
reiða- og reiðstíga, svo
sem þér minnist á í bréfi
yðar, þar eð þessi atriði
eru svo nátengd öðrum
þáttum aðalskipulagsins
að þar verður ekki sundur
slitið ef vel á að vera.
Með vinsemd og virðingu,
Zóphanías Pálsson
sign.
Borgarstjórinn í
Reykjavík,
Hr. Birgir ísl.
Gunnarsson,
Austurstræti 16, R.
afrit send til:
Borgarverkfræðingsins í
Rvík,
Forstöðum.
Þróunarstofnunar
Reykjavíkur.
en visitalan
„Ég er þeirrar skoðunar, að
þensluástandið á vinnumarkað-
inum sé jafnvel meiri verð-
bólguvaldur i þessu landi en
visitölukerfið, þó það sé nógu
slæmt, sagði Gunnar J. Frið-
riksson, fráfarandi formaður
Félags íslenskra iðnrekenda, á
iðnþingi i gær.
Gunnar sagði, að allt sl. ár
hafi rikt svo mikið þensluástand
á vinnumarkaðnum að það hafi
óhjákvæmilega hlotið að þrýsta
mjög á hækkun kaupgjalds.
Hafi þessa sérstaklega gætt i
byggingariðnaðinum, en smitað
þaðan út frá sér i aðrar atvinnu-
greinar.
Gunnar taldi, að opinber fjár-
málastefna væri meginorsök
þessarar þenslu, og eins það, að
hið opinbera keppi við fram-
leiðsluna um vinnuaflið.
Þá kvað hann tilgangslaust að
vera að gera áætlun um iðnþró-
un á Islandi, ef ekki væri tryggt
efnahagsástand, sem gerði
kleift að byggja upp og reka
iðnað hér. —
A iðnþingi i gær gaf Gunnar J.
Friðriksson ekki kost á sér sem
formaður, en hann hefur átt sæti
i stjórn F.l.I. i 23 ár. í hans stað
var Davið Scheving Thorsteins-
son kjörinn formaður, en
hann var áður varaformaður. —
Þau mjög
svo leiðu mis-
tök urðu i Al-
þýðublaðinu i
dag, að með
minningar-
grein, sem
birt var um
Jón Sivert
Þ.A.A. Hjelm
kom alröng
m y n d o g kunnum við
þvi miður enga skýringu
á þvi, hvaðan sú mynd er
komin.
Við biðjum alla aðila velvirð-
ingar á þessum leiðinlegu mis-
tökum og birtum hér hina réttu
mynd, sem fy-lgja átti greininni.
Alþýðublaöið.
EVRÓPA EFTIR AFSÖGN
BRANDTS — AUÐN
i vikunni, sem óiafur
Jóhannesson, forsætis-
ráðherra, rauf þing,
missti stjórn Trudeau
meirihlutastuðning í
Kanada, og Wiliy Brandt,
kanslari Vestur-Þýska-
lands sagði af sér. Blaðið
„Kurier" í Vfnarborg
sagði þá: „Afsögn
Brandts steypir öllum
pmuppmtvcnc Aúaennnmsic; Komuio
iujd du'. íígypUschc /cilung ..Aí-A’.v
ratn" nunmchr „eimr l.eerc" in Uci
scfien oder Wieus ..Kuriw’
heiminum f öryggis-
leysi". i heimspressunni
voru rifjuð upp stjórnar-
skiptin í Bretlandi og
staða Wilsons, forsætis-
ráðherra. Þá var enn
minnst andláts Pompi-
dou, Frakklandsforseta,
og frönsku forsetakosn-
inganna. Þess var getið,
að minnihlutast jórnir
Abflstrefono Potiiiiutr: Nur Luxcsmhurfl bbeb étahii
sætu i Danmörku, Noregi,
Svíþjóð og Belgíu, auk
Bretlands, sem og brot-
hættrar stjórnarsam-
steypu á ítalfu, og að
sjálfsögðu fjallað um
stöðuna í Bandaríkjun-
um.
Þýska vikuritið „Der
Spiegel" birti forsiðu-
mynd af nýja kanslaran-
um, Helmut Schmidt, en i
grein um stjórnmálaá-
standið i Vestur-Evrópu
var þessi síða:
Samein-
Fundi viðræðunefnda Al-
þýðuflokksins og SFV, sem
vera átti i gær, var frestað um
einn sólarhring að beiðni
nefndar SFV. Verður fundur-
inn haldinn siðdegis i dag,
fimmtudag.
Fimmtudagur 16. maí 1974.
o