Vísir - 28.04.1975, Blaðsíða 17
Visir. Mánudagur 28. april 1975.
17
og vingjarnlegt, og staðsett við
bátabryggjuna i miðri borginni.
Ástæðulaust er að rekja
ferðasögu þessa frá degi til
dags, en i stuttu máli reyndist
St. Croix vera hrein paradis, og
ekki gáfu hinir vingjarnlegu
ibúar hennar mikið eftir i þeim
efnum.
íbúar eyjunnar eru um 37.000
og negrar þar i meirihluta.
Þetta er vingjarnlegt fólk, for-
vitið og hjálpfúst. Þarna
gekkstu ekki fram hjá neinum
án þess að hann kastaði á þig
kveðju, ,,How are you”, ,,Good
morning” eða einfalt „hey”, og
þú smitaðist ósjálfrátt af þess-
um vingjarnlegheitum á fyrsta
degi.
t f jórtán heila daga vorum við
á St. Croix, og þó að litið væri
um skemmtanalif og annað slikt
var nóg að gera.
Sólin var þó ætið i fyrsta sæti,
eins og gengur og gerist hjá sól-
sjúkum tslendingum.
Dagurinn byrjaði yfirleitt á
þvi að Ævar ræsti mannskapinn
(allavega mig) og mætt var til
EHen i morgunverð. Ellen var
af þýzkum ættum og rak veit-
ingastað hótelsins, „Dolphin”.
Þessi roskna og vinalega kona
fékk þegar á fyrsta degi titilinn
„móöir vikinganna”, og stóð
hún fyllilega undir þeim titli.
Bacon og egg, stórt glas af
júss, borga, koss á kinnina, svo
út i sólina.
Skilningsrik reyndist hún
einnig er sveittur ungur maður,
birtist i dyragættinni, já alveg
rétt, hún kom hlaupandi á móti
með kaldan bjór.
Milli 12 og 14 reyndist hitinn
oft óþolandi fyrir okkur, og
fengu flestir sér þá smáblund i
skugganum, nema þá helzt þeir
sem fóru út að verzla, já, þetta
kvenfólk lætur ekki 40 stiga hita
mikið á sig fá ef pyngjan er
þung, og verzlun i nágrenninu.
Klukkan tvö var svo farið i
sólbað aftur, og ekki var það
með öllu tilbreytingarlaust.
Vespur (býflugur) höfðu af þvi
mikið gaman að fljúga nærri
stelpunum þar sem þær flat-
möguðu i sólinni. Og i uppnám-
inu yfir þessum sakleysislegu
greyjum áttu þær svo til með að
gleyma ýmsum klæðafesting-
um, sem vakti vitaskuld heljar-
athygli og undrun innfæddra
sem annarra.
Þegar rökkva tók, var sólar-
oliunni skolað i baðkerið, og við
klæddumst okkar beztu flikum
til kvöldverðarins.
Ekki var um úrval matstaða
að.ræða, annaðhvort var snætt
hjá Ellen eða á útimatstaðnum
„Café de Paris”. Að afloknum
kvöldverði vorum við yfirleitt
'dösuð eftir „erfiði” dagsins, og
þar eð ekkert var um að vera
þarna á kvöldin, var svefninn
vel þeginn um tiuleytið.
Já, svona liðu dagarnir alger-
lega áhyggjulaust, og hvern
hefði dreymt um snjókomuna
heima á Islandi?
Það var svo einn daginn að við
ákváðum að leigja okkur segl-
bát, þvi siglingaveður er þarna
upplagt og mikið um seglskútur,
smáar og stórar.
Albert hét skipstjórinn okkar,
og reyndist hann okkur dyggur
„skipper”.
„Buck Island” var áfanga-
staður okkar, en það er smá-
eyja nærri St. Croix, sem John
F. Kennedy gerði á sinum
valdatima að þjóðgarði vegna
óvenjufallegs neðansjávarlifs i
nágrenni eyjarinnar.
Þar sem við lágum eins og
skötur á þilfari „Sunny” og
hlustuðum á limbó-tónlist úr
ferðatæki Alberts, sem blandað-
ist öldugjálfri og átökum segl-
anna, mundum við að maturinn
hafði gersamlega gleymzt.
En Albert bað okkur um að
hafa engar áhyggjur af þessu,
hann skyldi örugglega bjarga
þvi. Við eyddum ekki tima i
það að spekúlera hvernig hann
ætlaði að fara að þvi svona úti á
rúmsjó, heldur hölluðum höfð-
um á ný.
Þar kom að þvi að við köstuð-
um akkeri skammt frá Buck Is-
land og undirbjuggum okkur
fyrir köfun.
Sundfit, gleraugu, loftrör,
„plask.”
Hm, heitur sjór, þá er að kikja
á botninn, vá, þvilikt litariki,
rauðir, bláir, gulir, röndóttir, og
alls kyns fiskar er ætla mætti að
hefðu verið sýnishorn frá
Málaranum h/f.
Á botninum voru skilti er út-
skýrðu leiðir og hvað hinar
ýmsu skeljar hétu, og eitt sinn á
leið okkar um þennan neðan-
sjávarveg synti að okkur stór
torfa smáfiska sem kroppaði i
lófa okkar til að athuga hvort
þar leyndist eitthvað ætilegt,
svo spakir voru þeir. Eitthvað
mun hafa verið af hákörlum
þarna i grenndinni, en ekki
gafst okkur timi til þess að
hræðast þá.
Á sundinu veittum við þvi at-
hygli að Albert var á bak og
burt, og þegar við komum að
bátnum, læddist að mér grunur,
svo ég ákvað að leita hann uppi.
Eftir skamma stund fann ég
hann þar sem hann stakk sér ótt
og titt á botninn og kom jafnan
upp méð allstóran humar, sem
hann stakk i poka, eftir að hafa
brotið af honum beittustu og
stærstu klærnar, já, þetta hefði
okkur ekki dottið i hug og reynd-
ar vart þorað. Sjö reyndust þeir
vera i lokin, og var þá haldið til
Buck Island þar sem hin stóra
máltið skyldi fara fram. Engin
bryggja var á eynni, svo við
urðum að synda i land með
potta, krydd, myndavélar og
vitanlega blessaða sólaroliuna.
Þar var humarinn soðinn og
etinn við frumstæðar aðstæður,
og gleymist sú máltið seint.
Sól var tekin að siga er við
héldum heimleiðis og virtum
fyrir okkur villurnar við strönd-
ina sem flestar eru i eigu eldri
Amerikana, sem setztir eru að á
eynni og lifa þar á eftirlaunum
sinum. Einhversstaðar þarna
býr sá frægi grinisti Victor
Borge, og fleiri stórmenni eru
eflaustþarna lika, enda er.þetta
upplagður staður fyrir þá sem
taka vilja lifinu með ró eftir
annasamt lif.
En þó svo að Amerikanar
væru þarna allmargir, bar ekki
mikið á þeim, enda fæstir bú-
settir i Christiansted.
Þar voru svertingjár i mikl-
um meirihluta, og flestir höfðu
þeir atvinnu við hina miklu
romm-gerð sem er á eynni.
Rommið er unnið á eyjum
Karabiska hafsins, má þar m.a.
nefna Baccardi, Ron Rico og
Virgin Rom, og þvi var dropinn
vissulega ódýr þarna, eða
flaskan á 75 cent. Einnig höfðu
margir atvinnu við hinar þrjár
griðarstóru oliuhreinsunar-
stöðvar sem á eyjunni voru.
Meðan á dvöl okkar stóð, urð-
um við oft vör við farþega okk-
ar, sem jafnvel stundum kiktu
inn i heimsókn. Danirnir reynd-
ust vera heiðursgestir eyjarinn-
ar i fjórtán daga, og voru sam-
kvæmi haldin þeim til heiðurs á
nærri hverju kvöldi.
Það kom okkur einnig á óvart
að þetta vel efnaða fólk bjó ekki
á hóteli, heldur gisti það i,
heimahúsum hjá meðlimum
sama félagsskapar, svertingj-
um i flestum tilvikum, sem á
næsta ári munu svo sækja Dan-
ina heim.
Er við yfirgáfum hótelið eftir
fjórtán yndislega daga, féilu
nokkur tár, enda vart að furða,
en sum skilnaðarklöppin, er við
fengum á sólbrennt bakið, voru
eilitið óþægileg. Þá áttum við
fyrir höndum 9.000 km ferðalag
heimleiðis með glaðlegum Dön-
um.
Margt er i frásögur færandi
frá dvöl áhafnar VV511 á St.
Croix þessa fjórtán daga, en það
tekur vist allt of mikið pláss,
fyrir utan það sem ekki má
segja frá!
En brottfarardagurinn rann
upp, og glaðlegu brosin urðu dá-
litið stirð á kveðjustund, og á
sumum kinnum mátti sjá smá-
tár endurspegla ljúfan sólar-
geisla (skáldlegt, ekki satt?)
En af stað var haldið, þó að
margir litu saknaðaraugum
niður til þessarar litlu eyjar i
Karabiska hafinu, sem hafði
veitt okkur þessa ógleymanlegu
fjórtán daga.
Stemningin Ihámarki. t baksýn má m.a. sjá Arngrlm og Gunnar, en
þetta er Ingibjörg sem hlær svona innilega I forgrunni.
LANCER'75:
2jadyra kr.978 þús.
4ra dyra m/hallanlegum
sætisbökum, útvarpi,
færanlegu
og klukku
Allt á sama stað Laugavegi 118- Simar 22240 og 15700
EGILL VILHJÁLMSSON HF
Vísir vísar á viðskiptin