Lesbók Morgunblaðsins - 24.12.1938, Blaðsíða 12

Lesbók Morgunblaðsins - 24.12.1938, Blaðsíða 12
404 yfir, með olíufarfa að framan- og iunan-verðu; kvenmannamegin eru 2 þverslár, karlmannamegin eru þil, til prjedikunarstóls, á þver- slá með pílárum yfir, förfuðum, sem standa milli málaðra þver- fjala“. Sjera Jón Konráðsson á Mælifelli þekti þessa kirkju vel, og segir hann, að sjera Þorvald- ur hafi smíðað hana sjálfur, og að smíði á henni hafi verið frá- brugðið annara smiða á sömu tíð. Hún stóð með sömu gerð alt til 1841, segir hann. Kirkjan, sem nú er á Víðimýri, var smíðuð 1834. Miklabæjar-kirkja sjera Þor- valdar virðist hafa verið með líkri gerð, og sömuleiðis kirkj- urnar á Hofstöðum og Flugu- inýri. Er ekki ólíklegt, að þær hafi verið smíðaðar að sumu leyti með kirkjuna í Miklabæ sem fyrir- mynd. — Töldu þeir biskup og prófastur, að kirkjan væri orðin sjera Þorvaldi mikið skuldug, þótt hún væri ekki fullbúin. ERFIÐUR FJÁRHAGUR SlRA ÞORVALDAR. Biskupinn „yfirleit staðarhúsin, svo vel utan- sem innan-bæjar, og fyrirfundust þau öll í góðu standi, að fráteknu einu búrhúsi. Hin öll hefir áðurnefndur staðarhaldar- inn, sr. Thorvaldur Gottskalksson vel og sómasamlega uppbygt eins og kirkjuna, með stórum kostn- aði“. Skömmu eftir að biskup vísiteraði, 1. sept., varð sjera Þor- valdur að veðsetja kaupmannin- um í Hofsósi, Sören Pens, fyrir skuld til kaupstaðarins, þ. e. verslunarinnar þar, 10 hundruð í jörðinni Barkarstöðum í Húna- vatnssýslu, sennilega þeirri, sem er í Torfastaðahreppi. Hefir sú veðsetning verið talin benda til þess, að þá muni synir prests hafa farið utan. Er það ekki ólík- lega til getið, en ekki mun hinn mikli kostnaður, sem sjera Þor- valdur hafði haft af húsabygg- ingunum, hafa orsakað þau fjár- hagsvandræði síður, og kemur það fram í þingbók sýslumanns, Jóns Snorrasonar (tengdasonar Skúla fógeta Magnússonar), er hann les upp veðsetningu prests á þingi á Okrum 16. sept. 1761, hina sömu og gerð hafði verið 1757 og lesin þá á hjeraðsþingi á Hofi og næsta LESBÓK MORGUNBLAÐSINS sumar á alþingi; kemst sýslumað- ur svo að orði: „-----sem vel- nefndur presturen hefur af stórre Naudsyn hloted ad setja i ved sinna barna godz sem eckiu mað- ur, ja barnanna modur arf til ad fa sina naudsyn og sem bevisan- legt kann giörast vared smum Efnum til præstakallsens, sem var gandske ruineret, godrar uppbygg ingar samt kyrkiunnar i Stand- sættelse, so til dæmest ej hans sette pantur Compagnæinu (þ. e- verslunarfjelaginu, sem þá hafði verslunina hjer og þar með á Hofsósi) fyrer utan vidara fore- spörsel om prioritet“. SKYLDULIÐ SÍRA ÞOR- VALDAR I BLÖNDUHLÍÐ. Það hefir verið sviplegt fyrir sjera JÞorvald, er öll börnin hans hurfu frá honum út í heiminn haustið 1757. Að sönnu gat liann átt von á því, að fá að sjá þau aftur, því að hann var ekki gam- all rnaður, hálf-fimtugur. Móðir hans var dáin, en faðir hans var á lífi, vel ern, og var nú nágranni hans, og sömuleiðis systir lians, Ólöf Gottskálksdóttir. Þau feðg- in munu hafa komið til sjera Þorvaldar að Miklabæ, er hann tók við staðnum, eða skömmu síð- ar, og verið þar nokkur ár. Mun Gottskálk þá hafa verið ekkju- maður og brugðið búi sínu af þeim sökum jafnframt. Hann hafði búið á Möðrufelli í Eyja- firði og verið lögrjettumaður. Er börn sjera Þorvaldar sigldu, voru faðir hans og systir farin að búa í Blönduhlíðinni. Ólöf hafði verið í Miðskytju og gifst Guðmundi Jónssyni fyrir 4 árum; áttu þau nú 2 börn, Margrjeti og Guðrúnu, og bjuggu á Litlu-Sólheimum, en Gottskálk hafði kvænst (í annað sinn) fyrir 3 árum, haustið 1754. Kona hans hjet Guðrún og var Þórarinsdóttir. Þau bjuggu á Þorleifsstöðum í árslok 1757, en hafa, ef til vill, ekki farið að búa þar fyr en þá um vorið, því að á árunum 1754—56 virðist Gott- skálk hafa verið á Miklabæ með presti. Þau hjónin eignuðust nokkur börn, og voru þau hálfsystkin sjera Þorvaldar einkennilega mik- ið yngri en börn hans. Einua merkastur þessara hálfsystkina lians var Gottskálk. Hann var fæddur 1761; hann fór utan, var lengi í Þýskalandi og Austurríki. Kendi sig þá við átthaga sína og kallaði sig Blander. En „taugin ramma“ dró hann aftur til föður- túnanna og bjó hann lengi á Mið- grund; var hreppstjóri nokkur ár í Akrahreppi, en druknaði í Hjer- aðsvötnunum 1821. Er eftirtektar Vert, að hann skyldi á unga aldri leita til Þýskalands, en það mun hafa stutt að því, að faðir hans, Gottskálk gamli Þorvaldsson hef- ir sennilega kent honum þýsku. Það mál hefir Gottskálk nefnilega kunnað, og hefir því að líkindum verið sjálfur í Þýskalandi á yngri árunx sínum. Er liann efalaust sá hinn sariii Gottskálk Þorvaldsson, sem Jón prófastur Steingrímsson segist í ævisögu sinni hafa fengið 1750, er hann var ný-útskrifaður xxr Hólaskóla, sem „yfrið góðan tilsagnarmann og góðan uppfræð- ara til þess“ að kenna sjer þýsku, „þar skamt frá“, er hann átti heima, en hann var þá á Ystu- Grund með móður sinni. Segir sjera Jón e. fr. svo um Gott- skálk, að hann hafi verið „einn sá ágætasti og frómlyndasti mað ur, er ei sleit trygð og dánu- mensku, hvorki við mig nje aðra, svo leingi hann lifði“. Gottskálk Þorvaldsson bjó fyrr- um á Möðruvöllum í Eyjafirði og var kvæntur Sigriði Jónsdóttur úr Flatey á Skjálfanda. Hann mun hafa verið fæddur 1685. Seinna keypti Gottskálk Hreiðarsstaði í Svarfaðardal og bjó þar lengi, en að síðustu í Möðrufelli, áður en hann fór að Miklabæ til sjera Þorvaldar, sonar síns. ÞEIR MIKLABÆJARFEÐG- AR VORU AF GEITA- SKARÐSÆTT. Sjera Þorvaldur var hálf-fertug- ur, er hann vígðist; hann var fæddur á Möðruvöllum í Eyja- firði 1712. Þegar hann var á 11. árinu, var hann látinn fara að læra undir skóla, latínu, hjá Þor- steini prófasti Ketilssyni á Hrafna gili; var hann hjá honum einn vetur, en síðan 3 vetur hjá Stef- áni Einarssyni á Munka-Þverá; fór svo 1727 í Hólaskóla og var

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.