Lesbók Morgunblaðsins - 20.03.1977, Blaðsíða 16
huffskoti
Woodg
^UIon *
IU5TASAFN
MERMUN DRAUmR
M/MNE-T. U RÆTAtt i
r----------------------
l /SrASAPAJ
Er kjör/nn
STADUR
T/L Ar?
^TOFA/A T/J.
Ky/jNA
V/D
&AFADAR
ÓTUUKUR.
pFNUAÁJ V/PUR5T&6/LF6A, ElNMANALZm)
bFakalpa vbrulf/ka TilVEKUNMR.,
Flestar
kvartanir
snerta
aðbúnað
Framhald af bls. 15
skálum og steypuskála. En
menn eru vakandi fyrir þessu
og það er sífellt verið að benda
trúnaðarmönnum á sitt af
hverju, sem betur mætti fara.
Framan af var mest kvartað
undan mistökum i launaút-
reikningi, sem alltaf var greið-
lega leiðrétt. Nú heyrast þess-
konar kvartanir varla lengur. I
staðinn hafa komið kvartanir
undan slæmum aðbúnaði. En
þess verður að gæta í þvi sam-
bandi, að ástand umhverfis og
aðbúnaður á vinnustað skiptir
menn miklu meira máli núna
en fyrir fimm árum.“
í álverinu. Unnið við að mylja skautleifar í skautsmiðju
„Hafið þið hugmynd um
ástandið í erlendum álverum í
samanburði við það sem þið
þekkið héðan"?
„Litillega höfum við það. Við
höfum í tvígang farið utan, til
Noregs þeirra erinda að kynna
okkur aðbúnað í þremur
álverum þar. Haustið 1975
áttum við þess kost að skoða
nýtt álver I eigu Elkem A/S og
Alcoa og bar það svo mjög af
öðrum álverum þar, svo og
álverinu hér, að líkast var til
að sjá, að þar væri skóli en
ekki stóriðjuver. Þar var bæði
hreinlegra og loftmengun
minni en við eigum að venjast.
Aðbúnaður starfsmanna var
og til fyrirmyndar, baðher-
bergi stór og snyrtileg, tvö
búningsherbergi og annað
eingöngu fyrir vinnufatnað.
Þar að auki var gufubað og
yfirleitt greinilegt að allir
lögðu sig fram um að hafa sem
snyrtilegast i kringum sig.
Heilbrigðiseftirlit var þar með
ágætum; læknir og hjúkrunar-
kona starfa við verksmiðjuna
allan daginn og fylgjast náið
með heilsufari starfsmanna".
Mánaðartekjur
nokkurra hópa
hjá ÍSAL
1. marz 1977
Kerskáli, Langflestir starfsmenn kerskála vinna á þrí-
skiptum vöktum, sem ganga alla daga ársins. Fyrir það er greitt
vaktaálag, sem er 36,2% ofan á föst laun. Auk þess fá þeir, eins
og aðrir starfsmenn, ferðapeninga, sem jafngilda u.þ.b. 10%
álagi á mánaðarkaup. Meðal mánaðárlaun m. ofangr. eru kr.
175.858.-. Samkvæmt áætlun má gera ráð fyrir, að þessir starfs-
menn hafi ca. kr. 3.600,- á mánuði fyrir yfirvinnu, eða alls kr.
179.458,- á mánuði.
Steypuskáli Starfsmenn á þrí-skiptum vöktum með sömu
forsendum og að ofan hafa á mánuði kr. 169.100.-. Yfirvinna
hverfandi.
Skautsmiðja Starfsmenn á þriskiptum vöktum hafa kr.
169.100,- á mánuði auk þess miðað við áætlun ca. kr. 7.150.- í
yfirvinnu á ntánuði, eða ca. kr. 176.250.- alls.
Meðal mánaðarlaun skv. kjarasamningi. Mánaðar-
laun þeirra 542 starfsmanna, sem vinna skv. almennum kjara-
samningi ISAL og 10 verkalýðsfélaga verða kr. 160.786.- 1. marz.
Langflestir dagvinnumenn vinna reglulega 2,4 klst. í eftirvinnu
á viku, þ.e. raunverulega V4 klst. í matarhléi, sem hér er ‘A klst.
Laun dagvinnumanna eru ca 23% lægri en vaktamanna í sama
launaflokki án óreglulegrar yfirvinnu.