Lesbók Morgunblaðsins - 24.01.1981, Page 10
er eins og slíkur sandur getur beztur
orðiö. En á þessum tíma, nóvember og
fram í desember, er ferðamannastraum-
urinn ekki hafinn. Regntímanum á samt
að vera lokið að mestu, enda oftast
heiðríkja og þægilegur hiti og vandalítið
að koma sólbrúnn heim, ef menn á
annað borð hneigjast til þess aö iðka
sólböö. Sjálfur er ég ekki í þeim hópi, en
reyndi þess í stað að nota golfvellina,
sem margir eru afburða fallegir. Aftur á
móti er golf eitt af fáu, sem talizt getur
dýrt í Florida og stafar af því m.a., að
ásóknin er mikil og reynt að flýta fyrir
með notkun rafmagnsbíla. Nota tveir
sama bílinn og kostar hringurinn þá
rúma 16 dollara. Þessir vellir eru svo til
allir á flatlendi, enda er Florida samfelld
flatneskja. En vötn koma víða við sögu
og skógur allsstaöar. En jafnvel þarna í
allri gróskunni er landeyðing meö sér-
stökum hætti: á stórum svæðum blasir
viö aö trén eru aö deyja, jafnvel ung tré.
Ástæöan er sníkjujurt, sem nær frá
þeim allri næringu: Spánskur mosi, sem
var fluttur inn sem skrautjurt. Fuglalíf er
meö afbrigöum fjölskrúðugt og nýstár-
lega fugla ber fyrir augu á degi hverjum.
Út í kafgresi, runna eða skóga er
hinsvegar öruggara aö hætta sér ekki;
þar leynast smáslöngur og alligatorar í
fenjum og tjörnum. Það er smávaxin
krókódílategund, all ófrýnileg og verður
um hálfur annar metri á lengd.
Mannlífiö er
ekki á glámbekk
Allt er þetta lífríki fróölegt til skoöun-
ar, ef menn hafa á annað borð áhuga á
slíku. Mannlífiö sjálft er hinsvegar ekki á
sama hátt til skoðunar svo sem veröur í
suörænum bæjum Evrópu, þar sem fólk
leitar samvista í bjórkrám eða á torgum.
St. Petersburg er firna dreifð borg og
enginn fer neitt nema á bíl. Sæmilega
efnaö eftirlaunafólk hefur streymt til
Florida til aö eyöa ævikvöldinu í góöa
veörinu, en sumir búa þar aðeins
vetrarlangt og halda heim, noröur á
bóginn, þegar sumrar. Af þessu leiðir,
að íbúarnir eru fólk, sem hefur afskap-
lega hægt um sig. Fyrir utan fáeinar
stórar blokkir, búa allir í einbýlishúsum,
sem eru meira og mipna á kafi í skógi
og allskyns gróðri. Því er í rauninni ekki
margt að sjá þótt farið sé vítt og breitt
um borgina. Meöfram 19. stræti og Gulf
Boulevard á rifinu stendur frumskógur
skilta og skyggir á allt annaö. Þar eru
hinir sjálfsögöu, föstu liðir eins og
venjulega: McDonalds, Kentucky Fried
Chicken, Long John Silver, Holiday Inn
og Hávarður Jónsson.
Sé einhver í þeim hugleiöingum aö
megra sig um leiö og notið er alls
annars, þá er Florida kannski ekki rétti
staðurinn. Svo frábær matur er þar á
boðstólum, hvort heldur maður kýs að
kaupa eitthvað beint á pönnuna og elda
sjálfur, fara á veitingahús af ódýrara
taginu, ellegar reyna það háþróaðasta,
sem birtist á viöhafnarstööum eins og
King Charles Restaurant á Don Cesar-
hótelinu, franska veitingahúsinu Roll-
ande & Pierre, polynesíska veitingahús-
inu The Lanai í Clearwater, eða þaö sem
þykir þó enn betra: Café Prague og
Café L’Europe í Sarasota.
Svo farinn sé þokkalegur millivegur,
má benda á Brown Derby viö Gulf
Boulevard, aðalgötuna á Pétursborg-
arströnd. Þar kostar feiknastór og góö
Filet Mignon-steik 6,45 dollara, sirloin-
steik kostar 4,95, en T-bone-steikin
freistar kannski enn meira þeirra sem
þurfa mat sinn og engar refjar. Hún er
framúrskarandi og kostar 8,95 dollara.
Flestir sleppa forrétti, þegar svona
steikur eru annarsvegar, en upplagt er
aö drekka meö Kaliforníurauövín eöa
bjór. Kanar framleiöá nokkrar tegundir,
sem gefa engu eftir, til dæmis Budweis-
er, Schliezch eöa Michelob.
En þaö er einnig hægt að hafa ögn
minna við og kaupa mjög þokkalegan
kvöldverö með víni eöa bjór á 5 dollara
á mann. Auövelt er aö finna bæöi
kínversk og ítölsk veitingahús, en aftur á
móti sáust hvergi þessi tyrknesku
Kebab-veitingahús, sem hafa verið að
leggja Evrópu undir sig. En lægsta
þrepiö eru svo hamborgarastaðirnir,
McDonalds og þeir bræður. Ein hand-
hæg lausn er aö fara á kjúklingastaö og
taka heim með sér steiktan kjúkling og
tilheyrandi salöt; slík máltíð kostar
innan viö 2 dollara á mann, — jafnvel
minna, sé farið í búð og valið eitthvaö á
pönnuna af því frábæra nautakjöti sem
Kanar hafa á boðstólum og tekur víst
öllu fram.
Verö til
víðmiöunar
Sannleikurinn er sá, aö þaö er hægt
aö komast af meö ótrúlega lítið skotsilf-
Á Florida er
maður alltaf
að hugsa um
mat, líklega
vegna þess
hvað hann er
góður og ódýr.
Steikhúsin eru
rómuð, en
sjávarréttir
eru léttari og
ekki síður góð-
ir, t.d. á stað
eins og Roll-
ande ét Pierre
í St. Peters-
burgh.
Til hægri: Eitt
merkasta sæ-
kindasafn
heimsins er í
Orlando á
miðjum Flor-
idaskaga og
þar getur að
líta heimska
hákarla, seli
með mannsvit
og höfrunga,
sem stökkva
hæð sína upp
úr vatninu.
Listin er hvarvetna fyrirferðarlítil á Florida. Þó er þetta
listasafn í Sarasota: Ringling Museum. Auðugur sirkuseigandi
safnaði snemma á öldinni ógrynnum af gamalli list í Evrópu og
byggði þetta veglega safn.