Lesbók Morgunblaðsins - 28.04.1984, Síða 7
MICK
JAGGER
Hann er orðinn fertugur og hófst til frægðar á Bítlaskeiðinu fyrir 20 árum — hljómsveit
hans, Rolling Stones, auðnaðist miklu lengra úthald en Bítlunum — og úthaldið hjá Jagger
sjálfum — sem nú er fertugur — er ótrúlegt. Fyrri hluti.
eir eru reyndar tveir þessir piltar, sem heita
Mick Jagger. Um æviferil annars þeirra
breiða sorpblöðin af kappi út sífelldar æsi-
fregnir, svo að manni virðist hann hreint og
beint hljóti að vera alveg bandóður göslari.
Svo er það aftur á móti hinn náunginn,
sem fæst við að syngja inn á breiðskífur
með Rolling Stones — plötur, sem upp á
síðkastið fara aftur eins og elding upp vin-
sældalistann. Á svo sem þriggja ára fresti
platar hann Rolling Stones af stað með sér
til þess að krafsa snöggvast upp svo sem 40
milljónir dollara (1,1 milljarð íslenzkra)
til að halda áfram að fjármagna lífsins
lystisemdir meðal hinna útvöldu. Maður
hefur vissar grunsemdir um að þessir tveir
náungar þekkist, en þeir sjást annars aldr-
ei saman (nema kannske stundum á svið-
inu).
Stundum bregður svo þriðja Mick Jagg-
er fyrir að auki. Meðan hinir tveir eru á
kafi í að skemmta sér, er þessi til taks
fyrir blaðamenn til að veita þeim viðtöl í
hvert sinn sem nýtt plötualbúm er að
koma út. Það er þannig starfi, sem er gjör-
samlega hulinn þungum, gráum skýjaflók-
um af alveg þrúgandi leiðindum. Blaða-
menn eru alltaf að koma með þetta sama
gamla röfl og pex, finnst manni. Margt af
því er stílað á Mick fyrsta. Er hann upp-
dópaður? kynferðislega umturnaður?
útlifaður? útbrunninn? Getur það verið, að
hann sé orðinn fertugur?
Það vill svo til, að núna er komin á kreik
heil ný kynslóð af poppmúsíkunnendum,
sem hafa heldur takmarkaðan áhuga á
þess háttar spurningum. Mick Jagger? Var
á kafi í dópinu? Hélt að hann væri sjálfur
djöfsi eða eitthvað svoleiðis? Var í slagtogi
við Andy Warhol? Jæja. Og það er sagt, að
hann sé ennþá í þessu? Já, það er hann svo
sannarlega.
allt fyrir peningana
„Mick gæti hafa oröið frábær krikketleik-
ari, en þaö var ýmislegt annaö, sem kom í
veg fyrir þaö.“
Joc Jagger, 1974.
Michael Philip Jagger hafði allt frá því
fyrsta verið mjög metnaðargjarn. Faðir
hans, Joe Jagger, eðlisfræðikennari við
menntaskóla í einni af útborgum Suður-
Lundúna, vék eitt sinn að þessum þætti í
skapgerð sonar síns: „Hann var í rekstr-
arhagfræði við London School of Econo-
mics, þegar hann fékk tveggja ára leyfi frá
námi til þess að koma popphljómsveit
sinni á fót. Hann fór út í þetta, af því að
honum fannst gaman að þessu, en hann
gerði sér Ijósa þá möguleika til að vinna
sér inn peninga, sem fólust í poppmúsík-
inni, og þar sem hann hafði verið í rekstr-
arhagfræði, þá fannst honum það skínandi
hugmynd að fara að græða peninga."
Það er víst algjör óþarfi að minnast á,
að peningar eru ekki lengur neitt yfir-
þyrmandi vandamál hjá Mick Jagger. Þótt
höfundarlaun hans á nær tuttugu ára ferli
sem dægurlagasmiður, ásamt dúndrandi
velgengni í hljómleikahaldi, hafi fært hon-
um hinar ríkulegustu tekjur (en mikill
hluti af því fjármagni er örugglega varð-
veittur í sérstöku eignarhaldsfélagi þeirra
Rolling Stones, Promotone B.V.
MEIRA fé
Ástæðuna segir Mick Jagger einfaldlega
vera þá, að „CBS bauð okkur verulega
meira fé“. Tuttugu og fimm milljónir doll-
ara (þ.e. um 700 milljónir ísl. kr.) er sú
upphæð, sem samningurinn hljóðar upp á,
hvorki meira né minna. í staðinn á CBS
meðal annars að fá í sinn hlut dreifingar-
rétt á verulegum hluta af fyrri verkum
Rolling Stones. Báðir aðilar virðast hæst-
ánægðir með þennan samning.
„Ég held, að tilboð CBS hafi verið byggt
upp á frammistöðu okkar á þremur síðustu
plötunum, sem teknar voru upp,“ segir
Mick Jagger, en hann og hljómsveitin hafa
haft feiknalegan meðbyr, allt frá því að
langspilplatan Some Girls kom út árið
1978. „Ég held, að CBS reikni fremur með
því, að þeir geti selt fleiri plötur en nokkur
annar aðili, og ef næstu þrjár plöturnar
okkar seljast í svipuðum mæli og þær
þrjár síðustu, þá fara þeir að græða pen-
inga á þessum samningi."
Á Tilraunastiginu?
„Ég er með heilmikið af efnivið," segir
Jagger. „Ég hugsa, að ég fari að koma
fram með þetta eftir tiltölulega stuttan
tíma.“
„Ég veit svo sem ekki hvort hægt sé að
kalla Mick góöan leikara — en hann er svo
sannarlega skemmtikraftur."
Anita Pallenberg, 1968.
Á tónlistarsviðinu getur Mick Jagger
auðvitað fundið upp á að gera hvað sem
honum þóknast. En hvað hefur svo sem
verið látið ógert í þeim efnum? „Það virð-
ist enginn koma fram með neitt sérstak-
lega nýstárlegt á stórum útihljómleikum,"
segir hann. „Ég hef séð David Bowie, er
búinn að sjá Talking Heads og Police, og
ég meina bara, er þetta allt og sumt?
Keith finnst að rokk-tónleikar ættu bara
að fara fram með örfá ljós á sviðinu, góð-
um magnaragræjum og með sem minnstu
tilstandi í sviðsskreytingum. En þetta eru
sem sagt hans hugmyndir um það, hvernig
þetta eigi allt að vera á útitónleikum. En
ég vil láta gera betur. Mig langar að hafa
meira af ljósum, betra leiksvið. Ég vil geta
LESBÓK MORGUNBLAÐSINS 28. APRlL 1984 7