Lesbók Morgunblaðsins - 15.06.1985, Blaðsíða 14

Lesbók Morgunblaðsins - 15.06.1985, Blaðsíða 14
Æ Hættir Volvo að spóla? Eftir JÓN B. ÞORBJÖRNSSON Flestir bílaáhugamenn þekkja orðið til ABS- kerfisins svokallaða; þ.e. búnaðar sem kemur í veg fyrir að hjól læsist við hemlun. Nú hefur Volvo, fyrstur bílaframleiðenda, komið með búnað á markaðinn sem á að koma í veg fyrir að drifhjólin geti spólað. Hvað virknina áhrærir er hér að vissu leyti um andstæðu ABS-kerfisins að ræða, en bæði kerfin grundvall- ast þó á sömu hugmyndinni. Sennilega hafa flest ykkar lent í þeirri aðstöðu, að það reynist svo skrambi erfitt að ýta gömlu, þungu kommúðunni af stað yfir gólfið, þegar verið er að breyta til í herberginu. Hins vegar, eftir að hún er komin á hreyfingu, reynist tiltölulega auðvelt að fylgja henni eftir á sinn stað. Eðlisfræðin á náttúru- lega svar við þessu fyrirbæri, eins og flestu öðru. Samkvæmt henni felst skýringin í lægri núningsstuðli — eða réttara sagt viðnámsstuðli á milli hluta sem eru á hreyfingu gagnvart hvort öðrum, heldur en á milli kyrr- stæðra hluta. Á þessu eðli hlut- anna grundvallast einmitt ABS-kerfið og hið nýtilkomna ETC-kerfi (Electronic Traction Control). ABS-kerfið nær fram há- markshemlun með því að hindra að hjólin læsist (dragist) og nýt- ir þar með til hins ýtrasta við- námsstuðulinn sem er til staðar milli hjólbarða og yfirborðs veg- ar. Stærð viðnámsstuðulsins ræðst reyndar af ástandi vegar í það og það skiptið; hann verður t.d. hverfandi lítill í glerhálku. Á sama hátt næst fram hámarks- spyrna, ef drifhjólin eru hindruð í því að spóia þegar tekið er af stað eða aukið við hraða. Þetta er meginhugsunin að baki ETC- kerfisins. Þetta kerfi er þó engan veginn eingöngu ætlað til þægindaauka fyrir ökumann, sem hættir mik- ið til að þurfa að vanda sig við að taka af stað í snjó og hálku. Öllu heldur er það „öryggi framar öllu“, sem er hér rétt einu sinni á feröinni. Því er nefnilega þannig um viðnámsstuðulinn farið, að því meir sem kraftur í einhverja ákveðna átt „notar" af honum — því nær sem komið er þeim takmörkum að hlutir fari að renna hvor á öðrum — þeim mun minna verður eftir af honum til að veita krafti í einhverja aðra K N átt viðnám. Þetta veldur til dæmis því, að ef allur við- námsstuðull drifhjólanna er uppurinn viö að spyrna bíl áfram (bíllinn fer að „losa hjól“) er ekkert eftir sem veitir hjólun- um hliðarstuðning. Það þarf ekki að fara lengra en út á kvartmílubraut til að sjá þetta í praxís; þegar bílarnir standa þar spólandi til að hita upp aftur- dekkin, ýta menn þeim á milli sín næstum eins og skoppara- kringlum. Sama staða kemur upp þegar afturhjóladrifinn bíll er að taka framúr öðrum í hálku og byrjar að skransa út á hlið, ef aðeins of þétt er stigið á inngjöf- ina. Hliðarstuðningurinn orðinn nánast enginn. Þetta er reyndar einkum vandamál með aflmikla bíla. Lausnin á vandanum fæst rétt einu sinni með hjálp rafeinda- tækninnar. Út í hverju hjóli er komið fyrir tannkransi, sem framkallar rafboð í skynjara. Fjöldi þessara rafboða segir til um hraða hjólsins. Boð frá öllum hjólum eru leidd til ETC-stjórn- tölvu, sem ber hraða afturhjóla Flædimynd af virkun ETC-kerfisins til takmörkunar á afli frá vél. Spin = ETC-stjórntölva. VCCT = stjórnbúnaður til að minnka forþjöppu- þrýsting. Fuel = stjórnbúnaður til aö minnka eldsneytis- magn. Skynjarar fyrir hjólhraöa. Spin 1 □ □ □ ® © © saman við hraða framhjóla. Ef skrikun afturhjóla fer yfir 7%, þ.e. ef afturhjólin snúast yfir 7% hraðar en framhjólin, sendir þessi stjórntölva boð til stjórn- tölvu vélarinnar, en hlutverk hennar er aðallega að stjórna kveikjutíma vélarinnar og sam- ræma eldsneytismagn og kveikjutíma. Fyrstu viðbrögð vélarstjórntölvunnar eru þau að lækka forþjöppuþrýstinginn til þess að draga úr snúningsvægi vélarinnar — eða minnka kraft- inn, eins og yfirleitt er sagt. Ef það dugir ekki til, ef skrikun drifhjólanna eykst enn þrátt fyrir þessar ráðstafanir, grípur vélarstjórntölvan til róttækari aðgerða og byrjar að loka fyrir aðra hverja eldsneytisinnspýt- ingu inn á einn strokkanna. Svo lengi sem skrikunin eykst er haldið áfram að minnka við eldsneytisinnspýtinguna; lokað er algjörlega fyrir innspýting- una inn á þennan eina strokk, og lokað fyrir aðra hverja inn á næsta strokk. Ef þörf er á heldur þetta svona áfram koll af kolli þar til að vélin gengur aðeins á einum strokk, við 20% skrikun. Meir er ekki hægt að draga úr krafti vélarinnar án þess að hún hætti að ganga undir sjálfri sér. í fæstum tilfellum er þó nauð- synlegt að ganga svo langt til þess að koma í veg fyrir að bíl- inn fari að losa um hjólin. Kostir þessa búnaðar eru ekki einungis fólgnir í auknu öryggi í hálku, heldur er þetta einnig ör- yggisatriði þar sem hætta er á vatnsskautun (aquaplaning). Þegar vatnsfleygurinn sem myndast milli vegar og hjól- barða veldur því að framhjólin fara að fljóta og hætta að snúast með eðlilegum hraða merkir ETC-stjórntölvan samskonar að- skýringarmynd af ETC-kerfinu: 1 og 5 skynjarar fyrir hjólhraða, 2 og 6 tannkransar, 3 skynjari fyrir loftþrýsting frá forþjöppu, 4 stjórntölva fyrir ETC-kerfi (Samanburður hjólhraða; boö til stjórntölvuvélar), 7 gaumljós í mælaborði; gefur til kynna hvenær ETC-kerfiö virkar og upplýsir þannig ökumann að nokkru leyti um akstursskilyröi. stæður og við skrikun. Vélar- stjórntölvan tekur þá við sér á sama hátt og minnkar vélaraflið. Greinilegt er, að þessi nýjung frá Volvo er þarft framlag til akstursöryggis afturdrifinna bíla. Vinna þekktra bílafram- leiðenda eins og Daimler-Benz og BMW að þessari sömu hug- mynd er einnig staðfesting á því. Einnig er hentugt að nota ETC-kerfið saman með ABS- kerfinu, því bæði kerfin notast við sömu hlutina að nokkru leyti, svo sem tannkransana og skynj- arana. Væntanlega eiga bæði þessi öryggiskerfi mikla framtíð fyrir sér, sem einfaldur og sam- byggður alhliða akstursöryggis- búnaður. En enn sem komið er, er þennan búnað aðeins að finna í flaggskipi Volvo-flotans; Volvo 760 Turbo Intercooler. Höfundurinn er viö nám I bilaverk- fræöi I Þýskalandi. Teikningin sýnir hvernig tann- kransi og skynjara er komið fyrir á afturás bílsins. Joseph Conrad: CHANCE A Tale in Two Parts Penguin Books 1984 „Játaðu aldrei! Aldrei, aldrei! Maður sér alltaf eftir ótíma- bærri skreytni. Það héndir, að hún eyðileggi mann; ekki af því að hún er fyndin, heldur vegna þess að hún er ótímabær. Og játning, af hvaða tagi sem er, er alltaf ótímabær." Svo skrifar Conrad í þessari bók, sem með sanni má segja sé glæsilegt slúður. En slúður hefur jú eyðilagt fleiri mannorð en játningar hafa gert. Sagan segir frá óhamingjusamri ungri stúlku, Floru de Barral. Faðir hennar er dæmdur fjárglæfra- maður og stúlkukindinni er kom- ið fyrir hjá Fyne-fjölskyldunni. Flora er ekki jafn létflynd og börn fósturforeldra hennar, hún er dularfull og dreymin. Hún er inn í sig og ung giftist hún skip- 07 4 r 0 JosephConrad Chance stjórans og tengdaföðurins og að auki skipverjanna og atburðir henda sem ekki bæta úr skák. Chance var sú bók sem færði Joseph Conrad fyrst frægð. Hún kom út 1913 og átti Conrad eftir að skrifa margar bækur eftir það. Graham Greene: THE HONORARY CONSUL Penguin Books 1984 Það þarf ekki að taka þaö fram, að Graham Greene stend- ur sem klettur hvar sem borið er ofan í bækur hans. í þessari, The Honorary Consul, er sagt frá fremur hlægilegu mannráni og eins og Greene er Iagið er bókin einstaklega skemmtileg. Fórnar- GRAHAM GREENE THE GREAr BESTSEIXER NOWA MAJOR FII.M i stjóra og siglir með honum um höfm. Faðir hennar, sem laus er úr fangelsinu, fer með þeim í siglingar. En einangrunin til sjós eykur á spennu milli skip- lamb mannræningjanna er Charley Fortnum, drykkfelldur Englendingur, sem hefur verið gerður heiðurskonsúll í smábæ í norðurhluta Argentínu. í bæn- um býr læknirinn Plarr, sem er enskur að hálfu, innfæddi rithöf- undurinn ' Saavedra og doktor Humphries. Þar býr og hóru- mamman Sanches og púturnar hennar. Einni þeirra kvænist Charley Fortnum. Hún er hin ljúfasta konukind og neitar ekki fríðu þegar henni er boðið eitthvað á móti. Og hér eru bylt- ingarseggirnir, lögregluforing- inn og annað persónugallerí. Einn byltingarsinnanna er fyrr- verandi prestur. Hann vorkennir Guði fyrir að hafa skapað allt óréttlætið í heiminum og hatrið sem kom sex milljónum gyðinga fyrir kattarnef og veldur dauða barna og því að fangar eru pynt- aðir. Sá er allnokkur fílósóf. The Honorary Consul er létt og leikandi skáldsaga og undir lokin stendur þar: „í guðanna bænum að þessum gléðileik ljúki í gleði. Harmleikur hæfir ekki neinum okkar.“ GUÐBRANDUR SlGLAUGSSON TÓK Saman 14

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.