Lesbók Morgunblaðsins - 08.10.1988, Blaðsíða 4

Lesbók Morgunblaðsins - 08.10.1988, Blaðsíða 4
Utgáfusaga Lystræningjans egar bókmenntatímaritið Lostafulli Lystræn- inginn hóf göngu sína um mitt ár 1975 hafði mörg undanfarin ár heldur lítið farið fyrir tímaritum um bókmenntir og listir og vegur þeirra farið sífellt minnkandi. Nokkur ár liðin Þetta er dæmigerð saga um unga hugsjónamenn sem taka á sig skuldabagga til þess að halda uppi merki bókmennta og kannski til að frelsa heiminn í leiðinni. Þarna komu margir höfundar við sögu og tímaritið er merkilegur aldarspegill tímabilsins frá 1975 til 1982, þegar þessari sögu lýkur. Fyrri hluti. Eftir ÓLAF ORMSSON síðan Birtingur hætti að koma út og varla gefíð út nokkurt tímarit sem að kvað nema þá helst tímarit Máls og menningar og um það bil sjö ár liðin síðan síðast bólaði á tíma- riti í líkingu við Lostafulla Lystræningjann, það nefndist Núkynslóð og var gefíð út af nemendum við Menntaskólann í Reykjavík og kom út einu sinni árið 1968. Það var heilmikið ort í upphafí áttunda áratugarins og þörfín brýn fyrir bókmenntatímarit þeirra sem voru að stíga sín fyrstu spor á rithöf- undarbrautinni. Ungir höfundar birtu eftir sig efni í tímariti Máls og menningar svona einstaka sinnum og einnig í Samvinnunni á meðan Sigurður A. Magnússon ritstýrði því blaði og það var ekki orðið að því heimilis- riti sem síðar varð. Þá var Lesbók Morgun- blaðsins á þeim árum sem enn í dag vett- vangur fyrir ljóð og sögur ungra höfunda. Allmikið var gefíð út af ljóðabókum, minna fór fyrir skáldsögum og smásagnasöfnum. Vésteinn Lúðvíksson vakti verulega athygli er hann sendi frá sér skáldsöguna Gunnar og Kjartan í tveim bindum á árunum 1971 og 72 og einnig Guðbergur Bergsson, hjá Helgafelli komu út skáldsögumar Hermann og Dídí og Það sefur í djúpinu. BJARGVÆTTURINN Sigurjón Siguijón Þorbergsson var með prentverk við Hverfísgötuna og síðar Grettisgötuna og var sá bjargvættur sem mörg ung ljóð- skáld leituðu til. Hann var velviljaður bóka- útgáfu og þær voru ófáar frumsmíðamar sem ungir höfundar sendu frá sér með stuðningi og velvilja Sigurjóns í Letri. Hann var hinn nýi Ragnar í Smára. Ragnar að draga sig út úr bókaútgáfu á þeim ámm og umsvif Helgafells, útgáfufyrirtækis hans, öllu minni en áður. Siguijón kannski ekki sami fjármálamaðurinn og Ragnar í Smára eða skipuleggjandinn, slíkir ofurhugar koma ekki fram nema einu sinni á öld. Siguijón Þorbergsson þá enn á besta aldri og til í slaginn og lagði oft hart að sér að koma út ýmsum Ijóðabókum við lítil efni, stöðugan ljárskort, helst að skattskráin sem hann prentaði árlega héldi rekstrinum gangandi. Ljúfmenni, hinn besti drengur sem aldrei gat sagt nei þegar ung ljóðskáld voru ann- ars vegar og vildu koma verkum sínum á framfæri. Lágvaxinn, kvikur í hreyfíngum, með ljósrautt hár og stöðugt brosandi þó svo að rukkunarmenn væru hvað eftir ann- að í dyragættinni eða jafnvel lögtaksmenn, aldrei haggaðist Siguijón og hélt sínu striki og bauð öllum lánardrottnum byrginn á eft- irminnilegan hátt. í svipinn man ég að meðal bóka sem komu út hjá Siguijóni í Letri á fyrstu árum áttunda áratugarins voru fyrstu bækur Birgis Svans Símonarson- ar, Péturs Hafsteins Lárussonar, Bjarna Bemharðs, Einars Ólafssonar, Geirlaugs Magnússonár og Ólafs Gunnarssonar. Frá áramótum 1975 og fram í október sama ár komu út allmargar ljóðabækur ýmist hjá Letri eða öðmm forlögum og meðal ljóðabóka Leikvangur vindanna eftir Áma Larsson, Limbórokk eftir Stefán Snævarr, Ljóð vega salt eftir Sigurð Páls- son, Upp og ofan eftir Bjama Bemharð, Frumskógardrottningin eftir Dag, Babúska eftir Pétur Hafstein Lárasson, Gengið á vatni eftir Aðalstein Ir.gólfsson, Mjmd af langafa eftir Jóhann Hjálmarsson og hjá Almenna bókafélaginu ný ljóðabók eftir Matthías Johannessen, Dagur ei meir með myndum eftir Erró. Hún kom út í 1.500 eintökum og var uppseld hjá forlaginu rúm- um mánuði eftir að hún kom út að sögn Baldvins Tryggvasonar framkvæmdastjóra í blaðaviðtali og haft eftir honum að það sé afar fátítt að ljóðabækur seljist í svo stóra upplagi, útgefendur geri sig ánægða LYSTRÆNIHGINN I MINNINGU PÉTURS PÁLSSONAR Forsíður Lystræningjans trá ýmsum tímum bera vott um hvað aðstandendum hans þótti vera efst á baugi hvetju sinni. með það að ljóðabækur seljist í 2—300 ein- tökum á einu ári. Og í blaðaviðtali í janúar- mánuði 1975 segir Einar Kárason, núver- andi formaður Rithöfundasambands íslands, þá ritnefndarmaður skólablaðs Menntaskól- ans við Tjömina: „Við erum bókstaflega að drukkna í ljóðum á köflum. Vissulega er mikið um eins konar gamanvísur en einnig mikið af voðalega úthverfum nútímavísum, sem við eigum í miklum erfíðleikum með að skilja stundum. Þó sést yfírleitt strax, hvort þama er um góðan skáldskap að ræða eða ekki. Við eigum kannski ekki sext- án stórskáld í fjórða bekk, en þar era þó einir 4—5 sem raunveralega gefa sig að því að yrkja og það er ekki svo slæmt í rúm- lega 100 nemenda hópi." ÁSTMEGIR ÞJÓÐARINNAR Og ljóðaáhuginn fór vaxandi er leið fram á árið_ 1975. Hópur ungskálda sem kölluðu sig „Ástmegir þjóðarinnar" fluttu verk sín í Norræna húsinu fyrir fullu húsi laugardag- inn 23. ágúst. í fréttatilkynningu frá hópn- um sem birtist í dagblöðum er sagt að flest skáldanna lesi ljóð sín við undirleik og að bækur þeirra verði til sölu á staðnum, að- gangur 20 krónur. „Ástmegir þjóðarinnar" vora: Ámi Larsson, Bjami Bemharður, Birgir Svan, Dagur Sigurðarson, Einar Ólafsson, Emir Snorrason, Geirlaugur Magnússon, Hrafn Gunnlaugsson, Megas, Ólafur Gunnarsson, Ólafur Haukur Símon- arson, Pétur Gunnarsson, Pétur Hafsteinn Lárasson, Sigurður Guðjónsson, Sigurður Pálsson, Stefán Snævarr og Steinunn Sig- urðardóttir og ári síðar mynduðu nokkrir úr þessum hóp annan hóp, sem varð ekki síður þekktur og las upp úr verkum sínum víða um land, „Listaskáldin vondu" er troð- fylltu t.d. Háskólabíó, gott ef ekki tvisvar sinnum. DAGUR Sigurðarson RÉÐ Nafngiftinni í þessum jarðvegi varð Lostafulli Lyst- ræninginn til sem hét nú raunar aðeins Lystræninginn frá og með öðra tölublaði. Það var nokkur aðdragandi að útgáfu fyrsta tölublaðsins. Sumarið 1974 ákváðu Ólafur Gunnarsson og AUan Morthens, þá staddir í Kaupmannahöfn, að heíja eins fljótt og mögulegt væri útgáfu tímarits ungra skálda. Ólafur Gunnarsson kveðst muna eftir fundi árið 1975 á kaffístofu inn af bóksölu stúd- enta er hann sat ásamt Einari Ólafssyni, Allan Morthens, Ólafí Hauki Símonarsyni og Kristni Einarssyni og hafi verið eins konar stofnfundur varðandi fyrirhugaða útgáfu. Ólafur Gunnarsson vildi láta blaðið heita Ryklokið. Það var síðan Dagur Sigurð- arson sem kom með hugmynd að heiti blaðs- ins sem að lokum var samþykkt „Lostafulli Lystræninginn". Einar Ólafsson hafði einnig um tíma verið með áætlanir um útgáfu tíma- rits ungra skálda og gerði þær síðan að veraleika er hann hafði forystu um útgáfu LostafuIIa Lystræningjans og fyrsta tölu- blaðið, júlí-októberheftið, kom út á haust- dögum árið 1975 í 500 eintökum. Allan Morthens vann það árið á Upptökuheimili ríkisins í Kópavogi og vélritaði efnið í fyrsta tölublaðið á kúluritvél stofnunarinnar, á næturvöktum, að því er Ólafur Gunnarsson telur. Það var heilmikið að gerast í lista- og menningarlífi um miðjan áttunda áratuginn. Hin hefðbundnu leikhús, Þjóðleikhúsið og Iðnó, sýndu nokkur íslensk leikrit. Þjóðleik- húsið t.d. Herbergi 213 eftir Jökul Jakobs- son í ársbyijun 1975 og Lúkas eftir Guð- mund Steinsson síðar á leikárinu. Þá frum- sýndi Leikfélag Reykjavíkur Selurinn hefur mannsaugu eftir Birgi Sigurðsson og Al- þýðuleikhúsið starfaði af krafti norðan heiða og sýndi nýleg verk eftir Böðvar Guðmunds- son. Fjör í menningarlífinu Á vetrardagskrá ríkissjónvarpsins vetur- inn 1974—75 era sex ný islensk leikrit, sýnd á mánudagskvöldum í stað sunnudags- kvölda. Veiðitúr í óbyggðum, byggt á smá- sögu eftir Halldór Laxness, leikstjóri Helgi Skúlason. Keramik eftir Jökul Jakobsson, leikstjóri Hrafíi Gunnlaugsson, Silfurbrúðkaup eftir Jónas Guðmundsson, leikstjóri Pétur Einarsson, Sigur eftir Þorvarð Helgason, leikstjóri Hrafn Gunnlaugsson, og Birta eft- ir Erling E. Halldórsson sem Þorsteinn Gunnarsson leikstýrði. í blöðum frá 1975 er frétt um metaðsókn að Þjóðleikhúsinu fram að áramótum 1974—75. Arlegur bóka- markaður er haldinn í kjallara Iðnaðar- mannafélagshússins við Hallveigarstíg í fímmtánda sinn og aldrei sagður hafa geng- ið betur og í frétt frá Borgarbókasafninu sagði að á árinu 1974 hafí safnið lánað út yfir milljón bækur sem er allnokkuð meira en gerist nú á tímum hinnar rómuðu fjöl- miðlabyltingar. Almenna bókafélagið sendi

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.