Lesbók Morgunblaðsins - 05.12.1998, Blaðsíða 20

Lesbók Morgunblaðsins - 05.12.1998, Blaðsíða 20
BIRTAN UPPSKORIN ÁRLEGA Hjónin Hörður Daníelsson og Kristín Þorkelsdóttir hafa um tíu óra skeið ótt drjúgan þótt í útgófu landkynning- ardagatalsins Af Ijósakri. Útgófan vakti verðskuldaða athygli ó sínum tíma fyrir Ijósmyndir Harðar, hönnun Kristínar og óvenju vandaða prentun. Morgunblaðið/Kristinn. „VERÐUR æ betur Ijóst hvað ósnortin náttúran skiptir miklu máli fyrir manninn," segja hjónin Kristín Þorketsdóttir og Hörður Daníelsson. EGAR Ljósakurinn kom út í fyrsta sinn 1989 var það í fyrsta sinn sem landið var sýnt á prentaðri ljósmynd í þessu formi,“ segir Hörður. „Síðan hafa margir fylgt í kjölfarið og í dag eru flestir atvinnuljósmyndarar með svona myndavélar. Þetta er dálítið annars konar myndataka en á venju- lega 35mm myndavél. Vélin sem ég nota er nánast öll handvirk, mæla verður ljósið með sérstökum ljósmæli og myndin er tekin á tíma. Yfírleitt tek ég bara eina lýsingu og annaðhvort heppnast hún eða ekki. Myndatak- an stendur nær gömlu ljósmyndurunum hvað þetta varðar," segir Hörður um tæknilega hlið ljósmyndunarinnar. Þau Kristín og Hörður eru löngu þekkt fyrir störf sín að hönnun, kynningarstarfi og •auglýsingagerð, lengst af ráku þau Auglýs- ingastofu Kristínar sem síðar fékk- heitið Auk hf. en fyrir fimm árum drógu þau sig alfarið út úr rekstri fyrirtækisins og seldu hlut sinn. Kristín hefur frá upphafi stýrt hönnun daga- talsins Af ljósakri fyrir útgefandann Nýjar víddir sem er að jöfnu í eigu hennar, Daða Harðarsonar og Gunnars Halldórs Gunnars- sonar, en þeir sjá alfarið um reksturinn. „Hugsunin að baki útgáfugripa Nýrra vídda er afar einfóld,“ segir hún. „Þeir þurfa að upp- fylla skilyrðið að vera vönduð íslensk kveðja, sem hafi bæði gildi fyrir sendanda og viðtak- anda kveðjunnar. Fyrsta útgáfa Af ljósakri breytti viðhorfum manna til dagatala. Loksins gafst íslenskum fyrirtækjum kostur á að kynna landið sitt á verðugan hátt með breið- myndum sem náðu betur en önnur form hinu ^ stórbrotna landslagi og víðerni sem er svo ein- ' stætt fyrir ísland." Ai-i Trausti Guðmundsson jarðeðlisfræðing- ur er höfundur textans sem birtist á dagatal- inu 1999. Með hverri mynd fylgir texti og á bakhlið dagatalsins er ítarlegri texti um mót- un landsins frá upphafi. Að sögn Kristínar hefur ávallt verið lögð mikil áhersla á gæði textans og birtist hann á sex tungumálum. Hún segir að útgáfan hafi verið í stöðugri þróun frá ári til árs, ekkert hafi verið til sparað svo prentunin mætti heppnast sem best og jafnvel hefur verið bryddað á nýjung- um í prentuninni til að sem bestur árangur næðist. „Akveðin aðferð í yfirlökkun pappírs- ins var þróuð í samvinnu við Prentsmiðjuna Odda til að ná fram vissri áferð í myndirnar. Dagatöl hanga yfirleitt á vegg og Ijósið breyt- ist á meðan fólk gengur hjá og virðir fyrir sér myndina." Kristín nefnir eitt atriði sem telja megi ein- stakt í vinnsluferli myndanna í prentsmiðjunni en hverri mynd fylgir nákvæm greinargerð frá Herði um hvernig skuli litgreina hana. Hver mynd er brotin upp í reiti sem merktir eru með bókstaf og númeri. Með myndinni Brim við jökulsárósa á Breiðamerkursandi fylgdi t.a.m. eftirfarandi leiðsögn: „Myndin er í þremur beltum: Efst er skýlaus himinninn, þá kemur hafið og hvítfyssandi brimgarðurinn og neðst er sandurinn; ýmist ber og dökkur eða hulinn bláu ljósu frárennslinu. Það sem þarf sérstaka alúð er: a) Gæta þar að yfirlýsa ekki hvítt löðrið í briminu BCl/19. b) Bláir vatnstaumarnir í Dl/19 verða að skila sér með sínum ótal blæbrigðum. c) Sandurinn í El/19 má ekki verða of dökkur og í honum eru mjög fínleg blæbrigði sem þurfa að nást inn. Og höf- um í huga að sólskinið er í essinu sínu - litlu skuggarnir af ísmolunum neðst til hægri vitna um það.“ Útgáfa dagatalsins Af ljósakri hefur hlotið útnefningu Imarks og tilnefningu til menning- arverðlauna DV fyi'ir listhönnun. Hörður segir samt ákveðið viðhorf ríkjandi gagnvart útgáfu dagatala. „Það er einfaldast að lýsa því þannig að dagatöl séu álitin annars flokks útgáfa. Þess vegna á svona vönduð útgáfa dagatals erfiðara með að fá viðurkenningu fyrir fag- mannlegan frágang og listrænt útlit en t.d. bækur.“ Kristín bætir því við að hún telji að Af ljósakii sé einn vandaðasti prentgripur sem út komi á Islandi. „Það hefur verið einstaklega gaman að finna hve þeir fjölmörgu, sem koma að gerð þessa prentgrips, leggja sig alla fram um að gera hann sem best úr garði. Allir leggja metnað sinn í að Af ljósakri heppnist sem best“. I tengslum við gerð Af ljósakri hafa Hörður og Kristín ferðast mikið um landið. „Við höf- um ferðast meðvitað um landið undanfarin 15 ár og erum orðin vel kunnug víða. Mér verður það æ betur Ijóst hvað ósnortin náttúran skiptir miklu máli fyrir manninn, en um leið verður að gera staðina aðgengilegri. Þetta eru tvö sjónarmið sem þarf að samræma,“ segir Ki-istín. Hörður segir að oft hafi togast á í sér tilfinning um að með því að birta ljósmynd af fallegum afskekktum stað sé hann þar með kominn í þjóðbraut. „Þetta leiðir auðvitað hug- ann að því hvert við stefnum í umgengni okkar við náttúru landsins. Það má jafnvel segja að með útgáfu á sakleysislegu dagatali með náttúrufarsmyndum sé maður að taka stórpólitíska afstöðu," segir Hörður kíminn. Kristín bætir því við að ljósmyndir Harðar séu skrásetning á síbreytilegum svip og ljósbrigð- um í ásýnd landsins. „Ljósið og birtan eru svo stórkostleg hér á Islandi. Mér hefur stundum dottið í hug að það ætti að láta útlenda ferða- menn sofa á daginn og keyra með þá um land- ið á nóttunni,“ segir Hörður. „Þá fengju þeir að sjá hvernig allt fellur í dúnalogn við sólset- ur, harðir skuggar dagsins víkja fyrir mjúku ljósi bjartrar sumarnæturinnar og upplifa síð- an kraftinn sem losnar úr læðingi við sólar- upprás.“ *20 LESBÓK MORGUNBLAÐSINS ~ MENNING/LISTIR 5. DESEMBER 1998

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.