Lesbók Morgunblaðsins - 26.08.2000, Page 13
i
eins árs skeið á heilsuhæli í Sviss. Árið eftir afl-
aði hún sér frekari menntunar og reynslu í
höggmyndalist í París, þar sem hún skóp lista-
verkið Móðurást. Það listaverk hlaut heiðurs-
sess á Haustsýningunni í Grand Palais 1924 og
fyrir það hlaut Nína evrópska viðurkenningu
og vann sinn fyrsta sigur á alþjóðlegri sýningu.
Listaverkið Móðurást var það listaverk er
aflaði hennar mestrar viðurkenningar á Is-
landi. Listvinafélagið keypti það og það var
sett upp á áberandi stað í garði við Lækjargötu
í Reykjavík - stað sem nýtur sín ekki lengur
vegna pylsuvagns og strætisvagnaskýlis, þó
listaverkð tali enn sínu máli. Þetta var fyrsta
listaverkið sem sett var upp í Reykjavík, sem
ekki var brjóst- eða heilmynd af einhverjum
sögufrægum karlmanni.
Með styttunni Móðurást í Lækjargötu má
segja að Nína hafi „komist á blað á íslandi sem
myndhöggvari". Síðan lá leið hennar til Róma-
borgar - en þar bjó hún við sömu kjör og aðrir
listamenn, sem flestir hverjir gátu varla lifað
af list sinni og áttu á stundum vart málungi
matai'.
Leiðin liggur vestur um haf
Á ái'inu 1926 bauðst Nínu að sýna list sína í
New York Art Center, og þá urðu þáttaskil í
lífi hennar. Hermt var að þar vestra væri unnt
að lifa af listsköpun. Hún fluttist vestur um haf
og bjó fyrst í New York, en síðar í Los Angeles
og ílentist þar í þrjá áratugi. Átti hún þai' ljúft
tímabil, en heimþráin til íslands og Fljótshlíð-
arinnar var ætíð til staðar, og það hamlaði
henni í ýmsum samkeppnum að vera íslenskur
ríkisborgari, en ekki kom til greinar af hennar
hálfu að skipta um ríkisfang.
Frá þessu og mörgu öðru um listaferil Nínu
sagði Ríkey Ríkarðsdóttir í mjög skemmtilegri
grein sem birtist í Lesbók Morgunblaðsins 27.
júní 1998. Grein Ríkeyjar byggðist á heimild-
um sem hún fann í ýmsum söfnum og á mörg-
um stöðum.
Ríkey segir frá því að vestan hafs hafi Nínu
boðist tækifæri sem ekki buðust í Evrópu. Par
var oftar efnt til samkepnni meðal högglista-
manna um tiltekin verkefni. Hún var t.d. hvött
til að taka þátt í samkeppninni um gerð styttu,
sem prýða átti forhlið Waldorf Astoria-hótels-
ins á Manhattan í New York. Verk hennar Af-
rekshugur, vængjuð vera á hnetti, hlaut sigur-
launin í samkeppni um 400 listamanna. „Þá var
mikið skrifað um Nínu bæði vestan hafs og
austan, og Danir vildu t.d. eigna sér litlu
grönnu stúlkuna úr Fljótshlíðinni," segir í
grein Ríkeyjar.
Ríkey segir þarna líka frá höggmynd af Vil-
hjálmi Stefánssyni, sem gefin var til Islands á
Alþingishátíðinni 1930. Nína tók líka þátt í
samkeppni um styttu af Leifi Eiríkssyni, sem
son, sem vígður verður í dag. Þó
verður verk Nínu, Ung móðir, afhjúp-
að ó stallinum sem er ó miðri mynd.
Lundurinn er um 1.200 fermetrar.
Blógreni og sitkagreni munu smóm
saman mynda skjólveggi ó tvo vegu,
en lógvaxið skjólbelti tryggja óheft
útsýni til suðurs og vesturs. Kolbrún
Þóra Oddsdóttir landslagsarkitekt
hannaði lundinn.
kið er geynit í Listasafni íslands en Ríkey fékk
leyfi til að láta stækka verkið í Englandi og
verður það afiijiipað við opnunina í dag.
„Verkið Ung móðir hentaði að okkar mati vel í
minningarlundinum þar sem þetta er fæðing-
arstaður Nínu. Garðurinn er einnig teiknaður
með styttuna í liuga því þar verða ráðandi
kvenlegar bogalínur," segir Ríkey.
Hún segir að verkefnið hafi orðið til þess að
sameina ættingja og vini Nínu. „Þetta hefur
þjappað okkur saman.Við erum búin að
ákveða að hafa tvær vinnuhelgar í lundinum á
sumri komandi og ætlum cinnig að hittast ár
hvert á fæðingardegi Nínu, 26. ágúst.“
Ríkey segist að lokum vonast til að fólk
inuni í fraintíðinni leggja leið sína í minning-
arlundinn og pjóti þess að vera þar.
Útsýni frá lundi Nínu er bæði stórbrotið og fagurt; jökull og Eyjafjöllin til austurs, grónir sandar
og Vestmannaeyjar fyrir landi til suðurs og Fljótshlíðin fögur og gjöful til vesturs.
Ríkey gekkst fyrir stofnun félags ættingja og velunnara fistakonunnar. Sjötti fundur félagsins er
við vígsluna í dag. Myndin er tekin þegar félagarnir komu í fyrstu vettvangsferð sína að tóftum
hússins að Nikulásarhúsum, þar sem Nína fæddist 26. ágúst 1892.
Göngubrúin yfir Hlíðarendalæk er gerð úr límtré og bæði traust og fögur. Á myndinni til hægri er
uppsprettulind, sem veitti íbúum Nikulásarhúsa og búpeningi þeirra lífsbjörg, var skammt frá
húsunum. Hún er innan lundar Nfnu og hefur verið hlaðin upp og að henni lagðar gönguhellur.
Lindin gefur lundinum sterkan svip.
gefa átti til íslands 1930. Þó menn á borð við
Einar Jónsson myndhöggvara mæltu með
verki Nínu sigraði hún ekki að þessu sinni.
Höggmynd Stirling A. Calder bar sigur úr být-
um og hefur staðið á Skólavörðuholti síðan
1932, og annað eintak er í Seafarers Museum í
Newport News í Virginíu.
Verkið sem Nína sendi í samkeppnina sýnir
ungan, skegglausan víking í stafni skips síns.
Hann ber hönd yfir augu og starir á móti hinu
óþekkta. Þetta verk hefur Eiríksstaðanefnd nú
látið stækka og var það afhjúpuð við Eiríks-
staði fyrir tveimur vikum. Fallegt verk á verð-
ugum stað.
Nína varð einnig fræg fyrir portrettverk sín,
sem þóttu fáguð og listræn. Hún gerði brjóst-
myndir af fjölda frægra manna og kvenna, en í
þeirri list þótti henni öðrum betur takast að
fanga einkenni og svipbrigði fyrirsætanna, og
koma jafnvel til skila þeim einkennum, sem
höfðu skapað þeim frægð og frama. Frægastar
brjóstmynda hennar eru af leikkonunni heims-
frægu Hedy Lamarr, Peter Freuchen, land-
könnuðinum Vilhjálmi Stefánssyni og högg-
myndin af Njáli söguhetju Njálssögu, sem er í
eigu Listasafns Islands en er nú varðveitt í
Sögusetrinu á Hvolsvelli.
Ríkey segir frá tilurð fleiri myndverka Nínu,
m.a. er borgarstjóri Los Angeles bað hana að
vinna verk sem táknaði hina ungu Ameríku. Þá
varð til mynd hennar Promeþeus færir jörð-
inni eldinn. Goðsögnin segir að Promeþeus hafi
verið einn risanna, sem réðu heiminum áður en
Olympsgoðin steyptu þeim af stóli, og að hann
hafi stolið eldinum af goðunum og fært mönn-
unum. Verkið var sett upp á áberandi stað í
garði í miðborginni. Þar í borg er líka höfuð-
mynd Nínu af Leifi heppna, sem fólk af nor-
rænum uppruna gaf Los Angeles á degi Leifs
heppna, 9. október 1936.
Listaverkum Nínu
bjargað fró glötun
Nína var afkastamikil listakona og þrátt fyr-
ir pantanir á verkum hlóðust upp hjá henni
verk sem ekki seldust. Mörg þeirra eru afar
fögur, eins og Rökkur, sem nú er í garði Sól-
heima í Grímsnesi, Ung móðir, sem hlaut
fyi-stu verðlaun í samkeppni yfir þúsund lista-
manna í Hollywood, og Á hverfanda hveli, sem
Nína lét gera í steinsteypu 1936.
Ríkey segir frá því í Lesbókargrein sinni, að
íslenskum athafnamanni, Kristjáni Jóhanni
Kristjánssyni í Kassagerðinni, hafi blöskrað að
sjá hvernig komið var fyrir verkum Nínu í
New York. Hann ákvað upp á sitt eindæmi að
flytja verkin heim og sjá til þess að þau væru
geymd þar til þeim yrði fundinn framtíðarstað-
ur. Sá framtíðarstaður varð Listasafn íslands,
því Nína ánafnaði safninu öllum óráðstöfuðum
verkum sínum.
Að beiðni menntamálaráðuneytisins gerði
Nína eina höggmynd eftir að hún flutti heim til
Islands 1956. Það var höggmynd af Jóni
Sveinssyni, Nonna. Sú mynd „týndist" um ára-
bil, en fannst loks uppi á lofti á Korpúlfsstöð-
um. Hún var sett upp við Nonnahúsið á Akur-
eyri 1992, og er þar á réttum stað.
Ævintýrið um lund Nínu
Ævintýrið um lund Nínu að Nikulásarhús-
um, sem er að rætast, er einstakt í sinni röð.
Ríkey Ríkarðsdóttir, ættingi Nínu, tekur sig til
að starfsævi lokinni, að vekja landa sína til um-
hugsunar um afrek Nínu á listasviðinu. Les-
bókargreinin 27. júní 1998 gerði það hressi-
Ung móðir - verkið sem verður afhjúpað í dag.
lega. Hún boðaði síðan ættingja Nínu á fund og
reifaði tillöguna um lund á fæðingarstað henn-
ar. Hún fékk auðvitað stuðning þein’a, og þeir
hafa mæst á fjórum fundum síðan og hrifist af
og samþykkt allar framkvæmdir varðandi mál-
ið. Sjötti fundurinn er í dag- vígsla lundarins.
Ríkey fékk samþykki Listasafnsins fyrir því
að verk Nínu, Ung móðir, yrði stækkað hjá
fagmönnum í Englandi og sett upp í lundinum'
Hún fékk jafnframt leyfi til að gerðar yrðu 100 —-
styttur í ft-umstærð af verkinu til að selja og
standa með því straum af kostnaði við fram-
kvæmd hugmyndarinnar. Gerð þeirra annaðist
Pétur Bjarnason, myndlistarmaður. Tuttugu
af þessum styttum eru úr bronsi en 80 úr gifsi.
Salan hefur gengið vel og mikill meirihluti
styttanna er þegar seldur.
Með styrk frá Landafundanefnd gaf Ríkey
út bækling með helstu æviatriðum Nínu og
myndum af helstu verkum hennar. Sjö þessara
verka verða nú góða dagsferð frá Reykjavík til
Fljótshlíðar, um Selfoss og Grímsnes, eins og
fram kemur í bæklingunum. Ríkey vakti einnig
athygli Landafundanefndar á verki Nínu á
Waldorf Astoria-hótelinu. Nefndin þakkaði
ábendinguna og verður þarna sameiginlega
minnst listaafreks Nínu fyrir rúmum 70 árum.
Núverandi eigendur jarðarinnar Nikulásar-
húsa eftirlétu reit fyrir lundinn og eigendur f
Hlíðarenda heimiluðu gerð göngustígs frá
Hlíðarendakirkju að lundinum. Rífa þurfti
bárujárnsklætt timburhús á jörðinni - og það
verk varð framlag Fljótshlíðarhrepps. Vand-
aðar brýr úr límtré hafa verið settar á tvo læki
sem ganga þarf yfir, og einn ættingja Nínu,
Guðmundm- Arason, gaf tvö fagurlega gerð
skrauthlið, sem nauðsynleg voru á göngustígn-
um að lundinum og annar velunnari, Hans G.
Magnússon í Kirkjulækjarkoti, sá um og gaf
uppsetningu þeirra. Kolbrún Þóra Oddsdóttir
landslagsarkitekt vai- fengin til að hanna lund-
inn. Besti hleðslumaður héraðsins, Víglundur
Kristjánsson, var fenginn til að hlaða þar set-
bekk og ættingjar og vinir hafa ásamt skóg-
ræktarfólki á Tumastöðum annast gróðursetn-
ingu trjáa. Öllu söluandvirði styttanna hefur
verið varið til lundarins - ekki ein einasta '
króna til allra þeirra ferða sem Ríkey, ættingj-
ar og vinir hafa farið, eða þess tíma sem hún og
aðrir hafa varið í framkvæmd málsins.Tilkoma
lundar Nínu er ótrúlegt afreksverk þegar haft
er í huga að framkvæmd hvers þáttar verksins
tekur jafnvel vikur. Það þarf því bæði ákveðni
og óbifandi trú á málstaðinn til að hrinda slíku
verki í framkvæmd.
Nýr kafli ævintýrsms um lund Nínu á fæð-
ingarstað hennar hefst í dag og markar þátta-
skil. Um ókomin ár munu þeir sem leið eiga um
Fljótshlíðina ganga að lundi Nínu og staldra
þar við óvenjufagurt útsýni og minnast verka
listakonunnar, sem hlaut frægð í tveimur
heimsálfum og varpaði Ijóma á nafn Islands.
Ættingjar hennar og vinir hyggjast hittast þar
árlega á fæðingardegi hennar, 26. ágúst.
Lundur Nínu að Nikulásarhúsum er fagurt
dæmi um að draumar geta ræst og hugsjónir
orðið að veruleika.
LESBÓK MORGUNBLAÐSINS - MENNING/LISTIR 26. ÁGÚST 2000 1 3