Lesbók Morgunblaðsins - 26.08.2000, Síða 15
„Hver er þessi
hnöttur Jörð?"
Sýning Borghildar Oskarsdóttur verður opnuð í Lista-
safni ASÍ í dag. INGA MARÍA LEIFSDÓTTIR hitti Borg-
hildi þar sem hún var að undirbúa sýninguna og
komst að >ví að margvíslegar spurningar og pæling-
ar liggja 1 lenni að baki.
ISTASAFN ASÍ er bjart og fallegt hús,
þar sem mörg meistaraverk Ásmundar
Sveinssonar urðu til. Það hýsir nú kosm-
ísk listaverk Borghildar Óskarsdóttur á
sýningu sem verður opnuð í dag og stendur til
10. september. „Torg og tómir kassar" er yfir-
skrift sýningarinnar, þar sem meðal annars er
velt upp spurningum um tilvist heimsins.
Spurningarnar koma ann-
ars vegar fram í listaverk-
um Borghildar og hins veg-
ar í spumingum sem hún
lagði fram á Vísindavef Há-
skólans, og svörin sem
fengust við þeim.
Heiti sýningarinnar vís-
ar beint í þau verk sem eru
til sýnis. I Ásmundarsal, á
efri hæð hússins, er stórt
torg úr gleri og pappír. Á
neðri hæð hússins, í Gryfju,
eru tómir trékassar, sem
ætlaðir eru til geymslu á verkinu. En hver er
hugmyndin á bak við þetta allt saman? „Mynd-
in á pappímum er mynd af þverskurði jarð-
arinnar eins og mér skilst að hann sé. Gler-
torgið liggur þar ofan á,“ útskýrir Borghildur.
„í byi-jun langaði mig til að vinna á einhvern
hátt með jörðina og svo kom þessi hugmynd
um þverskurðinn fljótlega upp. Það er líkt og
með alla hluti sem vekja áhuga manns, að mað-
ur hefur hug á því að komast undir yfirborðið
og helst að kjarnanum."
Eftir að Borghildur var byrjuð að vinna
verkið rakst hún á Vísindavefinn og svör hans
og spurningar í Morgunblaðinu. Hún ákvað að
leggja þar inn spurningar í
sambandi við verkið. „Mér
fannst þetta alveg frábært
framtak, jafnvel áður en
mér datt sjálfri í hug að ég
gæti notað hann. Þarna get-
ur hver sem er, börn og ful-
lorðnir, lærðir sem ólærðir,
lagt inn spurningar og feng-
ið hávísindaleg svör. í
tengslum við vinnslu verks-
ins skoðaði ég bækur og
annað í sambandi við jörð-
ina og það em alveg magn-
aðh- litir sem felast í öllum þessum eldi. Þannig
að ég ákvað að spyrja spurninga á Vísindavefn-
um um hvað væri vitað um þessa liti og fékk
svo skemmtileg og frábær svör. Eins spurði ég
hvað jarðskorpan væri þykk og fékk allskonar
upplýsingar um að hún væri misþykk og svo
Kassarnir á sýningu Borghildar eru
til sýnis í Gryfju.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Borghildur Óskarsdóttir stendur á glertorgi sínu í Ásmundarsal Listasafns ASÍ.
framvegis. Ég hef verið að vinna mitt verk sem
myndlistarmaður, en svo fæ ég frá vísinda-
mönnum hárnákvæmar upplýsingar um það
sem þeir vita um þetta efni.“
Spurningarnar og svörin verða til sýnis hjá
verkunum og er þannig teflt saman listrænni
sýn á efnið og vísindalegri þekkingu á því. „Ný-
lega ákvað ég að spyrja tveggja spurninga og
spyrja eins og sá sem ekkert veit, eins og barn
eða eins og geimvera sem ekkert þekkir til jarð-
arinnar. Eg spurði þá spmninga um hver jörðin
væri og hvar hún væri. Svörin sem ég fékk voru
mjög skýr og fín.“ Verkunum breytti hún ekki
við að fá hinar nákvæmu niðurstöður. „Þetta er
frekar eins og viðbót við verkin. Mér finnst
gaman að leggja þetta hlið við hlið. Svo eru fleiri
víddh- í þessu, til dæmis að torg og tómir kassar
er eitthvað mjög hverdagslegt sem við þekkjum
öll. Torgið og þverskurður jai'ðarinnar, er þá
bæði nokkuð sem við þekkjum mjög vel og einn-
jg eitthvað sem við þekkjum í raun ekki, því við
vitum auðvitað ekki hvemig þverskurðm- jarð-
arinnar er.“
Borghildur smíðaði kassa utan um verkið
og eru þeir einnig til sýnis á sýningunni. „Það
er alltaf vandamál hjá myndlistarmönnum
hvernig geyma á listaverk, þannig að ég smíð-
aði kassa sem passa nákvæmlega utan um
glerplöturnar sem mynda torgið og einn stór-
an utan um aðra hluta verksins, það er að
segja jörðina," segir Borghildur. „Undanfarin
ár hef ég unnið mikið með innihald og form og
þetta er nokkurs konar framhald á því. Torgið
og jörðin eru innihaldið og kassarnir eru ytra ■
formið." Að sögn hefur Borghildur oft notað
kassa sem hún geymir verkin í sem hluta af
listaverkinu, og er þetta því ekki í fyrsta sinn
sem hún vinnur á þennan hátt. Meðan á
vinnslu verksins stóð tók hún þá ákvörðun að
hafa kassana líka á sýningunni. „Ég málaði þá
bláa að innan, sem vísar í bláan himingeiminn,
og kassarnir eru tómir,“ útskýrir hún. „Þó að
vísindin viti margt um þessi efni, er ýmislegt
órannsakað líka.“
Sýningin er opin alla daga nema mánudaga
frá kl. 14-18.
Djass sem hæfir stað og
Djgsshelgi verður í Skál-
holti um helgina þar sem
djasstónlistverður leikin í
kirkjunni. INGAAAARÍA
LEIFSDÓTTIR spjallaði við
Pétur Pétursson guðfræð-
ing, einn af skipuleggj-
endum helgarinnar.
Séð að Skálholti.
DJASS er í öndvegi í Skálholti um helg-
ina og snúast dagskráratriði um slíka
tónlist, en á dagskránni eru tónlistar-
flutningur, tíðasöngur, messa, ljóða-
lestur, málstofm- og erindi.
Skálholt árið 2000
„Um helgina verður leikinn djass í Skálholts-
dómkirkju, ekki hvaða djass sem er, heldur
djass sem getur farið fram í kirkju og hæfir stað
og stund," segir Pétur.
„Þetta er Skálholt á þessum
tíma, á árinu 2000. Við
skipulagningu hátíðarinnar
höfiim við haft í huga að Is-
land er á milli tveggja
heima, það er að segja
gamla heimsins með alla
sína kirkjulegu hefð og
trúarlegu tónlist, sem til
dæmis er flutt hér á sumar-
tónleikunum á hveiju sumri
og er á heimsmælikvarða.
En svo höfum við einnig
nýja heiminn sem við tengj-
umst sérstaklega á þessu landafundaári."
Hugmyndin að djasshelginni vaknaði hjá
Pétri og Agli B. Hreinssyni, prófessor í raf-
magnsverkfræði og djasspíanista, í fyrrasumar
þegar þeir voru staddir á tónlistarhátíðinni í
Skálholti. „Þessi hugmynd fæddist hjá okkur
þegar við fórum að velta fyrir okkur hvað væri
skemmtilegt og ætti við á næsta ári. Ég man
ekki hvor okkar það var sem orðaði hugmynd-
ina um djasshelgina fyrst, en við urðum svo
hrifnir af henni að ég nefndi þetta strax við
vígslubiskupinn, sr. Sigurð Sigurðsson. Þetta
kann að hljóma ögrandi hugmynd að vera með
djass í dómkirkjunni héma, en hann sagði að við
skyldum setja þetta í gang. Ég ræddi þetta svo
frekar við prestinn hérna og organistann, sem
vora mjög hrifnir og þannig fór þetta allt af
stað. Svo höfum við unnið þetta frekai- og erum
nú komnir með þessa dagskrá," segir Pétur. ,Á-
þessum tímamótum sem árþúsundamótin era
finnst okkur mikilvægt að litið sé til gamla
heimsins. En okkur finnst ekki síður mikilvægt
að litið sé til nýja heimsins og framtíðarinnar,
þar sem önnur tónlist og annað foi-m er einnig
til.“
Málstofa um helgihald
Sigvald Tveit, prófessor í sálmafræðum og
tónlist við Háskólann í Osló, mun flytja fyrir-
lestur á laugardag, sem ber yfirskriftina „Djass
og guðsþjónusta". Pétur heldur áfram. „Hann
er fulltrúi gamla heimsins sem við komum frá,
en hann er einnig mikill áhugamaður um djass.
Hann var mjög áhugasamur um að koma hing-
að og hefur samið mikinn fjölda tráarlegra
verka sem era með djassívafí.“
Don Saliers, bandarískur prófessor, kemur
einnig í Skálholt um helgina og tekur þátt í mál-
stofu um helgihald fyrir framtíðina. „Saliers er
sérfræðingur í helgisiðum og tengslum þeirra
við menningu. Hann hefur skoðað mikið hvem-
ig tráartjáningin í helgihaldi tengist menning-
unni á hveijum stað. Þá er auðvitað verið að
ijalla um heilmikinn breytileika 1 þessu og ný-
sköpun. En auk þess er Saliers forfallinn djass-
isti og á ráðstefnum sérfræðinga í helgisiða-
fræðum á hann það oft til að kasta sér yfir
næsta hljóðfæri sem hann sér og spila djass af
lífi og sál. Hann kemur hingað til að halda fyiár-
lestra og taka þátt í málstofu, sem er undir
stjóm vígslubiskupsins.“
Kunn skáld lesa Ijóð
Haldnir verða nokki-h- stuttir fyrirlestar um
djass og helgisiði, en helgin er aðallega tileink-
uð djassi og svo Ijóðum. Nokkm- af kunnustu
ljóðskáldum þjóðarinnar koma í Skálholt og
flytja ljóð sín. Þau ljóðskáld sem koma era
Matthías Johannessen, Vilborg Dagbjai’tsdótt-
Pétur
Pétursson
ir, Sigurður A Magnússon, Sigurður Pálsson,
Linda Vilhjálmsdóttii’, Elísabet Jökulsdóttir og
Hjörtur Pálsson. „Þetta fólk flytur ljóð hér í
Skálholti, sumir ef til vill framort ljóð, en það
eina sem við vitum um þau er að þetta eru ljóð
sem hæfa stað og stund, það er að segja Skál-
holti árið 2000,“ segii’ Pétur.
Á sunnudag verður djassmessa í Skálholti,
þar sem tónlistarflutningur verður í anda djass-
ins, en messan að öðru leyti hefðbundin. „Að
henni koma organistinn á staðnum, kór Skál-
holtskirkju, einsöngvari, Gunnai’ Gunnarson og
Sigurður Flosason ef til vill eitthvað, en þeir era
einnig með tónleika á sálmaspuna sínum um
helgina. Við eigum eftfr að skipuleggja messuna
betur þegar fólkið er komið á staðinn og búið að
spila sig betur saman,“ segir Pétur. „Annars er
þetta bara hefðbundin messa, með venjulegum
messuliðum, en tónlistin er öll útsett samkvæmt
lögmálum djassins. Nú þegar við erum að fara
inn í nýtt árþúsund nægir okkur ekki bara að
spila þessi gömlu og góðu kirkjulegu verk, held-
ur verðum við að sýna það mikla trá og áræði að
við getum leikið af fingram fram. Þá finnum við
að við byggjum á þeim tónlistar- og menningar-
granni sem þessi gamli arfm' er, en við nýtum
hann til þess að tala inn í ókominn tíma. Við
sameinumst um það í guðsþjónustunni.“
Góð tónlist á heima í kirkju
En hveijfr er búist við að komi á djasshelgi í
Skálholti? „Við eigum von á áhugafólki um djass
og um nýjungar í guðsþjónustu," svarar Pétur.
„Málþingið sem hefst á sunnudag er mjög
áhugavert fyrir þá sem hafa áhuga á framtíðar-
sýn í helgihaldi.“
Pétur segir að tónleikamir um helgina séu
kirkjulegfr að því leyti að þeir séu haldnir í
kirkju, en ekki séu gerðar sérstakar kröfrn- um
að djasstónlistin sem flutt verður sé trúarleg.
„Við lítum svo á að öll tónlist sem er góð eigi
heima í kfr’kju. Tónleikamir era í kii’kju og era
því kirkjulegir að því leyti. En allt það besta í
menningunni hlýtur að eiga erindi í kirkjuna,
sem er að þjóna fólkinu ekki bai’a með ræðun-
um, heldur einnig með tónlistinni. Takmark
kirkjunnar er að boða fagnaðarerindið svo að
það nái til fólksins og efli það og styrld og gefi
því trú á framtíðina. Þetta er lykilatriði.“
*
LESBÓK MORGUNBLAÐSINS - MENNING/LISTIR 26. ÁGÚST 2000 1 5„