Alþýðublaðið - 29.08.1986, Side 3
i
Föstudagur 29. ágúst 1986
3
Minning:
Kurt Juuranto
— a/rœðismaður Islands í Finnlandi
Mánudaginn 18. ágúst síðastlið-
inn i'ór bifreið út af veginunt rétt
vestan við Helsinki. Ökuntaður
hennar var Kurt Juuranto, aðalræð-
ismaður íslands, og lést hann í
sjúkrahúsi skömmu siðar. Þannig
gerðist það í annað sinn, að ísland
missti sviplega og fyrir aldur frant
aðalræðismann í Helsinki. Hinn
fyrri var faðir Kurts, Erik Juuranto,
sem lést sextugur á sjúkrabeði.
Síðan heimsstyrjöldinni lauk fyr-
Búvöruverð
hækkar
VerAlagsnefnd búvöru hefur nú
ákveðið til bráðabirgða nýtt verð
landbúnaðarvara sem gildir frá 1.
september. Hækkunin sem nú er til
bráðabirgða nemur 2,86 prósentum
og gildir þar til nýtt verð verður
ákveðið samkvæmt nýjum verð-
lagsgrundvelli sem nefndin mun
senn Ijúka við þó eigi síðar en 30.
september nk.
Verðlagsnefnd búvara hefur nú
unnið að gerð nýs verðlagsgrund-
vallar landbúnaðarvara, svo sem
lög „um framleiðslu, verðlagningu
og sölu á búvörum11, kveða á um. í
fréttatilkynningu frá landbúnaðar-
ráðuneytinu segir að nefndin hafi
ir l'jórum áratugum hafa opinber
tengsl íslands við Finnland mjög
tengst nafninu Juuranto. Þeir feðg-
ar voru aðalræðismenn, og uni ára-
bil hefur yngri bróðirinn Kai verið
ræðismaður í Helsinki. Hófust
þessi tengsl, er sendiherra íslands í
Stokkhólmi á stríðsárunum, Vil-
hjálmur Finsen, kynntist finnskum
kaupmanni, Erik Juuranto. Hafði
hann keypt síld og fleiri vörur frá
íslandi, og varð hugfanginn af
reynt að vanda til þessarar vinnu
svo sem kostur er og notið til þess
aðstoðar Hagstofu íslands og sér-
fræðinga sem hún hefur kvatt tii.
Gert hafi verið ráð fyrir að hinn nýi
grundvöllur tæki gildi við verð-
ákvörðun nú hinn 1. september. Því
miður hafi það ekki reynst unnt,
þar sem úrvinnslu gagna sé enn ekki
að fullu Iokið.
Þau gögn sem notuð hafa verið
til grundvallar eru búreikningar.
Búreikningastofu landbúnaðarins
og sérstakt úrtak sem unnið hefur
verið úr framtölum bænda fyrir ár-
ið 1984 á vegum Hagstofu íslands.
Valið var úrtak úr búmarksskrám
Framleiðsluráðs og miðað við að í
úrtak kæmi 7. hver bóndi sem hefði
búmark umfram 250 ærgildi. Beðið
var um framtöl 473 lögbýla. Til
endanlegrar úrvinnslu komu 424
framtöl.
landinu. Varð hann áhugasamur
fulltrúi fyrir ísland i Finnlandi,
ekki síður í menningarmálum en
viðskiptum, virtur og kunnugur
fyrirmönnum beggja ríkja.
Juuranto stofnaði urn tvitugt
Lejos Oy, sent er eitt stærsta inn-
flutningsfyrirtæki Finna. Synir
hans hófu báðir störf við það og
tóku við stjórn þess að honum látn-
um. Kurt varð ræðismaður 1960 og
aðalræðismaður eftir lát föður sins.
Gegndi hann því starfi hátt á þriðja
áratug nteð reisn og virðuleik.
Hann hafði og tekið ástfóstri við ís-
land og lslendinga, fór þangað
margar ferðir og hafði ætlað sér að
vera í Reykjavík nú urn mánaða-
mótin.
íslendingar standa í mikilli þakkar-
skuld við Kurt Juuranto fyrir alit
það, sem hann gerði fyrir þá.
Kurt var hvers manns hugljúfi í
persónulegum kynnunt, hógvær og
vinfastur. Hann stýrði fjölskyldu-
fyrirtækinu af dugnaði, en utan
viðskiptaheimsins átti hann sér
áhugamál í listum og bókum. Um
það, svo og tengslin við ísland, ber
hið fagra heimili í Helsinki glöggt
vitni.
Kona hans, Leona, er glæsileg at-
hafnakona, sem rekur annað fyrir-
tæki á öðru sviði af miklum þrótti.
Þau eiga einn son, Juha.
Kurt Paul Erik Juuranto fæddist
21. júní 1927 í Heisinki. Hann var
því 59 ára gamall, er hann lést svo
sviplega.
Við hið óvænta fráfall Kurts syrgi
ég góðan vin og félaga, og horfi á
bak traustum og fórnfúsunt aðal-
ræðismanni, sem vann mikið ævi-
starf fyrir samband íslendinga og
Finna, báðum þjóðum til gagns.
íslendingar munu lengi geynta
minningu hans.
Benedikl Gröndal, sendiherru.
NÝJAR LÁNAREGLUR
Hinn 1. september 1986 taka gildi ný lög um Húsnæðisstofnun ríkisins og
reglugerð um lánveitingar Byggingarsjóðs ríkisins.
Meginbreyting frá fyrri reglum er sú að lánsréttur er í flestum tilfellum háður
því að:
a) Umsækjandi sé og hafi verið virkur félagi í lífeyrissjóði.
b) Sá lífeyrissjóður hafi keyptskuldabréfaf Húsnæðisstofnuninni fyrirverulegan
hluta af ráðstöfunarfé sínu.
HINAR NÝJU REGLUR VARÐA NÁNAR TILTEKIÐ ÞESSI LÁN:
1. Lán til að byggja eða kaupa nýjar íbúðir í smíðum.
2. Lán til að kaupa notaðar íbúðir.
3. Lán til meiri háttar viðbygginga, endurbóta og endurnýjunar á notuðu
íbúðarhúsnæði.
4. Lán til orkusparandi breytinga á íbúðarhúsnæði.
Fræðslurit um hina nýju tilhögun verður fáanlegt nú á næstunni.
NÝJAR REGLUR - ÓAFGREIDD LÁN
Allir peir, sem eiga óafgreidd lán eða lánshluta samkvæmt framansögðu, er
eiga að koma til útborgunar eftir 1. september nk„ eða sækja um slík lán fyrir
1. september nk„ geta óskað eftir því að með umsóknir þeirra verði farið eftir
nýju reglunum.
Sérstök eyðublöð fyrir slíkar beiðnir fást hjá Húsnæðisstofnuninni, og þurfa pær
að hafa borist fyrir 30. september nk.
EFTIRTALIN GÖGN ÞURFA AÐ FYLGJA HINNI NÝJU UÁNSUMSÓKN:
1. Vottorð frá lífeyrissjóði um iðgjaldagreiðslur sl. 24 mánuði.
2. Frumdrög að kostnaðar- og greiðsluáætlun.
3. Vottorð um tekjur á sl. ári og um íbúðareign sl. þrjú ár, útfyllt af skattstjóra
eða löggiltum endurskoðanda.
Hin nýju umsóknareyðublöð ásamt fylgigögnum liggja einnig frammi á
skrifstofum sveitarfélaga.
Reykjavík, 26. ágúst 1986.
FÉLAGSSTARF
ALÞÝÐUFLOKKSINS
43.
FLOKKSÞING
Alþýðuflokksins verður haldið í
Hótel Örk í Hverageröi dagana
3. til 5. október næstkomandi.
Dagskrá þingsins verður nánar auglýst síðar.
Fyrir hönd Alþýðuflokksins,
Jón Baldvin Hannibalsson, formaður.
Árni gunnarsson, ritari.
SUJ—ÞING
37. þing Sambands ungra j ifnaðarmanna
verðurhaldið í Félagsheimili Aiþýðufiokksins
í Kópavogi, Hamraborg 14a, dagana 5.-7.
september næstkomandi.
Dagskrá:
Föstudagur 5. september
Kl. 20:00 Kl. 20:30 Þingsetning. FormaðurSUJ Ávörp gesta Þingstörf. Kjör starfsmanna. 1. Forseti þings 2. Tveir varaforsetar 3. Tveir ritarar
Kjör starfsnefnda 1. Kjörbréfanefnd 2. Kjörnefnd 3. Ferðajöfnunarnefnd
Kl. 21:00 Hlé
Kl. 21:30 Kosning þingnefnda 1. Verkalýðsmálanefnd 2. Stjórnmálanefnd 3. Utanríkismálanefnd 4. Starfshátta- og laganefnd
Kl. 22:00 Skýrsla stjórnar 1. Formaður SUJ 2. Gjaldkeri SUJ 3. Formaður utanríkismálanefndar 4. Formaður stjórnmálanefndar 5. Formaður verkalýðsmálanefndar
Kl. 23:30 Hlé
Laugardagur 6. september Kl. 10:30 Fyrirspurnir og umræður um skýrslur Afgreiðsla reikninga
Kl. 11:30 Kynnt drög að ályktunum
Kl. 12:30 Kl. 13:30 Kl. 16:00 Kl. 17:00 Kl. 18:00 Hlé Nefndarstörf Skýrslur nefnda Umræöur um skýrslur og lagabreytinga- tillögur Nefndir starfa
Kl. 19:00 Kl. 20:00 Kl. 21:00 Hlé Lokaskýrslur nefnda Samþykkt nefndarálit.Lagabreytingatillögur afgreiddar
Kl. 22:00 Hlé
Sunnudagur 7. september Kl. 11:00 Kosning stjórnar
1. Kosning formanns
2. Kosning varaformanns
3. Kosning ritara
4. Kosning gjaldkera
5. Kosning ritstjóra málgagna
6. Kosning tveggja meðstjórnenda
7. Kosning verkalýösmáianefndar
8. Kosning stjórnmálanefndar
9. Kosning utanríkismálanefndar
10. Kosning tveggja endurskoðenda
11. Kosning tveggja fulltrúa í styrktar-
sjóö SUJ
12. Kosning fulltrúa á flokksþingi
Nýkjörinn formaður slítur þingi.
• i