Alþýðublaðið - 30.12.1989, Blaðsíða 14

Alþýðublaðið - 30.12.1989, Blaðsíða 14
14 Laugardagur 30. des. 1989 » *'./ )' Jc ,V. (ft y. t r „Fjármagnsmarkaðurinn á ís- iandi reyndist ekki vera sam- keppnismarkaður, sem lýtur lögmálum framboðs og eftir- spurnar og leitar jafnvægis. Hann var lokaður, verndaður og ófuilkominn.“ — Jón Baldvin Hannibalsson í áramótagrein í Alþýðublaðinu 3. „Tölvufarganið er krabbamein fyrirtækjanna.“ — Árni Guðmundsson, fram- kvæmdastjóri Skjaldar hf. í Alþýðu- blaðinu 7. febrúar. Þessi fundaherferd er endirinn á fortíðinni. — Jón Baldvin Hannibalsson í Alþýðublaðinu 4. janúar um fyrirhugaða funda- herferð hans og Ólafs Ragnars Grímssonar, „Á rauðu Ijósi." „í stað þess að draga fram sameiginlegan málefnagrund- völl og reyna að kalla saman starf í flokkunum báðum eru þeir með upphlaup á opinberum vettvangi — án nokkurra tengsla við eitt eða neittsem er að gerast í flokkunum." — Ásmundur Stefánsson forseti ASÍ um fundaherferð leiðtoga Al- þýðuflokksins og Alþýðubandalags- ins. „Þessi frétt Morgunblaðsins er staðhæfulaus með öllu.“ — Óli Þ. Guðbjartsson þingmaður Borgaraflokksinsum frétt í Morgun- blaðinu þess efnis að Alþýðuflokk- urinn hafi boðið honum fyrsta sætið í Suðurlandskjördæmi við næstu kosningar. „Auðvitað skyldi maður aldrei útiloka að einhvern tímann í framtíðinni verði eitthvað af hlutabréfum í Eimskipafélaginu á erlendum markaði.“ — Hörður Sigurgestsson forstjóri Eimskipafélagsins í Alþýðublaðinu 17. janúar. „Ef valdahópar í þjóðfélaginu, innan bankakerfis og fjár- magnsmarkaðar, vilja beita áhrifum sínum til þess að sprengja þessa stefnu í loft upp, þá getur lýðræðislega kjörin ríkisstjórn ekki horft á það að- gerðalaust." — Jón Baldvin Hannibalsson í Al- þýðublaðinu 25. janúar um stefnuna að hóflegum nafn- og raunvöxtum. „Það verða alltaf fyrirtæki, sem ekkert verður hægt að gera neitt fyrir.“ — Gunnar Hilmarsson, formaður Atvinnutryggingasjóðs útflutnings- greina, í Alþýðublaðinu 25. janúar. „Við viljum ekki kyssa vönd- inn.“ — Ögmundur Jónasson 8. febrúar um samstarf launaþegasamtakanna um ferðamöguleika með öðrum en Flugleiðum í ljósi málssóknar Flug- leiða gegn Verslunarmannafélagi Suðurnesja. „Við erum ekki fullkomir, en við erum nærri því. Það er alltaf hægt að gera betur.“ — Craig Martin, blaðafulltrúi Bo- eing-verksmiðjanna, 17. febrúar í samtali við Alþýðublaðið í Seattle, vegna tíðra óhappa hjá Boeingvél- um. „Efnahagsreikningur fyrir- tækisins er okkar Akkilesar- hæll.“ — Jón Sigurðarson forstjóri Ála- foss í Alþýðublaðinu 22. febrúar, vegna erfiðleika í kjölfar sameining- ar Álafoss og ullardeildar SÍS. „Málið er allt hið undarlegasta og ekkert annaðen pólitískar of- sóknir.“ — Sjöfn Sigurbjörnsdóttir 1. apríl um þá ákvörðun menntamálaráð- herra að auglýsa skólastjórastöðu hennar við Olduselsskóla lausa til umsóknar. „Hví í ósköpunum skyldum við vera að efna til einhverrar alls- herjar herferðar gegn mann- eskju?“ — Svavar Gestsson í sama blaði um ummæli Sjafnar. „Þetta kallar á svar við því hvort við getuin haldið áfram að velta fyrir okkur sameiginiegu framboði, eins og ekkert hafi í skorist. Svarið við því var nei.“ — Bjarni P. Magnússon, borgar- fulltrúi Alþýðuflokksins, 4. apríl eft- ir að borgarmálaráð flokksins hafði ákveðið að hætta viðræðum um sameiginlegt framboð vegna Sjafn- armálsins. „Eg verð að vera hreinskilinn: Mér finnst þetta léleg blaða- mennska.“ — Herby Naubacher, þýskur blaðamaður, í Alþýðublaðinu 12. apríl, um mynd Magnúsar Guð- mundssonar „Lífsbjörg í noröurhöf- um.‘ „Eg persónulega er ósammála þessum skilmálum sem hann og Hreggviður settu gagnvart Borg- araflokknum, sjálfur hefði ég hent slíku framcm í þá. Mér sárn- ar að menn skuli hugsa svona grunnt.“ — Óskar Ólafsson skipstjóri, vara- maðurlnga Björns Albertssonar, 14. apríl, eftir að IBA og Hreggviður höfðu klofið sig úr Borgaraflokkn- Fyrst verðum við að læra að skríða áður en við förum að hlaupa. — Davíð Scheving Thorsteinsson formaður bankaráðs Iðnaðarbankans í Al- þýðublaðinu 8. mars, þegar skriður var að komast á viðræður um sameiningu banka. „Ef að svo verður þrengt að kerfinu í málamiðlunum að það verður óvirkt verð ég ekki með í þeiin leik.“ — Jóhanna Sigurðardóttir 11. mars vegna skilyrða frá Framsókn- arflokki fyrir því að húsbréfafrum- varpið yrði lagt fram. „Það gerðist ekki neitt, tókst bara að drepa meiri tíma og teygja meiri lopa.“ — Wincie Jóhannsdóttir formað- ur HIK 15. mars um samningafund félagsins við samninganefnd ríkis- ins. „Á seinustu stundu tók hann þá djörfu pólitísku ákvörðun að segja, að Svíar myndu fallast á tillögur íslendinga um að EFTA lýsti því yfir að fríverslun með sjávarafurðir skyldu verða hin almenna regla.“ — Jón Baldvin Hannibalsson í Al- þýðublaðinu 17. mars um þátt Ing- vars Carlssonar, forsætisráðherra Svíþjóðar, í því að koma tillögum ís- lands í ályktun EFTA-fundarins í Os- ló. „Nei, nei. Það voru engar deil- ur í ríkisstjórninni. Málið var bara rætt fram og aftur.“ — Steingrímur Hermannsson for- sætisráðherra 29. mars vegna um- ræðna um fyrirhugaðar heræfingar hér á landi. um og stofnað Frjálslynda hægri- menn. „Hún er dálítið sljó til augn- anna, blessunin. Minnir mig eig- inlega svolítið á formann samn- inganefndar ríkisins." — Arni Heimir Jónsson kennari 14. apríl, eftir að nemendur í MR höfðu gefið honum lifandi hænu að skilnaði. „Eg fer að efast um að það sé til nokkuð sem heitir heiðarleiki í pólitík. Mér finnst margt benda til þess að annarleg sjónarmið séu að ná yfirtökum í þessu máli.“ — Jóhanna Sigurðardóttir 22. apríl, um þá stefnubreytingu Kvennalista og Sjálfstæðisflokks að fresta bæri afgreiðslu húsbréfafrum- varpsins til haustsins. „Ágiskanir og upplognar vísi- tölur eins og svokölluð launa- vísitala verða ekki til að auka álit mitt á nýju lánskjaravísitöl- unni.“ — Magnús Jónsson veðurfræð- ingur og fulltrúi krata í verðtrygg- inganefnd, 1. mais, í tilefni af upp- töku hinnar nýju lánskjaravísitölu. „Þolinmæði fólks eru takmörk sett og það er farið að síga í mannskapinn og ekki að ástæðulausu.“ — Ögmundur Jónasson, formaður BSRB 3. mars, vegna mikilla verð- hækkana í kjölfar þess að verö- stöðvun rann út. „Við bara sitjum og bíðum. . . Það hefur aldrei verið talað við okkur um þetta. Ekki eitt einasta orð.“ — Benedikt Gröndal sendiherra 26. apríl, um þá tillögu utanríkisráð- herra að leggja niður embætti heimasendiherra. — Davíð Oddsson borgarstjóri 28. april, með hóta um Fossvogsbrautina. „Það hefur enginn kvartað ennþá.“ — Andrés Jóhannesson, formað- ur kjötmats ríkisins, 3. maí, um myglað kjöt sem Alþýðublaðið' greindi frá að komist hefði á mark- að. „Eg er ekki mikið fyrir að titla samninga, hins vegar má segja að þetta hafi ekki verið sóknar- samningar.“ — Ásmundur Stefánsson, forseti ASI, 3. maí, eftir að nýir samningar ASI og VSÍ höfðu verið undirritaðir. „Við ætlum ekki að bjóða ís- lendingum neina aðstoð. Við treystum þeim fullkomlega að leiða viðræður EFTA og EB.“ — Ingvar Carlsson, forsætisráð- herra Svíþjóðar, 17. maí á íslandi, vegna fréttaskeytis um að Svíar treystu íslendingum ekki til að leiða viðkomandi viðræður. „Útiloka ekki nýja uppröðun ráðherra.“ — Jón Sigurðsson 30. maí, vegna viðræðna um inngöngu Borgara- flokksins í ríkisstjórnina.

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.