Vísir - 13.03.1977, Síða 15
15
m
VISIR Sunnudagur 13. mars 1977
í
Framtíð á
öðrum stjörnum
1 okkar vetrarbraut eru millj-
onir stjarna. Utan hennar eru
milljónir annarra sem hver um
sig er með milljónum stjarna.
Likurnar, ef viö höfum bara
hliðsjón af likindareikningi á aö
lif sé á öðrum hnöttum, eru þvi
nær algjörar.
Við sem erum hér á þessum
hnetti, eigum okkar framtið,
eftir að lifi okkar hér lýkur, að
sögn nýalssinna. Við eigum eftir
að endurfæðast á öörum
hnöttum. Það fer eftir liferni
okkar á hvaða hnetti við
lendum. Hvort það séu hnettir
þar sem okkur liður vel eða illa.
Eftir að viö höfum lent á
öðrum hnöttum aö loknu þessu
lifi getum við hafið upp-
byggjandi starf á sjálfum okkur
sem siðar getur leitt til að við
komumst á aðra hnetti. Þannig
gengur þetta koll af kolli, eftir
þvi sem viö bætum okkur.
„Allt sem við gerum öðrum
illt, það gerum við okkur
sjálfum” segir dr. Helgi
Pjeturss i einu rita sinna.
Vísindaathuganir
styðja kenningar Helga
Nýalssinnar telja að á siðustu
árum hafi vísindarannsóknir
fært heim sanninn um margt af
þvi sem dr. Helgi Pjeturss hafi
haldið fram I ritum sinum.
Þá hefur mönnum tekist að
taka myndir af lifgeislum sem
áður þótti fjarstæða.
Sovétmenn hafa stundað
umfangsmiklar rannsoknir á
fjarhrifum á milli manna og
dýra, sem allar renna stoðum
undir hugmyndir dr. Helga.
Nú er orðið alþekkt fyrir-
brigði ,,að tala við blómin.”.
Menn hafa uppgötvað aö miklu
skiptir fyrir blómin hvort menn
tala hlýlega til þeirra eða
hrakalega. Séu menn hörku-
legir, visna blómin, en dafna við
hlýlegt viðmót.
islensk
heimspeki
Þessi stutta grein er ekki
tæmandi lýsing á hugmyndum
dr. Helga Pjeturss. Langt þvi
frá. Enn er fjölmörgum spurn-
ingum ósvaraö. Bækur dr.
Helga eru fullar af kenningum
sem koma mönnum spánskt
fyrir sjónir. En menn skyldu
hafa þaö i minni er þeir lesa
bækur og heyra um kenningar
hans að dr. Helgi var visinda-
maður og virtur i sinni grein. Og
það er ekki heldur úr vegi að
hafa þaö i huga aö skrif dr.
Helga voru sjálfstætt kenninga-
kerfi, sem snerta raunvisindi
jafnt sem heimspeki. Af
hvorugu eigum við neitt af
islendir.gar sem heitiö getur.
Dr. Helgi Pjeturss fullyrti að Iffgeislar væru til en þvf trúðu fæstir.
Með sérstakri tækni sem nefnd er Kirlian ljósmyndun, tókst mönn-
um aö ljósmynda lifgeisla.
A þessari mynd sem tekin var samkvæmt Kirlian aðferðinni sjást
lifgeislar, það eru svörtu angarnir sem teygja sig. Þeir koma frá
likama tveggja manna. A þeirri mynd þar sem lifgeislarnir snertast
hefur sambandið milli einstaklinganna tveggja veriö gott. A hinni
myndinni hafa einstaklingarnir ekki verið sáttir og þvf ná lffgeisl-
arnir ekki að snertast.
Lifgeislar nefnist rit nýals sinna. Þaö flytur efni sem snert-
ir kenningar dr. Helga Pjeturss.
efni fyrir alla