Vísir - 16.11.1978, Blaðsíða 11

Vísir - 16.11.1978, Blaðsíða 11
Fimmtudagur 16. nóvember 197S n — Það er augljóst að isíendingar geta ekkl treyst á slika //vernd". Þvi er mikilvægt að hef ja öfluga bar- áttu fyrir sjálfstæði landsins gegn báðum risaveldun- um, fyrir hlutleysi Islands í heimsstyrjöld (fyrir vopnuðu hlutleysi vel að merkja. Vopnlaus getur ís- lensk alþýða aldrei varið sjálfstæði sitt.) — Stefna Alþýðubandalagsmanna innan Samtaka herstöðvaandstæðinga hefur jafnan haft yfirhöndina. Samtökin hafa því gert lítið úr hættu þeirri sem heiminum stafar af heimsvaldastefnu Sovétríkjanna og styrjaldarhættunni. — Framferði Sovétmanna um heim allan ætti að færa mönnum heim sanninn um að herskip þessi eru engir friðflytjendur heldur geigvænleg ógnun við sjálfstæði islensku þjóðarinnar. valdsinna eru Samtök herstööva- andstæöinga. Samtökin hafa fylkt þdsundum íslendinga út á göturn- ar til ab mótmæla hersetunni: Þúsundum saman þrömmum viö árlega i mislöngum mótmæla- göngum. En i staö þess aö virkt fjöldafylgi samtakanna aukist jafnt og þétt og samtökin eflist hafa SHA þvert á móti hvaö eftir annaö gefib upp öndina. Siöasta landsráöstefna leiddi i ljós aö enn einu sinni er þetta aö gerast, enn einu sinni stefnir starfið og baráttueldmóöurinn niöur á viö. Hvaö veldur? Berjumst gegn báðum risaveldunum Frá þvi' að Samtök herstöðva- andstæöinga voru endurreist fyrir þremur árum hafa staöiö ýfir miklar deilur á liösfundum og landsráðstefnum samtakanna um afstööu þeirra til Sovétrlkjanna. - Stefna Alþýöubandalagsmanna innan samtakanna hefur jafnan haft yfirhöndina. SHA hafa þvi gert litiö úr hættu þeirri sem heiminum stafar af heimsvalda- stefnu Sovétrikjanna ' og styrjaldahættunni. lyfirlýsingum samtakanna um heimsástandiö hafa þau farið I kring um heims- valdastefnu Sovétrikjanna eins og köttur i kringum heitan graut. Talað er um striösundirbúning stórvelda (hvaða stórvelda?) og andstööu viö heimsvaldástefnu og drottnunarstefnu (er drottnunar- stefna annaö en heimsvalda- stefna?) 011 áhersla er lögö á aö tala um drottnunarstefnu „án þess aö þaö sé I verkahring miðnefndar aö skilgreina hvort hún sé heims- valdastefna eöa ekki” svo vitnaö sé til oröa formanns miönefndar SHA. Hvernig er hægt ab heyja haröa og árangursrika baráttu gegn NATO og ameriska hernum án þess að viðurkenna aö „drottn- unarstefna” Sovétrikjanna er sama eðlis og heimsvaldastefna Bandarikjanna. I grini tala sumir herstöövaandstæöingar um „Rússagrýluna” eins og hún sé eitthvað til aö gera grin að meö herskip sin hér við landsteinana. Framferöi Sovétmanna um heim allan ætti aö færa mönnum heim sanninn um aö herskip þessi eru engir friöflytjendur heldur geig- vænleg ógnun viö sjálfræöi islensku þjóöarinnar. En þaö er ekki einu sinni svo aö Alþýöubandalagsmenn innan SHA séu tilbúnir til aö hefja einaröa baráttu gegn hernum og NATO. Nú þegar Alþýöubandalag iö hefur hafið stjórnarsamstarf án þess aö hafa brottför hersins i stjórnarsáttmála, bregöur svo viö, aö Alþýöubandalagsmenn innan SHA leggja megináherslu á áfangalausnir, friölýsingar- drauma og þess háttar. Þeir vilja einangraherinnefnahagslega, en gæta þess ekki aö meö þvi beina SHA baráttu sinni fráhernum og aö islenskum auðherrum. Viöskiptavinir hersins eru auk þess nokkuö svo voldugir i islensku þjóöfélagi. Þeir munu ekki leggja niöur viöskipti sin viö kanann nema tilneyddir, þ.e. her- inn veröi rekinn úr landi — já eöa með þjóðfélagsbyltingu á íslandi og það er varla markmiö SHA. Herstöövaandstæöingar ættu þvi að tviefla baráttuna gegn NATO ogkrefjast þess að Alþýöu- bandalagiö standi viö kosninga- loforö sin. Raunar ætti stjórnar- samstarf Alþýöubandalagsins aö kenna herstöövaandstæöingum aö viö getum ekki treyst á Alþýöubandalagiö né nokkurn annan stjórnmálaflokk til aö - vinna verkiö fyrir okkur. úrsögn Islands úr Nato og brottrekstur bandariska hersins veröur fyrst og fremst árangur öflugrar fjöldabaráttu. Starfshættir samtaka herstöðvaandstæðinga Ég varpaöi áöan fram spurn- ingunr.i: Hvaö veldur hnignun SHA? Þvi hef ég nú svarað aö hálfu, Þaö er augljóst aö ef fjöldasamtök gegn heimsvalda- stefnu eru ekki heil i baráttunni gegn báöum risaveldunum og ef þau hlaupa alltaf eftir duttlung- um stjórnmálaflokks sem hefur sýnt aö honum er ekki treystandi til heilshugar baráttu, er ekki von á góðu. En meira býr að baki. A lands- ráöstefnunni nú um daginn kom i ljós aö starfi samtakanna hefur hrakaö mjög á siöasta ári. Trotskistar stigu i stól og héldu þvi fram aö orsök þess væri áhugaleysi almennra herstööva- andstæöinga vegna þess aö tlma- bundiö markmið vantaöi. Lausn- in væri: Þjóöaratkvæöagreiösla. Hvilik sálfræði! Sumir alþýöu- bandalagsmenn kenndu peninga- leysi um! Ef baráttumfcöur og áhugi herstöðvaandstæöinga er i lágmarki þá er þaö ekki vegna sálfræöilegra eöa peningalegra aöstæöna, heldur vegna þess aö starfseiningar samtakanna, svæðahóparnír, eru hálfdauöir og tengsl þeirra viö miönefnd eru nær engin. I miðnefnd sitja menn sem ekki eru valdir vegna þess aö þeir hafa slarfaö vel i SHA, held- ur vegna þess aö þeir eru flokks- bundnir i Alþýöubandalaginu, Fylkingunni eöa KFl/ML. Miönefndarfundir eru flestir illa sóttir og ákvaröanir þeirra ná sjaldnast eyrum almennrar Uös- manna. Landsráöstefnur sitja fyrst og fremst flokksbundnir einstaklingar og kaupa sér at- kvæöisrétt, þó svo aö þeir starfi ekkertisamtökunum þessá milli. Ef Samtök herstöövaandstæðinga eiga aö standa undir nafni eiga virkir iiösmenn samtakanna aö ráöa ferðinni á landsráöstefnum og sitja i miönefnd. Þá fyrst eru samtökin eru byggö upp sem virk og lýöræöisleg liösmannasamtök eru þau fær um t.d. aö krefjast þjðöaratkvæöagreiöslu um hermáliö. ^Berjumst fyrir réttri stefnu Nú hugsar kannske einhver: „Ljótt er aösjá. Greinarhöfundur rifur piöur starf þeirra sa: taka sem hvaö mest haía barist fyrir úrsögn Islands Ur NATO og ..rott- rekstri hersins. Hvernig i ■ köp- unum ætlar hann að kom; þess- um markmiðum i íramkvad?” Rétt er að ég hef rifiö þá stc’ nu og þá starfshætti niöur sem niestu ræður innan Samtaka herstööva- andstæðinga, þá stefnu sem Alþýöubandalagiö ber hvaö mesta ábyrgö á. Þaö geri ég vegna þess aö reynslan sýnir aö þessi stefna er röng og ef viö ætl- um aö ná árangri i starfi veröum viö aö breyta henni. Nauösynlegt er aö berjast fyrir réttri stefnu innan Samtaka her- stöövaandstæðinga, en þaö eitt nægir ekki. Meöan Alþýöubanda- lagiö hefur forystu Samtaka her- stöövaandstæöinga i höndum sér og notar þau til atkvæöasmölunar fyrir sjálf sig, meö öðrum oröum, meðan starf SHA er jafn árangurslitið og raun ber vitai um verða allir sæmilegir and- heimsvaldasinnar að reka bar- áttuna að nokkru leyti fyrir utan Samtök herstöövaandstæöinga. 1. des-hreyfingin t.d. sem nýlega varendurreisterekki stefnt gegn Samtökum herstöðvaandstæö- inga, heldur er hún viöleitni and- heimsvaldasinna til að útvikka baráttuna og virkja fjöldann. Herstöövaandstæðingar veröa aö gefa Baráttuhreyfingu 1. des. gaum. Baráttuhreyfing 1. des. Markmið 1. des-hreyfingarinn- ar er aö fylkja andstæöingum heimsvaldastefnunnar saman um vigorðin: Verjum sjálfræöi Is- lands — Gegn erlendri stóriöju — ísland úr NATO, herinn burt — Gegn heimsvaldastefnu og striös- undirbúningi risaveldanna, Bandarikjanna og Sovétrikjanna. Baráttuhreyfingin telur mikil- vægt aö upplýsa almenning um þá hættu sem heiminum stafar af striösundirbúningi Bandarikj- anna og Sovétrikjanna, og um stöðu tslands i valdatafli stór- veldanna. Hún leggur áherslu á aö baráttan gegn heimsvalda- stefnunni erekki vonlaus barátta. Heimsvaldastefnan er brynju- klæddur risi á brauöfótum, inn- viðir, bandarisks og sovésks þjóö- félags eru rotnir. Stórveldin geta þá þvi aöeins barist aö þau njóti stuönings alþýðunnar en alþýðan viöa um heim hefur nú þegar gripið til vopna gegn yfirgangs- stefnu þeirra. Það er islenskri al- þýöu óeölilegt aö una viö undirok- un erlends veldis. Danir náöu yfirráöum á Islandi meö svikum og vopnavaldi. Um aldaraöir voru tslendingar smáö og undir- okuö þjóö en 1. des. 1918 öðluöust þeir fullveldiö aö nýju. Þaö var eftir áratuga langa baráttu gegn danska nýlenduveldinu. Enn á ný er Island hersetin þjóð. Enn á ný veröum viö aö hefja upp baráttu gegn erlendu auövaldi. 1. des-hreyfingin vill gera 1. desember aö baráttudegi gegn heim svaldas tefnunni og fyrir sjálfræði Islands. Starfshættir hreyfingarinnar eru ekki siöur athyglisveröir. Framkvæmdanefnd hennar er kosin úr rööum virkra liösmanna. Liösmannafundir eru haldnir reglulega og oft og liösmenn hafa eftirlit með starfi framkvæmda- nefadarinnar og meö þvi aö áætl- anir séu framkvæmdar. Engin ákvörðun er tekin nema liös- mannafundur hafi fjallaö um hana áöur og þessir fandir hafa siöasta oröiö um þær ákvarðanir sem óhjákvæmilega veröur aö taka á milli funda. Baráttuhreyfingin er virkileg baráttuhreyfing sem SHA má læra margt af. Að lokum I þessari grein hef ég gagnrýnt vinnubrögð Samtaka herstööva- andstæðinga og þátt Alþýöu- bandalagsins þar I. Frá þvi aö ~ SHA voru fyrst stofnuö hafa þau verið stærsta afl andheimsvalda- sinna hér á landi. En þaö er ekki hægt aö berjast gegn NATO og hernum án þess aö berjast gegn báöum risaveldunum og án þess aötreysta áfjöldann. Sigur vinnst þvl ekki meö ályktunum einum samaneöaárlegumgöngum: sig- ur vinnst meö því aö virkja hvern einasta herstöðvaandstæöing til sameiginlegrarstefnumótunar og með þvi aö gera Samtök herstöðvaandstæöinga aö virkum liösmannasamtökum. Ég skora þvi á alla heiðarlega andlieimsvaldasinna að taka höndum saman i baráttunni fyrir réttri stefnu og starfeháttum innan SHA og i þeim f jöldahreyf- ingum sem til eru utan samtak- anna. Tökum þátt I starfi 1. des-hreyfingarinnar — vekjum uppöfluga baráttu gegn risaveld- unum! Greenpeace samtökin: „Fordœmum órósina w 0 herra Ásgeirsson" „Greenpeace- samtökin höföu ekkert meö árásina á herra As- geirsson aö gera og sllkar aö- geröir fordæmum viö algerlega,” sagöi Alan Thornton frá Green- peace«amtökunum viö VIsi i gær. Tilefniö var aö Frakkinn Roger de la Grandiéresem vill veiöa hér háhyrninga réðst I gær aö Þórði Asgeirssyni skrifstofustjóra sjávarútvegsráöuneytisins og skvetti yfir hann einhverjum rauöum vökva. Frakkinn telur sig hafa verið svikinn af Sædýrasafninu og hér- lendum yfirvöidum um leyfi til aö veiöa háhyrninga. Thornton kom að máli viö Visi og baö um aö það yrði skýrt tekið fram aö Grœnpeace heföi hvergi komiö þarna nærri. „Viö fordæmum persónulegar ofbeldisárásir hver sem mál- staðurinn er. Grandiére er á eng- an hátt tengdur Greenpeace. Hann er ekki einusinni náttúru- verndarmaður þvi hann er aö mótmæla því að fá ekki aö veiöa háhyrninga.” —ÓT Bann við rek- netaveiðum — 1500 þúsund lestir þegar veiddor Sjávarútvegsráðuneytiö hefur ákveðiö aö afturkalla öll leyfi til reknetaveiöa frá hádegi I dag. Ailar reknetaveiöar eru þvl óheimilar frá þeim tima. Siöasti veiöidagur hringnóta- báta er mánudagurinn 20. nóvem- ber. „Þar sem mjög óljóst er hverjir möguleikar eru á söltun og fryst- ingu á sfld það sem eftir er veiði- timabilsins eru skipstjórar báta beönir um aö athuga hvernig standi meö afsetningu á sild, áöur en þeir haldatil veiöa,” segir I til- kynningu ráöuneytisins. Kvikmyndasafnið: Gamlar kvikmyndir vantar Stjórn kvikmyndasafnsins hefur komiö saman ttl fyrsta fundar og þar var ákveöiö aö hefjast handa um söfnun upp- lýsinga og skráningu Islenskra kvikmynda og kvikmynda um is- lensk efni. A siöasta Alþingi voru sam- þykkt lög um Kvikmyndasafn Is- lands og kvikmyndasjóö. I stjórn safnsinseru Arni Björnsson, Er- lendur Sveinsson, Jón Þórarins- son og Magnús Jóhannsson. For- maður er Knútur Hallsson sem er skipaöur af Menntamálaráöu- neytinu án tilnefningar. Safnstjórnin beinir þeim til- mælum tilallra þeirra sem kunna hafa undir höndum framan- greindar kvikmyndir eöa telja sig hafa vitneskjuu’m hvar þær kunni «ð vera niðurkomnar að koma þeim upplýsingum á framfæri. Þeir geta haft samband viö Menntamálaráöuneytið Hverfis- götu 6,s. 25000,eöa viö Fræöslu- myndasafn rikisins, Borgartiini 7 simi 21572. —BÁ—

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.