Morgunblaðið - 11.04.2001, Side 4

Morgunblaðið - 11.04.2001, Side 4
FRÉTTIR 4 MIÐVIKUDAGUR 11. APRÍL 2001 MORGUNBLAÐIÐ DAVÍÐ Oddsson forsætisráðherra kom til höfuðstöðva Evrópusam- bandsins í Brussel í gær frá París og átti tæplega klukkustundar langan fund með Romano Prodi, forseta framkvæmdastjórnar Evr- ópusambandsins. Síðdegis gekk Davíð svo til viðræðna við Javier Solana sem gegnir stöðu sérstaks fulltrúa ESB á sviði utanríkis- og öryggismála. Prodi sagði á sameiginlegum fréttamannafundi hans og Davíðs, sem haldinn var eftir fundinn, að viðræðurnar hefðu verið mjög vin- samlegar og engin ágreiningsmál komið upp. Prodi sagði að samn- ingurinn um Evrópska efnahags- svæðið héldi fullu gildi sínu og framkvæmd samningsins gengi vel fyrir sig. Sömu sögu væri að segja af Schengen-samstarfinu. ,,Nei, nei, nei,“ sagði Prodi þeg- ar hann var spurður hvort stækk- un Evrópusambandsins gæti haft þær afleiðingar að EES-samning- urinn myndi veikjast og smám saman fjara út. Hann sagði að slík þróun væri hvorki vilji Evrópu- sambandsins né í þágu hagsmuna þess. ,,Ég sé engar neikvæðar hlið- ar á stækkuninni, eingöngu já- kvæðar. Fræðilega séð a.m.k. verð- ur til stærra markaðssvæði sem lýtur sömu reglum og með einn og sama gjaldmiðil,“ sagði Prodi. Hann bætti því við að hann teldi að Ísland stæði frammi fyrir tækifær- um vegna þessarar þróunar. Davíð sagðist telja að staða Ís- lands mundi ekki versna við stækkun Evrópusambandsins, heldur þvert á móti myndi hún batna. ,,Ég sagði það við Prodi og eins við Frakklandsforseta [Jacq- ues Chirac] að ég teldi að við hlyt- um í hjarta okkar að fylgja stækk- uninni því þeir kostir sem EES-samningurinn hefði gefið okkur ættu að víkka út með stækk- uninni. Ef við metum EES-samn- inginn þannig að hann hafi verið góður, sem við gerum, þá er stækkun bara tvöföldun á jákvæð- um þáttum samningsins,“ sagði Davíð í samtali við fréttamenn. EES var einstakt tækifæri Aðspurður sagðist Davíð meta stöðu EES-samningsins svo eftir viðræðurnar við Prodi og Jacques Chirac Frakklandsforseta í fyrra- dag að þeir væru báðir þeirrar skoðunar að EES-samningurinn væri mjög traustur og virkaði vel, um þau atriði sem hann næði til. ,,Auðvitað taka menn fram að það eru allmörg atriði sem hann tekur ekki til og stóð aldrei til að hann tæki til. Menn mega ekki rugla því saman að það sé einhver veikleiki þessa samnings. Ég sé ekki annað en að menn hafi góðan skilning á þessari stöðu og stöðu Íslands. Við notfærðum okkur þetta færi sem EES-samningurinn gaf. Ég er ekki viss um að svona færi muni nokkurn tíma gefast nokkr- um öðrum þjóðum. Þannig að þetta var einstakt tækifæri sem við hoppuðum á og festum og það virð- ist vera vilji til þess að viðhalda kostum þess samnings fyrir okkur eins lengi og við kjósum,“ sagði Davíð. Spurður um áhyggjur innan EFTA-ríkjanna um dvínandi áhrif á ákvarðanatöku Evrópusam- bandsins sagði Prodi að það væri alveg ljóst að ríki sem ekki væru aðilar að sambandinu hefðu minni áhrif innan þess en ella væri og tækju ekki þátt í ákvörðunum um innri málefni þess. Davíð kom á óvart hversu hratt stækkun ESB gengur Davíð sagði í samtali við frétta- menn að ein af þeim niðurstöðum sem hann hefði komist að eftir við- ræðurnar væri að líklegra væri að stækkun ESB gengi hraðar fyrir sig en hann hefði búist við. ,,Ég met það svo bæði eftir viðræðurn- ar við Chirac og eins Prodi í dag að hann sé mjög bjartsýnn á að samn- ingar verði kláraðir allfljótt. Hann viðurkennir auðvitað að það séu nokkrir þættir óleystir og löndin mjög mismunandi á vegi stödd en engu að síður sér hann fyrir sér að þetta gangi hraðar heldur en að minnsta kosti lakari spár, sem ég hafði frekar hallast að að myndu ganga eftir miðað við forsöguna, hefðu gefið tilefni til. Þetta kemur aðeins á óvart og þess vegna er þýðingarmikið fyrir okkur að fylgj- ast mjög náið með fyrst það er meiri hraði á þessu heldur en við höfðum búist við,“ sagði Davíð. ,,Við lögðum áherslu á að þótt við værum ekki beinn aðili að stækkuninni myndum við felast með í stækkuninni, vegna eðlis EES-samningsins. Þýðingarmikið væri, ekki bara af pólitískum heldur líka tæknilegum ástæðum, að við fengjum upplýs- ingar og tækifæri til að fylgjast með eins fljótt og hægt væri auð- vitað gengju sambandið og um- sóknarríkin fyrir,“ sagði Davíð. Davíð segist hafa lagt á það áherslu í viðræðunum við Romano Prodi að hann teldi að þó að samn- ingar væru ekki beint bindandi fyrir EFTA-lönd EES-samnings- ins eftir stækkun Evrópusam- bandsins væri það inntak EES- samningsins og alþjóðlegra samn- inga um viðskipti að slíkir þættir sem væru jákvæðir fyrir Ísland og umsóknarlöndin héldu sér. ,,Þó að ekki væri farið ofan í það í smáat- riðum lýsti Prodi því yfir eftir nokkra umhugsun að hann sæi ekki annað en það væri réttur skilningur að þannig ætti að vinna að málinu. Ég taldi þýðingarmikið að koma þessu sjónarmiði að og heyra hans sjónarmið,“ sagði Dav- íð. Áhersla á samvinnu ESB og NATO í öryggismálum Solana lagði áherslu á samvinnu ESB og NATO í öryggismálum. Javier Solana og Davíð Oddsson héldu sameiginlegan fréttamanna- fund að viðræðum þeirra loknum. Solana sagði þá hafa rætt tengsl Evrópusambandsins og Atlants- hafsbandalagsins og stefnu ESB í varnar- og öryggismálum. ,,Við skiptumst á skoðunum um hversu mikla samvinnu þyrfti að viðhafa á milli ESB og NATO. Ísland er að- ildarland NATO og ég lagði áherslu á við forsætisráðherra að haldið yrði áfram samvinnu okkar að sömu grundvallarmarkmiðum sem eru að tryggja stöðugleika í álfunni, stöðugleika og frið í öllum Atlantshafsbandalagsríkjunum og frið í heiminum,“ sagði Javier Sol- ana, en hann er æðsti talsmaður ESB í utanríkis- og öryggismálum og fyrrverandi framkvæmdastjóri NATO. Vel fór á með Davíð og Sol- ana sem lýsti sérstakri ánægju með heimsókn Davíðs til Brussel. Aðildarríki ESB vinna að því markmiði að auka sameiginlega hernaðargetu svo mögulegt verði að senda hersveitir á ófriðarsvæði til friðargæslu og átakastjórnunar. Solana sagði að stefnt væri að því að ná þessu markmiði 2003. Davíð sagði íslensk stjórnvöld hafa góðan skilning á öryggismálastefnu ESB eftir leiðtogafundinnn í Nice þótt þau vildu fylgjast mjög grannt með hvernig haldið yrði á málum við framkvæmd hennar en þessi mál væru á réttri braut. Lagði hann áherslu á að þessi þróun mætti þó ekki veikja varnargetu Atlants- hafsbandalagsins. Davíð Oddsson forsætisráðherra átti viðræður við æðstu fulltrúa ESB í Brussel í gær Prodi segir EES-sam- starfið ganga vel Brussel. Morgunblaðið. Romano Prodi, forseti framkvæmdastjórn- ar Evrópusambandsins, sagði að loknum viðræðum hans og Davíðs Oddssonar í Brussel í gær að hann teldi að EES-samn- ingurinn héldi gildi sínu. Ómar Friðriksson blaðamaður og Ragnar Axelsson ljósmynd- ari fylgdust með heimsókn forsætisráð- herra til Brussel í gær. Það var létt yfir Javier Solana og Davíð Oddssyni við upphaf fundar þeirra í Brussel í gær. ,,Viljið þið koss?“ spurði Solana ljósmyndarana þegar hann heilsaði Davíð, sem skellti upp úr. omfr@mbl.is GÓÐUR gangur hefur verið að undanförnu í viðræðum samninga- nefnda Landsvirkjunar og Reyð- aráls um raforkuverð vegna álvers í Reyðarfirði. Fundað hefur verið stíft undanfarna mánuði, bæði hér á landi og í Noregi. Friðrik Sophusson, forstjóri Landsvirkjunar, segir að samn- ingaviðræður um raforkuverð séu á áætlun. „Það er engin ástæða til að setja einhver sérstök tímamörk, en það liggur fyrir að taka þurfi ákvörðun í þessum efnum í sumar. Það verður hins vegar ekki gert nema aðilar hafi góðar vonir um að náist saman,“ segir hann. Samkvæmt heimildum Morgun- blaðsins hefur andrúmsloftið í við- ræðunum verið mjög gott allt frá upphafi og jafnvel er stefnt að nið- urstöðu á allra næstu vikum. Frið- rik vill engin tímamörk gefa, en segir um viðræðurnar að þær hafi gengið vonum framar. Skýrslu um umhverfismat ekki skilað fyrir páska Fyrir hönd Reyðaráls taka þátt í viðræðunum fulltrúar Norsk Hydro og Hæfis, félags íslenskra fjárfesta. Nú er orðið ljóst að skýrslu um mat á umhverfisáhrifum vegna Kárahnjúkavirkjunar verður ekki skilað inn til Skipulagsstofnunar fyrir páska, eins og að var stefnt. Friðrik segir að sá dráttur skipti engu máli, enda hefði ekki verið unnið í skýrslunni yfir páska hvort eð er. „Þótt frestist um eina viku að leggja skýrsluna fram, á það ekki að hafa nein áhrif á ákvarðanatöku eða framkvæmdir í þessu máli,“ sagði hann. Viðræður um raforkuverð til álvers Reyðaráls Búist við niðurstöðu á næstu vikum

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.