Morgunblaðið - 11.04.2001, Blaðsíða 65

Morgunblaðið - 11.04.2001, Blaðsíða 65
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 11. APRÍL 2001 65 DAGBÓK Ertu meðvitaður um gæði Sjáðu merkið SVEIT Peters Schaltz vann Klaus Adamsen með 169 IMPum gegn 151 í 68 spila úrslitaleik um Danmerkur- meistaratitilinn. Sem er lítill munur – rétt rúmlega ein geimsveifla. Norður gefur; AV á hættu. Norður ♠ G832 ♥ D9 ♦ K73 ♣ KD64 Suður ♠ 75 ♥ KG1084 ♦ ÁD8 ♣ Á32 Vestur Norður Austur Suður -- Pass Pass 1 grand * Pass 2 tíglar ** Pass 2 hjörtu Pass 3 grönd Allir pass * 14-6 punktar ** geimkröfu Stayman Þetta spil er frá úrslita- leiknum og í sagnhafasætinu var Jan Nicolaisen, en Lars Blakset og Matthias Bruun í sigursveitinni voru í AV. Blakset kom út með spaða- fjarkann. Hver er áætlun lesandans? Spilið er vatn á myllu þeirra sem vilja vekja á há- litnum en ekki grandi með 5332-skiptingu, því augljós- lega er rétti samningurinn fjögur hjörtu (þótt reyndar sé alls ekki víst að hann náist frekar eftir hjartaopnun). En hvað um það – Nicolaisen sá ekki aðra vinningsvon en stíflu í spaðalitnum og lét lít- inn spaða úr borði: Norður ♠ G832 ♥ D9 ♦ K73 ♣ KD64 Vestur Austur ♠ ÁKD4 ♠ 1096 ♥ Á532 ♥ 76 ♦ G62 ♦ 10954 ♣ 85 ♣ G1097 Suður ♠ 75 ♥ KG1084 ♦ ÁD8 ♣ Á32 Það gat verið rétt, en ekki í þessu tilfelli. Blakset þótt- ist vita af fjórlit í spaða í borði (annars hefði norður ekki spurt um háliti) og sá ekki hvar fimmti slagur varnarinnar ætti að koma nema á spaða. Hann hafði þá í huga Gx(x) hjá makker eða 10x(x) og G9xx í blindum. Gott útspil og 10 IMPar til Schaltz þar sem suður vann þrjú grönd á hinu borðinu, einmitt eftir hjartaopnun og spaðasögn vesturs. BRIDS Umsjón Guðmundur Páll Arnarson KÆFINGARMÁT er þekkt mátstef sem að jafnaði vek- ur mikla kátínu skákmanna. Sjaldgæft er í skákum stór- meistara að stefið komi upp. Staðan kom upp í slíkri skák á Amber-skákmótinu sem lauk fyrir skömmu. Svart hafði hollenski stórmeistarinn, Jeroen Piket (2632), gegn ung- verska kollega sínum, Zoltan Almasi (2640). Niðurlendingur- inn lét ekki happ úr hendi sleppa og þvingaði and- stæðinginn til uppgjafar með 35...Dg1+!. Hvít- ur yrði mát eftir 36.Hxg1 Rf2#. Lokastaðan í blindskákar- hlutanum varð þessi: 1. Ves- elin Topalov 8 vinningar af 11 mögulegum. 2. Vladimir Kramnik 7½ v. 3.-4. Visw- anathan Anand og Alexei Shirov 7 v. 5. Ljubomir Ljubojevic 6 v. 6.-8. Jeroen Piket, Peter Leko og Zoltan Almasi 5½ v. 9. Vassily Iv- ansjúk 4 v. 10.-11. Anatoly Karpov og Boris Gelfand 3 ½ v. 12. Loek Van Wely 3 v. SKÁK Umsjón Helgi Áss Grétarsson Svartur á leik. Árnað heilla STJÖRNUSPÁ ef t i r Frances Drake HRÚTUR Afmælisbarn dagsins: Þú ert sannkallað orkubúnt og þess vegna gleymist stundum að þú þarft líka á stuðningi og skilningi ann- arra að halda. Hrútur (21. mars - 19. apríl)  Þú stendur frammi fyrir vali sem getur haft mjög örlaga- ríkar afleiðingar í framtíðinni. Gefðu þér því góðan tíma til þess að velta málunum fyrir þér. Naut (20. apríl - 20. maí)  Þig langar til þess að skjóta nokkrum málum á frest en það hefur ekkert upp á sig heldur skaltu bara afgreiða þau strax í dag. Tvíburar (21. maí - 20. júní)  Þú þarft að finna leið til þess að vinna hugmyndum þínum brautargengi. Varastu flókinn málatilbúnað því einfaldleik- inn er oft áhrifamestur. Krabbi (21. júní - 22. júlí)  Þú þarft að verja sjálfan þig betur og hætta að hafa svona miklar áhyggjur af fólki sem þér finnst einblína á þig. Haltu bara þínu striki. Ljón (23. júlí - 22. ágúst)  Þér mun reynast auðveldara að koma hugmyndum þínum á framfæri en þú hugðir. Það þýðir þó ekki að eftirleikurinn verði auðveldari. Meyja (23. ágúst - 22. sept.)  Það eru svo margir mögu- leikar í stöðunni að þér fallast hendur og þú vilt helst enga ákvörðun taka. Versti kostur- inn er þó að gera ekki neitt. Vog (23. sept. - 22. okt.)  Þótt þú viljir helst vera einn um hituna kemstu ekki hjá því að taka höndum saman við samstarfsmenn þína. Það eitt tryggir framgang mála. Sporðdreki (23. okt. - 21. nóv.)  Það er margt sem bendir til breytinga hjá þér og þótt nokkurs kvíða gæti máttu ekki láta hann ná tökum á þér því þessar breytingar geta reynst þér mikil gæfa. Bogmaður (22. nóv. - 21. des.) Orðatiltæki og málshættir eru uppistaðan í skemmilegum leik sem þú skalt bjóða vinum þínum til. Þetta er saklaust gaman og skemmtilegt og fræðandi í senn. Steingeit (22. des. - 19. janúar) Það er affarasælast að vita gjörla með hverjum maður deilir sínum innstu skoðun- um. Fljótfærni í þeim efnum getur reynst afdrifarík. Vatnsberi (20. jan. - 18. febr.) Gættu þess að stökkva ekki upp á nef þér af minnsta til- efni. Sýndu eðlilegri viðbrögð og miðaðu þau við eðli máls- ins. Það tryggir að mark verði tekið á orðum þínum. Fiskar (19. feb. - 20. mars) Þú hefur látið margt reka á reiðanum en nú verður ekki hjá því komist að taka málin föstum tökum. Láttu alla sjálfsmeðaumkun lönd og leið. Stjörnuspána á að lesa sem dægradvöl. Spár af þessu tagi eru ekki byggðar á traustum grunni vísindalegra staðreynda. LJÓÐABROT HVER VILL SITJA OG SAUMA? Hver vill sitja og sauma sumarnóttu á? Burt með deyfð og drauma dag og líf að sjá fram um heiðrík heiðardrög; syngja þar við sólargætt svanir himnalög. Gyllir síblíð sunna silfurhökluð fell, hlær við heilsubrunna heiðbjart jökulsvell; en um hlíðar, holt og börð unir sæl við sumardýrð sauða fögur hjörð. En ef eg þar fyndi æskuprúðan svein, svo við Sjafnar yndi sitja mættum ein sumarnótt við svalan foss: Hver mun siðug silkirein synja þá um koss? Matthías Jochumsson. 50 ÁRA afmæli. Nk.föstudag, 13. apríl, verður fimmtugur Páll Bj. Hilmarsson, Háteigi 18, Keflavík. Hann og eigin- kona hans, Signý Eggerts- dóttir, taka á móti ættingj- um og vinum á morgun, fimmtudaginn 12. apríl kl. 19.30 í Félagsheimili KKK, Vesturbraut 17, Keflavík. Þessar duglegu stúlkur héldu tombólu til styrktar Rauða krossi Íslands og söfnuðu 1.583 kr. Þær heita Heiðdís Lóa Óskarsdóttir og Helena Rut Hannesdóttir. Hlutavelta FRÉTTIR LYFJA fagnar í dag þeim áfanga í sögu fyrirtækisins. Þennan dag árið 1996 var fyrsta verslun Lyfju opnuð í Lágmúlanum eftir að sett voru ný lög um lyfsölu sem tryggðu frelsi í stofnun og rekstri lyfjaverslana. Í tilefni af fimm ára afmæli fyr- irtækisins í dag, verður viðskiptavin- um verslana Lyfju boðið að taka þátt í getraun þar sem hægt verður að vinna fimmtíu þúsund króna inn- borgun á sólarlandaferð með Úrvali/ Útsýn. Getraunaleik- ur fyrir við- skiptavini Lyfja fimm ára í dag ÁRLEGUR aðalfundur Vöku, félags lýðræðissinnaðra stúdenta, fór fram í Lögbergi síðastliðinn laugardag. Þar var ný stjórn kjör- in. Borgar Þór Einarsson laganemi var kjörinn formaður Vöku og tek- ur hann við af Soffíu Kristínu Þórðardóttur. Við formannsskiptin voru Soffíu sem og öðrum stjórnarmeðlimum Vöku þökkuð vel unnin störf á und- anförnu ári. Þórarinn Óli Ólafsson viðskiptafræðinemi var kjörinn varaformaður, Drífa Kristín Sig- urðardóttir laganemi var kjörin rit- ari, Ingibjörg Guðbjartsdóttir laganemi var kjörin gjaldkeri og Guðmundur Rúnar Svansson hag- fræðinemi var kjörinn útgáfustjóri. Í stjórnina voru auk þess kosnir sex meðstjórnendur samkvæmt venju. Þau eru: Davíð Gunnarsson tölvunarfræðinemi, Gerður Beta Jóhannsdóttir hjúkrunarfræði- nemi, Ólafur Guðmundsson líf- fræðinemi, Páll Ragnar Jóhannes- son verkfræðinemi, Svava Björk Hákonardóttir stjórnmálafræði- nemi og Tómas Vignir Guðlaugs- son verkfræðinemi. Þann 7. mars síðastliðinn var Þorbjörg S. Gunnlaugsdóttir laga- nemi valin oddviti Vöku í Stúdenta- ráði. Hún tekur við stöðunni af Þórlindi Kjartanssyni hagfræði- nema sem hefur unnið mikið og gott starf í þágu Vöku á undan- förnum árum. Borgar Þór Einarsson kosinn formaður Vöku 50 ÁRA afmæli. Í dagmiðvikudaginn 11. apríl verður fimmtugur Jó- hann Páll Símonarson, sjó- maður, Stakkhömrum 4, Reykjavík. Eiginkona hans er Viktoría Hólm Gunnars- dóttir. Þau taka á móti gest- um í Ársölum, Hótels Sögu, 2. hæð kl. 18–21. MORGUNBLAÐINU hefur borist eftirfarandi frá Umferðarráði: „Margir nota páskafríið til ferða- laga, meðal annars til fjallaferða og til að heimsækja vini og vandamenn. Miklu máli skiptir að undirbúa vel ferðir sínar og huga að því hvernig fólk njóti sem mests öryggis. Fyrst ber að huga að veðurspá og að leita upplýsinga um færð á vegum lands- ins. Hafa þarf í huga að enda þótt kominn sé apríl getur veður breyst á stuttum tíma og það haft áhrif á færð. Starfsmenn þjónustudeildar Vegagerðarinnar munu sjá til þess að allar nauðsynlegar upplýsingar verði tiltækar um helgina. Hægt er fyrir fólk að fylgjast með textavarp- inu, síðu númer 470 og áfram, og sömuleiðis á vef Vegagerðarinnar www.vegag.is – símanúmer þar er 1777. Því til viðbótar verða útsendingar í Útvarpi Umferðarráðs á skírdag, laugardaginn fyrir páska og á annan í páskum. Að mörgu þarf að huga til að um- ferðin verði sem öruggust og greið- ust um miklar ferðahelgar. Á vorin beinist athyglin oft að hraðanum og mun lögregla verða á ferðinni og fylgjast með hraðakstri og öðrum umferðarlagabrotum. Meðal annars verða myndavélabílar ríkislögreglu- stjóra á vegum landsins og er það viðbót við starf lögreglu í einstökum umdæmum. Meðal þeirra atriða sem ökumenn verða að huga sérstaklega að er var- úð við framúrakstur og að aka alls ekki framúr á heilli óbrotinni línu. Til Umferðarráðs berast margar ábend- ingar um háskalegan framúrakstur eftir hverja helgi og því er mikil ástæða til að koma í veg fyrir þetta stórhættulega athæfi. Yfirborðs- merkingar geta verið orðnar daufar eftir veturinn, þannig að gott er að fólk hafi það fyrir reglu að aka ekki framúr nema að það sjái vel hvernig umferðinni er háttað framan við bíl- inn og geti ekið áfram af fullu öryggi. Notkun bílbelta er lagaskylda og þar að auki hníga öll skynsemisrök að því að fólk spenni þau öryggis síns vegna. Þá má áfengi og akstur aldrei eiga samleið eins og svo oft hefur verið fjallað um. Það á jafnt við á vegum og utan vega. Því miður verða oft alvarleg slys á vélasleðamönnum og eru þeir sér- staklega hvattir til að sýna ýtrustu aðgát og tillitssemi, meðal annars þar sem göngu- og skíðafólk er á ferð. Umferðarráð sendir ferðafólki óskir um gleðilega páska og vonar að allir komist heilu og höldnu heim í lok ferðar.“ Umferðarráð hvetur til aðgæslu um páska Þú sagðir að Jesú lifði á meðal okkar. Fáum við þá ekki páskafrí aftur? Má Siggi koma út að leika. Með morgunkaffinu Fermingarmyndatökur Erling Ó. Aðalsteinsson Ljósmyndastofa Laugavegi 24, sími 552 0624 Pantanir í síma 552 0624 frá kl. 13-18
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.