Morgunblaðið - 21.10.2001, Side 30
LISTIR
30 SUNNUDAGUR 21. OKTÓBER 2001 MORGUNBLAÐIÐ
GUÐNÝ Guðmundsdóttir fiðluleik-
ari og Peter Máté píanóleikari leika
á Tíbrártónleikum í Salnum í kvöld
kl. 20.00. Á tónleikunum verða bæði
einleiksverk fyrir fiðlu og verk fyrir
fiðlu og píanó. Langt er síðan Guðný
hefur haldið einleikstónleika sem
þessa, og tónleikarnir því kærkomið
tækifæri til að heyra hana leika sjö
verk sem spanna 201 ár í tónlistar-
sögunni. Elsta verkið, Adagio KV
261 samdi Wolfgang Amadeus Moz-
art árið 1776, en það yngsta, Fratres
eftir Arvo Pärt var samið árið 1977.
Guðný segir að á efnisskránni séu
mörg uppáhaldsverk. „Ég er líka
stundum að grafa upp gamlar nótur
og þá hugsar maður kannski: Æ
hvað það er langt síðan ég hef spilað
þetta! Það er skemmtilegra en að
vera með eitthvað sem maður hefur
verið að spila síðustu árin.“
Tónleikarnir hefjast á Sónötu KV
454 eftir Mozart. Mozart hóf barn-
ungur að semja sónötur fyrir píanó
og fiðlu og samdi alls um 30 slíkar.
Þar er píanóið oftar en ekki í aðal-
hlutverki. Í þessari sónötu, sem
samin var árið 1784 ríkir þó jafnræði
milli hljóðfæranna og fiðlan nýtur
sín til jafns við píanóið. „Það var
auðvelt að velja þessa sónötu; Út-
varpið valdi hana eiginlega fyrir
mig. Það á að hljóðrita allar fiðlu-
sónötur Mozarts með íslenskum
fiðluleikurum og það var bara dregið
úr hatti hvaða verk kæmi í hlut
hvers; og þessi kom til okkar Pet-
ers.“ Hallgrímur Helgason er næst-
ur á dagskrá, en Guðný leikur ein-
leikssónötu hans frá 1972. „Þetta
verk er búið að liggja á púltinu mínu
frá því það var samið. Hallgrímur
kom með verkið til mín stuttu eftir
að hann samdi það, en mér leist ekk-
ert á það, það leit ekki vel út í hand-
ritinu. Þegar Björn Ólafsson lék það
á Listahátíð 1974 fannst mér það
mjög skemmtilegt, en gaf mér ekki
tíma fyrr en alllöngu síðar til að líta
á það. Nóturnar voru gefnar út, og
ég var alltaf að kíkja á verkið af og
til, en það var ekki fyrr en ég fór að
huga að því að gefa út einleiksdisk
sem kemur vonandi út fyrir jólin, að
ég ákvað að velja það á diskinn.
Þetta er mjög vel samið verk, og
greinilegt að Hallgrímur þekkti
hljóðfærið vel. Þetta er gamaldags
verk, og á þeim tíma sem verkið var
samið, þótti það tabú að semja í
svona gamaldags stíl. Núna er fólk
farið að hugsa öðruvísi, og tónskáld
á okkar tímum, eins og Arvo Pärt,
hafa átt þátt í að breyta þessu hug-
arfari. Í dag er ekkert athugavert
við það að fara aftur í gamla tímann,
ró og kyrrð, hljóma og harmóníu, og
mér fannst gaman að hafa saman
verk Hallgríms og Pärts.“ Verkið
sem Guðný nefnir hér heitir Fratr-
es, og var upphaflega samið fyrir 3
raddir, 7 hljóðfæri og slagverk.
„Pärt tók það fram að hljóðfærin sjö
mættu vera hvort heldur gömul eða
ný. Það sýnir víðsýni hans og við-
urkenningu á því gamla. Síðar um-
ritaði hann verkið fyrir fiðlu og pí-
anó og bætti við inngangi fyrir
fiðluna. Hann umritaði það svo enn
aftur fyrir tólf sellóleikara, og er sú
gerð nær þeirri upprunalegu. Í út-
gáfunni fyrir fiðlu og píanó er fiðlan
virkari og hefur meira að gera; í hin-
um útgáfunum er harmónían aðal-
atriðið, óskaplega róleg og verkið er
þá nánast eins og hugleiðslutónlist.“
Ástarsöngurinn sem hreif
Guðný segist ekki hafa spilað
Havanaise op. 83 eftir Saint-Saëns í
meir en tuttugu ár. Þetta er blóð-
heitt og spánskt smálag eins og
nafnið bendir til, upphaflega samið
fyrir fiðlu og píanó, en er einnig oft
leikið með hljómsveit. Þetta er
glæsilegt verk og mjög vinsælt á
efnisskrám fiðluleikara um víða ver-
öld.
Tékkinn Josef Suk, sem var
tengdasonur Dvoráks, samdi Písen
lásky, eða Ástarsöng aðeins nítján
ára gamall. Þar tjáir hann Otylku,
dóttur Dvoráks, ást sína. „Það má
segja að hann hafi verið ástfanginn
alveg uppfyrir haus. Hann samdi
verkið fyrst fyrir píanó, og það var
fyrsta lagið í flokki lítilla einleiks-
verka. Síðan hafa margir sóst eftir
þessu lagi og umritað það í ýmsum
útgáfum. Við Peter fundum enga út-
gáfu sem okkur líkaði nógu vel,
þannig að það sem við leikum er ein-
hvers konar samsuða af nótunum
sem við áttum, því sem við höfum
heyrt á plötum og okkur fannst fara
best. Þannig er þetta að hluta til út-
sett af okkur.“
Henri Wieniawskíj var bæði tón-
skáld og afburða fiðluleikari. Guðný
leikur eitt frægasta verk hans, Pol-
onaise de concert op. 4 í D-dúr.
„Þetta verk er óskaplega mikið spil-
að, en þó er það ekki eitt af þeim
sem ég hef verið með í fingrunum í
langan tíma. Ég er búin að kenna
þetta verk svo oft, að ég tók mig til
og lærði það sjálf, þannig að það er
nýtt fyrir mig að spila það á tón-
leikum þó ég þekki auðvitað hverja
nótu í því.“ Adagio eftir Mozart er
líka verk sem Guðný hefur oft kennt
nemendum sínum, en lék fyrst á tón-
leikum fyrir tveimur árum. „Ég veit
ekki hvernig verkið er til komið af
Mozarts hendi, en það eru taldar lík-
ur á því að hann hafi samið þetta
sem hægan þátt í fiðlukonsert, sem
hefur þá hugsanlega að öðru leyti
glatast, eða jafnvel aldrei verið full-
saminn. Eins og Pólónesan eftir
Wieniawskíj er þetta fyrir fiðlu og
hljómsveit, en útsett fyrir fiðlu og
píanó.“
Gott að eiga Pétur að
Guðný segir afar mikilvægt að
eiga að píanóleikara eins og Peter
Máté, sem hún kallar bara Pétur
upp á íslensku, því honum finnst líka
gaman að leika tónlist af þessu tagi.
„Sumir píanóleikarar vilja bara spila
sónötur. Það er mjög gaman, en það
er kammertónlist og annars eðlis.
Mér finnst að maður þurfi stundum
að reyna meira á sig og spila tækni-
lega erfiðari verk, þar sem fiðlan er í
fyrirrúmi.“ Tónleikar af þessu tagi
eru kallaðir recital á ensku. Það þýð-
ir að eitt hljóðfæri eða einsöngvari
er í sviðsljósinu, þótt um meðleik pí-
anós eða annars hljóðfæris sé að
ræða. Á íslensku er ekki til orð yfir
þess konar tónleika, því orðið ein-
leikstónleikar hlýtur að eiga við um
aðeins eitt hljóðfæri. Þó er það orð
oft notað um recital tónleika þótt
hljóðfærin séu í rauninni tvö. Guðný
segir hljóðfæraleikara allt of sjaldan
halda tónleika af þessu tagi. „Það er
orðið svo mikið um tónleika al-
mennt, og það virðist vera mikill
markaður fyrir kammertónlist, en
þetta form er orðið sjaldgæft nú.
Tónleikar Tónlistarfélagsins í gamla
daga voru recital tónleikar, en að
eitt hljóðfæri sé svona í sviðsljósinu
er ekki lengur svo algengt. Á sam-
leikstónleikum tveggja hljóðfæra er
oftar um að ræða verk samin sem
dúó eins og sónöturnar.
Það liggur gífurleg vinna að baki
tónleika af þessu tagi, líka fyrir
meðleikarann, því hann þarf að
fylgja öllum duttlungum einleikar-
ans.“
Guðný segir að mikil vinna tónlist-
arfólks og tímaleysi komi í veg fyrir
að margir, sem gjarnan vildu, leggi í
þetta. „Fók hefur bara ekki tíma til
að undirbúa svona tónleika. Önnur
störf og annars konar tónleikahald
kemur í veg fyrir það. En ég hlakka
mjög til að spila þetta prógramm.“
Guðný Guðmundsdóttir fiðluleikari og Peter Máté píanóleikari á tónleikum í Salnum
Morgunblaðið/Ásdís
Peter Máté og Guðný Guðmundsdóttir á æfingu í Salnum.
Maður þarf stundum
að reyna meira á sig
og leika erfiðari verk
CANDICE Breitz, myndlistarmaður
og gestakennari við LHÍ, flytur fyr-
irlestur um eigin verk í LHÍ í Laug-
arnesi nk. mánudag kl. 12.30. Can-
dice ólst upp í Jóhannesarborg en
býr og starfar í New York og Berlín.
Frá 1996 hefur hún tekið þátt í fjöl-
mörgum alþjóðlegum sýningum.
Verk sín vinnur hún með popp-menn-
ingu og skemmtanaiðnaðinn í huga.
Þá sýna nokkrir nemendur LHÍ á
textíl- og hönnunarsviði myndbönd
og skyggnur nk. miðvikudag kl.
12.30, frá ferð sinni til Parísar en þar
tóku þeir þátt í að undirbúa tískulínu
hjá hönnuðinum Delphine Murat fyr-
ir tískuvikuna í París.
Leifur Þorsteinsson kennir á fram-
haldsnámskeiðinu „Myndvinnsla III.
Photoshop“ sem hefst fimmtudaginn
29. október. Höskuldur Harri Gylfa-
son kennir á námskeiðinu „Painter“
sem hefst 5. nóvember. Með „Pain-
ter“ er hægt að setja saman ljós-
myndir og breyta litum. Notaðir eru
stafrænir pennar, þráðlausir, sem
koma í stað músar. Námskeið í
Photoshop er nauðsynlegur undir-
búningur.
Námskeið í módelteikningu I hefst
29. október. Lögð er áhersla á stöðu,
hlutföll og líkamsbyggingu. Kennari
er Hafdís Ólafsdóttir myndlistar-
maður.
Fyrirlestrar og
námskeið í LHÍ