Morgunblaðið - 06.12.2001, Blaðsíða 11
FRÉTTIR
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 6. DESEMBER 2001 11
FYLGI Samfylkingarinnar lækk-
aði um tvö prósentustig milli mán-
aða og er nú ríflega 16%, sam-
kvæmt símakönnun sem Gallup
gerði 31. október til 27. nóvember
sl.
Fylgi Vinstri-grænna fór upp í
25% og hefur ekki verið jafnhátt
síðan í febrúar sem leið. Fylgi
Sjálfstæðisflokksins fór úr 46% í
42% eins og í september. Fylgi
Framsóknarflokksins er óbreytt
frá október eða 13% og sömu sögu
er að segja af Frjálslynda flokkn-
um sem er með tæplega 3% fylgi.
61% aðspurðra segist styðja rík-
isstjórnina.
Úrtakið í könnuninni var 2.194
manns á aldrinum 18 til 75 ára.
Úrtakið var valið með tilviljun úr
þjóðskrá og var svarhlutfall tæp-
lega 70%. Vikmörk eru 1–3%.
Einnig var ánægja með störf
ráðherra Sjálfstæðisflokksins
mæld. 52,7% voru ánægðir með
störf Geirs H. Haarde fjármála-
ráðherra, 51,6% með störf Davíðs
Oddssonar forsætisráðherra,
50,4% með störf Björns Bjarna-
sonar menntamálaráðherra, 34,6%
með störf Sólveigar Pétursdóttur
dóms- og kirkjumálaráðherra, 32%
með störf Sturlu Böðvarssonar
samgönguráðherra og 25,7% með
störf Árna M. Mathiesen sjávarút-
vegsráðherra.
Spurningin um störf ráð-
herranna var spurð 14. til 27. nóv-
ember og var úrtakið 1.087 manns
en samsetning úrtaks og svarhlut-
fall var sambærileg við fylgiskönn-
unina. Vikmörk eru 1–4%.
Samfylkingin með 16%
fylgi í Gallup-könnun
EKKERT hefur spurst til tveggja
trippa og tveggja folalda sem
hurfu úr túninu við bæinn Hofs-
staði í Skagafirði fyrir um mánuði.
Þrjú þeirra eru vindótt en slík
hross eru mjög eftirsótt, ekki síst í
útlöndum, og er Björn Runólfsson,
bóndi á Hofsstöðum, þess fullviss
að þeim hafi verið stolið.
Björn og nágrannar hans í
Skagafirði hafa mikið leitað að
hrossunum og hafa nágrannar
hans m.a. smalað sínu stóði til að
ganga úr skugga um að hrossin frá
Hofsstöðum væru ekki þar á meðal.
Vindóttu trippin tvö voru
tveggja vetra hryssa og þriggja
vetra foli. Einnig hvarf vindótt
hestfolald og rauð hryssa en bæði
gengu þau enn undir hryssunum
þegar þau hurfu. Öll hrossin voru
ómörkuð og ómerkt.
Björn tók eftir því að trippin
voru horfin hinn 29. október og fol-
öldin hurfu um viku síðar. Komi
þau ekki í leitirnar verður Björn
fyrir umtalsverðu tjóni. „Þetta er
kjaftshögg,“ segir Björn, sem taldi
sig eiga ágæta möguleika á að selja
trippin til Svíþjóðar. Þá hafði verið
rætt um að vindótta folaldið færi í
Svarfaðardalinn. „Ég hef ekki far-
ið ennþá með þetta í lögregluna en
ég ætla að gera það,“ segir Björn.
Um 40-50 hross eru í stóðinu á
Hofsstöðum og hefur Björn ekki
annan búskap en hann er 82 ára
gamall. „Ég nenni ekki að standa í
þessu, ég hef ekki þrek í það. Ef ég
væri ungur maður væri ég búinn
að finna trippin,“ segir Björn.
Trippa og
folalda frá
Hofsstöðum
enn leitað
MEÐALHITI var yfir meðallagi í
Reykjavík og á Akureyri í nóv-
ember, en mánuðurinn var fremur
umhleypingasamur og þegar á
heildina er litið var hlýtt og vætu-
samt.
Í Reykjavík var meðalhitinn 1,8
gráður sem er 0,7 gráðum yfir
meðallagi, samkvæmt upplýsingum
frá Veðurstofu Íslands. Úrkoman
mældist í rúmu meðallagi, 80,2
mmm en sólskinsstundir voru 18,9
sem er 20,1 færri en í meðalári.
Á Akureyri var meðalhitinn 1,1
gráða og er það 1,5 gráðum yfir
meðallagi. Úrkoman mældist einn-
ig í rúmu meðallagi eða 60,1 mm
og sólskinsstundir voru 8,2 sem er
6,8 stundum minna en í meðalári.
Á Hveravöllum var meðalhitinn
-4,1 gráða. Úrkoman mældist 91,3
mmm og sólskinsstundir voru 11,4.
Kalt var fram undir 10. nóv-
ember en þá var vonskuveður um
allt land. Eftir það voru talsverð
hlýindi þar til undir lokin að gerði
snarpt kuldakast og festi snjó víða
um land. Í nóvember 1999 og 1997
var talsvert hlýrra um allt land en
1999 var álíka mikill snjór í
Reykjavík.
Haustið hlýtt og vætusamt
Haustið, þ.e. október og nóvem-
ber, var hlýtt og vætusamt fyrir
norðan og austan, einkum í októ-
ber. Meðalhitinn var 1,4 gráðum
yfir meðallagi, bæði í Reykjavík og
á Akureyri. Heldur hlýrra var 1997
og svipaður hiti var 1999.
Meðalhitinn í Reykjavík var 4,0
gráður og úrkoman í tæpu með-
allagi eða 143,2 mmm. Á Akureyri
var meðalhitinn 2,7 gráður en úr-
koman var 2/3 hlutum umfram
meðallag eða 186,8 mmm. Sólskins-
stundir voru 4,4 fleiri en venja er í
Reykjavík eða 126,4 og 12,8 færri
en venja er á Akureyri eða 54,2.
Hiti yfir meðal-
lagi í nóvember
TVEIR ungir karlmenn voru fluttir
á sjúkrahús eftir árekstur á Vestur-
vör við Litluvör í Kópavogi laust eft-
ir klukkan þrjú í gærdag. Annar bíll-
inn snerist á veginum í hálku og lenti
á hinum. Þurfti aðstoð slökkviliðs við
að ná öðrum ökumanninum út úr bif-
reið sinni. Ökumenn voru einir í bíl-
unum og eru meiðsl þeirra talin
minni háttar, að sögn lögreglu.
Tveir á sjúkrahús
eftir árekstur
♦ ♦ ♦