Morgunblaðið - 06.12.2001, Blaðsíða 2
FRÉTTIR
2 FIMMTUDAGUR 6. DESEMBER 2001 MORGUNBLAÐIÐ
Fylgstu
með
nýjustu
fréttum
www.mbl.isBros á vör Fergusons
á nýjan leik /B1
Haukar mæta Fram
í bikarúrslitaleiknum /B1/B2
4 SÍÐUR16 SÍÐUR
Sérblöð í dag
VIÐSKIPTABLAÐ MORGUNBLAÐSINS
S É R B L A Ð Á F I M M T U D Ö G U M U M V I Ð S K I P T I , S J Á V A R Ú T V E G & A T H A F N A L Í
VEL hefur gengið að ráða í stöður
hjá Leikskólum Reykjavíkur að
undanförnu. Bergur Felixson
framkvæmdastjóri segir fólk á bið-
lista eftir störfum á stöku leik-
skóla. Hann telur ekki verða vand-
kvæði á að manna nýjan leikskóla
við Háteigsveg sem opnaður verð-
ur á nýju ári. Þar þarf hátt í tutt-
ugu starfsmenn.
Alls starfa um 1.700 manns hjá
Leikskólum Reykjavíkur. Bergur
segir jafnan nokkra hreyfingu á
hluta starfsfólksins, ekki síst á
haustin, og oft þurfi að ráða milli
200 og 300 manns. Haustið 2000
hafi verið erfitt að fá fólk þar sem
kjörin þóttu léleg og vegna þenslu
voru ýmis betur launuð störf í
boði.
Bergur segir þetta hafa snúist
við í ár, í stað þenslu sé nú kreppa
og með nýjum samningum þeirra
sem starfa á leikskólum hafi kjörin
batnað. Því hafi reynst vandræða-
lítið að fá nógu margt starfsfólk og
í stöðu tilvikum sé fólk á biðlista
eftir störfum. Hann segir það
stefnu leikskólanna að deildar-
stjórar séu helst menntaðir leik-
skólakennarar. Meðan reynt sé að
fá þá til starfa séu ófaglærðir á
biðlista á stöku stað.
Þá segir framkvæmdastjóri
Leikskóla Reykjavíkur að nú sé
búið að útvega langflestum börn-
um eldri en tveggja ára pláss og í
einstaka hverfi einnig þeim sem
yngri eru.
Auðveldara en áður að manna Leikskóla Reykjavíkur
Fólk á biðlista eftir
vinnu í stöku skóla
SIGURÐUR
Garðarsson í
Borgarpylsum í
Skeifunni 5 býð-
ur upp á sér-
stakar jólapylsur
með hangikjöts-
bragði nú í des-
ember.
Sigurður segir
að sér hafi dottið
í hug að bjóða upp á sérstakar jóla-
pylsur og fengið Kjötvinnsluna hf. í
Kópavogi til að útbúa þær. „Svona
jólapylsur með hangikjötsbragði og
með kartöflumús og rauðkáli hafa
mælst vel fyrir og koma mönnum í
jólaskap,“ segir Sigurður, sem er
með ýmsar aðrar tegundir á boð-
stólum, m.a. Honolulu-pylsur með
ananaskurli. „Þetta eru sannkall-
aðar sælkerapylsur, enda pylsu-
vagn sælkeranna,“ segir Sigurður.
Jólapylsur
með hangi-
kjötsbragði
Sigurður
Garðarsson
NÁGRANNAR brutu upp útidyra-
hurðina í kjallaraíbúð við Úthlíð 11 í
fyrrinótt og björguðu konu út úr íbúð-
inni sem var full af reyk. Talið er að
eldurinn hafði kviknað út frá kerti og
borist í sófa í stofunni. Talsverður eld-
ur var í íbúðinni þegar slökkvilið bar
að. Húsið við Úthlíð 11 er tvær hæðir
með risi og kjallara.
Jorith Kjeldsen sem býr í Úthlíð
númer 8 sá eldinn út um eldhúsglugg-
ann hjá sér laust fyrir klukkan hálf-
þrjú í fyrrinótt. Hún hringdi þegar í
112 og hljóp því næst yfir götuna.
Hún sá engan innandyra í kjallaran-
um og varð ekki vör við neinn. „Ég
hringdi bara öllum bjöllunum því ég
var viss um að allir væru sofandi inni í
húsinu,“ sagði hún í samtali við Morg-
unblaðið í gær. Jorith er er dönsk, frá
smábænum Skodborg á Jótlandi en
hefur unnið hér á landi í um 2½ ár.
Fékk reykeitrun
Íbúar á efri hæðum hússins vökn-
uðu við hringingar Jorith og rýmdu
þegar húsið. Anna Eyjólfsdóttir, sem
býr á annarri hæð hússins, segir að
tveir íbúanna hafi því næst brotið upp
hurðina í kjallaranum. Fyrir innan
dyrnar lá konan sem bjó í kjallaran-
um meðvitundarlaus en svo virðist
sem hún hafi liðið út af áður en hún
komst út. Þeir báru konuna út úr
íbúðinni og var hún síðan flutt með
sjúkrabíl á slysadeild Landspítala –
háskólasjúkrahúss í Fossvogi. Konan
hlaut reykeitrun en var þó útskrifuð
af spítalanum í gær. Anna vildi koma
á framfæri þakklæti til nágranna síns
sem vakti sig og aðra íbúa hússins.
Miklar skemmdir urðu á kjallara-
íbúðinni, bæði af völdum elds og
reyks. Slökkviliðið fékk tilkynningu
um eldinn laust fyrir klukkan þrjú í
fyrrinótt og lauk slökkvistarfi tæp-
lega klukkustund síðar. Fjórir reyk-
kafarar fóru inn í íbúðina og gekk
slökkvistarf vel.
Reykur barst ekki í aðrar íbúðir
hússins en hann komst í sameign.
Nágrannar björguðu
konu úr brennandi
íbúð við Úthlíð
Lá meðvit-
undarlaus
fyrir innan
dyrnar
BJÖRGUNARSVEITIR frá Vík í
Mýrdal, Álftaveri og Kirkjubæjar-
klaustri leituðu í gær skipverjans
sem saknað er af Ófeigi VE. Fjörur
voru gengnar frá Reynisfjalli austur
til Eldsvatnsóss sem er á Meðal-
landsfjöru. Um þrjátíu björgunar-
sveitarmenn tóku þátt í leitinni sem
var árangurslaus og verður henni
framhaldið í birtingu í dag.
Morgunblaðið/RAX
Fjörur
gengnar
LAGT er til að bifreiðagjald hækki
um 10% um næstu áramót, eða um
260 milljónir króna, í frumvarpi um
ráðstafanir í ríkisfjármálum, sem
útbýtt var á Alþingi síðdegis í gær.
Einnig er lagt til að vopnaleitar-
gjald hækki úr 125 kr. í 300 kr. á
hvern farþega sem ferðast frá Ís-
landi.
Hækka á veiðieftirlitsgjald úr
462 kr. í 593 kr. á hvert þorskígild-
istonn skv. frumvarpinu og er
áætlað að hækkunin skili 50 millj.
kr. í auknum tekjum ríkisins. Sótt
er um sérstaka heimild til að inn-
heimta gjald fyrir dvöl sjúklinga á
svonefndum sjúkrahótelum og
lækka á útgjöld ríkissjóðs vegna
sóknar- og kirkjugarðsgjalda um
134 milljónir kr. á næsta ári skv.
frumvarpinu.
Lækka á útgjöld í heilbrigð-
ismálum um 500 milljónir
Meirihluti fjárlaganefndar af-
greiddi breytingartillögur sínar við
fjárlagafrumvarpið í gærkvöld og
verður þeim útbýtt á Alþingi í dag.
Skv. heimildum Morgunblaðsins er
lagður til niðurskurður í fram-
kvæmdum og rekstri, m.a. 200
milljónir vegna frestunar fram-
kvæmda við byggingu fyrir ráðu-
neyti á stjórnarráðsreit, 83 millj.
kr. vegna framkvæmda við Alþingi,
200 millj. kr. vegna Náttúrufræði-
húss og um 500 millj. kr. í ýmsum
heilbrigðismálum, aðallega vegna
breytinga á þátttöku ríkisins í
lyfjakostnaði og hækkunar á komu-
gjaldi til sérfræðinga. Þá er gert
ráð fyrir 800 millj. kr. lægri
greiðslum vegna lífeyrisskuldbind-
inga á næsta ári en gert hafði verið
ráð fyrir í fjárlagafrumvarpinu,
skv. upplýsingum blaðsins.
Breytingatillögur fjárlaganefnd-
ar fyrir þriðju og síðustu umræðu
um fjárlög ársins 2002 verða lagðar
fram síðdegis í dag, en gert er ráð
fyrir umræðu um þau á morgun og
atkvæðagreiðslu á laugardag.
Sparnaðartillögurnar í ríkisfjármálum lagðar fyrir Alþingi
Bifreiðagjald
hækki um 10%
3,4 milljarðar/10